Vestfirska fréttablaðið - 20.06.1980, Side 2
vestlirska I
FRETTABLADID
I VBStfirska ~~l
FRETTABLADID
Útgefandi og ábyrgðarmaður:
Árni Sigurðsson
Blaðamaður:
Eðvarð T. Jónsson
Prentun: Prentstofan fsrún hf.Jsafirði
í Reykjanesi viö ísafjaröardjúp eigum
viö þann staö, sem hæglega gæti, meö
góöri aðhlynningu, oröiö sannkölluð úti-
vistarparadís. Jaröhitinn í Reykjanesi er í
sjálfu sér undirstaöan, sem slíkur staöur
myndi byggjast á. Þar er nú fyrir hendi
stór sundlaug og gufubaö. Því miöur
hefur þessari aöstööu ekki verið haldiö
nægilega vel viö og er skömm frá því aö
segja að sundlaugin er vægast sagt illa
leikin vegna vanhirðu.
Aö sögn heimamanna í Reykjanesi hef-
ur lengi staðið til aö byggja nýja sund-
laug, sem myndi tilheyra skólanum, en af
framkvæmdum hefur ekki orðið. Nú hefur
veriö afráðið aö gera viö laugina, sem
fyrir er og ætti þaö aö gera sitt gagn.
Gufubaðstofan þarfnast einnig viögeröar
og vonast er til aö hún fari fram í sumar
aö einhverju leyti.
En hvaöa möguleika þarf helgardvalar-
staöur og orlofsdvalarstaöur aö hafa og
hvaöa tækifæri gæti staður eins og
Reykjanes haft upp á að bjóöa sem
slíkur?
Reykjanes,
upplagt
til
útivistar
og
orlofsdvalar
Fyrst og fremst er um aö tala sund- og
baðaðstöðu, sem er nokkur fyrir hendi,
en þyrfti aö batna til muna, svo sem eins
og meö tilkomu heitra potta og sólbaös-
skýla. Gistiaðstaða er fyrir hendi og veit-
ingasala er á staönum yfir sumariö.
Gönguland er meö ágætum á nesinu
sjálfu og víöa í nágrenninu. Til dæmis er
75 km. leið að aka í Kaldalón, en þaöan
er stutt aö ganga á Drangajökul. Veiðiár
eru í nágrenni staðarins og berjaland
gott.
íþrótta og leikjaaðstaða fyrir yngri kyn-
slóðina er því miður af fremur skornum
skammti og þyrfti nauðsynlega aö bæta
úr því. Knattspyrnuvöllinn, sem þarna er
þarf aö lagfæra. Þá væri æskilegt aö
útbúa tennisvelli og handboltavöll og
ekki síst leikvöll fyrir yngstu fjölskyldu-
meölimina. Þá ætti jarðhitinn á staönum
aö gera mögulegt aö koma upp skrúö-
garði og gróðursetning trjáplantna í ein-
hverjum mæli ætti aö vera auðveld.
Nóg um þaö. Þarna er ákjósanlegt
svæöi til þess aö byggja upp afþreyingar-
og hvíldarstað fyrir Vestfiröinga. Land-
gæöi eru næg og húsakynni í eigu opin-
berra aöila eru á staðnum. Hér er upplagt
tækifæri fyrir sveitarstjórnir og áhuga-
menn til þess aö vinna aö uppbyggingu
sumarparadísar fyrir Vestfirðinga. Vel
heppnuö helgi á slíkum staö er hverjum
manni hvíld og upplyfting frá daglegu
amstri og börnum kærkomin tilbreyting
frá kaupstaðaþvargi og ryki.
BfLL TILSÖLU
Toyota Corolla árgerð 1973 ek-
inn 83 þús. km.
Upplýsingar f síma 4121 eftir
kl. 19:00
TIL SÖLU
Cirrus 5A svifdreki, lítið not-
aður.
Upplýsingar í síma 3644 á
kvöldin.
Vélvirkinn sf. vélaverkstæði
Járnsmíðadeild
Margskonar nýsmíði úrjárni og stáli, svo
sem stálgrindarhús, afhent á hvaða
byggingarstigi sem óskað er. Rafmagns-
katlar (hitatúpur), allar stærðir, með eða
án neysluvatnsspírals, viðurkenndir af
rafmagns- og öryggiseftirliti ríkisins.
