Vestfirska fréttablaðið - 18.05.1988, Side 6
6
ÍS
vestfirska
TTABLACID
AF MIÐUNUM
ÍSAFJÖRÐUR:
GUÐBJARTUR 29. apríl 137
tonn. Aftur 9. maí105 tonn. Uppi-
staðan grálúða, allt til vinnslu
heima. ORRI er á trolli: 4. maí 50
tonn af þorski af Austfjarðamið-
um, aftur 11. maí' 55 tonn af
þorski af heimamiðum, allt unnið
heima. Línubátarnir VÍKINGUR
III og GUÐNÝ: Gæftir með ágæt-
um, en aflinn mjög mikið að drag-
ast saman, þannig að þeir eru
komnir niður í 4-5 tonn af steinbít
á dag. „Maður sér það betur og
betur", segir Hans Haraldsson
hjá Norðurtanganum, „að það
hefur ekki verið bara einhver
hending heldur löng reynsla sem
réði því að gömlu mennirnir settu
lokadag vetrarvertíðar 11. maí.
Veiðarnar á litlu bátunum eru
búnar um þetta leyti, fiskurinn er
farinn af miðunum." Víkingur III
og Guðný hætta nú um hvíta-
sunnuna, og Orrinn mun a.m.k.
taka sér eitthvert hlé.
HNÍFSDALUR:
FRAMNESIÐ 11. maí 97 tonn.
BOLUNGARVÍK:
DAGRÚN 11. maí 163 tonn,
mestgrálúða. SÓLRÚN kom 15.
maí með um 15 tonn af úthafs-
rækju. HEIÐRÚN væntanleg
þriðjudagskvöld 17. maí með 65-
70 tonn, mest þorsk, en eitthvað
af ýsu og karfa. Frekar tregt hjá
netabátum að undanförnu.
Færabátum fjölgar stöðugt,
kannski tíu-fimmtán byrjaðir.
Hefur verið misjafnt hjá þeim,
gott fyrstu vikuna, en síðan yfir-
leitt frekar tregt, kannski frá þrjú
hundruð og upp í átta hundruð
kíló. En síðustu vikuna jafnvel
upp í eitttil hálftannaðtonn. Yfir-
leitt þolanlegur fiskur.
SUÐUREYRI:
ELÍN ÞORBJARNARDÓTTIR
var að landa 120 tonnum af grál-
úðu 16. og 17. maí. SIGURVON-
IN hætti um mánaðamótin. INGI-
MAR rær enn, en orðið tregt hjá
honum.
FLATEYRI:
Tveir-þrír enn að skrölta á línu,
en eru að hætta. Ekkert orðið að
hafa, eitt og hálft tonn í róðri.
GYLLIR hefur verið að fiska
þokkalega vel grálúðu, landaði
10. maí 136 tonnum, kom aftur á
laugardag og landaði á mánudag
154 tonnum. Færabátar ekki
byrjaðir, enn verið að mála trill-
urnar.
ÞINGEYRI:
SLÉTTANESIÐ landaði föstu-
dag 13. maí 139 tonnum, og í
fjóra gáma. Færabátar verða
margir í sumar. (Vantar meira.)
BÍLDUDALUR:
Rækjutogarinn ÞRÖSTUR hefur
ekki landað síðan fyrir mánaða-
mót.
TÁLKNAFJÖRÐUR:
TÁLKNFIRÐINGUR landaði 9.
maí 188 tonnum. Skakbátar eru
byrjaðir.
SÚÐAVÍK:
BESSI kom á mánudag með 120
tonn, mest grálúðu. HAFFARI
landaði 10. maí 7,5 tonnum af
rækju. Litlir skakarar í Súðavik,
enginn byrjaður í alvöru.
SKATASKEYTI
Munið síma og kreditkortaþjónustu okkar.
Hringið í síma 3282 og við sjáum um
sendingu heillaóska fyrir yður.
EINHERJAR
Verkalýðsfélagið
Baldur
r
ORLOFSHUS
Verkalýösfélagið Baldur lýsir eftir umsóknum um
dvöl í orlofshúsum félagsins.
1. Flókalundur
2. Illugastaðir
3. Einarsstaðir
4. Svignaskarð
5. íbúð á Akureyri
Vikuleiga er nú kr. 5.000,00
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu félagsins í Al-
þýðuhúsinu á ísafirði, sími 3190 fyrir 1. júní n.k. Að
venju verður dregið úr umsóknum, ef þátttaka verð-
ur mikil. Þeir sem ekki hafa leigt viðkomandi hús á
síðastliðnum þremur árum ganga fyrir.
Verkalýðsfélagið Baldur.
r
STUDENTAGJAFIR
FERMINGARGJAFIR
EF ÞÚ ERT AÐ HUGSA UM
■fr GJAFAVÖRU
☆ RAFMAGNSTÆKI
ik HLJÓMTÆKI
EÐA ÖNNUR HEIMILISTÆKI,
ÞÁ FÆRÐ ÞÚ ÞAÐ ALLT
HJÁ OKKUR
Silfurgötu 5 - Pósthólf 451 - 400 ísafirðl
/////
straumur >
Héraðssamband Vestur-ísfirðinga Æsk. Vest.
Sumarbúðir á Núpi
í sumar verða þrír flokkar barna í sumar-
búðum á Núpi:
I. 20.-30. júní 10-13 ára
II. 4.-11. júlí 7-10 ára
III. 13.-20. júlí 7-10 ára
Innritun fer fram hjá Siggu Mæju í síma
3081 kl. 17-20 virka daga og hjá Bergi í
síma 8210 kl. 10-16.