Málfregnir - 01.11.1987, Side 4

Málfregnir - 01.11.1987, Side 4
af sams konar verki sem áður hefir verið unnið a Norðurlöndum, sbr. Ryska namn, sem Námnden för svensk sprák- várd gaf út 1970. Sú hugmynd kom fram að ráða sérstakan mann til að vinna þetta verk í samráði við Helga Haraldsson. Var formanni falið að athuga það mál og jafnframt að hafa samband við ýmsar stofnanir sem kynnu að hafa áhuga á þessu viðfangsefni og vildu jafnvel leggja í kosínað við það. - Ekki bar þetta árangur í bili. Næst ber það til að Árni Böðvarsson. málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, skrifar málnefndinni 2. maí 1986 og sendir með bréfi sínu tillögur um rithátt óþýddra erlendra nafna í íslensku ásamt greinargerð. Árni óskar eftir því að mál- nefndin taki þessar tillögur til gagn- rýnnar athugunar. íslensk málstöð var þá tekin til starfa, og um þessar mundir hafði Sigurður Konráðsson mál- fræðingur verið ráðinn þangað í nýja stöðu. Málstöðinni var því falið á nefnd- arfundi 13. maí 1986 að kynna sér þessar tillögur Árna með hliðsjón af fyrr- nefndum hugmyndum Helga Haralds- sonar og leggja niðurstöður þeirrar athugunar fyrir málnefndina. Á fundi málnefndar 14. október 1986 kom málið aftur til umræðu. Sigurður Konráðsson hafði gert samanburð á til- lögum Árna Böðvarssonar og Helga Haraldssonar, og voru þær athuganir (dags. 10. október) lagðarfram á fundin- um. Enn fremur lagði formaður fram hugleiðingar sínar, „Umritun rússneskra nafna“ (dags. 10. október). Loks var til umræðu á fundinum bréf frá Helga Haraldssyni í Ósló, dags. 30. september 1986, ásamt fylgiskjölum. Vonir stóðu til að orðabók Helga, Rússnesk-íslensk orðabók. kæmi út eftir tvö ár. Vélritun handrits var þá lokið, og gengið hafði verið frá umritun rússneskra nafna. Bréf- ritari taldi afar óheppilegt að umritun hennar bryti í bága við almennar reglur og leitaði álits málnefndar á því máli. Ályktun nefndarinnar var sú að hún hefði ekki ástæðu til að gera athuga- semdir við umritun Helga Haraldssonar þar sem opinberar reglur um þetta efni hefðu ekki enn verið teknar saman og gefnar út. Fáeinum vikum síðar birtist grein í Pjóðviljanum (6. nóvember 1986) eftir ungan slafneskufræðing, Árna Þór Sig- urösson, um umritun rússneskra nafna og nauðsyn samræmingar. Á fundi mál- nefndar 11. nóvember vakti formaður nefndarinnar athygli á greininni og varp- aði fram þeirri luigmynd hvort mál- nefndin ætti ekki aö koma á laggirnar nefnd undir formennsku Sigurðar Kon- ráðssonar til að reyna að ná sem víð- tækustu samkomulagi um umritunar- reglur rússneskra nafna. Reynt yrði að fá í nefndina þrjá fulltrúa frá fjölmiðlum (blöðum og Ríkisútvarpinu) og einn slafneskumenntaðan málfræðing. Hug- myndinni var vel tekið og formanni falið að fylgja henni eftir. Á næsta fundi málnefndar, 9. des- ember 1986, skýröi formaður frá undir- búningi að stofnun nefndar til að fjalla um þetta mál, og vantaði þá aðeins einn mann í fimm manna nefnd. í fundargerð er skýrt frá bréfaskiptum við Árna Þór Sigurðsson og tveimur bréfuin frá Helga Haraldssyni. sem vísað var til væntan- legrar umritunarnefndar. Skömmu síðar var nefndin fullskipuð, og tóku sæti í henni þessir menn: Árni Bergmann ritstjóri, Þjóðviljanum Árni Böðvarsson málfarsráðunautur, Ríkisútvarpinu Björn Bjarnason aðstoðarritstjóri, Morgunblaðinu Jón R. Gunnarsson, lektor í almennum málvísindum. Háskóla íslands Sigurður Konráðsson, íslenskri mál- stöð, formaður nefndarinnar. Umritunarnefndin tók til starfa í janúar 1987 og hélt nokkra fundi. 4

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.