Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 5

Vestfirska fréttablaðið - 19.01.1989, Blaðsíða 5
fci vestfirska TTABLADID 5 „Það er áhyggjuefni ef við þurfum að keyra á flugeldum og auglýsingastofum..." Stokkað upp hjá Kaupfélagi ísfirðinga: Steiniðjan hf. tekur við rekstri byggingavöruverslunar K.Í. vandamál og Sturlumálið frægast, en það er nú úr sögunni. Við dvelj- umst á stöðunum nokkra daga og reynum að vanda okkur og setja okkur inn í þann skilning sem fólk- ið hefur sjálft á hlutunum. Ég reyndi þetta þegar ég var í heil- brigðisráðuneytinu, og mér fannst það gagnlegt.“ - Nú bar þessa heimsókn ykkar ráðuneytisfólks upp á sömu helgi og þeir formennirnir hófu funda- herferð sína „Á rauðu ljósi“. Var það tilviljun? „Ferðin okkar hingað vestur var ákveðin fyrir alllöngu. Fundahug- mynd formannanna kom upp löngu seinna. Þeir ætluðu upphaf- lega að byrja herferð sína á laugar- deginum. Ég lét auðvitað minn formann vita af því að ég hefði ver- ið með í huga þennan skólamála- fund á laugardeginum, og þá fluttu þeir sinn fund yfir á föstudags- kvöldið. Menn héldu að þetta myndi ef til vill trufla pínulítið hvort annað; ég held að það hafi ekki gert það. Alténd dró það ekki úr fundarsókninni hjá okkur. Við vorum komin til að tala um skólamál, og ég fann það fyrir fundinn að það var hópur af fólki sem taldi að það mundi af tveimur ástæðum verða til lítils að halda skólamálafundinn í kjölfar hins. í fyrsta lagi vegna þess að for- mennirnir væru nýbúnir að halda fund, og í öðru lagi vegna þess að það væri svo lítill áhugi á skólamál- um. Áhuginn er hins vegar mikill, og fólk verður að skilja það, að allir eiga og allir verða að hafa áhuga á skólamálum. Það er ekki hægt að líta þannig á, ef maður á barn í skóla, að þá hendi maður því bara út um dyrnar á morgnana og taki við því aftur á kvöldin; og svo viti maður ekkert frekar um þessa stofnun. Það hugarfar gengur ekki.“ Finnst vænna um málefnalega fundi - Þú vékst aðeins að eldflaugum og skrautblysum í upphafi máls þíns á skólamálafundinum á Hótel ísafirði. Mátti ekki túlka orð þín þannig að þú værir svolítið pirr- aður á þátttöku Alþýðubandalags- ins í fundaferðinni? „Það ber nú ekki að skilja þetta þannig. Frekar var um að ræða samlíkingu á þessum tveimur fundum. Ég viðurkenni það, að eftir því sem ég er lengur í þessari pólitík, þeim mun vænna finnst mér um svona málefnalegar stundir. Ég er þá ekki að gera lítið úr því að menn þurfi að auglýsa sig og sína í pólitíkinni. Það verða menn auðvitað að gera, það er al- veg óhjákvæmilegt. En það er auðvitað dálítið á- hyggjuefni fyrir okkur sem vinnum í málum eins og skólamálum, ef við þurfum að keyra á flugeldum og auglýsingastofum til að koma okkur á framfæri. Ég held að það sé hins vegar alveg ljóst, að það sé svo mikill áhugi á skólamálum að það þurfi ekki að nota slíkar að- ferðir. Og það er athyglisvert, að þessi stóri fundur sem við héldum á Akureyri, hann kom varla í ein- um einasta fjölmiðli. Það var hins vegar jafn athyglisvert, að fundur- inn skilaði sér inn í skólana fyrir norðan. Ég hef verið að fá við- brögð úr skólunum þar æ síðan. Ég held að það sama verði uppi á teningnum hér með skólana, og ég veit ekki betur en fjölmiðlar hafi sýnt þessu mikinn áhuga á ísa- firði, bæði staðarblöð og ekki síst útvarpið á ísafirði.“ - Finnst þér jafnvel hálfóhugn- anlegt að Alþýðubandalagið skuli vera komið í slagtog við loddarann Ámunda? Boðberar tiltekinna málefna „Ég held að menn megi ekki lenda inni í neinu slíku, enda þótt við verðum að notfæra okkur nú- tímatækni við að koma okkur á framfæri. Við eigum engra annarra kosta völ. Við erum fyrst og fremst boðberar tiltekinna málefna, og þau verða að vera á sínum stað, hvað sem auglýsingamennskunni líður. Ég hef að sjálfsögðu ekkert á móti því að formenn A-flokk- anna haldi fundi og tali við fólk um grundvallaratriði, að þeir tali um flokkana og hvað það sé sem grein- ir þá að. Það er auðvitað fjölmargt, utanríkismál, vaxtamál, efna- hagsmál í mörgum greinum og guð veit hvað. Það er allt í lagi að tala um það, en hvorki mega menn ýkja það sem þá greinir á um, né heldur mega þeir ýkja samstöð- una. Það verður að segja satt frá því sem skilur á milli, það má ekki blekkja fólk.