Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 4

Vestfirska fréttablaðið - 11.12.1980, Blaðsíða 4
I vestlirska FRETTABLADID Frá Norræna félaginu Norræna félagið á Isafirði heldur sinn árlega jólafund sunnudaginn 14. des. kl. 9 í Húsmæðraskólanum. Eins og undanfarin ár er jólafundurinn helgaður ein- hverju norðurlandanna að þessu sinni er það Grænland. Sýnd verður mynd þaðan og flutt verður erindi og að venju Kaffi og skemmtiefni. fréttatilkynning. Stundinnátast, verumviðbum nýkrónunni í tíma! i 5 Z | <r x: ;< O cö < O z 10 5 ísfirðingar! nágrannar! Jólatrésbasar Björg- unarsveitarinnar Skutuls hefst laugardaginn 13. desember. Opið verður þann dag frá kl. 14 — 19ogá sunnudaginn kl 14 — 22. Síðan verður opið mánudaginn 15. til föstudagsins 19. frá kl. 16 — 19. Selt verður fyrir framan Hótel fsa- fjörð. Ath. Jólasveinninn verður á sveimi á laugardaginn! Komið og styrkið gott málefni og komist jólaskap um leið. BJÖRGUNAR- SVEITIN SKUTULL. ENDURLESTU BÆKLINGINN Fynr áramótin er ráðlegt að lesa aftur bæklinginn sem sendur var út í haust. Ef eitthvað er óljóst getur þú leitað upplýsinga í næsta banka eða sparisjóði. Vertu klár á gjaldmiðilsbreytingunni um áramótin. TÉKKAR: Gkr.fyriráramót- Nýkr. eftir áramót Það er áríðandi að tékkar útgefnir í des- ember séu undantekningarlaust í gömlum krónum. Eftir áramótin eiga allir tékkar að vera í nýjum krónum. Sknfaðu skýra dagsetningu, hafðu mán- uðinn í bókstöfum til öryggis. Einnig getur þú skrifað Gkr. fyrir framan fjárhæð á tékka áramót og Nýkr. fýrst eftir áramót. «71 ATJTRVDUAR IGÖMLUM KRQMJM.ÞQTT ÞEIR GREIÐIST Á TJÆlSTA ARI Fólk er hvatt til þess að nota eingöngu gamlar krónur í öllum viðskiptaskjölum út þetta ár. Vixlar sem samþykktir eru fyrir áramót en eiga að greiðast á árinu 1981 skulu vera í gömlum krónum og það tekið skýrt fram. Munið að það er óráðlegt að samþykkja ódagsetta vixla. <Z Viðskiptamenn banka og sparisjóða eru hvattir til sérstakrar varúðar við dagsetningu og útgáfu tékka um sjálf áramótin. Til að fyrirbyggja hugsanleg mistök og til að létta störf gjáldkera er ráðlegt að leggja tékkheftin til hliðar á gamlársdag og nýársnótt. Losið ykkur við gömlu myntina fyri iráramót Það er mjög til hagræðis að mynt í spari- baukum svo og mynt sem dagað heíur uppi hjá fólkijberist bönkum og sparisjóðum fyrir áramót. NÝKRÓNAN RÍKIR STRAX EFTIR ÁRAMÓT Verðlag verður mælt í nýjum krónum frá áramótum. Gamlar krónur (seðlar og mynt) gilda þó áfram og má nota í viðskiptum að 1/100 skráðs verðs fram til júníloka 1981. Þó að gamlar krónur (seðlar og mynt) gildi til júníloka 1981, er best að skipta strax eftir áramótin því að markmiðið er að nýkrónan verði sem fýrst ráðandi gjaldmiðill. LETTUMA AFGREIÐSLU- FOLKI Það mæðir mikið á verslunum í sambandi við gjaldmiðilsbreytinguna. Sýnum því tillitssemi og léttum afgreiðslufólkinu störfin með því að skipta yfir í nýkrónur í banka eða sparisjóði áður en farið er í verslun eftir áramótin, ef á annað borð er greitt með peningum en ekki tékka. Það munar okkur litlu en það miklu. Bankar og sparisjóðir sjá um um- skráningu innlansreikninga og verðbréfa í þeirra vörslu úr gömlum krónum í nýjar. Eigendur sparisjóðsbóka geta sem fyrr komið hvenær sem er eftir áramótin til þess að sjá vaxta- færslu og innistæðu þeirra i nýkrónum. Reikningsyfirlit verða send í pósti eins og hingað til. Þú þarft ekki að hlaupa til, bankinn sér um breytinguna óbeðinn. JJ1UA4 hjálpsci Bíðlund og *~1isemi kostar ikrónu Meðan á gjaldmiðilsbreytingunni stendur mæðir mikið á starfsfólki í bönkum, sparisjóðum og verslunum. Því er áríðandi að allir sýni tillits- semi og liðki til fýrir næsta manni. Afgreiðslufólk jafnt sem viðskiptavinir þurfa að snúa bökum saman, svo að breytingin gangi snurðulaust. Það er öllum fýrir bestu. minni upphæðir-meira verðgildi ★ Með þrem — Þórir-Rúnar-Engilbert-María ★ Lítið brölt — Haukur Morthens ★ Geislavirkir — Utangarðsmenn ★ Rut + — Rut Reginalds ■A I hakanum — Mezzotorte % / ■ __■ Verslunm Isafirði ★ Dömupeysur ★ Herrapeysur ★ Skyrtur ★ Herrajakkaföt ★ Barnafatnaður Jólavörurnar streyma að Eitthvað nýtt daglega

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.