Frjáls Palestína - 01.11.2009, Side 1
FRJÁLS PALESTÍNA 1
Málgagn Félagsins Ísland-Palestína – 1. tbl. 20. árg. – Nóvember 2009
bindingar um aðgerðir. Til greina koma
refsiaðgerðir og einnig að draga ábyrga
aðila fyrir stríðsglæpadómstól.
Það var ekki uppörvandi að verða vitni
að hjásetu Noregs við afgreiðslu málsins
hjá Mannréttindaráðinu. Norðmenn vilja
greinilega líta á sig sem hlutlausan mála-
miðlara eftir að hafa gegnt mikilvægu
hlutverki í Oslóar-samkomulaginu 1993.
Reynsla Palestínumanna af því er sú að
betur hefði verið heima setið. Ástandið
hefur stórlega versnað síðan þá.
Berlínarmúrinn
og Vesturbakkinn
Í þessum mánuði hefur þess verið minnst
að 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins.
Þeim atburði hefur eðlilega verið fagnað
um allan heim, en ekki er laust við
tómahljóð í þeim fögnuði þegar þagað
er yfir aðskilnaðarmúrnum í Palestínu
sem er allt að þrisvar sinnum hærri og
miklu lengri og stærri en Berlínarmúrinn
nokkru sinni var.
Ísraelsstjórn heldur áfram að lengja
og stækka múrinn, þrátt fyrir úrskurð
alþjóðadómstólsins í Haag í júlí 2004.
Þá var múrinn dæmdur ólögmætur,
Ísraelsstjórn gert að rífa hann og bæta
Palestínumönnum það tjón sem múrinn
hefur valdið. Ísraelsstjórn hefur í engu
hlítt dómnum, og lætur sem hún sé hafin
yfir lög og rétt.
Aðskilnaðarmúrinn er reistur á landi
Palestínumanna en fylgir ekki landa-
mærum nema þar sem engar land-
tökubyggðir eru. Annars er verið að
innlima stór svæði Vesturbakkans í
Ísrael. Með byggingu hans eru Pal est-
ínumenn lokaðir inni, lokaðir hver frá
Enn eitt slæmt árið í sögu palestínsku þjóðarinnar líður senn á enda og þörf
er á einbeitni til að sjá eitthvað jákvætt
og að halda vonarneistanum lifandi.
Í lok síðasta árs, þriðja í jólum, hóf
Ísraelsher grimmilegar árásir úr lofti, af
landi og af sjó á íbúðabyggðir, skóla,
sjúkrahús og aðrar opinberar byggingar.
Lokað var fyrir aðgang að neysluvatni og
eldsneyti. Auk háþróaðra stýriflauga voru
notaðar sprengjur af ýmsum gerðum. Þar
á meðal risasprengjur, DIME sprengjur
og fosfór-íkveikjusprengjur, sem líkjast
napalmi og var þeim meðal annars
varpað á skóla. Ísraelsstjórn linnti ekki
látunum fyrr en að rúmum þrem vikum
liðnum og þá höfðu fleiri en 1400 manns
verið drepnir, langflestir óbreyttir borgarar
og þar af 414 börn.
Goldstone-skýrslan
um stríðsglæpi
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna
setti á laggirnar rannsóknarnefnd til
að fara ofan í ásakanir um stríðsglæpi
Ísraelsstjórnar og hers. Til forystu var
valinn dómari frá Suður-Afríku, Richard
Goldstone, sem er gyðingur, mikill stuðn-
ingsmaður Ísraels og yfirlýstur síonisti.
Engu að síður snerist Ísraelsstjórn önd-
verð gegn rannsókninni og gekk svo langt
að neita að hleypa nefndinni inn í landið.
Fór þá svo að Goldstone og félagar
leituðu til Egyptalands og fengu að fara
inn til Gaza í gegnum landamærabæinn
Rafah.
Enda þótt viss tortryggni væri til staðar
í fyrstu gagnvart Goldstone fór svo að
stjórnvöldin á Gaza, undir forystu Hamas-
samtakanna, tóku vel á móti nefndinni og
veittu henni fulla samvinnu.
Niðurstöður skýrslunnar eru þær að
Ísra elsstjórn og her séu sek um stríðs-
glæpi gegn íbúum Gaza. Vopnuðu and-
spyrnuhóparnir, þar á meðal þeir sem
tengdir eru Fatah og Hamas, eru einnig
sakaðir um stríðsglæpi fyrir að hafa beint
flaugum sínum að íbúðabyggðum. Alls
13 Ísraelsmenn féllu á þessum þremur
vikum, þar af 10 hermenn.
Bandaríkjastjórn vill
breiða yfir stríðsglæpi
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna
og Allsherjarþingið hafa fjallað um skýrsl-
una og samþykkt hana og nú mun hún
fara fyrir Öryggisráðið. Ætlast er til
þess í skýrslunni að Ísraelsstjórn og
stjórn völd á Gaza fylgi henni eftir með
því að efna til sjálfstæðra rannsókna á
þess um kærumálum. Stjórnvöld á Gaza
hafa þegar ákveðið að verða við því,
en ísraelska ríkisstjórnin hefur lítið gert
annað en að mótmæla hástöfum og
byrjuðu raunar á því áður en skýrslan
varð til. Bandaríkjastjórn hagar sér eins,
og nú hefur Bandaríkjaþing fordæmt
skýrsluna!
Fyrirfram má gefa sér að Bandaríkja-
stjórn muni beita neitunarvaldi í Öryggis-
ráðinu gegn sérhverri tillögu um afgreiðslu
á Goldstone-skýrslunni, einkum og sér
í lagi ef slík afgreiðsla felur í sér skuld-
Eftir
Svein
Rúnar
Hauksson
PALESTÍNA
Frjáls
Rjúfum einangrun Gaza
– niður með múrinn!
Framhald á bls. 2