Málfregnir - 01.11.1987, Page 5

Málfregnir - 01.11.1987, Page 5
Nefndin setti sér þaö markmið að leggja fram tillögur til samræmingar á rithætti nafna sem rituð eru kyrillísku letri, einkum þó rússneskra. Greinargerðir Helga Haraldssonar og Arna Böðvars- sonar voru hafðar að leiðarljósi. En nefndinni var nokkur vandi á höndum. Mest kveður að rússnesku af þeim tungum sem nota kyrillfskt letur. Rússar laga einnig að sínum rithætti ýmis nöfn á tungumálum Sovétríkjanna öðrum en rússnesku. Síðan umrita fréttastofur af kyrillísku letri á latínuletur og miða þá oftast við að lesendur séu enskumælandi eða kunni a.nt.k. ensku sæmilega. Pannig berast fréttaskeyti íslenskum blaðamönnum í langflestum tilvikum. Því taldi nefndin rétt að semja reglur um hvernig umritað er af ensku -og einnig af þýsku. norsku, dönsku ogsænsku. Hins vegar þötti ekki ástæða til að semja reglur um beina umritun af kyrillísku letri á íslensku. því aö mjög sjájdan reynir á hana í blaðamennsku hér. 2. Viöhorf og tillögur Meginviðhorf nefndarinnar voru þessi: í fyrsta lagi að vera trúr upphafsmáli. Þess vegnaer stundum notuð z, þótt ekki sé lengur í íslenska stafrófinu, og fram- andi stafasambönd, t.d. sli og tsj. Það er jgert til að koma í veg fyrir misskilning ' vegna nafna sem íslendingar gera varla greinarmun á í framburði. Til dæmis er Zakharov nafn á tónskáldi, en Sakharov er eðlisfræðingur. Þrátt fyrir þetta er umritunin ekki svo nákvæm að alltaf sé ótvírætt hvernig umrita skal aftur til upp- hafsmálsins. í öðru lagi vildi nefndin taka tillit til hefðar, bæði innlendrar og erlendrar. Þess vegna leggur nefndin til umritunina stsj fyrir m sem hefir óneitanlega áunnið sér nokkra hefð. í þriðja lagi varð svo niðurstaðan að megináhersla var lögð á rússnesku. en vissulega geta önnur mál Sovétríkjanna goldið þess. Fræðimenn, sem Ijallað hafa um þessi mál, hafa gert greinarmun á umritun og umstöfun. Nefndin ásetti sér að leggja einungis áherslu á umritun, sem felur í sér að gera orð læsileg á viðtökumálinu. Umstöfun er hins vegar nákvæm umritun, þar sem öllu er til skila haldið, og sjá má hvernig orðið hefir verið ritað í upphafs- málinu. Umstöfun er einnig kölluð vís- inclaleg umritun, enda er hún oftast notuð í sérhæfri vinnu, svo sem á bóka- söfnum og í vísindalegum greinum. Umstöfun er óþarflega flókin til notk- unar í fjölmiðlum. Nefndin komst fljótlega að niðurstöðu um hvaða meginstefnu skyldi fylgja og tók síðan saman tillögur undir fyrirsögn- inni “Umritun rússneskra nafna og nafn- mynda á íslensku". Tillögurnar voru lagðar fyrir málnefndina og ræddar á fundi hennar 11. mars 1987. Formaður umritunarnefndar kom á fundinn og svaraði fyrirspurnum. Samþykkt var að leita álits Helga Haraldssonar í Ósló og Árna Þórs Sigurðssonar í Stokkhólmi á þessum tillögum fyrir næsta fund. Svör bárust fljótt og vel frá þeim Árna og Helga og voru rædd á fundi mál- nefndar 14. apríl 1987. Eftir nokkra umræðu var samþykkt að vísa athuga- semdum slafneskufræðinganna til um- ritunarnefndar og biðja um álit henn- ar og frekari greinargerð meö tillögun- um. Umritunarnefnd fjallaði gaumgæfi- lega um athugasemdir sem borist höfðu, og einn nefndarmanna hafði símasam- band við Helga Haraldsson vegna atriða. sem ekki varð samkomulag um. Að lok- inni athugun á öllum viðhorfum, sem fram höfðu komið, gekk umritunarnefnd frá tillögum sínum. Þæreru að langmestu leyti samhljóða áliti þeirra Helga Har- aldssonar og Árna Þórs Sigurðssonar nerna í einu eða tveimur atriðum. þar sem nefndin komst að annarri niður- stöðu. Mikils er um það vert að í megin- dráttum virðist vera góð samstaða um til- 5

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.