Vestfirska fréttablaðið - 18.05.1988, Page 5
í5
vestlirska
TTABLaDIS
AF STRÍÐSVETTVANGI
Straumur hf., snyrtimennska til fyrirmyndar.
Eins og greint var frá í síðustu
tilskrifum hreinsunarnefndar var
ákveðið að heimsækja ýmis fyrir-
tæki og stofnanir í þessum bæ, og
benda forráðamönnum þeirra á
hvað betur mætti fara í umgengni
og snyrtimennsku. Þetta gerðum
við.
HEIMSÓKNIR
Fyrst lá leiðin til bæjarstjóra, en
hann var því miður ekki viðlátinn,
þar sem hann var við skyldustörf,
en þing bæjarstjóra mun hafa stað-
ið yfir.
Svohljóðandi bréf var því boð
-sent til bæjarstjórnar:
ísafirði 13. maí 1988.
„Hreinsunarnefnd hefur kannað
athafnasvæði ýmissa fyrirtækja og
einstaklinga hér í bæ. Eins og
vænta mátti kom í ljós, að um-
gengni og snyrtimennsku er víða
ábótavant. Þá kom í ljós við þessar
athuganir að hjá stofnunum bæjar-
ins er sömu sögu að segja. Um-
gengni og snyrtimennska er því
miður ekki til fyrirmyndar.
Það eru því vinsamleg tilmæli
hreinsunarnefndar að þér látið nú
þegar gera viðeigandi ráðstafanir,
þannig að stofnanir bæjarins geti
talist til fyrirmyndar hvað þetta
varðar.
Einnig er þess óskað, að bæjar-
stjórn láti girða sem fyrst það svæði
sem úthlutað verður sem geymslu-
svæði fyrir bæjarbúa.
Þá þykir hreinsunarnefnd eðli-
legt að krefjast þess að sorphaug-
um bæjarins verði komið í það á-
stand að ekki stafi frá þeim meng-
unarhætta."
Virðingarfyllst,
o.sv.frv.
ÍSAFJARÐARHÖFN
Þá fékk yfirhafnarvörður svo-
hljóðandi ábendingar:
„Umgengni og snyrtimennsku á
athafnarsvæði ísafjarðarhafnar er
ábótavant. Má í þessu sambandi
sérstaklega tilgreina eftirtalin
svæði:
1. Fyrir neðan O.N. Olsen.
2. Við afgreiðslu Djúpbátsins.
3. Við Harðviðarbryggju.
Það eru vinsamleg tilmæli
hreinsunarnefndar, að þér látið
nú þegar gera viðeigandi ráðstaf-
anir til hreinsunar."
Þegar fulltrúar hreinsunar-
nefndar ræddu við yfirhafnarvörð
kom í ljós að þegar hafði verið haf-
ist handa við lagfæringar á og við
Harðviðarbryggju. Móttökur voru
góðar.
ÖNNUR FYRIRTÆKI
Fimmtán (já fimmtán) fyrirtækj-
um og einstaklingum voru birt svo-
hljóðandi bréf:
„Hreinsunarnefnd hefur kannað
athafnarsvæði fyrirtækis yðar og
komist að þeirri niðurstöðu, að
umgengni og snyrtimennsku sé
ábótavant.
Það eru vinsamleg tilmæli
nefndarinnar, að þér látið nú þegar
gera viðeigandi ráðstafanir til
hreinsunar.“
Við höfum ákveðið að birta ekki
nöfn þessara fyrirtækja að sinni,
heldur verður fylgst með því hvort
þau verið við einlægum tilmælum
um úrbætur.
Það hlýtur að vera stolt hvers
atvinnurekanda, hvort sem hann
er í matvælaframieiðslu, eða
öðrum starfsgreinum, að fyrirtæki
hans teljist til fyrirmyndar hvað
varðar hreinlæti og snyrti-
mennsku.
VIÐURKENNINGARVOTTUR
Eins og upphaflega var skýrt frá
ákvað hreinsunarnefndin að kanna
jöfnum höndum það sem miður er,
og það sem vel er gert. Tólf (já
tólf) fyrirtæki og verslanir fengu
svohljóðandi bréf er fulltrúar
hreinsunarnefndar heimsóttu þau:
„Hreinsunarnefnd hefur kannað
athafnasvæði fyrirtækis yðar og
komist að þeirri niðurstöðu að um-
gengni og snyrtimennska er til
fyrirmyndar.
Þykir okkur ástæða til að vekja
athygli á þessu jafnhliða öðrum
störfum nefndarinnar."
Eftirtalin fyrirtæki fengu fram-
anskráð bréf:
íshúsfélag Isfirðinga
Vegagerð ríkisins
Vélsmiðjan Þór
Ljónið Skeiði
Mjölvinnslan hf. Hnífsdal
G.E. Sæmundsson
Olíufélag Utvegsmanna
Olíufélagið hf.
Straumur
Sporthlaðan
Bókaverslun J. Tómassonar
Verslunin Selið
Hreinsunarnefnd þykir ljóst, að
starfsmenn þessara fyrirtækja
leggja sig fram um að halda nán-
asta starfsumhverfi sínu snyrti-
legu, þótt stundum sé það erfitt.
HREINSUNARÁTAK
Á ÍSAFIRÐI
Tólf félagasamtökum sem starf-
andi eru í bænum voru send svo-
hljóðandi bréf:
„Ákveðið hefur verið að dagana
28. og 29. maí n.k. fari fram alls-
herjar hreinsun í bænum.
Hreinsunarnefnd leitar liðsinnis
allra félagasamtaka sem sjá sér
fært að taka þátt í hreinsunarher-
ferðinni. Einnig er leitað liðsinnis
annarra einstaklinga og fyrirtækj a.
