Vestfirska fréttablaðið - 28.09.1989, Blaðsíða 6
6
vestíirska
FRETTABLADIE
Flateyri
— marhnútaveiðin
að glæðast
Gyllir landaði um 35 tonnum um
miðja síðustu viku. Togarinn land-
aði svo nú á mánudaginn um 30 til
40 tonnum af ufsa. Þá voru drag-
nótabátar með 6 og 8 tonn eftir
tveggja daga veiði. Það hefur því
verið fremur rólegt í frystihúsi
Hjálms og lítið meira en átta
tímarnir unnir þessa dagana.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum mun þó eitthvað hafa verið
að glæðast marhnútaveiðin á
bryggjunni hjá yngstu fiskimönn-
unum. Þeir munu þó ekki hafa
fengið leyfi til að setja aflann í
gáma, enda vantar fisk hjá frysti-
húsinu. Ekki er ólíklegt að ýmsir
líti þennan veiðiskap björtum aug-
um, enda um að ræða vannýttan
fiskistofn. Og þó marhnúturinn sé
ljótur, þá segja þeir sem reynt hafa
að þetta sé hreinasta lostæti.
Bíldudalur
— togarinn
kominn úr slipp
Sölvi Bjarnason er kominn úr
slippnum og byrjaður veiðar.
Hann var þó ekki farinn að koma
með afla nú fyrri part vikunnar,
enda búinn að vera stutt úti, eða
frá því á laugardag. Ýmir landaði
10 tonnum rúmum úr tveimur
veiðiferðum í síðustu viku. Jör-
undur Bjarnason landaði 422
kílóum í einni veiðiferð, en báðir
þessir bátar eru á dragnót. Driffell
var með 3,9 tonn rúm í síðustu
viku og Breiðfirðingur var með
rúmlega 1,2 tonn.
Það sem eftir var af fellibylnum
Húgó gekk yfir landið nú eftir
helgina og var því leiðindaveður á
miðunum. Hjá frystihúsinu á
Bíldudal hefur verið hægt að halda
uppi vinnu flesta daga, enda hafa
þeir fengið eitthvað af fiski frá
Tálknafirði til vinnslu.
Tálkna-
fjörður
— eru íslendingar
of fínir til að
vinna í fiski?
Á mánudag og þriðjudag voru
engir bátar á sjó á Tálknafirði,
enda veðrið ekki upp á marga
fiska. Fyrir helgina voru dragnóta-
bátar að fá bærilegan afla og færa-
bátarnir líka. Var reytingur hjá
bátunum sem lönduðu á laugar-
dag, en þeir höfðu verið við veiðar
fyrir sunnan bjargið á grunnu
vatni. Virðist vera búið að vera
óvenju mikið af fiski á grunnslóð
og inni á fjörðum í sumar. Sýnist
það skjóta skökku við álit fiski-
fræðinga á ástandi þorskstofnsins,
en almennt eru menn þó ekki til-
búnir að taka á sig ábyrgðina á
auknum veiðum í þeirri von að
fiskifræðingarnir hafi rangt fyrir
sér. Annars telja ýmsir að sá afli
sem að landi berst nú sé nægur ef
tillit er tekið til þess hversu fáir
íslendingar eru tilbúnir til að vinna
í fiski.
Tálknfirðingur kom inn um
helgina eftir stutta útivist og land-
aði um 54 tonnum af þorski á
mánudag. Hjá frystihúsinu voru
skakbátar að landa ágætis afla fyrir
helgina. Þannig var einn með 7
tonn í tveimur löndunum og annar
var með 4 tonn í tveimur lönd-
unum, en þar er einungis einn á.
Þykir mönnum þetta ansi gott og
talað er um að mjög mikið sé af
fiski inni á fjörðum þar sem hann
hefur verið sjaldgæfur áður. Þrátt
fyrir mikinn fisk við landið, þá hef-
ur togurunum ekki gengið jafn vel
og litlu bátunum. Vegna veðurs
leituðu einir fimm bátar yfir á
Patreksfjörð vegna þrengsla og
ókyrrðar í höfninni á Tálknafirði.
Þingeyri
Framnes komið
úrslipp í Englandi,
en er nú í góðum
höndum skipa-
smiða á ísafirði
Þórdís fékk rúm 7 tonn á línu í
síðustu viku. Þá fékk Gestur
Magnússon 920 kíló en hann var
einnig á línuveiðum. Dýrfirðingur
var með rúm 4,2 tonn á línu. Bibbi
Jóns var með 1,6 tonn á línuna.
Afli þessara báta var allur óslægð-
ur. Vinur var með 240 kíló á hand-
færi í síðustu viku. Dýrfinna var
þá með 360 kíló og Blíðfari var
með 255 kíló.
