Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Síða 1

Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Síða 1
 — MimilfliHHHHHHI 19. janúar 1989 vestfirska 3. tbl. 15. árg. LEO LITMYNDIR FRETTABLASIS FRAMKÖLLUN 24 MYNDA FUJICOLOR Á AÐEINS KR. 190.- LITFILMA ii—ca— Suoureyri: Betrumbætur hjá Kögurási hf. Róbert Schmidt, Suðureyri. Sveinbjörn Jónsson fram- kvæmdastjóri Köguráss h.f. og Júlíus Einarsson verkstjóri voru léttir í skapi þegar ég heimsótti þá í síðustu viku. Þeir voru báðir að vinna við uppsetningu ýmissa tækja sem falla inn í nýja og betr- umbætta vinnslulínu hjá fýrirtæk- inu. Vinnsla hefst fljótlega, senni- lega um næstu mánaðamót, ef allt gengur samkvæmt áætlun, sagði Sveinbjörn. Þarna munu væntan- lega starfa fimmtán til tuttugu manns, og unnið verður bæði í frystingu og salt. Kögurás h.f. hefur nýverið gert samning við franskt fyrirtæki um kaup á öllum steinbít. Þorskurinn fer að sjálfsögðu í salt. „Já, við erum bjartsýnir á fram- tíðina og látum engan bilbug á okkur finna, þótt stundum blási á móti“, sögðu þeir Júlíus og Svein- björn. Þá er bara að bíða og sjá hvað setur. Nokkrir línubátar hafa í hyggju að leggja upp hjá Kögurási í vetur. „Á rauðu ljósi“: Fjörugur fundur / Alþýðuhúsinu — Jón Baldvin og Ólafur Ragnar þreifa fyrir sér á æskuslóðum sínum um samruna A-flokkanna Fyrsti sameiginlegi fundur for- manna A-flokkanna á fundaferð þeirra um landið var haldinn í AI- þýðuhúsinu á ísafirði sl. föstudags- kvöld, 13. janúar. (Þeir skirrðust ekki við að byrja á föstudeginum þrettánda, þótt ýmsum þætti slíkt ógæfulegt, enda átti sjálfur Hanni- bal afmæli þennan dag). Greinilegt var að meðal almennings á ísafirði var mikill áhugi fyrir fundi þeirra félaga, og var hann vel sóttur. Stjórnmálafundir á ísafirði hafa oft einkennst af miklu fjöri og góðri þátttöku fundarmanna. Fundurinn á föstudaginn var þar engin undantekning, og höfðu menn greinilega af þessu hina mestu skemmtan. Svo mikil var stemmingin í lokin, að ýmsir vildu uppvægir kaupa upp ellefusýning- una í bíóinu, svo að halda mætti áfram. Af því varð þó ekki og lauk fundinum á tilsettum tíma um ell- efuleytið. Þótt áhugi almennings hafi verið mikill, þá er ekki endilega sömu sögu að segja af ýmsum flokks- mönnum þeirra félaga, og ljóst að þessi fundaherferð er þeim mörg- um mjög á móti skapi. Á fundi ráðherranna og flokks- formannanna tveggja kom svo sem lítið bitastætt fram varðandi sam- einingu A-flokkanna. Aðeins var bryddað á þessu í upphafi fundar- ins, þegar þeir röktu sögulegan bakgrunn flokkanna. Spuming- unni um það er enn ósvarað, hvort fólk vilji sameiningu Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Tilgangur þeirra Ólafs og Jóns í ferð þeirra um landið er greinilega ekki sá að fá beint úr þessu máli skorið. Svið- setning fundanna ber mikinn keim af ferð Jóns Baldvins um landið fyrir nokkrum ámm. Þeir fundir skiluðu Alþýðuflokknum verulegu atkvæðamagni í kosningum, þótt ýmsir teldu það fylgi byggt á veik- um gmnni. Menn skyldu því ekki vanmeta mátt auglýsinganna í þessum efn- um fyrirfram. Hver veit nema að fundaherferðin „Á rauðu ljósi“ skili Jóni Baldvin