Vestfirska fréttablaðið - 26.05.1988, Side 8
8____________
SJÁVARSÍÐAN
vestfirska
TTABLAÐID
ÍSAFJÖRÐUR:
HAFÞÓR landaði þriðjudag 24.
maí 80 tonnum af djúprækju af
Kolbeinseyjarsvæðinu, væntan-
legur aftur fyrir sjómannadaginn.
Rækjuveiðin er sveiflukenndur
veiðiskapur, og hefur verið mun
lakari nú en í fyrra. JÚLÍUS
GEIRMUNDSSON landaði mið-
vikudag 25. maí um 100 tonnum
af blönduðum afla, mest grálúðu
og þorski. Fór aftur út sama dag.
GUÐBJÖRG er væntanleg á
mánudag úr fyrsta túr eftir leng-
ingu. FRAMNES landaði föstu-
dag 20. maí 77 tonnum í
Hntfsdal.
PATREKSFJÖRÐUR:
VESTRI liggur. PATREKUR er
á djúprækju. SIGUREY var að
landa 190 tonnum af grálúðu.
ÞRYMUR landaði ( síðustu viku
30 tonnum. Þokkalegur eða jafn-
vel góður afli hjá skökurunum,
hafa komist upp í tonn á mann
yfir daginn. Góður fiskur og víða
fyrir utan.
BÍLDUDALUR:
SÖLVI BJARNASON landaði
16. maí 198 tonnum, og aftur 25.
maí 185 tonnum af grálúðu.
Reytingur hjá smábátum.
ÞRÖSTUR er búinn að vera
burtu í mánuð á rækju, kemur
fyrir sjómannadag.
TÁLKNAFJÖRÐUR:
TÁLKNFIRÐINGUR landaði 18.
maí 158 tonnum, langmest grá-
lúðu. Væntanlegur aftur 26. maí
með 140-150 tonn af sama.
FLATEYRI:
GYLLIR landaði 25. maí 135
tonnum, mest grálúðu.
SUÐUREYRI:
ELÍN ÞORBJARNARDÓTTIR
væntanleg 26. maí með 140-150
tonn af grálúðu og karfa. Fremur
rysjóttar gæftir á handfærunum,
en þokkalegur afli þegar gefur.
Um tíu skakbátar byrjaðir. Mun
skárri fiskur en í fyrra, kringum
2,5 kíló þegar þeir komast eitt-
hvað frá.
ÞINGEYRI:
Vikan frá sunnudegi 15. maí til
laugardags 21. maí: Línubátar:
DÝRFIRÐINGUR ÍS-58 með 3,5
tonn, GÍSLIPÁLL ÍS-41 með4,5
tonn, uppistaðan steinbítur. Á
handfærum: STÍGANDI ÍS-181
með 480 kg, SIGURVIN ÍS-452
með 820 kg, HENRY ÍS-260 með
500 kg, og BJÖRGVIN MÁR ÍS-
468 með 7.200 kg. Smár fiskur.
BOLUNGARVÍK:
DAGRÚN kom inn laugardag fyr-
ir hvítasunnu með rúm 20 tonn
af grálúðu eftir tveggja daga útiv-
ist, var áður inni á miðvikudag
með 170 tonn. HEIÐRÚN lá í
viku þorskveiðibanni, fór út 25.
maí. SÓLRÚN var í slipp og fór
út um síðustu helgi. Línuafli hef-
ur verið nokkuð góður. FLOSI
komst upp í tæp tíu tonn í síð-
asta róðri fyrir hvítasunnu. Bæði
hann og HALLDÓRA JÓNS-
DÓTTIR voru með 7-8 tonn 25.
maí. Færaafli sæmilegur þegar
gefur. Bátar milli fimmtán og tutt-
ugu og fjölgar enn.
SÚÐAVÍK:
BESSI kom inn 18. maí með 110
tonn af grálúðu eftir einn sólar-
hring á veiðum. HAFFARI kom
sama dag með 33 tonn af rækju,
kom svo á laugardag með 11,5
tonn. SIGRÚN fór sinn fyrsta túr
á úthafsrækju, kom á föstudag
20. maí með 1.800 kg, VALUR
kom sama dag úr fyrsta túr með
3 tonn af rækju.
Seint á miðvikudagskvöldið í síðustu viku, lagðist Guðbjörg ÍS 47 að bryggju á ísafirði eftir að hafa verið í
slipp hjá Sichau skipasmíðastöðinni í Bremerhaven í Þýskalandi undanfarnar sex vikur. Voru gerðar á
skipinu veruiegar breytingar sem m.a. fólust í því að það var lengt um 11.4 metra og nýtt aðgerðarkerfi var
sett um borð.
Við komuna til ísafjarðar sögðust þeir feðgar Ásgeir Guðbjartsson og Guðbjartur Ásgeirsson, vera mjög
ánægðir með þær breytingar sem gerðar hefðu verið. Þarna kæmi til veruiega bætt vinnuaðstaða, aukið
lestarrými og margt fleira. Það sem skipti þó kannski ekki minnstu máli væri að með lengingu skipsins ykist
stöðugleiki þess til mikilla muna.
