Vestfirska fréttablaðið - 20.06.1980, Blaðsíða 3
Pétur J. Thorsteinsson í viðtali við Vestfirska
Vestfirðingar hafa tekið mér
ákaflega vel
Einn þeirra manna, sem kos-
ið verður um, þegar íslenska
þjóðin gengur að kjörborðinu
29. júní næstkomandi er Pétur
Thorsteinsson, sendiherra.
Pétur var maður lítt þekktur
nieð þjóð sinni áður en hann
réðst í það fyrirtæki að bjóða
sig fram til þessa æðsta em-
bættis þjóöarinnar, og undirrit-
aður fréttamaður dregur ekki
dul á þá fávisku sína, að hann
minnist þess ekki að hafa heyrt
nafn hans nefnt fyrr en forseta-
kjör komst á dagskrá með þjóð
vorri. Pétur hefur um langt ára-
bil verið sendiherra íslands í
mörgum iöndum, nú síðast
ýmsum löndum Asíu með að-
setur í Reykjavík. Þessum em-
aettum hefur hann gegnt með
miklum sóma, að sögn þeirra
sem gerst þekkja til, og þannig
hefur hann eins og hinir fram-
bjóðendurnir unnið landi sínu
heilt um langt árabil. Það er því
ekki lítið vandaverk, sem bíður
■slenskra kjósenda í júnílok,
a.m.k. þeirra sem taka þetta
hlutverk sitt alvarlega. Hvort
þjónusta Péturs á þessum
vetttvangi dugir til að skila
honum í embætti þjóðhöfð-
ingja er vitaskuld annað mál. Á
undanförnum mánuðum hefur
Pétur tvívegis lagt leið sína til
Vestfjarða til að kynna Vest-
flrðingum persónu sína og
skoðanir. f seinna sinnið tók
hann fjórðunginn með leiftur-
sókn og fundaði í þremur
byggðarlögum sama daginn.
Við hittum Pétur að máli, er
hann átti stund milli stríða í
húsi Landsbankastjórans á
ísafirði einn sólríkan sunnudag
f júní. Mikið er talað um völd
nú á dögum og við innleiddum
samtalið með því að spyrja Pét-
ur hvort auka eigi völd forset-
ans.
VÍÐTÆK ÞJÓÐMÁLAREYNSLA
NAUÐSYNLEG
—Ég tel að við eigum að halda
okkar þingræðisfyrirkomulagi,
segir Pétur. Þetta fyrirkomulag
hefur reynst vel á Vesturlöndum.
Lýðveldi okkar er ungt að árum
og ég tel að við eigum að reyna
betur þessa skipan mála. Auk
þess þyrfti stjórnarskrárbreytingu
til að auka formlegt vald forseta
og ég á ekki von á því að sam-
komulag takist um slíka breyt-
ingu næstu árin. Hins vegar er
það skoðun mín, að nú séu þeir
óvissutímar bæði á íslandi og í
heimsmálunum að það ætti að
móta þetta embætti með öðrum
hætti en gert hefur verið á undan-
förnum árum og forsetinn eigi að
hafa reynslu í þjóðmálum, stjórn-
sýslu og alþjóðamálum og geta
fylgst ítarlega með málum, sem
snerta löggjöf og efnahagsmál,
viðskipti og afurðasölu o.s.frv.,
þannig að hann geti verið til
ráðuneytis ef á þarf að halda.
Ríkisstjórnir koma og fara og eru
oft stuttan tíma, en forsetinn er
yfirleitt nokkur tímabil og þarna
gæti skapast viss festa.
—Telur þú að forsetinn geti og
eigi að koma fram fyrir hönd
þjóðar sinnar sem sá aðili, sem
mest áhrif getur haft í þá átt að
selja íslenskar vörur erlendis?
—Þetta er til umtals nú í seinni
tíð. Mér finnst gæta þarna tals-
verðs misskilnings. Að sjálfsögðu
getur þjóðhöfðinginn ekki verið í
sölumennsku, slíkt væri broslegt.
