Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Qupperneq 1
39. tbl.
28. september 1989
15. árg.
Annríki hjá vestfirskum skák-
mönnum á næstunni:
Töflin og klukkurnar
safna ekki ryki í vetur
Nú er skáklífið hér fyrir vestan
að vakna úr sumardvalanum.
Margt er á döfinni hjá Skáksam-
bandi Vestfjarða og einstökum
taflfélögum: Vikulegar skákæfing-
ar, firmakeppni, ísafjarðarmót,
Vestfjarðamót og deildakeppni.
Vikulegar skákæfingar verða á
ísafirði í Sjálfstæðishúsinu, Hafnar-
stræti 12, annarri hæð (félags-
heimili Sjálfstæðismanna). Æf-
ingarnar vcrða á sunnudagskvöld-
um og byrja kl. 20 (fyrsta sunnu-
dagsæfingin verður reyndar á
öðrum tíma, eða kl. 14 núna á
sunnudaginn, þann 1. októbcr).
Allir velkomnir.
Firmakeppni Skáksambands
Vestfjaröa veröur brátt haldin á
ísafirði, væntanlega um miðjan
október. Tefldar verða hraðskákir
og lýkur keppninni á einum degi.
Vestfjarðamót verður haldið á
ísafirði að þessu sinni, að öllum
líkindum 20.-22. október. Auk
vestfirskra skákmanna munu ein-
hverjir boðsgestir taka þátt í mót-
inu.
ísafjarðarmót verður að líkind-
um haldið í nóvember, en því
hefur enn ekki verið valinn tími.
Fyrri hluti deildakeppni Skák-
sambands Islands verður haldinn í
Reykjavík 10.-12. nóvember. Þar
munu Vestfirðingar eiga tvö lið,
annað í 1. deild (8 manna lið) og
hitt í 3. deild (6 manna lið). Á
síðasta keppnistímabili varð Á-lið
Vestfirðinga í 3. sæti af átta, eftir
harða keppni við Reykjavíkur-
sveitirnar. B-liðið var hársbreidd
frá því að komast upp í 2. deild.
Þríeykið góðkunna (Einar S.
Einarsson, Guðfinnur Kjartans-
son og Högni Torfason) er væntan-
legt í heimsókn vestur á næstunni,
færandi hendi að venju. Við
segjum nánar frá því þegar þar að
kemur.
Þess má geta, að vestfirskum
skákmönnum hefur nú bæst góður
liðsauki: Það cr Erlingur Þor-
steinsson, sem kominn er til að
kenna við Menntaskólann á ísa-
firði í vetur. Sérgrein hans er
bréfskák, en á því sviði er hann
margreyndur á alþjóðamótum.
Fyrsta „menta“ haustsins var í
borðsal Frosta í Súóavík á
þriðjudagskvöld. Óskar Elísson að
tafli.
Flugfélagið Ernir í Afríku:
Hauki og Halla
líkar vistin vel
Flugmönnunum tveimur, þeim
Hálfdáni Ingólfssyni og Hauki
Reynissyni sem fóru með Twin
Otter vél Flugfélagsins Ernis til
Afríku á dögunum, líkar vistin
bara vel samkvæmt nýjustu
fréttum. Þar eru þeir nú að fljúga
með hjálpargögn og vistir fyrir
Rauða krossinn frá Kenýa til
Súdan. Gerður hefur verið samn-
ingur við svissneskt fyrirtæki um
leigu á flugvélinni til flutninga fyrir
Rauða krossinn í þrjá mánuði til
að byrja með.
Að sögn Jónínu Guðmunds-
dóttur hjá Flugfélaginu Erni á ísa-
firði eru ekki næg verkefni fyrir
þessa vél hér heima að svo stöddu.
Samdráttur í atvinnulífinu bitnar
ekki síður á þeim en öðrum þjón-
ustufyirtækjum og því verður að
leita verkefna annarsstaðar fyrir
vélar félagsins meðan það ástand
varir.
Veðrið undanfarna daga hefur óneitanlega leitt hugann að vetrinum með allri sinni hörku. Hér má sjá
Pál Pálsson frá Hnífsdal ösla inn ísafjarðardjúp í talsverðum sjó. Myndina tók Guðbjartur Ástþórsson
skipverji á Guðbjarti.