Auk fyrrgreindra atriða var sett bógskrúfa á Guðbjörgina og sýndi það sig við komuna hversu mjög það
auðveldar alla vinnu við að athafna skioið þar sem aðstæður eru þröngar.
Aflanum landað úr síðasta róðri vertíðarinnar.
íbúð óskast
Tveggja til þriggja herbergja
íbúð óskast á leigu
fyrir hótelstjóra.
Þarf að vera laus sem fyrst.
Upplýsingar gefur
Björn Hermannsson
í símum 3552 og 3711.
NÁMSTILBOÐ!
Að loknum grunnskóla.
ÞJÁLFUNARBRAUT
Markmið námsins er að búa nemendur undir nám og
störf á vettvangi félags- og íþróttamála.
Eðlilegasta framhald til stúdentprófs er íþróttabraut.
Námstími er fjórar annir.
Umsóknarfrestur um skólavist er til 10. júní.
NÚPSSKÓLI ® 8222 OG 8236.
„Með bestu steinbíts-
vertíðum sem komið hafa“
— segir Gísli Skarphéðinsson skipstjóri á línubátnum
Víkingi III frá ísafirði, sem lartdað hefur 840 tonnum
á vertíðinni
Ekki taldi Gísli að menn hefðu
mikið upp úr þessu þrátt fyrir góð-
an afla, því að verð á steinbít væri
lágt en hann hefur verið uppistað-
an í aflanum. Þó hefðu þeir fengið
um 80 tonn af þorski í mars, en
lítið annað en steinbít eftir það.
Aðspurður um fiskverðssamn-
inga sagði Gísli, að sér litist eigin-
lega engan veginn á þá og hann
byggist við að verðið yrði að mestu
óbreytt. Hann taldi ekki ólíklegt
að reynt yrði að bjóða upp á ein-
hverskonar félagsmálapakka í stað
hækkaðs fiskverðs, en sæi þó ekki
í fljótu bragði hvemig það gæti
orðið. Með gengisfellingunni væru
menn í rauninni að bíta í skottið á
sjálfum sér, þar fengi fiskvinnslan
sitt, en allur kostnaður hjá útgerð-
inni hækkaði að sama skapi og svo
hefði verið bætt um betur með því
að hækka olíuverð til skipanna. Og
nú væri búið að binda alla samn-
ingsgerð með lögum, og hann fengi
ekki betur séð eftir að vera búinn
að lesa þessi lög en að sjómenn
væru í raun búnir að taka út stærst-
an hluta þeirra hækkanna sem lög-
in gerðu ráð fyrir.
Lögin sagði Gísli að væru miðuð
við allar hækkanir á samningum
sem gerðir hafa verið eftir 1. des-
ember á síðasta ári, þar með talin
kauptrygging sjómanna. Og hann
sagði að vegna almennra kaup-
gjaldshækkana á þessum tíma
væru sjómenn búnir að taka út sjö
og hálft prósent og þá væri nú ekki
stórt eftir. Eins taldi Gísli það
sérkennilegt að íslensku fyrirtækin
væru að lækka fiskblokkina á
Bandaríkjamarkaði akkúrat á
sama tíma og verið er að semja um
fiskverð hér heima. Og þó svo
ástandið væri eins slæmt á mörk-
uðum erlendis og menn vildu vera
láta, þá hefði svipaður leikur verið
leikinn áður. Vissulega væri ást-
andið hjá fiskiðnaðinum slæmt
víða, en það væru tvær hliðar á því
máli og skrítið til þess að hugsa
eftir góðæri tveggja síðustu ára.
í sumar verður Víkingur III á
dragnót eins og undanfarin þrjú
sumur, og sagði Gísli að það hefði
gengið alveg þokkalega. Veiði-
svæðið er í hólfi sem nær frá Geir-
ólfsgnúp á miðjan Breiðafjörð, og
sagði Gísli þessi svæði tilkomin
vegna ásóknar báta frá öðrum
landshlutum. Um ástand fisk-
stofna var Gísli ekki mjög
svartsýnn, það ætti að vera hægt
að halda þetta út með svipaðri
sókn, en það kæmu alltaf í þetta
hæðir og lægðir. Þó taldi hann að
loðnuveiðar gætu haft þarna veru-
leg áhrif. Ef loðna gengi ekki á
miðin, þá hefði þorskurinn minna
æti og hann dreifði sér um allan
sjó. Skortur á loðnu gæti haft þau
áhrif að þorskurinn næði ekki eðli-
legri stærð miðað við aldur.
Á Víkingi III voru tólf menn í
vetur, sex í landi og sex á sjó, en í
sumar verða væntanlega sjö menn
um borð. Aðspurður um það
hvernig hugur væri í mönnum
sagði Gísli, að það væri nú bara
ekkert spáð í það, það væri bara
haldið áfram hvað sem tautaði og
raulaði og hvernig sem hringlað
væri með gengið.