Málfregnir - 01.11.1987, Page 6

Málfregnir - 01.11.1987, Page 6
lögur umritunarnefndar, og innan nefnd- arinnar var alger samstaða. Að lokum sendi umritunarnefnd mál- nefndinni „Álitsgerð um umritun nafna og nafnmynda sem rituð eru kyrillísku letri" (júní 1987), og var hún lögð fyrir fund í málnefndinni 15. júní. Nokkrar umræður urðu um álitsgerðina og umrit- unartillögur nefndarinnar, en þær síðan samþykktar. Enn fremur var samþykkt að birta álitsgerðina í Málfregnum og kynna hana síðan í öðrum fjölmiðlum. Álit umritunarnefndar fer hér á eftir eins og formaður nefndarinnar hefir búið það til prentunar með lítils háttar lagfær- ingum sem hann gerði í samráði við aðra nefndarmenn. Aftur skal vakin athygli á því að íslenski rithátturinn var aldrei miðaður við umritun beint úr kyrillísku. Pað ber að hafa í huga við notkun töflunnar á bls. 10. Kyrillíska stafrófið er haft þar með til fróðleiks, þó að ekki sé treyst- andi á að gagnkvæm samsvörun sé ætíð milli þess og íslensku umritunarinnar, þ.e. milli 1. og3. dálks á töflunni. Álitsgerð umritunamefndar 1.Inngangur Flest tungumál í Evrópu og Ameríku nota latínuletur. Hins vegar nota Rússar og sumar aðrar slafneskar þjóðir (Búlg- arar, Hvítrússar, Makedóníumenn, Serbar og Úkraínumenn) kyrillískt letur (upphaflega notað í fornbúlgörsku), sem er sprottið af grísku letri, enda kristnuð- ust þessar þjóðir frá grísk-katólsku kirkj- unni. Auk þess er þetta letur notað í flestum öðrum tungumálum Sovétríkj- anna. Umrita þarf nöfn úr kyrillísku letri þegar þau eru höfð í málum sem nota latínuletur, og hefur hver þjóð þá venju- lega skapað sér hefð í samræmi við mál- kerfi sitt. Ensk umritun er algengust í fréttaskeytum og blöðum sem íslend- ingar fá, en hún er mjög óheppileg í íslensku sökum ólíkra hljóðkerfa (fram- burðarreglna) í ensku og íslensku. Athuga ber að hér er aðeins átt við rússneskar og rússneskaðar nafnmyndir. Broddur yfir staf í þessum umritunum táknar áherslu, en við sleppum honum í íslensku, því að þar er hann villandi. Til dæmis sýnir Sahárov í danskri umritun ekki annað en að áherslan er á mið- atkvæði orðsins. í íslensku er hins vegar venjulega eðlilegt að hafa áherslu á fyrsta atkvæði, enda er ekki unnt að gera ráð fyrir að íslendingar yfirleitt geti náð rússneskum framburði. Þess ber einnig að gæta að til okkar berst daglega fjöldi rússneskra nafn- mynda sem eiga ekki uppruna í rúss- nesku, heldur einhverju öðru tungumáli. Að sjálfsögðu eigum við ekki að nota rússnesku nafnmyndina, heldur þá sem heimamenn tíðka. Það er til dæmis fráleitt að nota í íslenskum blöðum rússnesk nöfn á stöðum í Eystrasaltslöndunum, þótt þau séu innan Sovétríkjanna, heldur er rétt að nota til dæmis eistneska, lettneska eða litáíska nafnið eftir því sem við á. Sama gildir að sjálfsögðu um nöfn úr öðrum tungum Sovétríkjanna en rússnesku. Hins vegar eru Rússar fjöl- mennasta þjóðin í ríkjasambandinu og sú áhrifamesta, og því eru rússnesk og rússneskuð nöfn einhöfð í fréttum þaðan. Rétt er að benda á að í sumum atriðum eru úkraínska og hvítrússneska frá- brugðnar rússnesku, og því er ekki sjálf- sagt að rússneskt nafn á stöðum í Úkra- ínu eða Hvíta-Rússlandi sé eins og það sem heimamenn nota. Þannig heitir höfuðborg Úkraínu Kíjiv á úkraínsku, Kíjev á rússnesku, en sökum hefðar er rétt að nota myndina Kíev (tvö atkvæði) í 6

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.