Vestfirska fréttablaðið - 26.01.1984, Qupperneq 1
4. tbl. 10. árg.
vestfirska
26. janúar1984
FRETTABLADIS
FLUGLEIÐIR
ÍSAFJARÐARFL UG VELLI
SÍMI 3000 OG 3400
FLUGLEIDIR
Nýjar vörur í dag
Nýjar vörur
vikulega
Fatnaður frá EPLINUverbur sýndur á Reykjavíkur-
kynningunni í Hnífsdal á laugardaginn.
Verslunin ísafiröi sími 3103
Úlfar Thoroddsen, sveit-
arstjóri á Patreksfirði,
um Qárhagsáætlun:
Varla
nokkrar
frain-
kvæmdir
Fjárhagsáætlun fyrir Pat-
reksfjörð var lögð fram í des-
ember. Að sögn Úlfars Thor-
oddsen, sveitarstjóra, er vart
gert ráð fyrir öðrum fram-
kvæmdum en við dagheimili.
Ástæðuna sagði hann vera að
mun verr hefði gengið að inn-
heimta gjöld en áður. Hann
sagði að venjulega innheimt-
ust 84 — 90% gjalda fyrir ára-
mót, en núna náðust ekki
nema 77% og í raun minna því
inní þeirri tölu væru 900.000 kr.
sem fyrirsjáanlega mundu ekki
nást inn vegna gjaldþrots
Kópaness.
Úlfar sagði að á árinu yrði
unnið að endurbyggingu og lag-
færingum eftir skriðurnar í fyrra,
en til þess verkefnis hefðu fengist
2.6 milljónir frá Félagsmálaráðu-
neyti.
I fjárhagsáætlun þeirra á Pat-
reksfirði eins og hún liggur fyrir
er gert ráð fyrir að útsvarsprós-
entan lækki úr 12,1 í 11% en
fasteignagjöld verði óbreytt. þ.e.
0.5% á íbúðarhúsnæði og 1,25% á
annað húsnæði. ,,Ég sé ekki að
okkur sé fært að siaka neitt til,“
sagði Úlfar Thoroddsen í samtali
við blaðið.
Fjárhagsáætlunin verður vænt-
anlega afgreidd í lok febrúar.
Ef væri
égungur
— úr nýja leikskólan-
um í Bolungarvík
Eins og minnst var á í síð-
asta blaði var nýr leikskóli tek-
inn í notkun í Bolungarvík 2.
janúar síðastliðinn. Rúmar
hann 40 börn í tveimur deild-
um, en sá gamli rúmaði aðeins
25 börn. Að sögn Selmu Frið-
riksdóttur, forstöðukonu, bætti
þessi nýi skóli úr brýnni þörf,
en þó eru enn nokkur börn á
biðlista.
Það var að frumkvæði Lions-
klúbbsins t Bolungarvík að
skipuð var samstarfsnefnd um
byggingu skólans. Auk þeirra
Lionsmanna átti Kvenfélagið
Brautin og Kvennadeild
Slyusavarnafélagsins sæti t
nefndinni. Árið 1978 var ráðinn
byggingameistari og hafist
handa. 1982 tók síðan Bolung-
arvíkurbær við húsinu, sem þá
var með frágengnu þaki, gleri
og útihurðum, og innréttaði.
Því verki lauk síðan í árslok
1983. Að sögn Guðmundar
Kristjánssonar, bæjarstjóra í
Bolungarvík, flýtti framtak fé-
laganna fyrir því að leikskólinn
kæmist í gagnið.
Stólarnir handlangaðir inn
Menntaskóliim í nýja húsið
Það var létt yfir nemendum
og kennurum Menntaskólans
á mánudaginn þegar verið var
að flytja í hið nýja kennslu-
húsnæði skólans á Torfnesi.
Langþráður draumur var að
| rætast.
L-..............i
Smíði hússins hófst haust-
ið 1979 og er þvf búin að taka
rúm fjögur ár. Þó enn eigi
eftir að ganga frá ýmsu innan-
stokks var kennsla hafin í
gær, en húsið verður ekki
formlega vígt fyrr en í haust.
Átta fullbúnar kennslustofur
hafa nú verið teknar í notkun,
en síðar á árinu bætast tvær
við og verða þær notaðar til
verklegrar kennslu.
Um 130 nemendur stunda
nú nám í dagskóla M.í.
Tveir Is-
firðingar á
Olympíu-
leikana í
Sarajevo
Tveir ísfirðingar hafa nú ver-
ið valdir til að keppa fyrir ís-
lands hönd á Ólympíuleikunum
í Sarajevo sem brátt hefjast.
Það eru þeir Guömundur Jó-
hannsson, sem keppir í alpa-
greinum, og göngukappinn
Einar Ólafsson.
Aðrir í Ólympíuliðinu verða
Nanna Leifsdóttir, Árni Þór
Árnason og Gottlíeb
Konráðsson.
Tíðindamaður Vf. heimsótti
leikskólann í vikunni og fannst
hann vera eins og Gúllíver f
Puttalandi, enda er þar flest
sniðið að þörfum þeirra stuttu.
Var ekki annað að sjá en þessi
Bolungarvíkurbörn léku við
hvurn sinn fingur, enda hús-
næðið notalegt og þau nýkom-
in úr snjónum úti.
Ur nýja leikskólanum í Bolungarvík
Yerulegur kippur
í fasteignasölu
Að sögn fasteignasala í
bænum hefur fasteignasala
tekið verulegan kipp undanfar-
ið og jafnvel ekki verið svona
mikil í mörg ár. Mest er eftir-
spurnin eftir litlum tveggja til
þriggja herbergja íbúðum f
lægri og mið- verðflokkum. Hér
er einkum um að ræða ungt
fólk sem er að kaupa í fyrsta
skipti. Að sögn Arnars Hinriks-
sonar lögfræðings eru jafnvel
dæmi um að utanbæjarfólk
hringi og ætli sér að flytja í
bæinn ef það fær íbúð. Fram-
boð virðist hins vegar ekki vera
nægt.
Tryggvi Guömundsson. lög-
fræðingur. sagði ástæðuna ekki
vera þá að auðveldara væri að
komast yfir íbúð nú en áður. síður
en svo. þetta væri uppsafnaður
þrýstingur. fólk væri nú að taka
við sér eftir langt stopp. Arnar
Hinriksson sagði að salan hjá sér
hefði verið ágæt síðasta ár. en þá
hefði aðallega verið um dýrari
eignir að ræða.
..Það er ekkert kreppuhljóð í
Vestfirðingum." sagði Tryggvi
Guðmundsson.
Mest er um framboð á litlum
íbúðum í Holtahverfi og Hnífs-
dal.