Feykir - 17.06.1982, Blaðsíða 1
Alþýðubandalag og Framsókn mynda meirihluta á Sauðárkróki
Magnús
kjörinn
forseti
bæjarstjórnar
Rabbað við Magnús um áform meirihlutans
— Fyrir hverju œtlar hinn nýi bœjarstjórnarmeirihluti að beiia sérfyrst og
fremst?
— Hann vill fyrst og fremst efla atvinnulífið, það er mál málanna enn í
dag. Útgerðin stendur á völtum fótum svo styðja þarf við bakið á ut-
gerðafélaginu og þá væntanlega með því að auka hlutafé.
Vinna þarf að að uppbyggingu steinullarverksmiðju og leggur meiri-
hlutinn til að bæjarsjóður leggi fram sinn skerf. Ríkissjóður mun skv.
lögum um steinullarverksmiðju frá 1981 leggja fram 40% hlutafjár og
steinullarfélagið h/f sem bæjarfélagið er aðili að safnar því sem á vantar
og vonandi verður hægt að hefja verklegar framkvæmdir á næsta ári.
Við viljum auðvelda atvinnufyrirtækjum að setja sig hér niður og létta
þeim iðnfyrirtækjum sem fyrir eru róðurinn.
Við leggjum áherslu á að atvinnumálanefnd bæjarins starfi og sé virk
stofnun. Við gagnrýndum það á síðasta kjörtímabili að lítið væri hafst að
við varanlega gatnagerð og höfum hug á að bæta þar úr. Sú tíu ára áætlun
sem gerð var 1972 er nú runnín út og því er mál að gera aðra nýja og fylgja
hennieftir’ Framhald á bls. 4.
FRA RITSTJORN
Baldri Hafsta
þökkuð vel
unnin störf
og Þorsteinn boðinn velkominn
Baldur Hafstað hefur nú látið af ritstjórn Feykis, sem hann hefur
sinnt síðan í september í fyrra af einstakri natni og ósérhlífni. Rit-
stjórn þakkar Baldri framúrskarandi starf og hyggur gott til þess
að Feykir mun fá að njóta skrifa hans og liðveislu enn um sinn.
Nýr ritstjóri hefur verið ráðinn í stað Baldurs. Sá heitir Þor-
steinn Broddason, kennari við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki.
Þorsteinn mun ritstýra Feyki í sumar, en ritstjórn vinnur að því
að ráða ritstjóra til frambúðar frá haustnóttum.
Eitt ár er liðið frá stofnun Feykis og hefur hann verið borinn
fram af áhuga, velvilja og einhug fólks á Norðvesturlandi. Rit-
stjórn hefur fengið hvatningu og stuðning hvar sem hún hefur
komið. Feykir hefur meðbyr lesenda og hann siglir á meðan svo
blæs, stefnir í átt til upplýsingar og framfara með málefni Norð-
vesturlands innanborðs.
Áhugamenn standa að siglingunni og hafa lagt í hana mikla
vinnu. Þótt kostnaði hafi þannig verið haldið í lágmarki eru farm-
gjöldin há fyrir hinn þýðingarmikla farm Feykis og þau hækka
eins og annar útgerðarkostnaður á landi hér. Á það látum við nú
reyna, hvort þið viljið hafa Feyki áfram í flutningum með málefni
ykkar, lesendur góðir. Á næstu vikum sendum við ykkur póstkröf-
ur um greiðslu ákskriftargjalds fyrir tímabilið mars-ágúst 1982. Á
Sauðárkróki verður þó gengið í hús til innheimtu. Áskriftargjaldið
verður 20 krónur á mánuði fyrir tvö blöð, þ.e.a.s. 120 krónur fyrir
áðurnefnt hálfsárstímabil. í lausasölu mun blaðið kosta 12 krónur.
Enn eiga nokkrir vangreidda áskrift fyrir tímabilið september
1981 - febrúar 1982 og verða þeir nú beðnir um greiðslu.
í trausti þess að Feykir eigi enn vísan góðan stuðning lesenda,
hefur hann lagt úr höfn á nýju starfsári.
Feykir árnar lesendum heilla
á þjóðhátíðardaginn.
Hilmar Kristiánsson
oddviti á Blönduósi
Vinstri meirihlutinn leggur aðaláherslu
á uppbyggingu atvinnulífsins
Tveir listar voru boðnir fram á Blönduósi 1 nýaf-
stöðnum sveitarstjómarkosningum, listi vinstrimanna
og listi sjálfstæðismanna. Vinstrimenn hlutu þrjá
menn kjöma en sjálfstæðismenn tvo og munu vinstri-
menn því áfram fara með stjóm sveitarfélagsins undir
forsæti Hilmars Kristjánssonar oddvita.
Hér á eftir fer lauslegur úrdráttur úr stefnuyfirlýs-
ingu vinstrimanna.
Á komandi kjörtímabili verður að leggja áherslu á
að byggja upp atvinnulífið á Blönduósi til að veita
þeim sem út á vinnumarkaðinn koma möguleika á að
setjast þar að. Eftir að framkvæmdir við Blönduvirkj-
uunn eru hafnar er eðlilegt að kanna möguleika á
stofnun iðnþróunarsjóðs með fastar árlegar tekjur.
Tekjum sjóðsins verði varið til að fá sérfræðinga til að
athuga iðnaðarkosti og gera tillögur um frekari iðn-
aðaruppbyggingu. Aukin útgerð og vinnsla sjávar-
afurða er fljótlegasta og hagkvæmasta leiðin til at-
vinnuaukningar á staðnum, þegar höfnin verður orðin
að veruleika. Ef vel er að staðið má auka úrvinnslu á
lan dbúnaðarvörum enda er eðlilegt að hún og iðn-
aður tengdur henni sé ríkastti þáþáatttaáttur at-
vinnulifs á BbebBlönduósi. Þá verður að efla þau
fyrirtæki sem fyrir eru í byggðarlaginu.
Á síðastliðnu ári var hafist handa um gerð skjól-
hafnar norðan við núverandi hafnargarð. Á þessu ári
er áformað að gera líkan af höfninni til að auðvelda
byggingu hennar. Unnið verður við uppfyllingu á
hafnarsvæðinu og við grjótnám vestan Hólabaks í
Þingi. Á næstu árum verður að tryggja nægjanlegt
fjármagn þannig að höfnin verði að veruleika.
I stöðugt vaxandi bæ eins og Blönduósi er fjöldi
ungs fólks sem þarf að fá verkefni við hæfi í leik og
starfi. Á næstu árum þarf því að vinna af fullum krafti
að byggingu íþrótta- og æskulýðsmiðstöðvar en
hönnun hennar er nú að mesti lokið.
í umhverfismálum verður að halda áfram á sömu
braut og undanfarin ár. Leggja þarf áherslu á upp-
græðslu og frágang opinna svæða. Nauðsynlegt er að
girða af og snyrta í kringum sorpbrennsluofninn við
Draugagilið.
Vmsum fleiri verkefnum verður að huga að 1 náinni
framtíð. Bundið slitlag verður að leggja á götur jafn-
hliða því sem byggt er við þær og leggja áherslu á
frágang þeirra, þ.e. gerð gangstétta og graseyja. Huga
þarf að stækkun leikskólans sem nú þegar er fullset-
inn. Á næstu árum verður að halda áfram uppbygg-
ingu verkamannabústaða. Bæta þarf félagslega þjón-
ustu við aldraða t.d. með áframhaldandi heimilis-
þjónustu. Auka þarf stuðning við ýmis félagasamtök.
Stefna ber að því að fjárhagsstaða sveitarfélagsins sé
traust.