Á hinn bóginn verður forsetinn á
öllum sviðum að beita áhrifum
sínum í þágu þess sem til heilla
horfir, hvort sem það er á við-
skiptasviðinu eða á öðrum svið-
um. Kveikjan að þessari umræðu
um hvort forsetinn eigi að afla
viðskiptasambanda er sú að þegar
aðrir þjóðhöfðingjar ferðast um.
fara viðskiptasendinefndir yfir-
leitt í kjölfar þeirra. Hjá okkur
getur ekki verið mikið um opin-
berar heimsóknir að ræða og ég
held því að þarna sé misskilning-
ur á ferðinni hjá þeim, sem um
þetta ræða.
TVEGGJA MANNA STARF
—Er það að þínu mati nauð-
synlegt að forsetinn sé kvæntur?
—Eg tel ekki að það sé nauð-
synlegt, en mér er tjáð að fyrrver-
andi forsetahjón og raunar einnig
núverandi forsetahjón telji þetta
tveggja manna starf. Og raunar
tel ég sjálfur að svo sé, því að á
þeim tíma, sem við höfum haft
karlmann sem forseta hefur kon-
an gegnt ýmsum sérstörfum, tekið
á móti einstaklingum og hópum
og stundum komið fram við tæki-
færi þar sem forsetinn hefur ekki
getað mætt, auk þess sem risnu-
hlið embættisins krefst mikillar
vinnu, skipulagningar og fyrir-
hafnar.
—Getur það hjálpað forsetan-
um að hafa stjórnmálareynslu eða
er hún óþarfi?
—Það er vissulega góður undir-
búningur í forsetastarf að hafa
stjórnmálareynslu, en hins vegar
tel ég ekki rétt að fara beint úr
baráttu fyrir ákveðinn flokk í for-
setaembættið. Það þarf að líða
alllangur tími á milli.
—Hvað á fólk að láta ráða,
þegar það gengur til forsetakosn-
inga?
—Fyrst og fremst reynslu fram-
bjóðandans. Á það ber að líta
hvort hann hafi reynslu á sviði
þjóðmála, í stjórnsýslu og al-
þjóðamálum, eins og ég nefndi
áðan, því að hann á ætíð að geta
verið til taks. ef á þarf að halda.
Menn þurfa líka að hafa ýmsa
mannkosti, en ég held að ég fari
ekki að telja þá upp.
ALÚÐLEGAR VIÐTÖKUR A
VESTFJÖRÐUM
—Óvenjulega margir sækjast
eftir þessu embætti að þessu
sinni. Er það eftirsóknarvert að
vera þjóðhöfðingi á íslandi í
þeirri verðbólgu og upplausn,
sem einkennir þjóðlífið?
—Það er spurning um hvort
það er nokkurn tíma eftirsóknar-
vert að vera þjóðhöfðingi. En ef
maður telur að hægt sé að gera
gagn í því starfi og láta gott af sér
leiða, þá er það veigamikil ástæða
fyrir því að maður sækist eftir
þessu embætti.
—Hvernig hafa Vestfirðingar
tekið þér?
—Þeir hafa tekið mér ákaflega
vel, bæði þegar ég var hér í mars-
mánuði, en þá fór ég víða um
Vestfirði, og ekki síður nú. Ég var
á Patr^ksfirði í gær og átti þar
mjög ánægjulegan fund með Pat-
reksfirðingum. f dag hafa verið
fundir í Bolungarvík og á ísafirði.
og undantekningarlaust hafa
móttökurnar verið einstaklega al-
úðlegar.
—Þú hefur haft á orði að það
hafi háð mjög framboði þínu að
þú varst sá frambjóðendanna sem
þjóðin þekkti minnst. Þekkja
menn þig betur núna?
—Já, vissulega hefur þetta
breyst mikið. Ég hef farið víða
um landið og haldið fundi, bæði
opinbera kynningarfundi og
vinnustaðafundi. Á þann hátt nær
maður til flestra, en ég á eftir að
fara víða enn og t.a.m. í Reykja-
vík. þar sem eru þúsundir vinnu-
staða, nær maður ekki nema til
brots af þeim, þannig að ef vel
ætti að vera þyrfti ég miklu lengri
tíma til kynningar.
