Fréttablaðið - 08.04.2016, Qupperneq 44
Þetta er alls ekki
tískutrend, hann
er með hálsbólgu.
Þetta er alls ekki tískutrend, hann er með hálsbólgu, og er hálf veikur, annars er hann bindismaður. Hann passar að vera með
bindi þegar hann er á þingi. Svo ef
þú sérð hann með hálsklút er hann
með hálsbólgu,“ segir Elsa Ingjalds
dóttir, eiginkona Sigurðar Inga
Jóhannssonar forsætisráðherra
Íslands, aðspurð hvort Sigurður
væri að koma á framfæri nýrri klúta
tísku þar sem hann hefur verið með
klút vafinn þétt um hálsinn síðustu
daga.
Sigurður Ingi hefur verið áberandi
síðustu daga og tók í gær við sem
forsætisráðherra eftir að Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson steig til hliðar.
En hvernig týpa er Sigurður?
„Það er alveg á hreinu að honum
líður best í reiðbuxunum og flís
peysunni. Hann fer auðvitað í fal
lega skyrtu og setur upp bindi þegar
hann fer á þing en reiðbuxurnar og
flíspeysan verður allaf fyrir valinu
hér heimafyrir,“ segir Elsa.
Eins og flestir hafa tekið eftir ber
Sigurður þykkan gullhring á þumal
fingri og hafa margir velt fyrir sér
hvort einhver merking sé bak við
staðsetningu hringsins.
„Þetta er giftingarhringurinn
hans, bara hefðbundinn giftingar
hringur. Sigurður er með sömu
puttastærð á baugfingri og þumal
fingri sem þykir mjög sjaldgæft.
Þetta er heiðinn siður, en það er
ekki eins og hann sé heiðinn held
ur finnst honum hringurinn flækj
ast minna fyrir sér á þumalfingri,
því sem dýralæknir gekk hann
aldrei með hring. Þegar hann fór á
þing fór hann að bera hringinn oftar
og þá setti hann hringinn á þumal
fingur. Hann fiktar mikið í honum
og skiptir honum á milli fingra,“
segir Elsa og hlær.
hefur vakið athygli fyrir skrautlega
hálsklúta og hring á þumalfingri
Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra Íslands, hefur, líkt og flestir hafa sjálfsagt tekið eftir, verið áberandi í
fjölmiðlum síðustu daga. Hann hefur vakið athygli fyrir að nota hálsklút og bera hring á þumalfingri. Fréttablaðið
heyrði í Elsu Ingjaldsdóttur, eiginkonu Sigurðar Inga, og spurði hana út í þessi nýju tískutrend forsætisráðherra.
Hér gefur að líta Sigurð Inga Jóhannsson með klútinn fræga. Það hefur vakið sérstaka athygli að hann var bæði með klút og trefil á leið sinni út úr stjórnarráðinu. fréttablaðIð/ernIr og anton brInk
Þumalhringir eiga upphaf sitt við
lok steinaldar í Austurlöndum fjær
og voru þar upphaflega notaðir af
bogmönnum sem notuðu þá til
verja þumalinn fyrir bogastrengn
um. Í gegnum aldirnar hefur
þumalhringurinn lifað áfram og
m.a. notaður til að tákna ákveðna
stöðu innan samfélagsins. Margir
vilja meina að þumalhringurinn
hafi symbólska merkingu; að hann
tákni völd. Það að valdamesti
maður Íslands kjósi að bera þumal
hring er vissulega vísbending um
að þetta geti verið rétt.
Saga hálsklúta nær a.m.k. aftur
til Rómar til forna þar sem þeir
voru notaðir til að þurrka svita
af enni og hálsi. Hermenn í veldi
Cheng Kínakeisara báru hálsklúta
sem tákn um stöðu sína innan
hersins. Nokkru síðar, eða á 17. öld,
voru það króatískir málaliðar sem
notuðu hálsklúta – þessu öpuðu
Frakkar svo eftir og úr varð tegund
klúts sem kallast cravat. Það hefur
alltaf verið tengt valdi að bera
silkiklút um hálsinn: allt frá háls
bindum, eins og flestir karlmenn
á þingi eru með, yfir í klúta eins og
þann sem Sigurður Ingi hefur sést
með síðustu daga.
Saga klúta og hringa
Það er hægara sagt en gert að ætla
að skrifa um eitthvað annað en
ástandið í þjóðfélaginu akkúrat núna.
Ég held að það sé að minnsta kosti
óhætt að segja að ég geti nú sett mig
talsvert vel í fótspor og tilfinningalíf
sprunginnar blöðru. Annars er eitt
sem er alltaf hægt að tala um þegar
eins og sprungin blaðra
@gydaloa
gydaloa@frettabladid.is
manni dettur ekkert annað í hug og
það er veðrið.
lll
Gluggaveður Ég er virkilega léleg í
því að klæða mig eftir veðri. Van
hæfnin sætir auðvitað ákveðinni
undrun sé litið til þess að ég hef verið
búsett á þessu skeri síðan ég skaust í
heiminn. Mér tekst samt alltaf á ótrú
legan hátt að meta aðstæður vitlaust
og enda annað hvort alltof vel klædd
eða alltof illa klædd. Sem veldur því
að mér er ýmist ískalt eða ég er við
það að skilja við sökum ofhitnunar.
Vegna veðurfars er það reyndar yfir
leitt þannig að ég er of illa klædd.
Akkilesarhæll minn er gluggaveður
og ég á svoleiðis í stökustu vandræð
um með að klæða mig á morgnana.
Síðustu daga hef ég vaknað í slíkum
funhita og sólskini að það mætti
halda að ég væri staðsett á
ströndinni á Tortóla. Ég klæði mig
svo nánast í samræmi við það
og um leið og ég stíg út átta
ég mig á því að eitthvað
hefur misfarist.
lll
Helgin Annars er ég mjög spennt
fyrir komandi helgi. Þá getur maður
einbeitt sér hundrað prósent að
því að fylgjast með fréttunum. Það
er nefnilega búið að vera örlítið
hamlandi að hafa þurft að sinna
öðrum erindum í vikunni eins og til
dæmis að vinna. Maður má bara ekki
missa af neinu – þá skilur maður bara
alls ekkert hvað er í gangi.
Það er einmitt það sem kom fyrir
mig í gær þegar ég fór út að borða
með breskum
vini mínum sem
ég hef ekki séð í sex ár. Síðustu daga
er maður auðvitað búinn að vera
með puttann á púlsinum. Tuttugu
tabs opna í tölvunni, sífellt að re
fresha Twitter og fylgjast með öllum
aukafréttatímunum á rauntíma. Ég
myndi því segja að ég hefði verið
temmilega vel upplýst um gang mála
og fór glöð í bragði út að borða. Ég var
úr nettengingu í rúma tvo klukkutíma
og þegar ég kom aftur heim skildi ég
ekkert. Bara alls ekki neitt.
En ég er allavega mjög glöð með
helgina og er ekki með neitt planað
og mun því haga mínum frídögum í
samræmi við næstu fréttir. Vonandi
klædd í samræmi við veður í þetta
sinn.
Guðrún Jóna Stefánsdóttir
gudrunjona@frettabladid.is
Stefán þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
8 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r28 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð
Lífið
0
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
F
D
-4
7
5
4
1
8
F
D
-4
6
1
8
1
8
F
D
-4
4
D
C
1
8
F
D
-4
3
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K