Feykir - 17.06.1982, Síða 3
Volvo 340kostar frá 129.800 kr
(5.5.’82)
Þú færð bæklinga og allar upplýsingar hjá okkur:
Volvo-umboðið Sauoárkróki
Brynjar Pálsson
Kaupfélag Skagfirðinga
sími 95-5200
Hjá öðrum eru gæði nýjung
- hjá Volvo hefð!
J '■ wUM JWiklk.
n ^ ■ f íffntrn nlltttfií v
Aðalfundur Skógræktar
félagsins og
„skógardagur" á Hólum
Ákveðið hefur verið að aðalfundur
Skógræktarfélags Skagfirðinga
verði haldinn í Varmahlíðarskóla
f-lstudagskvöldið 25. júní og hefjist
kl. 20.30. Mun Sigurður Blöndal
skógræktarstjóri tala á fundinum
eins og áður sagði í frétt hér í blað-
inu. Auk aðalfundarstarfa mun
sérstaklega rætt um afmæli félags-
ins en Skógræktarfélag Skagfirð-
inga var stofnað 1933 og verður því
fimmtugt á næsta ári.
Daginn eftir fundinn er áformað
að hafa „skógardag" á Hólum en
slíkur dagur hefur verið á dagskrá
skógræktarmanna víða um land á
þessu vori. Að vísu er 26. júní kjör-
dagur í öllum hreppum sýslunnar
nema á Sauðárkróki og Hofsósi en
vonandi gefa margir sér einnig
tít ma til þess að kjósa trén og eiga
fræðslu- og hvíldarstund í fögrum
reit.
Ætlunin er að skógræktarstjóri
leiðbeini hópnum um þetta stærsta
skóglendi héraðsins og skoðunar-
ferð þessi hefjist kl. 14.00.
Hreppstjórinn við oddvit-
ann: Hvað veldur að þú vilt
endilega fá mig í
hreppsnefndina?
Oddvitinn við hrepp-
stjórann: Ástríður, ástríð-
ur, Ástriður mín, til þín.
17. júnímerki:
Kaupið 17. júní merkið hjá
skátunum og styrkið verk-
efni í þágu aldraðrarraa á
áárri aldraðra.
Þjóðhátíðardag-
skrá
á Sauðárkróki
Kl. 10.00 Hópreið hesta-
manna.
Kl. 13.30 Skrúðganga frá
Kirkjutorgi undir
lúðrablæstri.
Kl. 14.00 Hátíðsett. Fjall-
konan flytur
ávarp.
Kl. 14.10 Guðsþjónusta.
Kl. 14.30 Knattspyrnuleik-
ur milli bæjar-
stjórnarmanna
og slökkviliðs.
Kl. 15.00-19.20 Skáta-
tívolí í Grænu-
klauf.
Kl. 16.00 Hljómleikar á
Faxatorgi.
1) Geirmundur.
2) Helfró.
3) ,,Eigi skal
höggva”.
4) Jazzlið —
átthagaflipp.
Dansleikur hefst íBifröst
kl. 23.00.
17. júnínefnd.
FRÁ DALVÍKURSKÓLA
Skipstjórnarnám
Við Dalvíkurskóla verður starfrækt skipstjórnar-
braut og veitir hún 1. stigs skipstjórnarréttindi.
Námið er skipulagt ísamvinnu við Stýrimannaskól-
ann íReykjavík.
Umsóknarfrestur ertil l.júlí.
Umsóknum skal fylgja vottorð um siglingatíma,
heilbrigðisvottorð, sjónvottorð og skavottorð
ásamt prófskírteini.
Umsóknum skal skilað til skólastjóra eða yfirkenn-
ara sem jafnframt veita upplýsingar.
Heimavist er á staðnum.
Skólastjórl.
LOKAÐ
vegna malbikunarframkvæmda
og sumarleyfa
til 26. júní.
HATUN
Sæmundargötu 7, Sauðárkróki, sími 95—5420, pósthólf 19
FRETTATILKYNNING
Hr. ritstjóri.
Teater Sargasso er sjálfstæður leik-
hópur starfandi i Stokkhólmi.
Meðlimir hópsins eru allir saenskir
nema undirritaður sem er íslenzk-
ur. Við höfum í vetur unnið að
leikritinu „Pá flykt frá den tid“,
sem er frumsamið verk okkar, og
var það frumsýnt í Stokkhólmi í
maí við góðar undirtektir áhorf-
enda og gagnrýnenda.
Þann 15. júní munum við fara í
leikför til Noregs, Færeyja og Is-
lands í boði Alþýðuleikhússins, og
munu sýningar haldnar á eftirtöld-
um stöðum:
23. 6. Valaskjálf Egilsstöðum kl.
