Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Qupperneq 7

Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Qupperneq 7
I<1 vestfirska TTABLAÐID 7 Frímúrarasalurinn á ísafirði á laugardaginn: Árlegir tónleikar til minningar um RagnarH. Ragnar Tónleikar til minningar um Ragnar H. Ragnar, fyrrverandi skólastjóra Tónlistarskóla ísa- fjarðar (1898-1987), verða haldnir núna á laugardaginn, hinn 30. september. Þar með er hrint í framkvæmd hugmynd um að halda árlega tónleika um þetta leyti, en afmælisdagur Ragnars var einmitt 28. september. í fyrrahaust fluttu þeir Jónas Ingimundarson og Rúnar Guð- brandsson Óð steinsins eftir Atla Heimi Sveinsson. Óðurinn er innblásinn af ljóðum eftir Kristján frá Djúpalæk, en Ijóðin aftur inn- blásin af steinmyndum Ágústs Jónssonar. Tónleikarnir í ár tengjast einnig ljóðlist og myndlist. Eingöngu verða flutt verk eftir Jónas Tómas- son tónskáld, sem fæddist á ísafirði 1946 og hefur starfað þar við tón- smíðar og tónlistarkennslu mörg undanfarin ár. Verkin eru: Sonata XIX fyrir bassaklarinett og píanó, Sonata XVIII fyrir einleikshorn, og Cantata II fyrir einsöngvara og fjóra hljóðfæraleikara. Ljóðin í kantötunni eru eftir kínverska ljóðskáldið Lí Pó, sem uppi var á 8. öld, og eru flutt í enskri þýð- ingu, en hornsónatan var upphaf- lega samin til flutnings á mynd- listarsýningu og hefur gjarnan verið flutt í tengslum við myndlist. Flytjendur eru Hrefna Eggerts- dóttir. píanó, Inga Rós Ingóifs- dóttir. selló, John Speight, bar- yton, Kjartan Oskarsson, klarinett og bassaklarinett, Þorkell Jóels- son, horn, og höfundurinn Jónas Tómasson, altflauta. Tónleikarnir verða í sal Frímúr- ara á ísafirði kl. 16:00 laugardag- inn 30. september, og verða kaffi- veitingar á boðstólum í hléi. Ókeypis aðgangur er fyrir nem- endur Tónlistarskólans 20 ára og yngri. Ýmis fyrirtæki og einstaklingar á ísafirði og í Bolungarvík styrkja þessa tónleika með fjárfram- lögum, og kunna aðstandendur þeim sérstakar þakkir fyrir. Tónlistarfélag ísafjarðar, Tónlistarskóli ísafjarðar. Meiraprófs- námskeið Fyrirhugað er að halda meiraprófsnám- skeið í haust ef næg þátttaka fæst. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku, geta látið skrá sig og greitt innritunargjald hjá undirrituðum sem einnig veitir allar nánari upplýsingar um námskeiðið í vinnusíma 94-3195 og heimasíma 94-3748 eftir kl. 20.00 á kvöldin. Mjög áríðandi er að þeir sem hug hafa á að sækja námskeiðið, láti innrita sig sem allra fyrst, og ekki síðar en 10. október næstkomandi svo að tími gefist til undir- búnings. Arnór Jónsson, Miðtúni 31, 400 ísafirði. SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA VESTFJÖRÐUM BRÆÐRATUNGA 400 ÍSAFJÖRÐUR ATVINNA! Staða ráðsmanns við Bræðratungu er laus til umsóknar. Ráðið verður í starfið frá og með 1. nóvember n.k. í starfinu felst eftirlit með eignum Bræðra- tungu auk aksturs sem heyrir undir starfsemi heimilisins. Æskilegt er að umsækjendur hafi áhuga og skilning á málefnum fatlaðra. Laun eru samkvæmt launataxta opinberra starfsmanna. Umsóknir skulu sendar til forstöðumanns Bræðratungu, ísafirði sem gefur jafnframt nánari upplýsingar um starfið í S* 3290. Umsóknarfrestur er til 10. október n.k. ISLENSK FYRIRTÆKI 20ARA 0ókin ÍSLENSK FYRIRTÆKI hefur í tuttugu ár verið ein helsta handbók þeirra er þurft hafa að leita upplýsinga um fyrirtæki, félög og stofnanir á Islandi Skráning í ÍSLENSK FYRIRTÆKI 1990 er hafin • Fyrirtækjaskrá • Vöru og þjónustuskrá • Útflytjendaskrá • Umboðaskrá • Skipaskrá *\? Frjálst framtak Ármúla 18,108 Reykjavík Sími S 23 00

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.