“ Skólinn er grundvallaratvinnuvegur - Á skólamálafundinum var kynnt ný skólastefna til tíu ára. Megum við að lokum fá ofurlitla greinargerð um það mál? „Tilgangurinn með þessu er í fyrsta lagi að vekja upp kringum landið umræðu um skólamál. Það má auðvitað segja að við eigum skólastefnu í formi laga og reglu- gerða og svo framvegis. Það sem við þurfum, er að vekja umræðuna og átta okkur á þeim áherslum sem við viljum hafa á næstu árum. í því skyni sendum við bréf allt í kring- um landið, og við ætlumst til að fá álit fjölmargra aðila, kennara, stéttarsamtaka, atvinnurekenda, bæjarstjórna og foreldrafélaga, svo dæmi séu tekin. I öðru lagi er ætlunin að styrkja íslenska skólann með þessari viðleitni. Styrkja hann sem gildan þátt í þjóðlífinu, þann- ig að þeir sem starfa við skólann hafi kjark til að ganga m.a. fram fyrir páfa efnahags- og atvinnulífs og segja: „Við störfum einnig við grundvallaratvinnuveg, þetta er framtíðin, börnin eru framtíðin, og þið verðið að skilja það.“ Þess vegna er það eðlilegt og sjálfsagt að skólinn kosti peninga. Skólinn má aldrei vera afgangsstærð í þjóð- félaginu. Og við erum líka að þessu til þess að skólafólkið sjálft öðlist kjark til að standa upp og segja: - Hér er ég, við eigum okkar rétt fyrir hönd barnanna - framtíð- arinnar." Að sögn Halldórs Antonssonar steypustöðvarstjóra er Steiniðjan h.f. nú komin með í sínar hendur allan rekstur sem verið hefur á at- hafnasvæði steypustöðvarinnar. Þetta á við allt sem þar hefur verið í nafni Kaupfélags Isfirðinga, eins og byggingavöruverslun og tré- smíðaverkstæði. Nú rekur því Steiniðjan h.f. steypustöð, hellu- steypu, rörasteypu, trésmíðaverk- stæði og verslun á sama stað. Segir Halldór að í framtíðinni verði reynt að stunda samhliða þessu verktakastarfsemi í tengslum við trésmíðaverkstæðið. Einnig verði reynt að bæta þjónustuna eftir því sem kostur er. Varðandi verktakastarfsemi sagði Halldór, að nú eftir áramótin hefði fyrirtækið tekið að sér verk Ljósmyndastofan Myndás á ísa- firði hefur nú flutt allt sitt úr Ljón- inu á Skeiði í nýstandsett húsnæði að Aðalstræti 33. Þar með er stof- an komin í sitt eigið húsnæði, og er óhætt að segja að þarna er öll aðstaða hin myndarlegasta. Kunn- ugir muna væntanlega eftir rammagerðinni hans Rúriks Sumarliðasonar sem þarna var til húsa. Nú hafa þau hjónin Árný Her- bertsdóttir ljósmyndari og Snorri Grímsson innréttað þarna á mjög svo smekklegan hátt aðstöðu fyrir ljósmyndastofu, en á síðasta ári keyptu þau íbúðina hans Rúriks ásamt kjallaranum. Síðan hefur verið unnið baki brotnu við að koma þessu í stand og nú getur að líta árangur erfiðisins. Ekki ætlum við okkur hér að lýsa þessu nánar, en hvetjum fólk þess í stað að heimsækja Árnýju á nýja staðinn og athuga hvað hún hefur upp á að bjóða. Ekki er þar eingöngu um hefðbundna pers- ónuljósmyndun að ræða; Árný hefur gert töluvert af því að taka úti í bæ, en það hefur ekki verið gert á þess vegum áður. Með yfir- töku Steiniðjunnar á starfsemi Kaupfélagsins telja menn að hægt sé að koma við betri nýtingu á þeim mannskap sem fyrir er. Eitt nefndi Halldór sem ekki er á allra vitorði, en það er sú nýjung að Steiniðjan hefur leigt bifreiða- stjórum og eigendum vinnuvéla aðstöðu til viðgerða á verkstæði steypustöðvarinnar. Hefur þetta mælst vel fyrir og er notað í vax- andi mæli. Varðandi steypusölu og verk- efni vegna nýbyggingá sagði Halldór, að útlitið hefði vissulega verið dökkt að undanförnu, en þar væri þó vonarglæta. Nefndi hann sem dæmi að trúlega yrði boðin út steypuvinna í þekju við ísafjarðar- Arný Herbertsdóttir Ijósmyndari. eftir gömlum myndum. Til að auð- velda þá vinnu, þá hefur hún nú komið sér upp mjög fullkomnum tækjum, og að sögn hennar færist það stöðugt í vöxt að fólk komi til að láta taka eftir gömlum myndum sem þá þarfnast oft viðgerðar. Um rekstur ljósmyndastofunnar höfn, og tæki Steiniðjan væntan- lega þátt í því. Halldóri fannst eitt atriði varð- andi steypuvinnu fyrir sveitarfélög á svæðinu skjóta svolítið skökku við, þegar talað er um að Vestfirð- ingar sæki of mikið af sinni þjón- ustu til Reykjavíkur: Það er kant- steinslagning. Hann sagðist á síð- astliðnum vetri hafa hringt í mörg sveitarfélög hér í kring og spurt hvort menn væru að hugleiða lagn- ingu á kantsteini. Svarið á öllum stöðunum var einfaldlega nei. Svo gerist það hinsvegar í vor, að sum þessara sveitarfélaga fá verktaka að sunnan til að leggja kantstein. Um framtíðina kvaðst Halldór bjartsýnn og sagði að starfsemin hefði gengið framar vonum á síð- astliðnu ári. á nýja staðnum kvaðst Árný vera bjartsýn og vonaðist til að gömlu viðskiptavinirnir rötuðu til hennar aftur. Hún gæti eiginlega ekki ver- ið annað en bjartsýn, því inni í Ljóni hefði hún strax fengið góðar viðtökur ísfirðinga og annarra. Svavar Gestsson: Skemmtilegur fundur á Hótel ísafirði. Ljósmyndaþjónusta á ísafirði: Myndás kominn í miðbæinn

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.