Málfregnir - 01.11.1987, Qupperneq 24

Málfregnir - 01.11.1987, Qupperneq 24
eru 22 íðorðanefndir á skrá í málstöð- inni, en upp undir helmingur þeirra er aðgerðalítill. Ef við berum okkur saman við frændur okkar í Skandinavíu og Finnlandi erum við langt á eftir í útgáfu íðorða. Svipaða sögu er að segja um skipu- lagða málrækt að öðru leyti. Með auknum fjárveitingum og tilkomu mál- stöðvarinnar vonumst við til að geta gefið okkur meir að vanræktum verk- efnum af ýmsu tagi, t.d. að alls konar samræmingu sem hefir mikið hagnýtt gildi í samfélagi nútímans. Sem dæmi má nefna að stafrófsröðun hefir lengi verið á reiki og breytileg frá einni orða- eða nafnaskrá til annarrar. Líklega fer nú að komast festa á fyrir atbeina mál- nefndarinnar. Til marks um það er Símaskrá 1987 sem gerir nú í fyrsta skipti greinarmun á bryddum ogóbrydd- um sérhljóðum við röðun, eins og mál- nefndin hefir lagt til. Hér má einnig geta þess að á vegum málnefndar hafa nýlega verið samdar umritunarreglur, einkum ætlaðar fjöl- miðlum, til að stafsetja rússnesk nöfn. Annað mikilvægt verkefni, sem íslensk málnefnd hefir spreytt sig á, er að taka saman skrá yfir ríkjaheiti og þjóðernisorð. Þetta er skemmtilegt við- fangsefni, en hefir reynst strembið, og við getum ekki vænst þess að komast að endanlegri niðurstöðu í einni atrennu. Utan málnefndar hafa ýmsir menn, óháðir hver öðrum, glímt við sama vanda, tekið mismikið fyrir og náð mis- munandi árangri. Stórtækastur þeirra er Árni Böðvarsson, málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins. Skráin sem hann hefir tekið saman verður birt á prenti áður en langt um líður. Vegna viðleitni okkar til að halda mál- inu hreinu höfum við ætíð haft hugann mjög við það að uppræta erlend orð og mynda innlend orð í staðinn. Samtímis höfum við þó tekið við fjölmörgum tökuorðum, enda verður aldrei hjá því komist að einhverju marki. En við höfum, að minni hyggju, látið undir höfuð leggjast að gefa tökuorðum nægi- legan gaum og þeim meginreglum sem fylgja ber við aðlögun þeirra. Okkur hefir ekki tekist nógu vel að rækta þá list að aðlaga tökuorð á smekkvíslegan hátt. Eg fyrir mitt leyti sakna meiri þroska og næmari máltilfinningar í því efni. Almenn þekking á íslenskri orðmyndun mætti líka vera miklu meiri. Þótt undar- legt kunni að virðast höfum við ekki gefið okkur ýkja mikið að orðmynd- unar- og beygingarfræði. Annað dæmi um svið sem orðið hefir út undan er íslenskur framburður. Þannig væri vandalaust að halda áfram að telja upp vanrækt verkefni. Orðabækur eru mikil- væg hjálpartæki. Til skamms tíma hafa íslenskar orðabækur verið litlar og ein- hæfar, en allra síðustu árin hefir ræst talsvert úr þó að margt vanti enn. Til dæmis er ekki til nein stór íslensk rétt- ritunarorðabók í líkingu við orðalista Sænsku akademíunnar (Svenska Aka- demiens ordlista). En samkvæmt lögum á íslensk málnefnd að vinna að slíku verki. Islensk málrækt á við mörg vandamál að glíma. Að því er ég best fæ séð er vandi okkar alls staðar sá sami í aðal- atriðum. Sama hætta steðjar að öllum litlum málsamfélögum. Hjá okkur Islendingum er vandinn meiri en hjá mörgum öðrum vegna þess hve fáir við erum. Fámennið skýrir a.m.k. eitthvað af „vanrækslu“ okkar. 3. Islensk málrækt í norrænu Ijósi Hefir málrækt annarra norrænna þjóða eitthvert gildi á íslandi? Hvað geta þær lært hver af annarri? Hér verða ekki gefin tæmandi svör við þessum spurningum, aðeins vikið að þeim fáeinum orðum. Með hliðsjón af íslenskum aðstæðum og viðhorfi íslendinga til tungu sinnar getur varla talist óeðlilegt að við 24

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.