Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 18.05.1988, Qupperneq 4

Vestfirska fréttablaðið - 18.05.1988, Qupperneq 4
4 Isafjarðarkaupstaður Nýtt starf Auglýst er laust til umsóknar nýtt starf við ísafjarðarhöfn, starf verkstjóra. Verkstjóri skal fara með verkstjóm á útisvæði hafnar- innar. Æskilegt er að viðkomandi hafi skip- stjómar- og/eða vélstjóraréttindi og geti haf- ið störf sem fyrst. Upplýsingar veitir undirrit- aður á bæjarskrifstofunum að Austurvegi 2 eða í síma 3722. Umsóknarfrestur er til 31. maí n.k. Bæjarstjórinn á ísafirði. Atvinna í sumar Auglýst em laus til umsóknar störf flokk- stjóra vinnuskólans og umsjón starfsvalla í Holtahverfi, Hnífsdal og á Eyrinni, tímabilið 30. maí til 30. júlí. Laun skv. 65. lfl. F.O.S. VEST. Nánari upplýsingar gefur íþrótta- og æsku- lýðsfulltrúi í síma 3722. Ibúð óskast Bæjarsjóður ísafjarðar auglýsir eftir íbúð fyrir einn af starfsmönnum sínum. íbúðin þarf að vera 4 hb. og helst laus um næstkomandi mánaðamót. Vinsamlegast hafið samband við undirritaðan um hugsanlegar íbúðir. Forstöðumaður tæknideildar. Vinnuskóli ísafjarðar Vinnuskólinn tekur til starfa mánudaginn 6. júní og starfar í átta vikur. Þau börn og ung- lingar sem hug hafa á að starfa í Vinnuskól- anum í sumar og em fædd á ámnum 1973, 1974, 1975 og 1976, vinsamlegast látið skrá ykkur á Bæjarskrifstofunni fyrir 25. maí n.k. sem er síðasti innritunardagur. Laun verða 80% af unglingataxta. íþrótta- og æskulýðsfuUtrúi. Dagheimili - leikskólar Eftirtaldar stöður em lausar til umsóknar: Bakkaskjól: Staða forstöðumanns. Einnig vantar aðstoðarmenn til starfa. Eyrarskjól: 65% staða eftir hádegi. 67% staða eftir hádegi. Staða afleysara með 50% kaup- tryggingu. Nánari upplýsingar veita forstöðumenn við- komandi heimila, eða dagvistarfulltrúi í síma 3722 miUi kl. 10 og 12 daglega. Dagvistarfulltrúi. Haukur í Skipasmíðastöð Marsellíusar Huig de Groot sýnir „...horft með eftirvæntingu til fjar- lægðarinnar...“(„...an anxious look into the distance...“) Sýningin verður opnuð laugardaginn 21. maí kl. 16. Slunkaríki er opið fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 16-18. vestfirska ITTABUDID DYRAFJORÐUR Vorþankar um Skrúð Eftir Vilborgu Guðmundsdóttur frá Núpi Fyrsti sumardagur er liðinn, og þrátt fyrir að vetur konungur sýni enn veldi sitt, þá er hann orðinn bljúgari í sinni og glúpnar fyrir geislum sólar sem þessa daga skín í heiði og greiðir veg vorgyðjunnar um láð og lög. Og það fer ekki milli mála, að vorgyðjan er farin að fara mildandi höndum um hugi manna og vekja þar vonir um betri og bjartari tíð. Lóan er komin og kveður sinn óð til vorsins, sem ekki um metorð spyr. Ég veit að margur er farinn að finna vorhug sínum farveg til gróðurs og ræktunar með sáningu blómfræja og aðhlynningu á kart- öflum til útsæðis. En hvaða þrá vekur vorið í brjóstum þeirra sem farnir eru að starfsorku? Jú, vorið lætur engan afskiptan sem opnar hug sinn fyrir geislum sólar og gróðri jarðar. Ég sé að garðurinn minn er farinn að safna orku til að lyfta af sér fargi vetrarins, og laukarnir eru farnir að þrútna fyrir geislum sólar og ylnum frá hús- veggjunum. Já, jörðin bíður öll í ofvæni eftir ástaratlotum og kærleika vorsins. Hugur minn flýgur um fjöll og dali og staðnæmist á grundum Dýra- fjarðar, og þá minnist ég okkar góða alþýðuskálds, Guðmundar Inga, er hann segir í eina tíð: „Vilj- ir þú vestur á fjörðum vita hvar ræktun er prúð, leggðu þá leið þína að Núpi og líttu sem snöggvast á Skrúð.