Við hvetjum þá sem leggja vilja
þessu lið að mæta kl. 10.00 við
áhaldahús bæjarins laugardaginn
28. maí. Þaðan verður liðinu skipt
út í hverfin."
Tilgangurinn með þessu bréfi er
að reyna að virkja sem flesta í
hreinsunarátakinu. Markmiðið er
að ráðast á opin svæði í bænum og
fjarlægja þaðan allt rusl.
Sameinumst um átakið.
VERKAMENN
ÍSAFJARÐARKAUPSTAÐAR
Það hefur vart farið framhjá
neinum bæjarbúa, hversu mikið
starf (en vanþakkað) verkamenn
bæjarins vinna. Hreinsunarnefnd-
in telur rétt að það komi hér fram
að starfsmenn bæjarins hafa allt að
því lagt nótt við dag í glímunni við
ruslið að undanförnu.
Þeir sem vilja sjá umgengnina í
bænum, eftir að borgararnir hafa
verið að skemmta sér um helgar,
ættu að leggja leið sína (svona um
fjögurleytið, eftir ball) í miðbæ-
inn. Umgengninni verður vart lýst.
Sóðaskapurinn og tillitsleysið nær
þá hámarki.
En sjaldnast verða góðborgar-
arnir sjálfir varir við þennan and-
skotans sóðaskap, því verkamenn
bæjarins fara á stúfana um kl.
fimm og þrífa skítinn.
Ö1 er innri maður segir einhvers
staðar, en þarf umgengnin endi-
lega að vera svona? HÉR ÞARF
AÐ VERÐA BREYTING Á.
ENGINN GETUR ÞESSU
BREYTT NEMA VIB SJÁLF, og
það verðum við að gera.
NÝTT ÁHALDAHÚS
Nýlega var tekið í notkun ný-
byggt og veglegt áhaldahús bæjar-
ins. Umhverfi þess býður uppá
sóðaskap. Á svæði, sem segja má
að sé andlit bæjarins, verður
snyrtimennska að vera í fyrirrúmi.
Hreinsunarnefnd skorar því á
bæjarstjórn að láta nú þegar fram-
kvæma nauðsynlegar aðgerðir í
frágangi lóðar og ports við áhalda-
húsið.
SUNDAHAFNARSVÆÐI
Þeir sem telja sig þurfa geymslu-
svæði fyrir stóra hluti, skulu sem
fyrst snúa sér til tæknideildar, eða
hafnarnefndar. Markmiðið er að
geymslusvæðið verði á einum stað
við Sundahöfn.
SPURNINGAKEPPNIN
Okkur hafa borist nokkur bréf
varðandi spurningaleikinn sem við
birtum í upphafi þessa átaks. Enn
viljum við hvetja fólk til að senda
inn svör. Þeim sem þegar hafa sent
inn svör þökkum við, en viður-
kenningar verða birtar í lok þessa
átaks.
MÓTTÖKUR
VIÐ HRÉINSANIR
Þarna koma stríðsmennirnir,
var viðkvæðið, eða þarna koma
Rambóarnir. Við erum greinilega
kallaðir ýmsum nöfnum nú á síð-
ustu og bestu tímum.
Hins vegar verðum við að segja
það, að þegar við komum í heim-
sókn til fyrirtækjanna og lögðum
fram kvartanir við ráðamenn
þeirra, þá var okkur undan-
tekningalaust vel tekið. AIls staðar
var okkur boðið í kaffi og meððí.
Hjá einu fyrirtækinu var okkur
m.a. boðið í afmæliskaffi, því
framkvæmdarstjórinn (sem við
vorum að skamma) átti afmæli.
Viðbrögð fólks eru því vægast sagt
jákvæð, og þess vegna vonumst við
eftir árangri af þessu starfi.
OG SVONA í LOKIN:
Litla nefndin lagði í stríð
og langaði til að sigra,
í þetta vantar botninn. Vinsam-
lega skilið honum sem fyrst.
F.h. hreinsunarnefndar,
Jónas H. Eyjólfsson,
Þorbjörn Sveinsson,
Jósef Vernharðsson.
5
Þegar þú kemur suður, þá tekur
þú við bílnum frá okkur á
Reykjavíkurflugvelli.
Svo skilur þú hann eftir á sama
stað, þegar þú ferð.
Bílaleiga
11 I j I u I 11 Carrental
BORGARTÚNI 24 — REYKJAVÍK — SÍMI 11015
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI
— ATVINNA —
Óskum að ráða til afleysinga læknaritara
eða starfsmann með góða vélritunarkunn-
áttu.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri
og/eða framkvæmdastjóri alla virka daga
frá kl. 8.00 til 16.30 í síma 3811.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
— ATVINNA —
Óskum að ráða til sumarafleysinga:
★ Starfsfólk í þvottahús og straustofu
-jc Ráðsmann
Upplýsingar um störf í þvottahúsi og strau-
stofu gefur hjúkrunarforstjóri í síma 3014
eða 3020. Upplýsingar um starf ráðsmanns
gefur framkvæmdastjóri í síma 3811.
Aðalfundur
Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna á ísafirði verður haldinn í
Sjálfstæðishúsinu II. hæð, þriðju-
daginn 24. maí n.k. kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Matthías Bjarnason ræðir
stjórnmálaviðhorfin.
Önnur mál.
Stjórnin.
Auglýsing í Vestfírska
fréttablaðinu margborgar sig
Pósturogsími
Atvinna
Óskum að ráða starfskraft til ræstinga í
áhaldahúsi sem fyrst.
Upplýsingar gefur Kári í síma 3999.
Póstur og sími, ísafirði.