Fréttablaðið - 08.04.2016, Page 20
PönnuPitsa með
jalaPeÑo-osti og svePPum
Pitsubotn
240 ml volgt vatn (mikilvægt
að vatnið sé volgt)
2½ tsk. þurrger
1 msk. hunang
400-450 g brauðhveiti
1 tsk. salt
2 msk. olía
Blandið volgu vatni, geri og hunangi
saman í skál.
Leggið viskustykki yfir skálina og
leyfið gerinu að leysast upp í róleg-
heitum, eða í 7-10 mínútur. Um leið
og það byrjar að freyða í skálinni er
gerblandan tilbúin.
Hellið gerblöndunni í hræri-
vélarskál og bætið öllum hráefn-
um saman við, það er góð regla að
bæta hveitinu smám saman við. Það
gæti þurft minna en meira af hveit-
inu.
Látið hnoðast í vélinni í 6-10 mín-
útur eða þar til deigið er orðið í lag-
inu eins og kúla, einnig á það ekki
að vera klístrað.
Setjið viskustykki yfir hrærivélar-
skálina og leyfið deiginu að hefast
í klukkustund eða þar til það hefur
tvöfaldast að stærð.
Fletjið deigið út, þetta deig dugar
í tvær pitsur.
Hitið smávegis af olíu á pönnu,
passið að pannan sé mjög heit
þegar þið setjið deigið á pönnuna.
Steikið pitsubotninn á pönnunni í
nokkrar mínútur eða þar til botn-
inn er orðinn stökkur, bætið þá kjúk-
lingnum ofan á og sáldrið ferskum
mozzarella osti yfir.
Bakið í ofni við 200°C í 5-7 mín-
útur eða þar til osturinn er gullin-
brúnn.
Fylling
1 dós sýrður rjómi
1 jalepeño-ostur
1 hvítlauksrif
Salt og nýmalaður pipar
200 g sveppir steiktir upp úr
smjöri og hvítlauk
Hægeldaðir tómatar
Smátt söxuð steinselja
Fletjið út pitsudeigið og legg-
ið á pappírsklædda ofnplötu. Rífið
niður jalepeño-ostinn og hrær-
ið saman við sýrða rjómann, press-
ið hvítlauksrifið og blandið saman
við. Kryddið til með salti og pipar.
Smyrjið ostablöndunni á botninn.
Steikið sveppina upp úr smjöri og
pressið eitt hvítlauksrif út í pottinn,
saFaríkur skyndibiti evu
Eva Laufey Hermannsdóttir gaf girnilegar uppskriftir að skyndibita í þætti sínum í gær. Þar má nefna pönnupitsu með
jalapeño-osti og sveppum, borgara með „pulled pork“ og geggjaðan mjólkurhristing með Oreo-kexkökum.
þerrið sveppina vel áður en þið setj-
ið þá á pitsuna. Bakið við 220°C í
10-12 mínútur. Ofnar eru auðvitað
misjafnir og það gæti verið að þið
þurfið að baka hana lengur en pits-
an er klár þegar hún er gullinbrún.
Það er mjög gott að setja hægeld-
aða tómata og smátt saxaða stein-
selju yfir pitsuna í lokin.
oreo-mjólkurhristingur
1/2 l eða 4 dl vanilluís
2 dl nýmjólk
Oreo-kexkökur, magn eftir
smekk
Rjómi
Setjið allt í blandarann og maukið
þar til ísblandan verður silkimjúk.
Þið stjórnið þykktinni að sjálf-
sögðu með mjólkinni. Þeytið rjóma
eða það sem betra er notið rjóma-
sprautu og sprautið smá rjóma yfir
í lokin.
„Pulled Pork“ í bbq-sósu
700-800 g úrbeinaður
svínahnakki
1 tsk. paprikukrydd
1 tsk. cumin-krydd
1 tsk. Bezt á allt krydd
Salt og pipar
1 laukur
2 hvítlauksrif
1 msk. ólífuolía
Kryddið kjötið með kryddinu sem
talið er upp hér að ofan. Brúnið
kjötið á öllum hliðum upp úr ólífu-
olíu í víðum potti sem má fara inn í
ofn. Skerið niður einn lauk og bætið
honum út í pottinn ásamt tveim-
ur hvítlauksrifjum. Leyfið kjötinu að
malla í pottinum við vægan hita á
meðan þið útbúið BBQ-sósuna.
bbq-sósa
1 msk. ólífuolía
1 laukur
1½ dl tómatasósa
1-2 msk. balsamikgljái
1 msk. hunang
Salt og pipar
1 tsk. paprikukrydd
1 tsk. cumin-krydd
Saxið niður laukinn og steikið upp
úr olíunni í eina til tvær mínútur.
Bætið því næst hinum hráefnun-
um saman við og leyfið sósunni að
malla í smástund. Hellið síðan sós-
unni yfir svínakjötið og setjið lokið
á pottinn og inn í ofn við 110°C í 6-8
klst. Berið svínakjötið fram í góðu
brauði, með salati og pikkluðum
rauðlauk.
Pikklaður rauðlaukur
1 rauðlaukur
1 dl hvítvínsedik
1 msk. sykur
Skerið rauðlauk í jafn stórar sneið-
ar, setjið í krukku eða skál og hell-
ið hvítvínsediki og sykri saman við.
Blandið vel saman og geymið í kæli í
lágmark klukkustund.
Matargleði
Evu Laufeyjar
Hermannsdóttur
Rauði liturinn frá hægelduðu tómötunum og sá græni frá steinseljunni gerir pönnupitsuna virkilega fallega.
Borgari með pulled pork í BBQ-sósu og með pikkluðum rauðlauk.
Þeir gerast vart girnilegri en þessi Oreo-mjólkurhristingur.
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Hinsti vilji
Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomu-
lag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til
samtals um það sem er þér mikilvægast við
lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum
mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla
upplýsinga er þér að kostnaðarlausu.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Elín Sigrún Jónsdóttir,
lögfræðingur
Útfararstofa kirkjugarðanna
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Endalaust
ENDALAUST
NET
1817 365.is
8 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
F
D
-5
1
3
4
1
8
F
D
-4
F
F
8
1
8
F
D
-4
E
B
C
1
8
F
D
-4
D
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K