Neysluvatnsgeymar, með eirspíral. Vöru-
bílapallar, dráttarvélahús og öryggis-
grindur, rafmagnstöfluskápar, löndunar-
mál. Fólksbílakerrur, dráttarbeisli, inni-
og útihandrið, eldtraustar hurðir og
margt fleira.
Framkvæmum stórar og smáar viðgerðir
og nýsmíði á bátum og skipum. Góð
hafnaraðstaða er svo að segja við hlið-
ina á verkstæðinu. Toghlera- og bobb-
ingaviðgerðir.
Suðumenn okkar eru viðurkenndir af
Iðntæknistofnun fslands.
Tímavinna, eða föst verðtilboð, ef óskað
er. — Getum séð um hönnun og tækni-
lega aðstoð.
Getum unnið verk hvar sem er á Vest-
fjörðum.
EFLUM VESTFiRSKAN IÐNAÐ.
Vélvirkinn sf. vélaverkstæði
Hafnargötu 8 — Bolungarvík
Sími 94-7348
Aðalfundur
S.V.F.Í.
Framhald af hls. I
orðið á því misbrestur og virðast
það alltaf vera sömu mennirnir,
sem vanrækja hana. Hefur þetta í
för með sér ærinn kostnað og
erfiðleika. Halldór sagði, að Jó-
hannes Briem hefði í erindi sínu
rætt um ákveðinn tækjabúnað,
sem nefna mætti „vekjara" og
hægt er að koma fyrir í bátum.
Hægt er að hafa samband við
þennan „vekjara" úr landi og
slekkur hann ekki á sér fyrr en
honum er sinnt. Sagði Halldór, að
þessi hugmynd væri að mörgu
leyti athyglisverð og vel þess virði
að kanna nánar.
Á fundinum flutti Jósef Vern-
harðsson skýrslu um slysavarna-
skýlin á Hornströndum og kom
fram að ástandið í þeim málum
hefur breyst mjög til batnaðar á
undanförnum árum
BJÖRGUNARSTÖÐ VÍGO
Eftir fundarslit á Núpi fóru
allir fulltrúarnir, um 100 að tölu,
til Þingeyrar og var þar vígð ný
björgunarstöð þeirra Dýrfirðinga.
Sr. Lárus Þ. Guðmundsson ann-
aðist vígsluna. Björgunarstöðin
ber nafnið Stefánsbúð til minn-
ingar um sr. Stefán Eggertsson,
prófast á Þingeyri, en hann gekkst
fyrir því á sínum tíma að fá þessa
stöð. Húsið var gefið sr. Stefáni,
þegar verktakafyrirtækið ístak
flutti frá Mjólkárvirkjun.
Hátíðarhöld
í Reykjanesi
Framhald af bls. I
tíðarhöld hefur ekki verið að
ræða á þessum slóðum áður.
Konumar sáu um inniskemmt-
un óg veitingasölu, sem fór
fram í húsakynnum Reykjanes-
skóla, en ungmennafélagið
Djúpverji sáu um íþróttir og
leiki.
Meðal annars var keppt í kúlu-
varpi og voru valdir tveir góð-
bændur úr hverjum hreppi til
þátttöku. Ása Ketilsdóttir kom
fram í gervi Fjallkonunnar, en
Engilbert fngvarsson hélt hátíðar-
ræðuna. Þokkalegt veður var á
hátíðarhöldunum , sem voru að-
standendum sínum til mikils
sóma.
Öl og gosdrykkir
alltaf kalt
Við aukum
fjölbreytnina
Reynið samlokur úr heilmöluðu korni og
nýju skinkubakkana
Ath. að við lokum alltaf kl. 22:30
Nú er utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
hafin. Leitið til okkar um aðstoð, ef með
þarf. Opnunartími skrifstofunnar er 2 —
6 og 8 — 10 virka daga og 2 — 6 um
helgar.
Nefndin
VELJUM VIGDÍSI!