Málfregnir - 01.11.1987, Page 31

Málfregnir - 01.11.1987, Page 31
Sitt af hveiju Frímerki tileinkað íslenskri málvemd Póst- og símamálastofnun hefir gefið út 20 króna frímerki sem er helgað íslenskri tungu og málvernd. Útgáfu- dagur var 10. júní 1987. Á frímerkinu er áletrunin „Verndum tungu. Vöndum mál“ og mynd af danska málfræðingnum Rasmusi Kristjáni Rask sem mjög kemur við sögu íslenskrar málverndar eins og kunnugt er. Á þessu ári eru liðin 200 ár frá fæðingu hans, og er þess minnst á öðrum stað hér í Málfregnum. Greinin um Rask hefir áður birst í bæklingi sem Póst- og símamálastofn- unin gaf út í vor til kynningar á frí- merkinu. íslensk nafnvenja viðurkennd í Noregi íslendingar, búsettir á Norðurlöndum utan íslands, hafa átt í nokkrum erfið- leikum vegna skrásetningar íslenskra nafna í dvalarlandinu. Einkum hafa verið vandkvæði á því að fá börn þeirra, fædd erlendis, kennd til föður að íslenskum hætti (Jónsson, Jónsdóttir o.s.frv.). Fyrr á þessu ári leitaði forsætisráð- herra, sem þá var Steingrímur Her- mannsson, til norrænna starfsbræðra sinna í því skyni að fá úr þessu bætt. í sumar barst bréf frá forsætisráðherra Noregs þar sem skýrt er frá því að dóms- málaráðherrann hafi ákveðið að skrá- setning samkvæmt íslenskri nafnvenju verði viðurkennd af norsku þjóðskránni í samræmi við umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, dags. 14. júlí sl., og því bætt við að svipaðrar úrlausnar sé bráðlega að vænta frá Danmörku. Flugmálið endurskoðað Um miðjan september síðastliðinn skip- aði samgönguráðherra sjö manna nefnd til að undirbúa útgáfu orðasafns úr flug- máli. Nefndinni er ætlað að endurskoða orðasafnið frá 1956, Nýyrði IV, safna orðum, sem síðan hafa bæst við, og mynda ný orð ef þörf krefur og við verður komið. Formaður nefndarinnar er Pétur Einarsson flugmálastjóri. Aðrir nefndar- menn eru: Baldur Jónsson prófessor, Leifur Magnússon framkvæmdastjóri, Oddur Pálsson flugvirki, Skúli Br. Stein- þórsson flugstjóri, Valdimar Ólafsson yfirflugumferðarstjóri og Þórður Örn Sigurðsson framkvæmdastjóri. Frá norræna málnefndaþinginu 1987 34. ársþing norrænu málnefndanna var haldið á Akureyri 16.-18. ágúst sl. Aðal- efni þingsins að þessu sinni var „íslensk málrækt". Framsöguerindi fluttu Baldur Jónsson og Jón Hilmar Jónsson. Erindi Baldurs (flutt á sænsku) er birt í íslenskri þýðingu á öðrum stað hér í blaðinu, en erindi Jóns Hilmars (flutt á norsku) er væntanlegt í íslenskri þýð- ingu í næsta tölublaði Málfregna. Þar er fjallað um vanafestu og nýjungagirni í íslenskri orðmyndun. 31

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.