Málfregnir - 01.11.1987, Síða 27

Málfregnir - 01.11.1987, Síða 27
Nordterm Reglur 1. Inngangur Nordterm er samtök fimm stofnana sem hafa með sér samvinnu um íðorðastarf- semi. Þær eru: íslensk málnefnd, íslandi Rádet for teknisk terminologi, Noregi Tekniikan Sanastokeskus r.y. / Cent- ralen för Teknisk Terminologi r.f., Finnlandi Tekniska nomenklaturcentralen, Svíþjóð Terminologigruppen, Danmörku í þessum reglum eru fyrrgreindar stofn- anir nefndar einu nafni „aðildarstofnan- ir“ eða „samstarfsaðiljar". Fyrsti Nordterm-fundurinn var hald- inn 1976 vegna þess að þörf var á að skipuleggja norrænt samstarf að íðorða- málum. Þessar reglur eru um framhald og tilhögun þess samstarfs. 2. Markmið og verksvið Nordterm hefur þann tilgang að vera norrænn vettvangur fyrir íðorðastarf- semi og tengja hana saman. Nordterm skal: a) efla og treysta norræna samvinnu á þessu sviði með því að aðiljar skipt- ast á upplýsingum, miðla hver öðrum af reynslu sinni og starfsárangri, með vinnu að sameiginlegum verkefnum, með ráðstefnum, fræðslufundum og þvíumlíku b) treysta áhrif norrænna þjóða og hlut- deild þeirra í þróun alþjóðlegrar íðorðastarfsemi með sameiginlegri stefndmótun. Verksvið Nordterm tekur til rann- sókna, hagnýtra starfa, menntunar og annarrar starfsemi sem tengist íðorðum. 3. Skipulag Nordterm 3.1 Stjórnarnefnd Stjórnarnefnd Nordterm er æðsta stofn- un samtakanna. Hún er skipuð einum fulltrúa frá hverjum samstarfsaðilja. Hverri aðildarstofnun ber að tilnefna fulltrúa til setu í stjórn þann tíma sem stofnunin tiltekur sjálf. Auk þess til- nefnir hver aðildarstofnun varamann fyrir fulltrúa sinn. Stjórnarnefndin skal sjá til þess að varamenn geti jafnharðan fylgst með öllum gerðum hennar, og varamaður getur ásamt fulltrúa setið fundi stjórnarnefndar. Ef til atkvæðagreiðslu kemur, hefur þó hver aðildarstofnun aðeins eitt atkvæði. Með gagnkvæmum skilmálum má gefa öðrum norrænum stofnunum eða samtökum kost á áheyrnarfulltrúum, enda hafi þær stofnanir eða samtök til að bera áhuga á íðorðastarfsemi og hæfni til að stunda hana. Formaður stjórnarnefndar er fulltrúi þeirrar aðildarstofnunar sem á að undir- búa næsta Nordterm-þing. Hlutverk stjórnarnefndar er: . að vera fulltrúi Nordterm út á við • að samhæfa starfsemi samtakanna • að leggja skýrslu fyrir Nordterm-þing . að annast þá umsýslu sem gegna þarf . að undirbúa ný verkefni og hrinda þeim í framkvæmd og í sambandi við það að koma á fót vinnuhópum eða verkefnanefndum . að styðja vinnuhópa og verkefna- nefndir með því að skapa skilyrði fyrir starfi þeirra . að vinna að því að afla fjár til starf- semi Nordterm 27

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.