“ En hvað ætli framtíðin feli í skauti sér fyrir þann unaðsreit sem Skrúður var? Það þarf meira en vorylinn einan til að leysa hann úr þeirri órækt sem hann er kominn í, þar sem mannshöndin hefur ekki lagt honum lið undanfarin ár. En vonirnar glæðast þar sem Núps- skóli er nú tekinn til starfa á ný. Eins og flestir Vestfirðingar vita, var þessi gróðurreitur byggð- ur upp rétt eftir aldamótin, eða nánar tiltekið 1907, af stofnanda Núpsskóla, séra Sigtryggi Guð- laugssyni. Saga þeirrar starfsemi verður ekki rakin hér, en ég læt þess þó getið að garðurinn á sína dagbók frá upphafi vegar til loka- starfs stofnandans 1946. Stórmerk bók sem hlýtur að vekja hvern þann til umhugsunar um framtíð garðsins, sem les hana. En þó margir viti um Skrúð og hafi geng- ið þar um garð og jafnvel notið þaðan einnar og einnar plöntu sér til yndisauka í heimagarði, þá virð- ast þær færri hendurnar sem til- búnar eru að forða þessum unaðs- reit frá glötun. Að vísu eru eðlileg tildrög til þessarar deyfðar nútímans, bæði hið þrotlausa kapphlaup við tím- ann sem nú einkennir allt, og hitt líka að garðurinn er skráður eign héraðsskólans og því léttast að varpa sökinni þangað. En málið er bara ekki svona einfalt. Fyrst er að gá að því að þessi reitur er menn- ingararfur frá liðnum tíma til nú- tímans, og því ekki sæmandi að sjá hann farast án afskipta almenn- ings. Einnig það sem kannski er ekki öllum kunnugt um, að stór hluti þeirrar girðingar sem á að varðveita Skrúð er einnig vörn um skógrækt Vestfjarða. Þorsteinn Gunnarsson kennari við Núps- skóla, sem árum saman hlynnti að garðinum ásamt fjölskyldu sinni, fékk leyfi landeigenda fyrir viðbót- arlandi við Skrúð til skógræktar, enda margar sjálfsánar plöntur komnar út fyrir garðinn þá þegar. Síðan hefur verið plantað þar mörgum plöntum frá skógrækt- inni. Afþessu leiðir,aðþaðerekki skógræktinni óviðkomandi hvort girðingin er held umhverfis garðinn. Að mínum dómi er það heldur ekki sæmandi að dreifa plöntum út um holt og grundir, en láta nærri aldar gömul tré verða vanhirðu að bráð. Garðurinn sem skrúðgarður með sínum margvíslegu fögru blómum er svo annar liður sem meira snertir einkaaðila að sjá um framkvæmdir á. En garðurinn á til svo óteljandi unaðsreiti í sínum trjágróðri ef hann væri varinn og hirtur, þó skrúðblómin væru færri en áður meðan tíminn var ekki eins ofhlaðinn. Oft hefur mér dottið í hug hvort ekki væri möguleiki að koma þarna upp smá vinnunámskeiði á vegum Núpsskóla. Fá vinnuhópa unglinga tíma og tíma undir góðri stjórn til að vinna við garðinn framan af sumri. Ætti það nokkuð minni rétt á sér en íþróttanám- skeiðin? Meira að segja mætti tengja það hvort öðru. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að vinna þarna nokkur sumur, og þó ég réði ekki við verkahringinn sem skyldi, þá naut ég þar friðsældar og yndis, og þau börn og ungmenni sem oft voru þar með mér hafa síðan ámálgað það hvort við gæt- um ekki aftur farið að vinna í Skrúð. En starfsgetan takmarkar það hjá mér eins og öðrum. En hitt er ég sannfærð um, að ungmenni sem fengju að vinna þar undir góðri stjórn án þess að þeim yrði ofgert, kæmu fús aftur og fyndu þar grundvöll aukinnar menningar til heilbrigðs og eðlilegs lífs, og væri það jafnframt verðugt fram- lag í minnisvarða hins merka æsku- lýðsleiðtoga er hóf þetta starf. Megi bæði Núpsskóli og Skrúður bera gæfu til að halda því merki á lofti um ókomna tíð. Ég læt svo þessum hugrenning- um lokið með vísu er Úlfur Ragn- arsson læknir mælti fram er hann dvaldi í Dýrafirði eitt vor við læknisstörf: Þó að veður verði hörð og virðist þungt í spori, á ég draum um Dýrafjörð á dýrðarbjörtu vori. Vilborg Guðmundsdóttir frá Núpi. Þessi mynd var tekin í Skrúð, þegar þess var minnstað öld varliðin frá fæðingu sr. Sigtryggs Guðiaugssonar. Fremst á myndinni eru nokkrir af fyrstu nemendunum á Núpi 1906 -7.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.