—Skoðanakannarnir síðdegis-
blaðanna hafa valdið talsverðu
fjaðrafoki. Hafa þessar kannanir
haft einhver áhrif til góðs eða ills
fyrir þig?
—Ég tel því miður að þær hafi
áhrif og það er eindregin skoðun
mín að þær hafi ekki átt að eiga
sér stað á þeim tíma sem þær
voru framkvæmdar. Þetta var
alltof snemmt. Bæði átti ég eftir
að fara mjög víða um landið til
kynningar og auk þess hafa fjöl-
miðlar, ekki síst ríkisfjölmiðlar.
vanrækt algjörlega að kynna for-
setaframbjóðendurna. Mér finnst
líka að sú kynning sem framund-
an er ríkisfjölmiðlunum sé alltof
lítil. Það er þannig staðið að þess-
um kynningum að þær geta eng-
anveginn gefið fullnægjandi
mynd af frambjóðendunum.
—Samkvæmt skoðanakönn-
unum hefur mikil fjöldi kjósenda
ekki enn gert upp hug sinn. Telur
þú að þeir geti á lokasprettinum
safnast til þín?
—Ég er í engum vafa um það.
etj-
TIL SÖLU
Chevrolet Malibu árg. 1973, 8
cyl. 307 cubic. Vél nýupptekin.
Upplýsingar í sfma 3458 eftir
kl. 19:00
VIL KAUPA
lítinn ísskáp, má vera notaður.
Upplýsingar í síma 3330 eftir
kl. 18
TIL SÖLU
Chooper gírahjól, Rafha elda-
vél, eldrl gerð og Audl 100 LS,
árgerð 1975.
Upplýsingar í síma 3518
BARNAGÆSLA
Pössun vantar fyrir 3ja ára
dreng, allan daginn, sem fyrst.
Upplýsingar f síma 4204 á
kvöldin.
Póstur og sími
Lausar stöður
Tvær stöður ritsímaritara eru lausar til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 9. júlí n.k.
Upplýsingar gefur umdæmisstjóri.
PÓSTUR OG SÍMI, ÍSAFIRÐI
Pétur J. Thorsteinsson og Oddný, kona hans. Myndin er
tekin við heimavist M.f. á ísafirði.
Bílasala
Daða
BÍLA- OG SPORTBÁTASALA
Sími 3806 — Isafirði
BfLAR TIL SÖLU
Austin Allegro 79 4.400
Chevrolet Nova 78 6.300
Chevrolet Nova 74 3.000
Chevrolet Mallbu 73 2.500
Datsun 180 B SSS 78 5.000
Datsun 1200 73 1.200
Ford Fairmont 78 6.000
Ford Fairmont 78 5.500
Flat 125 P 77 2.000
Honda Clvlc 74 2.600
Honda Clvic 74 2.400
Hornet 73 2.000
Mazda 929 74 3.000
Peugeot 504 75 3.800
Plymoth Valiant 74 3.000
Renaualt 16 TL 76 3.200
Subaru 4x4 77 3.500
Saab 96 74 2.400
Saab 99 74 3.500
Saab 99 70 1.300
Toyota Crown 2600 76 6.200
Toyota Crown 200 71 1.800
Toyota Crown 72 2.400
Volvo 144 74 3.800
Volvo 244 76
Vw Passat 74 2.500
VW sendlf. 70 1.200
Lada Sport 78 4.800
Fiat 127 74 800
TILSÖLU
Fella heyþyrla 2ja stjörnu og
hjólmúgavél.
Upplýsingar í síma 3382
TIL SÖLU
Toyota Crown, árgerð 1966.
Verð eftir samkomulagi.
Upplýsingar í sfma 4104 á
kvöldin.
höggþétt
vatnsþétt
pott-
þétt
Eftir að hafa gjörbylt
áratuga gamalli fram-
leiðslutækni armbands-
úra hefur TIMEX nú
sannað yfirburði sína
um allan heim. Fram-
leiðslan er ótrúlega ein-
föld og hagkvæm, en ár-
angurinn er níðsterkt og
öruggt gangverk.
Fleiri og fleiri fá sér
Timex. Nú getur þú líka
fengið þér ódýrt, en
vandað og fallegt úr.
Ljönid
L