Málfregnir - 01.11.1987, Síða 28
. að endurskipuleggja eða leggja niður
óvirka vinnuhópa og verkefnanefndir.
Sú aðildarstofnun, sem fer með for-
mennsku í stjórnarnefndinni, gegnir
jafnframt skrifstofuhlutverki fyrir
Nordterm.
3.2 Vinnuhópar
íðorðastarfsemi fer fram í vinnuhópum
Nordterm.
Stjórnarnefndin kemur vinnuhópum á
fót og afmarkar starfssvið þeirra. Þeim
er ætlað varanlegra hlutverk en verk-
efnanefndum, þar sem þeir hafa fjöl-
þættari starfsemi með höndum. Vinnu-
hópar geta sett á stofn verkefnancfndir
til að leysa skýrt afmörkuð verkefni.
Hver aðildarstofnun hefur rétt til að
tilnefna allt að þremur fulltrúum í hvern
vinnuhóp. Vinnuhópar geta stækkað sig
sjálfir eftir þörfum með fulltrúum frá
aðildarstofnunum eða úr öðrum áttum.
Vinnuhópar fylgja starfsháttareglum
Nordterm.
3.3 Verkefnanefndir
Vinnuhópar eða stjórnarnefnd geta
stofnað verkefnanefndir til að leysa
skýrt afmörkuð verkefni. Vinnuhópar,
sem koma verkefnanefndum á fót, skulu
greina stjórnarnefnd frá verkefnum
þeirra. Verkefnanefndir fylgja starfs-
háttareglum Nordterm.
4. Nordterm-þing
Nordterm-þing er opið öllum sem áhuga
hafa á íðorðastörfum á Norðurlöndunr.
Aheyrnarfulltrúum frá öðrum löridum
er einnig heimill aðgangur. Þingið er
umræðuvettvangur fjölda fólks senr
stendur á bak við Nordterm og getur
örvað samtökin með nýjum áhrifum og
hugmyndum. Þar geta komið fram til-
lögur um breytingar á starfsáætlunum
stjórnarnefndar og þó einkum vinnu-
hópa og verkefnanefnda.
Nordterm-þing er að jafnaði haldið
annað hvert ár. Stjórnarnefnd fer þess á
leit við eina aðildarstofnunina að hún
sjái um næsta Nordterm-þing. Þingin
skulu að jafnaði haldin til skiptis á
vegunr aðildarstofnana í þeirri röð sem
fylgt hefur verið.
Greinargerðir stjórnarnefndar, vinnu-
hópa og verkefnanefnda skulu ræddar á
Nordterm-þingum í því skyni að gefa
nefndum og vinnuhópum örvandi
ábendingar.
I tengslum við Nordterm-þing skal
halda norræna íðorðaráðstefnu til að
breiða út áhuga og fræðslu um íðorða-
störf og koma á sambandi milli áhuga-
manna á þessu sviði innan Norðurlanda
og utan.
5. Ráðstefnur, fræðslufundir
og námskeið
Stjórnarnefnd Nordterm og vinnuhópar
skulu undirbúa opnar ráðstefnur,
fræðslufundi og námskeið, sem taka til
meðferðar efni úr íðorðafræði og af
grannsviöum hennar. Má þá leita sam-
starfs við þá aðilja sem eðlilegt er að
hafa samvinnu við.
6. Fjármál
Nordterm hefur ekki eigið fjárhald. Fé
sem veitt kann að vera til einstakra verk-
efna er á sérreikningi í umsýslu einnar af
aðildarstofnununum.
7. Samstarfsslit og
endurskipulagning
Akvörðun um að leggja Nordterm niður
eða endurskipuleggja stofnanir þess eru
á valdi stjórnarnefndar.
8. Þessar reglur eru samþykktar af
íslenskri málnefnd 14.4. 1987
Rádet for teknisk terminologi
19.2. 1987
Tekniikan Sanastokeskus r.y. / Cent-
ralen för Teknisk Terminologi
r.f. 13.1. 1987
Tekniska nomenklaturcentralen
21.4. 1987
Terminologigruppen 26.3. 1987
28