Vestfirska fréttablaðið - 29.05.1980, Side 1
10. tbL6. árg.
29. maí 1980
vestfírska
FRETTABLASIS
Farþega- og vöruafgreiðsla á ísafjarðarflugvelli: Símar 3000 - 3400 -
3410. Söluskrifstofa í Hafnarstræti: Símar 3457 - 3557.
FLUGLEIDIR
Enginn er verri
þótt hann vökni
Við eigum fullt
af fatnaði,
sem þolir volkið vel.
HALDIÐ SJÓMANNADAGINN
HÁTIÐLEGAN í NÝJUM FÖTUM
FRÁ EPLINU.
Haf beit
Dick Philiips kominn aftur:
Aldrei leigt út
annarra htisnæði
Nú snemma í maí hélt ferða-
málafrömuðurinn Dick Phillips
í fyrsta leiðangur sinn um
Hornstrandir á þessu ári ásamt
hópi náttúruunnenda af Bret-
landseyjum. Eins og menn
muna varð mikið fjaðrafok á sl.
hausti vegna þessara ferða
Phillips og var kveikjan frétt í
Vestfirska fréttablaðinu, þar
sem heimildarmenn blaðsins
skýrðu frá því að ferðalangar á
hans vegum notuðu húsakost
á Hornströndum í óleyfi eig-
endanna og að Phillips tæki
jafnvel gjald fyrir þetta hús-
næði. I viðtali við Vestfirska
um síðustu helgi vísaði Phill-
ips þessum ásökunum algjör-
lega á bug og skýrði frá ferðum
sínum um Hornstrandir og
hvernig háttað væri afnotum
hans af húsakosti á þeim slóð-
um.
f næsta tölublaði Vestfirska
birtist viðtal við Phillips, þar
sem hann skýrir frá sinni hlið á
máli þessu. Einnig verður í
blaðinu athugasemd frá Mál-
fríði Halldórsdóttur og Arnóri
Stígssyni, en þau áttu langt
samtal við Phillips um helgina.
Motmæla
dmaklegum
ásökunum
Undirritaðir starfsmenn Vega-
gerðar ríkisins á Vestfjörðum vilja
hér með mótmæla þeim ómak-
legu ásökunum sem komið hafa
fram í fjölmiðlum undanfarið og
beinist að yfirmanni Vegagerðar-
innar á Vestfjörðum, Eiríki
Bjarnasyni, umdæmisverkfræð-
ingi, eftir útkomu skýrslu Vega-
gerðarinnar um Tengingu Inn-
Djúps.
stofnunarinnar þar sem þeir eru
vændir um óheiðarleika og hlut-
drægni.
Árni Traustason
Kristján Kristjánsson
Lára G. Oddsdóttir
Guðm. Gunnarsson
Ásgeir Kristinsson
Þröstur Jóhannesson
Hilmar Guðmundss.
Sveinbjörn Veturliðason
í skemmtilegu viðtali í næsta
tölublaði rekur Sveinn Guðnason
ganginn í þessu fiskiræktarævin-
týri þeirra í Botni.
Gera verður þá lágmarkskröfu
til þeirra er gagnrýna vilja störf
Vegagerðarinnar að sú gagnrýni
sé málefnaleg en ekki persónuleg-
ar árásir á einstaka starfsmenn
Ólafur H. Torfason
Kristinn Jónsson
Guðm. Finnbogason
Magnús Guðmundsson
Bragi Thoroddsen
f síðustu viku var sjö þúsund
laxaseiðum sleppt í lónið og
sleppitjörnina að Botni í Súg-
andafirði og er þetta þriðja árið
í röð sem slíku seiðamagni er
sleppt þar. Þessar stórmerku
tilraunir í fiskeldi eru gerðar af
níu systkinum, öllum ættuðum
frá Botni, og bændunum tveim-
ur sem þar búa nú, þeim Birki
Friðbertssyni í Birkihlíð og
Friðbert Péturssyni í Botni. Hér
er að mestu leyti um sjálfboða-
vinnu að ræða, en fiskeldistil-
raunirnar eru gerðar í fullu
samráði við og samvinnu
Veiðimálastofnunina, sem
leggur til laxaseiöin. Áður-
nefndir aðilar hafa stofnað
hlutafélag um fiskeldið, og
nefnist það að sjálfsögðu
Botnía h.f. Þeir leggja til að-
stöðu og alla vinnu en fá á móti
helming alls þess lax, sem
endurheimtist. Seiðum hefur
veriö sleppt að Botni allt frá
árlnu 1972, en í miklu minna
magni.
LANGTFERÐALAG
Fréttamenn Vestfirska voru
viðstaddir þennan merkilega at-
burð, er laxaseiðunum sjö þúsund
var sleppt 21. maí s.l., en þá
höfðu seiðin verið á ferðalagi í
fjóra klukkutíma - frá klakstöðv-
unum í Kollafirði inn á Reykja-
víkurflugvöll og með flugvél frá
Arnarflugi til Suðureyrar og það-
an með bílum inn að Botni. Seið-
in virtust talsvert vönkuð og fáein
þeirra höfðu lagt upp laupana, en
til allrar hamingju var það aðeins
örlítið brot af heildarmagninu.
Fjögur þúsund seiðum var sleppt
í flotkví í lóninu mikla, sem syst-
kinin frá Botni og bændurnir
tveir hafa lcomið sér upp af mik-
illi elju. Afganginum var sleppt í
sleppitjörnina, en um hana renn-
ur ferskt vatn frá Botnsá.
Menningar-
kvöld á
Flateyri
Sunnudaginn 4. maí var efnt
til menningarkvölds í nýju
mötuneyti útgerðarfélagsins
Hjálms h.f. á Flateyri. Karlakór-
inn „Ægir“ í Bolungarvík söng
lög eftir Árna Björnsson, séra
Bjarna Þorsteinsson og fleiri,
undir stjórn séra Gunnars
Björnssonar. Hjörtur Hjálmars-
son flutti erindi um sögu Flat-
eyrar, félagar úr Kammersveit
Vestfjarða léku nokkur lög og
lesin voru Ijóð við gítarundir-
leik. Samkoma þessi var mjög
fjölsótt.
Eins og frá hefur verið skýrt í
blaðinu, hafa fjölmörg skemm-
darverk verið unnin á ísafirði
að undanförnu. Þannig voru til
dæmis um síðustu helgi brotn-
ar sjö rúður í Gagnfræðaskól-
anum og ráðist var með máln-
ingu á stytturnar í garði Sund-
hallarinnar. f skeleggri grein á
bls. 7 fjailar „Guðmundur" um
skemmdarverk í bænum að
undanförnu og ýmislegt í sam-
bandi við þau.