Málfregnir - 01.11.1987, Qupperneq 32
Alyktað um málræktarsjóð
Fyrir nokkrum árum kom fram sú hug-
mynd að stofna sérstakan sjóð til að
styrkja verkefni, sem miða að eflingu og
varðveislu íslenskrar tungu, en eru utan
verksviðs annarra sjóða, svo sem Vís-
indasjóðs, Pjóðhátíðarsjóðs og Gjafar
Jóns Sigurðssonar. Þörfin fyrir málrækt-
arsjóð verður ljósari með hverjum degi
sem líður. Mörg nytsamleg málræktar-
verkefni eru í strandi vegna fjárskorts.
í vor var haldinn á Hótel Sögu í
Reykjavík svo nefndur formannafund-
ur, sem boðað var til af hálfu íslenskrar
málnefndar. Sóttu hann 25 manns,
flestir formenn orðanefnda. Fundurinn
samþykkti einróma ályktun sem hljóðar
svo:
Fundur með fulltrúum orðanefnda og
fslenskrar málnefndar, haldinn á
Hótel Sögu 29. apríl 1987, styður þá
hugmynd að stofnaður verði málrækt-
arsjóður sem hafi það hlutverk að
styrkja undirbúning og útgáfu íðorða-
safna og aðra starfsemi sem miðar að
markvísri eflingu íslenskrar tungu.
Jafnframt beinir fundurinn þeim til-
mælum til menntamálaráðherra að
hann beiti sér fyrir stofnun sjóðsins.
Bent skal á að enginn opinber sjóður
fer með slíkt hlutverk, sem hér um
ræðir, og hefur það torveldað störf
orðanefnda.
í framhaldi af þessu ályktaði mál-
nefndin á fundi sínum 11. maí sl.:
íslensk málnefnd lýsir yfir stuðningi
sínum við þá hugmynd að stofnaður
verði íslenskur málræktarsjóður.
Nefndin bendir sérstaklega á nauðsyn
þess að sjóðurinn verði til styrktar
íslenskri málrækt í víðum skilningi og
fé úr honum verði varið til margvís-
legra verkefna. Nefndin óskar eftir
því að hún verði höfð með í ráðum við
endanlega ákvörðun um hlutverk
sjóðsins.
Málfregnir koma út tvisvar á ári
Útgefandi: íslensk málnefnd
Ritstjóri: Baldur Jónsson
Ritstjórn og afgreiðsla: fslensk málstöð,
Aragötu 9, ÍS-101 Reykjavík. Sími: (91) 28530,
(91) 622699, (91) 694300
Áskriftarverð: 250 krónur á ári
Prentsmiðja Árna Valdemarssonar hf.
a
m
ÍSLENSK MÁLNEFND