Fréttablaðið - 08.04.2016, Qupperneq 22
Linda Hilmarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hress, segir að jóga
og hjólatímar séu á mikilli uppleið.
„Fólk sem hjólar utandyra er líka
innandyra. Við erum að fá ný raf-
ræn mælitæki á hjólin svo fólk
getur fylgst með púlsi og árangri
í tímanum. Það er mjög hvetjandi
og skemmtileg nýjung. Lífgar upp
á hjólaferðina. Þetta er nýjung þar
sem öpp og tenging við netheima
er greið,“ segir Linda. „Jóga er
frábær leið til að kyrra hugann,
slökkva á símanum og koma lík-
amanum í gott form.“
Linda segir það rétt að gömlu
góðu æfingarnar séu vinsælar um
þessar mundir. „Við bjóðum upp á
æfingar í sal sem heita warm fit.
Salurinn er volgur og við gerum
allar gömlu og góðu æfingarnar án
hjálpartækja og blöndum saman
við þær þeim allra nýjustu. Það
er ótrúlega áhrifaríkt að stunda
þessar æfingar með teygjum og
síðan slökun. Heildræn uppbygg-
ing fyrir líkamann. Heitir tímar
eru rosalega góðir fyrir húðina og
þetta hafa verið vinsælustu tím-
arnir okkar. Margir vilja stunda
alls konar líkamsrækt og breyta
gjarnan til með því að stunda
warm fit einn daginn en fara svo
aðra daga í body pump, þar sem
æfðar eru lyftingar með lóðum,
eða spinning. Það er gott að breyta
til og stundum að „sjokkera“ lík-
amann.“
Linda hefur rekið Hress í tæp
þrjátíu ár og margir viðskipta-
vinir hafa fylgt stöðinni alla tíð.
„Sumir okkar kúnna hafa elst með
stöðinni og eru í hörkuformi. Fólk
sem stundar heilsurækt reglulega
og eldist mjög vel. Það er hægt
að þjálfa líkamann eftir því sem
manni finnst skemmtilegast því
það eru svo margar kostir í boði.
Maður nær miklu valdi yfir lík-
ama sínum með reglulegri hreyf-
ingu. Ég er með viðskiptavini yfir
áttrætt í aðdáanlega góðu formi. Í
mínum huga er hreyfing lífsspurs-
mál og það er aldrei of seint að
byrja. Fyrir þá sem vilja bæta sig
fyrir sumarið er mjög góður tími
að byrja núna þegar margir eru að
fara í sumarfrí og rólegra er í stöð-
inni en um hávetur. Ég hvet alla
til að fara út úr þægindaramman-
um og finna sér tíma í heilsurækt.
Það er reyndar búið að taka lík-
amsrækt út úr orðabókinni og heit-
ir núna heilsurækt. Líkamsrækt er
svo miklu meira en að vera í góðu
formi, hún skiptir miklu máli fyrir
heilsuna.“
Önnur nýjung í ræktinni er
snjallúr, segir Linda. „Mjög marg-
ir eru með slík úr til að fylgjast
með árangri sínum. „Úrið fylg-
ist með svefni og hreyfingu. Það
lætur vita ef maður þarf að hreyfa
sig meira og þess háttar. Mjög
skemmtilegt og hvetjandi tæki,“
segir Linda. „Snjallúr hlýtur að
vera jólagjöfin næstu jól.“
elin@365.is
Ég er með við-
skiptavini yfir
áttrætt í aðdáanlega góðu
formi. Í mínum huga er
hreyfing lífsspursmál og
það er aldrei of seint að
byrja.
Linda Hilmarsdóttir
Byltingarkenndur tveggja
laga maski frá estée lauder
Estée Lauder kynnir Snyrtivöruframleiðandinn Estée Lauder er frumkvöðull þegar kemur að húðvörum sem notaðar
eru á kvöldin. Nýverið kom á markað tveggja laga maski úr álpappír og bómull sem er sá fyrsti sinnar tegundar. Með
háþróaðri viðgerðartækni gerir hann við húðina innan frá og veitir henni samstundis ljóma og heilsusamlegt útlit.
„Estée Lauder hefur fundið leið
til að ná fram því alla besta í and-
litsmaska með byltingarkenndri
hönnun sem sameinast í einni
vöru. Maskinn, sem hefur feng-
ið nafnið Advanced Night Repa-
ir PowerFoil Mask, er sá fyrsti
sinnar tegundar en hann er hann-
aður með sérstakri tveggja laga
blöndu af álpappír og bómull,“
segir Iðunn Jónasardóttir, sölu-
stjóri Estée Lauder.
„Bómullin á innri hliðinni inni-
heldur hina einstöku Advanced
Night Repair viðgerðar-formúlu
og tvöfaldan skammt af Hyal-
uronic-sýru sem gerir við húðina
innan frá, hreinsar hana af
mengun og öðru áreiti
dagsins auk þess að
gefa húðinni auk-
inn raka. Ytri
hliðin á mask-
anum, sem
er sérhönn-
uð álpappírs-
formúla, sér
um að innri
hliðin nái 25
sinnum fljótari
virkni sem gerir
það að verkum að
húðin öðlast sam-
stundis ljóma og heilsu-
samlegt útlit. Álpappírinn lokar
með öðrum orðum Advanced
Night Repair formúluna inni svo
hún gufi ekki upp frá bómullinni
og út í andrúmsloftið. Hann þving-
ar hana auk þess dýpra inn í húð-
ina,“ útskýrir Iðunn.
Hver pakki er að
sögn Iðunnar hugs-
aður sem mánað-
arskammtur og
inniheldur fjögur
umslög af mask-
anum sem mælt
er með því að nota
einu sinni í viku
að kvöldi. „Mask-
ann má þó líka nota
endrum og sinnum
þegar hentar og húðin þarf
auka búst. Á aðeins tíu mínút-
um endurnærist hún og er betur
búin undir vikuna fram undan,“
segir Iðunn og bendir á að mask-
inn er á leiðinni á alla helstu út-
sölustaði Estée Lauder í þessum
töluðu orðum.
Bómullin á innri hliðinni inniheldur Advanced Night Repair formúluna og tvöfaldan skammt af hyaluronic-sýru sem gerir við
húðina innan frá. Álpappírinn sér til þess að innri hliðin nái 25 sinnum fljótari virkni. Hann varnar því að formúlan gufar upp og
þvingar hana dýpra inn í húðina.
Hver pakki er hugsað-
ur sem mánaðarskammt-
ur og inniheldur fjögur
umslög af maskanum
sem mælt er með að nota
einu sinni í viku að kvöldi.
Maskann má þó líka nota
endrum og sinnum þegar
hentar og húðin þarf auka
ljóma.
Linda Hilmarsdóttir segir að þeir sem hjóla utandyra geri það einnig innandyra.
MYND/STEFÁN
netið vinsælt í
heilsuræktinni
Marga langar að breyta um lífsstíl og drífa sig upp úr sófanum þegar
vorar. Sólin hækkar á lofti og fiðringurinn gerir vart við sig. Meðal þess
sem er vinsælt núna með vorinu eru gamaldags æfingar í stíl Jane
Fonda eða „Back to basic“. Jafnframt kemur netið sterkt inn.
8 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
F
D
-3
D
7
4
1
8
F
D
-3
C
3
8
1
8
F
D
-3
A
F
C
1
8
F
D
-3
9
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K