og Ólafi Ragnari þeim styrk sem gæti leitt til ein- hverskonar sammna á vinstri vængnum. Arnarflug: Arnarfjarðarflug alla daga Áætlunarflug Amarflugs til Bíldudals hefur gengið mjög vel í vetur (flugvöllurinn er að vísu nær Dufansdal og Otradal en Bíldudal, reyndar á milli þeirra, þótt svona sé komist að orði). Flogið er alla sjö daga vikunnar eins og gert var f sumar. Tálknfirðingar nýta sér gjama þessa þjónustu, og eru bílferðir um Hálfdán í tengslum við flugið. Þegar ekki hefur verið bílfært þar yfir hefur vél Arnarflugs lent á Patreksfjarðarflugvelli og tekið farþegana þar. Ökuprófin: Bráðabirgða- ástand — ökukennarar óánægðir með framkvæmdina Á þessu ári verður fyrirkomu- lag ökuprófa með nokkuð öðmm hætti en tíðkast hefur. Nú munu sérstakir prófdómarar sem áður vom starfsmenn Bifreiðaeftirlits ríkisins sjá um að prófa fólk úti um land. Út á það væri svo sem lítið að setja, ef þessir menn væru sæmilega aðgengilegir. Raunin er hins vegar sú, að t.d. prófdómar- inn fyrir Vestfirði verður hafður á Akranesi. f útvarpsumræðu um þessi mál sl. mánudag kom fram, að þess- um prófdómara er ætlað að koma vestur einu sinni í mánuði eða þar um bil til að prófa fólk sem lokið hefur ökunámi. Þetta hefur verið gagnrýnt harðlega af öku- kennurum, sem vilja betri að- gang að prófdómurum og telja vafasamt að endilega sé flugfært þann dag sem prófdómarinn á að mæta á svæðið. Þetta geti komið til með að skapa óþarfa óþægindi sem hefði mátt komast hjá með því að ráða mann hér fyrir vestan til að sinna þessu. Svo virðist sem upplýsingastreymi frá dómsmála- ráðuneyti til ökukennara um þessi mál sé í miklum ólestri, og kennaramir sjálfir hafa þurft að hringja um allar trissur eftir upp- lýsingum. Rökin fyrir því að hafa próf- dómarann á Akranesi eru þau, að þarna sé verið að spara í launakostnaði vegna manna- ráðninga. Þetta hafa menn líka gagnrýnt, og telja það vafasaman sparnað að senda mann um allar sveitir með flugvélum til að dæma ökupróf. Þetta fyrirkomulag sem viðhaft verður á þessu ári er eingöngu hugsað til bráðabirgða. Um þessi mál á að fjalla í sérstakri prófa- nefnd, sem ætlað er að skila til- lögum um skipan ökuprófa eftir 1. janúar 1990. Ýmsir óttast þó, að það sem kallað er bráða- birgðaástand til eins árs verði við- varandi um óákveðinn árafjölda. Vestfirska fréttablaðið: Ókeypis um aiía Vestfirði! Nú í nokkur skipti (að minnsta breiðsla þess? Hvernig er afkom- kosti) er Vestfirska fréttablaðinu an? Er hún vond eða góð? Var dreift ókeypis um Vestfirði. Á- staða blaðsins vond eða góð þeg- stæðanerekkertleyndarmál: Við ar Ólafur Geirsson fór frá þvf gerum þetta í auglýsingaskyni. fyrir tæpu ári? Til þess að auglýsa blaðið fyrir Allt um þetta í leiðaranum á Vestfirðingum; til þess að vekja bls. tvö. athygli auglýsenda á blaðinu. Hver er annars staða Vest- firska fréttablaðsins? Hver er út- /T\ BÍLAÞJÓNUSTA DAÐA #c_1 FJARÐARSTRÆTI20, ÍSAFIRÐI SMURSTÖÐ — HJÓLBARÐA VIÐGERÐIR mT ( ) JW OPIÐ FRÁ KL. 8:00 TIL 18:00 SÍMI 94-3499 \ /Janúartiiboð &*/ á helgarferðum '$/ Reykjavíkur / FLUGLEIDIR SZ / símar 3400 og 3000 *

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.