Nýir viðskiptahættir á ísafirði í kólastrfðinu:
Hættir Úlfar í Hamraborg
að selja kók?
„Kóiastríðið" tekur á sig ýmsar
myndir. Algengast er í því stríði
að framleiðendur berjist um kúnn-
ana; farið er í auglýsingaherferðir,
barist er með sértilboðum eða alls-
herjar verðlækkunum, safnað er
flipum og töppum eða lcitað að dós
númer hundrað þúsund, og svo
framvegis.
Nú birtist Vcrksmiðjan Vífilfell
með nýtt og alveg óvænt herbragð
á ísafirði: Fyrirtækið er komið í
stríð við kaupmcnn í bænum.
Sölustjórinn þar velur einstakar
verslanir úr og lætur þær hafa kók-
ið á spottprís, en þverneitar öðrum
um slíkt. Stærsti seljandi gos-
drykkja á Vestfjörðum, Úlfar í
Hamraborg, getur nú farið yfir
götuna og keypt þar kók í smásölu
og selt það aftur hjá sér með hagn-
aði á lægra verði en hann þarf sjálf-
ur að borga þegar hann kaupir af
verksmiðjunni. En hann sjálfur
fær ekki slík kjör.
Fyrst bauð Vífilfell tveimur
vcrslunum á ísafirði þetta vildar-
vcrö, en þegar blaöið fór í vinnslu
voru kaupmenn í einni verslun enn
og einni sjoppu búnir að fá þetta
líka með því að rífa nógu mikinn
kjaft við sölustjórann hjá Vífilfelli
(kaupmaður sem nýtur þcssara
sérkjara staðfesti við blaðið að hér
væri um hreina geðþóttamis-
munun af hálfu Vífilfells að ræða,
en ekki neina eðlilega eða venju-
lega viðskiptahætti).
En Úlfar í Hamraborg hugleiðir
nú að hætta að vera með gos frá
Vífilfelii, enda þýðir lítið fyrir
hann að bjóða það á hundrað
prósent hærra verði en sumir aðrir
á svæðinu. Og stendur ekki líka
einhvers staðar að Pepsí sé best?
ískalt?
Spilað um hálfa milljón í Staupasteini um helgina:
Allir helstu brídsmenn
landsins keppa á ísafirði
— Stærstu peningaverðlaun í bridsmóti á íslandi
Bridgefélag ísafjaröar stendur
fyrir stórmóti í brids í Staupasteini
um helgina. Mótið er haldið í til-
efni af 25 ára afmæli félagsins, sem
verður 14. okt. næstkomandi.
Þarna munu koma saman öll sterk-
ustu pör landsins og etja kappi við
heimamenn, og verðlaunin eru
ekki af lakara taginu, alls hálf mill-
jón króna. Fyrstu verðlaun verða
kr. 150 þúsund og önnur verðlaun
kr. 120 þúsund, en sjö efstu pörin
fá peningaverðlaun. Þetta munu
vera vegiegustu verðlaun sem um
getur á bridsmóti á íslandi.
Alls taka 36 pör þátt í þessu stór-
móti á ísafirði. Það hefst á föstu-
dagskvöld og stendur allan laugar-
daginn frá kl. tíu um morguninn.
Allir bridsáhugamenn eru vcl-
komnir til þess að fylgjast með
keppninni.
Mótinu verður slitið með verð-
launaafhendingu og veglegu loka-
hófi fyrir þátttakendur og gesti
þeirra í Krúsinni á laugardags-
kvöldið.
Formaður Bridgefélags ísa-
fjarðar er Guðmundur Þorláksson
kennari, en auk hans hafa þeir
Kristinn Kristjánsson, Björn
Brynjólfsson og Júlíus Sigurjóns-
son veg og vanda af undirbúningi
þcssa móts. Ýmis fyrirtæki hafa
lagt sitt af mörkum til þess að gera
þetta afmælismót að sannkölluðu
stórmóti.
$ KAUPFÉLAG ÍSFIRÐINGA
Full búð af nýjum, fallegum efnum
í saumaskapinn. — Komdu og sjáðu!
Kaupfélag Isfírðinga — vefnaðarvörudeild
EFNILEG VERSLUN
Vestfirska fréttablaðið
— you can’t beat thefeeling