Fréttablaðið - 08.04.2016, Qupperneq 34
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Guðrún Gígja, forseti NFVÍ, og Snærós, formaður Framtíðarinnar, eru sammála um það að keppnin í kvöld verði virkilega hörð.
Fréttablaðið/Vilhelm
Í kvöld fer fram úrslitaviðureign í
MORFÍs, eða mælsku- og ræðukeppni
framhaldsskóla á Íslandi. Verzlunarskóli
Íslands etur kappi við Menntaskólann í
Reykjavík en það hefur lengi verið mikill
rígur á milli skólanna. Verzlunarskólinn
vann keppnina fyrir ári en Menntaskól-
inn í Reykjavík hefur ekki unnið síðan
árið 2012 og því verður spennandi að
sjá hvort Verzló haldi bikarnum heima
eða MR endurheimti hann eftir nokk-
urra ára fjarveru. Umræðuefnið í kvöld
er vegferð mannkynsins og mælir Verzl-
unarskólinn með en Menntaskólinn í
Reykjavík á móti.
„Þetta er mjög áhugavert umræðuefni
og ég held að báðir pólar verði mjög
skemmtilegir. Þetta verður hörð keppni
enda eru bæði liðin mjög sterk. Ég veit að
liðið okkar er búið að vera að æfa dag og
nótt alla vikuna og það er búið að vera
gaman að fylgjast með liðinu okkar þrosk-
ast á milli keppna. Því verður virkilega
spennandi að fylgjast með keppninni í
kvöld,“ segir Guðrún Gígja Sigurðardóttir,
forseti nemendafélags Verzlunarskólans.
Formaður Málfundafélags Mennta-
skólans í Reykjavík, Snærós Axelsdóttir,
tekur í sama streng. „Ég er spennt fyrir
þessu umræðuefni. Þetta verður mjög
skemmtilegt og ég er mjög stolt af liðinu
okkar, að vera komið svona langt. Þau
eru búin að vera á fullu alla vikuna og
hafa ekkert mætt í skólann. Þetta verður
hörð og örugglega tæp keppni,“ segir
Snærós en hún segir að stemningin í
skólanum sé mikil. „Það hefur verið smá
lægð hjá okkur í MORFÍs þannig að það
eru allir gífurlega spenntir fyrir að vera í
úrslitum. Við erum þó enn þá með lang-
flesta sigrana í Gettu betur en við unnum
þá keppni í tuttugasta skiptið núna í ár.“
Það er þekkt að mikill rígur er á milli
skólanna en þeir eru tveir af elstu og
virtustu menntaskólum á landinu. „Það
hefði alltaf verið mikil spenna fyrir þessa
keppni sama hvað, en ég held að hún
sé mun meiri núna þar sem við erum
að keppa á móti Verzló. Við elskum að
hata hvort annað en þrátt fyrir að það sé
gamall rígur á milli skólanna hefur sam-
starf okkar á milli alltaf gengið mjög vel,“
segir Snærós
Guðrún Gígja tekur undir það að rígur-
inn milli skólanna geri keppnina enn þá
meira spennandi. „Það er alltaf gaman
að mæta MR. Þau unnu okkur á VÍ-MR
deginum seinasta haust en við unnum
MORFÍs í fyrra þannig að þetta verður
mjög hörð keppni. Það er mikil stemning
fyrir þessu í skólanum en það eru allir að
keppast við að ná í miða.“
Keppnin fer fram í Háskólabíói í kvöld
en búist er við því að það verði troðið út
úr dyrum enda alltaf sterkur keppnisandi
þegar þessir tveir skólar mætast.
gunnhildur@frettabladid.is
Gamli rígurinn milli
Verzló og MR enn við lýði
Verzlunarskóli Íslands og Menntaskólinn í Reykjavík mætast í úrslitaviðureign MORFÍs
í kvöld. Spennan milli skólanna er mikil en búist er við æsispennandi keppni.
Það hefði alltaf verið
mikil spenna fyrir þessa
keppni sama hvað, en ég held að
hún sé mun meiri núna þar sem
við erum að keppa á móti
Verzló.
Snærós Axelsdóttir
1947 Síðustu bandarísku hermennirnir sem staðsettir eru á Íslandi í
síðari heimsstyrjöld yfirgefa landið með herflutningaskipinu Edmund
B. Alexander.
1957 49 punda stórlax veiðist í þorskanet við Grímsey. Þetta var
stærsti lax sem menn vissu til að veiðst hefði
við Ísland.
1970 79 láta lífið í gassprengingu
í neðanjarðarlestarkerfi Ósaka í
Japan.
1977 Fyrsta hljómplata bresku
hljómsveitarinnar The Clash
kemur út.
1978 Leikskólinn Furugrund
hefur starfsemi í Kópavogi.
1989 bónus opnar fyrstu verslun
sína við Skútuvog í reykjavík.
Merkisatburðir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu,
móður, tengdamóður og systur okkar,
Lilju Kúld
sem lést á Landspítalanum við
Hringbraut þann 8. mars 2016.
Jóhann Hafnfjörð Rafnsson
Kristína Aðalsteinsdóttir
Björn Halldór Helgason
Guðný Kúld
Þorsteinn Kúld
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu vegna andláts
og útfarar okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangaömmu,
Sigurlaugar Theódóru
Óskarsdóttur
Miðhvammi, Húsavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík.
Guðný Ósk Agnarsdóttir
Tómas Örn Agnarsson Rannveig Jónsdóttir
Hulda Guðrún Agnarsdóttir
ömmubörn, langömmubörn, langalangömmubörn
og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
Sveinn Jósefsson
áður Norðurbrún 1,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir,
föstudaginn 11. mars. Jarðarförin hefur
farið fram að ósk hins látna.
Valgerður Heba Sveinsdóttir
Pétur Ragnar Sveinsson
Gunnar Thorberg Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Stefánsdóttir,
Borgarholtsbraut 47,
Kópavogi,
lést á Hrafnistu, Boðaþingi, 25. mars
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 11. apríl kl. 15.00.
Svanhvít Jónsdóttir Ólafur Garðar Þórðarson
Stefanía Lóa Jónsdóttir Óttar Birgir Ellingsen
Guðrún Erla Jónsdóttir Ingólfur Rúnar Björnsson
Hafdís Jónsdóttir Guðmundur Stefánsson
Sigríður Ósk Jónsdóttir Júlíus Skúlason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín,
Kristbjörg Árnadóttir
Blikaási 25, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi að
morgni 30. mars. Bálför fer fram frá
Fossvogskapellu mánudaginn 11. apríl
kl. 11.00. Þakkir fær starfsfólk á lungnadeild
A6 fyrir umhyggju í hennar garð.
Fyrir hönd aðstandenda og vina,
Ágúst Árni Jónsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórunn Magnúsdóttir
Túngötu 9, Seyðisfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands
Neskaupstað 3. apríl. Hún verður
jarðsungin frá Seyðisfjarðarkirkju
laugardaginn 9. apríl kl. 14.00.
Sveinlaugur Björnsson Þorgerður Jónsdóttir
Þórður Jónsson
Rebekka Björnsdóttir Tómas Guðmundsson
Þórgunnur Björnsdóttir Gunnar Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
8 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r18 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B l a ð i ð
tímamót
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
F
D
-3
D
7
4
1
8
F
D
-3
C
3
8
1
8
F
D
-3
A
F
C
1
8
F
D
-3
9
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K