Togarinn Sléttanes landaði um
70 tonnum á mánudag. Framnesið
er komið úr slipp í Bretlandi og
kom til ísafjarðar á mánudag, þar
sem Skipasmíðastöð Marsellíusar
hf. mun framkvæma einhverjar
breytingar í skipinu.
Patreks-
fjörður
— HPP slegið
Fiskveiðisjóði á
95 milljónir króna
Andri var með 3,1 tonn eftir fimm
ferðir í síðustu viku. Bensi var með
1,7 tonn í einni ferð. Vestri var svo
með 11,9 tonn í tveimur ferðum.
Ekki voru bátar á sjó á þriðjudag og
spáin ekki glæsileg.
Harðfrystihús HPP var slegið
Fiskveiðisjóði á uppboði nú á mánu-
dag. Fór húsið á 95 milljónir króna,
en aðeins mun eitt boð hafa komið
í húsið. Áætlað er að heildarskuldir
frystihússins séu vart undir 500 mill-
jónum króna. Kunnugir telja að til
að hægt sé að koma húsinu í viðun-
andi horf fyrir vinnslu, þá þurfi að
leggja um 30 milljónir króna í við-
gerðir og endurbætur.
Súðavík
— ágæt veiði
Valur var að landa á mánudag
um 22,5 tonnum. Sama dag var
Haffari að landa um 50 tonnum.
Tóti landaði 940 kílóum á föstudag
í síðustu viku. Að öðru var ekki
annað en allt gott að frétta úr Súða-
vík að þessu sinni.
Hólmavík
— slátrun á fullu,
en enginn fiskur
Engin löndun var hjá Kaupfélag-
inu í síðustu viku, enda allir á kafi
í slátrun. Um 94 eru á launaskrá hjá
Kaupfélagi Steingrímsfjarðar þessa
dagana, en af þeim eru einungis sex
menn auk verkstjóra sem ekki vinna
við slátrunina. Einnig er alltaf
nokkuð um sveitafólk sem vinnur
við slátrun.
Drangsnes
— bræla og frekar
treg veiði
Sundhani var með 1,1 tonn af
þorski og 89 kfló af ufsa í síðustu
viku. Guðrún Ottósdóttir var með
um 1 tonn af rækju og 120 kíló af
þorski. Gunnhildur var með 412
kíló af þorski og 106 kíló af ufsa.
Sæbjöm var með 267 kíló af þorski.
Hamravík var með 405 kíló af
þorski. Svana var með 22 kíló af
steinbít, 225 kíló af þorski og 255
kíló af ýsu. Hafrún var með 359
kíló af þorski og Díva var með 75
kíló af þorski. Ekki var það nú
meira á Drangsnesi að þessu sinni,
enda veður eins og víðar með brælu
og öðrum óþverra.
Brjánslækur
— sæmilegasta
skel, en ónæðis-
samt vegna veðurs
Þann 19. september var Magnús
með rúm 4 tonn af skel, og þann 20.
var hann með 4,8 tonn rúm. Þann
24. sept. var hann með rúm 3 tonn
og nú á mánudag var hann með um
3,3 tonn af skel. Frekar ónæðissamt
hefur verið til skelveiða vegna
veðurs. Skelin er þó þokkalega góð
og vel í meðallagi. Ingibjörg landaði
á ísafirði þann 19. um 7,8 tonnum
sem ekið var með vestur, en þessi
afli fékkst í dragnót. Síðan landaði
báturinn hálfu öðru tonni, einnig á
ísafirði. Þá gerði hann mjög góðan
túr og landaði á laugardag 14,2
tonnum í gám á Isafirði og sendi
rúm 4,1 tonn á Brjánslæk auk þess
sem Sund sf. á Isafirði (Einar Garð-
ar og þeir) fékk um 1 tonn. Aflinn
í þessari veiðiferð gerði þannig um
19 tonn. Halldór Sigurðsson land-
aði á ísafirði 19. sept. tæplega 2
tonnum sem ekið var vestur. Þann
22. september var Jökull með 78
kíló eftir hálfan dag. Tjaldur land-
aði 22., tæpum 1,4 tonnum. Svalur
landaði svo 397 kílóum á mán-
udag.
