Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 7

Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 7
£5 vestfirska TTABLAOIS 7 Héraðsnefndir: Baldur í Vigur og Jónasá Þingeyri formenn Stofnaðar hafa verið héraðs- nefndir í Norður- og Vestur-ísa- fjarðarsýslu, en sýslunefndir lögðu niður umboð sitt um síðustu ára- mót samkvæmt ákvæðum sveitar- stjórnarlaga nr. 8/1986. Öll sveit- arfélög í Norður- og Vestur-ísa- fjarðarsýslu eiga aðild að hinum nýju héraðsnefndum. Á stofnfundi héraðsnefndar Norður-ísafjarðarsýslu 9. desem- ber sl. var Baldur Bjarnason í Vig- ur kjörinn formaður. Á stofnfundi héraðsnefndar Vestur-ísafjarðar- sýslu 13. desember si. var Jónas Ólafsson á Þingeyri kjörinn for- maður. Sýslumaðurinn í ísafjarð- arsýslu, Pétur Kr. Hafstein, hefur að beiðni beggja héraðsnefnda tekið að sér framkvæmdastjórn fyrir þær. Á stofnfundum héraðsnefnd- anna var tekið fyrir erindi frá sýslu- manni um aukið samstarf sveitar- stjórna á svæðinu, annað hvort milli héraðsnefnda Norður- og Vestur-ísafjarðarsýslu eða í einni sameiginlegri héraðsnefnd. Full- trúar í héraðsnefndunum lýstu áhuga á því að kannað yrði til þrautar, hvort af slíku mætti verða, og mun svo verða gert á næstunni. Hins vegar var endan- legri afgreiðslu á samþykktum fyr- ir héraðsnefndirnar frestað um sinn, enda kann frágangur þeirra að ráðast af því, hvort stofnað verður til sameiginlegrar héraðs- nefndar, áður en langt um líður. Pá var á fundunum fjallað um tiltöeur Vegagerðar ríkisins um nýjar sýsluvegaskrár, en afgreiðslu þeirra frestað, þar til sveitarstjórn- ir hafa látið í té umsagnir sínar. (Frétt frá framkvstj. héraðs- nefndanna, Pétri Kr. Hafstein sýslumanni). \ restfirska 1 FRETTABLADID 1 NYTT — NYTT — NYTT ísfirðingar, nágrannar, athugið! Nú fer hver að verða síðastur að innrita sig á sérnámskeiðin. Athugið að enn eru laus pláss í hjóna og paratíma. SÉRNÁMSKEIÐ FYRIR FÓLK Á ÖLLUM ALDRI Jazz leikspuni barnadansar leiklist leikræn tjáning blandaðir dansar jazz fyrir konur hjóna- og paratímar tískunámskeið INNRITUN OG UPPLÝSINGAR Á STAÐNUM EÐA í SÍMA 4680 OG 4681 Öllum er velkomið að líta inn til okkar og skoða staðinn RÆKTIN TÓMSTUNDA- OG LEIKSMIÐJA HAFNARSTRÆTI 20b, ÍSAFIRÐI Gömul verslun í nýjum búningi 4C * I tilefni 85 ára afmselis verslunarinnar á þessu ári, fiöfnm við fært innréttincjar til nútíma- legra fiorfs. Við munum framvegis, eins og undanfarin 85 ár, bjóða upp á fjöfbreytt úrval af góðum skófatnaði á hagstæðu verði. Verið velkomin í rótgróna verslun í nýjnm búningi. Stofnuð 1904. *********************)((**)(<******************************♦**** ÍSkóvorzlun L«és ************************************************************** Hafnarstræti 5, ísafirði, sími 3011.

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.