20.00.
25. 6. Félagsheimilinu Húsavik kl.
20.00.
26. 6. Glerárskóli Akureyri,
iþróttahúsið kl. 20.00.
27. 6. Glerárskóli Akureyri kl.
20.00.
28. 6. Félagsheimilið Bifröst
Sauðárkróki kl. 20.00.
30. 6. Félagsheimilið Stykkishólmi
kl. 20.00.
2. 7. Félagsheimilið Röst Hellis-
sandi kl. 20.00.
4. 7. Logalandi Borgarfirði kl.
20.00.
7. 7. Ársel Reykjavflc kl. 20.00.
8. 7. Ársel Reykjavflc kl. 20.00.
9. 7. Vinnuheimilinu Litla—
Hrauni kl. 20.00.
11. 7. Festi Grindavflc kl. 20.00.
18. 7. Félagsheimilinu Sindrabæ
Höfn kl. 20.00.
Erfitt er að skilgreina leikstíl
okkar í klassiskum hugtökum, en
segja má að við leggjum áherzlu á
hina lflcamlegu tjáningarmöguleika
leiklistarinnar. Við höfum fundið
okkur form með að blanda saman
látbragðsleik, revy, cirkus, nútíma
dansi og hefðbundnum leikstíl.
Leikritið fjallar um hvernig
manneskjumar flýja eða reyna að
komast hjá að takast á við aðsteðj-
andi deilur og vandamál, varpa af
sér ábyrgðinni og skella skuldinni á
aðra. Við notumst við atburði úr
mannkynssögunni aftur að mið-
öldum og hugmyndafræði hvers
tíma til að setja þetta á svið. Til að
flétta þessa atburði i samhengi
ferðumst við sem farandleikhús á
leið frá einum stað til annars, frá
einni tíð til annarrar, aftur í tímann
gegnum sögu vorrar menningar og
hugmyndafræði, og speglum gegn-
um það þau vandamál sem upp
koma í svo hversdagslegum mann-
legum tengslum sem hjá meðlim-
um farandleikhúss.
Leikritið byrjar í loftvamarbyrgi,
þar sem nokkrar manneskjur hafa
leitað hælis undan yfirvofandi
hættu, og endar í jarðhýsi einu á
miðöldum þar sem „sömu“ mann-
eskjur hafa falið sig undan ósköp-
um svartadauða. Þess á milli hefur
leið okkar aftur i tímann legið
gegnum skemmtanabrjálæði þriðja
áratugsins, þjóðernisrómantflc og
hreinlifnaðarstefnu 19. aldar,
nornabrennur 18. aldar,mg trúar-
hita og samfélagsbreytingar 17.
aldar.
Verkið inniheldur tvær myndir
eða svið, — farandleikhúsið og
ferðina annars vegar, og hinar mis-
munandi senur sem spegla andann
á hinum ýmsu tímabilum sögunnar
hins vegar.
Sviðsetning verksins er og ný-
stárleg að því leyti að áhorfendur
sitja sinn hvoru megin við leiksvið-
ið, og getum við því einungis leikið
í sal þar sem raða má stólunum á
báðum hliðum.
Einnig mun Teater Sargasso
standa fyrir 4ra daga námskeiði í
„fysisk teater“, þann 6/7-9/7 kl.
13.00-17.00 í Lindarbæ í Reykja-
vflc. Námskeiðið er opið bæði at-
vinnu- og áhugaleikurum.
Teater Sargasso hefur sótt um og
fengið styrk frá norrænu leiklistar-
nefndinni sem hefur gert þessa
leikför mögulega.
Væri ég yður þakklátur hr. rit-
stjóri ef grein kæmi í blaði yðar um
heimsókn Teater Sargasso til ís-
lands og/eða þess byggðarlags sem
blaðið hefur mesta útbreiðslu í.
Með fyrirfram þökk.
Virðingarfyllst,
Birgir Erlendsson
c/o Teater Sargasso
Lövholmsvágen 10-12
117 43 Stockholm
Sverige.
P.S. Auk leiksýningarinnar
munum við halda götusýningu/-
skrúðgöngu á aðaltorgi þess kaup-
staðar sem við heimsækjum. Götu-
sýningin, sem ekki stendur að öðru
leyti i sambandi við sjálfa leiksýn-
inguna, inniheldur alls konar sprell
milli skrýtinna fígúra.
í Færeyjum munum við leika
þann 20. 6. kl. 20.00 (e.t.v. auka-
sýning þ. 21. 6.) í boði Hávnar
Sjónleikarfélags/Olivur Naess.
Feykir . 3