Bolungarvík
— ágæt veiði
á línu í
ísafjarðardjúpi
Heiðrún landaði 18. september
22 tonnum sem fengust á rúmum
sólarhring, en hún kom inn vegna
veðurs. Færabátar voru með
þokkalegan afla miðað við aðstæð-
ur, en eins og ýmsir hafa orðið
varir við, þá hefur verið mikið um
brælu að undanförnu. Línubátar
fiska einnig þokkalega og eiga
reyndar ekki langt að sækja. Hafa
þeir lagt lóðir sínar í ísafjarðar-
djúpi þar sem óvenju mikið er nú
af fiski. Hafa þeir verið að fá upp
í 160 kíló á bala. Uggi sem er fimm
tonna bátur var með 3,8 tonn á 24
bala, en Stefán Ingólfsson mun
vera með þann bát. Dagrún er
komin úr slipp og beið nú í viku-
byrjun eftir því að veður gengi
niður. Sömu sögu er að segja af
Sólrúnu. Júpíter er á veiðum á
Dohrnbanka.
ísafjörður
— millibilsástand,
ýmsar þreifingar,
jafnvel síldveiði
Páll Pálsson giskaði á 100 tonn
og setti í tvo gáma á mánudag.
Bræla hefur verið á miðum minni
báta og þeir því legið í höfn.
Annars er einskonar millibilsást-
and þessa dagana, því nú er sá tími
er menn huga að því að skipta um
veiðarfæri. Sumir eru þegar búnir
með þorskkvótann og bíða eftir að
geta hafið rækjuveiðar. Sumir
óttast mikla þorskgengd í Djúpinu
og telja að hann fari illa með
rækjuna, en aðrir telja þetta í góðu
lagi og nóg sé af rækju. Þá hafa
menn verið að þreifa fyrir sér á síld
í Djúpinu og hefur Stafnes frá
Keflavík verið að leita undanfarna
daga. Eitthvað virðist vera um
síld, en hún heldur sig helst á svo
grunnu vatni að ómögulegt er að
kasta á hana.
Togarinn Guöbjartur kom inn á
mánudag og landaði um 130
tonnum. Var aflinn að mestu karfi
og var sett í þrjá gáma til Þýska-
lands og Frakklands. Mun
Frökkum þykja mest varið í vel
rauðan karfa og gefa lítið fyrir
bleikan eða litlausan fisk. Hálfdán
í Búð er á rækju fyrir norðan land,
en veður hefur hamlað veiðum.
Orri er nú hættur á rækju og er
kominn í slipp á Akureyri. Síðan
mun hann fara á línuveiðar og
vonast er til að hann geti byrjað á
þeim svona þegar vika er liðin af
október. Trúlega byrjar Guðný
eitthvað síðar. Guðbjörg var með
um 100 tonn og setti í tvo gáma á
mánudag.
Fiskvinnslumenn voru á fundi í
Vestmannaeyjum um helgina og
ræddu sín mál. Þar rifust forstjóri
Þjóðhagsstofnunar og Einar
Oddur frá Flateyri um það hvort
tapið á síðustu tveim árum hefði
hækkað eða lækkað, minnkað eða
stækkað, og hvort menn væru
betur eða verr settir en áður. Vildi
Einar meina að 15% tap árið 1988
og 1% tap 1989 þýddi ekki að
menn væru betur settir en áður,
eins og forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar vildi meina, heldur legðist
tapið á þessu ári einfaldlega við
tapið á síðasta ári. Þá mun Einar
Oddur hafa sagt að menn yrðu
bara að virða það sér til vorkunnar
að stærðfræðin sem hann lærði á
sínum tíma var svona: Ef lagðar
eru saman tvær mínustölur, þá
stækkar mínusinn. Þannig hafi
hann nú lært reikning en Einar
Oddur sagðist heldur ekki vera
langskólagenginn.
Einar Oddur þótti fara á kostum
í sínum málflutningi, enda talar
hann mál sem almenningur skilur
og nennir frekar að hlusta á heldur
en smásmugulegt talnaflóð allra
hálærðu fræðinganna. Að vísu
hefur málflutningur Einars Odds
farið fyrir brjóstið á ýmsum, og
hafa forsvarsmenn launþega-
samtaka haft uppi harðorðar
athugasemdir við hans hagfræði.
Suðureyri
— togarinn með
70 tonn á mánudag
Elín Þorbjarnardóttir landaði á
mánudag um 70 tonnum, aðallega
karfa. Minni bátar hafa að mestu
legið í höfn vegna brælu á miðun-
um.
ATVINNA
Vantar vélstjóra og
stýrimann á 60 tonna
yfirbyggðan línubát sem
rær frá ísafirði.
Sund s.f. S" 3088
Línubátur
til sölu
Nýr 40 brúttótonna stálbátur
alyfirbyggður með Scania
aðalvél og Nogva gír,
með skiptiskrúfu og
Hatz ljósavél. Rúmur kvóti.
Ahugasamir hríngi
í síma 91-641344
vestfirska
PRÉTTABLAÐIÐ