Vestfirska fréttablaðið - 03.11.1975, Side 4

Vestfirska fréttablaðið - 03.11.1975, Side 4
Stendur eins og kristallsvasi á ðskuhaug BÆ JÁRSTJÖRN ísafjarðar samþykikti ályktun á fundi þ. 2. des. 1970, sem fjaMaði um byggingarframkvæmdir nýstofnaðs menntaskóla á staðnum. Var ályktunin eins konar niðurstaða áf undan- gengnum viðræðum bæjar- .stjórnar við fullfrúa Mennta- málaráðuneytis. Þar segir meðal annars: „Bæjarstjóm samþykkir að afhenda nú þegar 17 þúsund fermetra lóð á Torfnasi til byggingar Menntaskólans. Lega lóðar- innar er milli Seljaiandsvegar og Tcrfnesvagar, cg frá íþróttasvæði bæjarins að lystigarði”. Síðan segir: „Jafnframt sikuldlbindur bæj- arstjórn ság til að fjarlægja 'hús þau isem standa sjávar- megin við Torfnesveginn og hafi lokið því innan 10 ára frá því er bygginganefnd hetfur samþykkt fyrstu bygg- ingar Me'nntaskólans”. Að lokum segir í þessari ályktun Bæjarstjórnar: Fari svo að eittihvert eða einlhver hús neðan Torfnesvegar verði í vegi fyrir einhverjum hluta Menntaskó'labyggingarinnar á nefndu tímabiM skuldbindur bæjarstjórn sig til að fjar- lægja það eða þau, svo fljótt sem vera má isamkvæmt gild- andi samningum og lögurn, þannig að byggingarfram- kvæmdir við Menntaskóiann tefjist ekki”. Strax iog hinum fyrirhug- uðu byggingum hafði verið valinn staður á lóðinni, varð ljóst að einmitt nckkur þess- ara húsa neðan Tcrfnesvegar yrðu í vegi fyrir framkvæmd- unum. var fyrst cg fremst um að ræða þrjú hús í eigu Marsell'íusar Bernharðssonar en einnig íbúðarhús svo cg áhaldahús bæjar og rafveitu Bæjarstjórn þurfti íþví að grípa til aðgerða til að standa við skul'dbindingar sinar, og með bréfi dags. 16.3. 1972 biður bæjarstjórinn á ísafirði bæjarfógetann að dómkveðja tvo matsmenn til að meta tii pemngaverðs fasteignir og mannvirki fyrórtækisiins M. Bernharðsson h.f. á Torfnesi. Réttum mánuði síðar barst svar frá bæjarfógeta með útnefningu tveggja verk- fræðmga úr Reykjavík. Ofangreindar upplýsingar er að finna í .sikjölum bæjar- stjórnar, en,iengra nær frá- sagn þeirra ekki. En hver hefur framvinda málsins orð- ið? Isfirðingar hafa eflaust, veitt fþvií eftii'tekt að en.n hefur ekkert umræddra húsa vikið af grunni, og sú glæsi- lega nýbygging, ssm tokið er við, stendur eins cg kristalls- vasi á öskuhaug inn á milli gömlu húsanna. — Til að afla nánari ’frétta af þesisu máli, fór iblaðamaður Fréttablaðs- inis á fund Bolla Kjartansson- ar, Ibæjarstjóra. Hann sagði: — „Staðan í þassu má.li er sú, að enn standa yfir samn- ingaviðræður út af þeim hús- um sem brýnast er að hverfi, og eru í eign skipasmíðastöðv- ar Marsellííusar Bernharðs. sonar”. — „Það er rétt að rýming Menntasikólalóðarinnar hefur dregist mjög úr bömllu cg mestum töfum oHi biðin eftir mati verkfræðinganna. Það var elkki fyrr en á fyrri hiuta þessa árs sem þeir skiluðu mati sínu, og hafði verkið tekið þá 2i/2 ár”. — „Þqgar matið lá fyrir var Marselliusi gert tilboð á grundvel'li þess en hann sætti sig ekki við Iþað. Síðan hafa viðræður verið á milli aðila en engin lausn fundist”. Hvað verður svo látið ganga lengi? — „Ef saimkomúlag næst ekki á komandi vikum, í síð- asta lagi fyrir áramót, verður bæjarstjóm að taka af skarið. Eignarnám er auðvitað síð- asta stigið, en það hefur bæjarstjóm viljað forðast í lengstu lög”. Eru einhverjar sérstakar ástæður sem halda aftur af bæjarstjórn? — „Það er auðvitað Ijóst að hér eru geysiháar upphæðir í spiilinu, sem hafa hækkað mjög að undanfömú vegna verðbó'lgunnar. Það verður afar erfitt fyrir bæjarstjórn að ráða við svo háa greiðslu með öðrum verkefnum”. Nú hefur Skólameistari Menntaskólans látið að því liggja að hafin verði bygging sjálfs skólahússins næsta vor. Telur þú hættu á að gömlu húsin tefji iþá framkváemd? — „Það er rétt að gömlu húsin verða fyrir skólahúsinu, og mun bærinn gera allt til að korna þeim .burt áður, sivo að framkvæmdir geti hafist”. Að lokum bæjarstjóri, nu er ' hálfnaður sá tími sem bæjarstjórn hefur til að rýma Torfneslóðina að fullu. Hafa verið gerðar einhverjar frekari 'ráðstaf- anir um framhaldið? — „Já unnið hefur verið að því að kaupa upp öll hluta- bréfiin í fyrirtækinu Fiski- mjöl 'h.f. seim á þama nokfcur hús, einnig á 'bærinn áhalda- húsið svo þar eru hæg heima- tökin”. J—. Ýr heim frá Bandaríkjunum ÍSFIRSKA hljómsveitin Ýr, fór í síðasta mánuði til New Yorfc til upptöku á 11 laga hljómplötu, sem mun koma á markað eftir 2—3 vikur. í' Ýr em 4 hljómlistarmemn, þeir Sigurður Rósi Sigurðsson, Rafn Ragnar Jónsson, Hálf- dán Hauksson og Reynir Guðmundsison. Þeir félagar flugu út 15. sept. og dvöldust í N.Y. í 12 daga. Upptakan fór fram hjá Soundtek fyrir- tækinu, 50 West 57th st. Upp- tökunni stjórnaði Jakob Magnússan, eánn þefcktasti popphljómlistarm. íslenskur. Jakob leikur með á plötunni á píanó og hljómborð ýmis konar. Breski gítarledkarinn Allan Murphy leikur með í nokfcrum lögum. 7 af lögunum em frum- samin. Sigurður Rósi samdi 4, Reynir 2 og Hálfdán eitt. Jakob Magnússon lagði tii 2 lög, Gunnar Överbý samdi eitt, en eitt af lögunum er er- lent, útsett af hljómsveitinni. Fjórir af textunum eru á emsku en ihinir allir á ísilensku. Naín plötunnar verður Ýr, útgefandi Á.Á. HljómplÖtur. Umslagið tei'knaði Þorsteinn Eggertsson. Fréttablaðið óskar Ýr til hamingju með plötuma, með von um góðan árangur áfram sem hingað til. - H.Þ. Strákarnir í Ýr fyrir utan „stúdíóið’

x

Vestfirska fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.