Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 18.05.1988, Page 10

Vestfirska fréttablaðið - 18.05.1988, Page 10
NÝJAR SUMARVÖRUR DAGLEGA (^fERNIRP A|k SFORTHIAÐAN HF V— SILFURTORGI 1 = = 400 ÍSAFIRÐI — SÍMI4123 Bílaleíga heyrt að sóknarnefnd ísafjarðar sé búin að leita eftír því við Gylfa Guðjónsson arkitekt, að hann taki að sér að teikna hina nýju kirkju og safnaðarheimili á ísa- firði, í samræmi við forsögn sóknarnefndar og fyrirmæli aðalsafnaðarfundar. Hann er annar hönnuða Fella- og Hóla- kirkju í Reykjavík, sem ýmsum þykir einna skást af nýlegum guðshúsum í þeim hreppi. Gylfi mun væntanlegurtil (sa- fjarðar í næstu viku til skrafs og ráðagerða. að nú sé ákveðið að tækni- deildin hjá (safjarðarkaupstað sjái um að setja skábrautir á gangstéttir í bænum til þess að greiða fyrir umferð hjólastóla, barnavagna og reiðhjóla. ( framhaldi af því má búast við því að gangstéttir og götur kaupstaðarins verði brátt gerð- ar sæmilega færar að öðru leyti fyrir umrædd farartæki. Tilboð ( gangstéttagerð I bæn- um í sumar hafa borist frá tveimur fyrirtækjum, Vesttaki h.f. upp á rúmar 5,3 milljónir og Steiniðjunni h.f. upp á tæplega 6,6 milljónir, en ætlunin er að steypa 4.100 fermetra (sumar, sem er heldur minna en í fyrra. Búast má við að gengið verði til samninga við Vesttak. að málaleitan 0 N Olsen um niðurfellingu á þriðjungi skulda hafi verið hafnað m.a. af ísa- fjarðarkaupstað og Orkubúi Vestfjarða, og sé því harla ólík- legt að nokkuð verði af slíku. Hins vegar herma óstaðfestar fregnir að Guðmundur Tr. Sig- urðsson (Muggur) sé að hug- leiða kaup á fyrirtækinu eða yfirtöku þess. ' P “#:l B i mi nKgl Wjíip 3 JuÆ |' f || ðPÍiÉi MM/ •• 4 - Landsbankahlaupið er nú orðið að föstum lið í bæjarlífinu á ísafirði. Á laugardaginn í síðustu viku tók mikill fjöldi ungmenna frá ísafirði og nágrannabyggðunum þátt I þessu hlaupi. Þar unnu sumir til verðlauna, en aðrir ekki eins og gengur, en það var þó ekki annað að sjá á þessum fríða hópi sem stillti sér upp á tröppum Landsbankans að hlaupi loknu, en að allir væru samt í sólskins skapi. Tindar og Skutull: Björgunarbáturinn íengist og smíðatíminn iíka Happdrættismiðar seldir um helgina 'i ’Nokkuð er síðan frést hefur af björgunarbátnum stóra sem verið er að smíða í Noregi á vegum slysa- varnasveitanna Tinda í Hnífsdal og Skutuls á ísafirði. En slysa- varnamennirnir hafa haldið sínu striki. Bátnum hefur verið breytt lítilsháttar, m.a. er hann orðinn tæp 46 fet á lengd í stað 43 feta eins og upphaflega var áætlað. Einnig hefur smíðatíminn reynst lengri en gert var ráð fyrir, þannig að bátur- inn verður ekki tilbúinn fyrr en í júlí. Fjáröflun er í fullum gangi, og hefur hún gengið allvel. Nú er bátskaupanefndin að fara af stað með happdrætti, þar sem aðalvinn- ingurinn er Fiat Uno, en auk hans er utanlandsferð, helgarferðir til Reykjavíkur og útsýnisferðir um Vestfirði. Slysavarnamenn munu ganga í hús nú um helgina og bjóða miða til sölu, og verður þeim ef- laust vel tekið. Upplag miðanna er aðeins tvö þúsund, og verður dreg- ið 17. júní. Allur ágóðinn rennur til kaupanna á bátnum. Sala Vestfirska fréttablaðsins hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum vikum. Vörn hefur verið snúið í sókn, stöðugt er unnið að útbreiðslu blaðsins um alla Vestfirði, þannig að það megi sem best standa undir nafni. En mikið starf er enn framundan. Við hvetjum ykkur til þess að hjálpa okkur. Gerist áskrifendur, gefið burtfluttum vinum og ættingjum áskrift. Það kostar sáralítið, eða sem svarar tveimur myndbandsspólum á mánuðii Áskriftarsíminn er (94-)4011 eða (94-)3223. Hjálpið okkur að gera blaðið okkar betra og betra. Leggið okkur til fréttir og efni. Vestfirska fréttablaðið flytur vestfirskar fréttir. Það er ópólitískt hvað stjórmálaflokka varðar. En það er pólitískt hvað vestfirska hagsmuni varðar. ísafjörður: Skólaslit í nýju húsi Menntaskólans Menntaskólanum á ísafirði og Iðnskóla ísafjarðar verður slitið nú á laugardaginn 21. maí. At- höfnin verður á Sal Menntaskólans í hínu nýja kennsluhúsnæði á Torf- nesi og hefst kl. 14. Nýstúdentar frá MÍ eru milli 25 og 30 talsins, en það eru ekki að- eins þeir sem fá afhent prófskírt- eini við þetta tækifæri, heldur einnig nemendur sem verða út- skrifaðir af skipstjórnarbraut, vélstjórnarbraut, og tveggja ára viðskiptabraut. Að loknum venjubundnum ræðum og ávörpum leika tveir nemendur fjórhent á píanó. Allir eru velkomnir. Sponsið: Ingólfur ráðinn Eftir nokkuð tíðindasöm ráðn- ingarmál, eins og Vestfirska hefur greint frá, hefur nú Ingólfur Arn- arson leiðbeinandi við Grunnskóla ísafjarðar verið ráðinn forstöðu- maður Æskulýðsmiðstöðvarinnar Sponsins á ísafirði. Avítur á Vegagerðina Maður kunnugur inni í Djúpi kom að máli við Vestfirska og deildi hart á frammistöðu Vega- gerðar ríkisins í merkingum vega. Hann nefndi þar vegamótin í Mjóafjarðarbotni og vegamótin við ísafjörðinn, þar sem farið er út fyrir (í Reykjanes og Vatnsfjörð) í stað þess að fara yfir fjall. Einnig nefndi hann vegamótin báðum megin við Langadalsá, og sagði mikil brögð að því að fólk villtist annað hvort upp að Kirkjubóli í Langadal, ellegar þá upp að Fremri-Bakka hinum megin árinn- ar. ÞAÐ STANSA FLESTIR í ALLTÁ FULLUHJÁ OKKUR - SUMAR SEM VETUR jfflKS /mmu /mmu /mmu /mmu /mnm /mmu /mmu /mkMi /mmu /mmu /r/mm /rmm SIEMENS RYKSUGUR ný sending á eldra verðinu PÓLLINN VERSLUN RAFÞJÓNUSTA SÍMI 3092 Opið laugardaga 9-16 Sunnudaga 14-16 \y TOPPBLÓMIÐ V SÍMI 4717 SÍMI 3517

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.