Feykir - 17.06.1982, Page 5
FeykÍR
ÚTQEFANDI: FEYKIR H.F.
RHslfód og *toyrg0arm*0or:
ÞOR8TEINN BROODASON.
Auglýmlngar:
UARQEIR FRIORIK8SON,
8lml 980400 og 960782.
DvoNlog:
HILMIR JÖHANNE8SON,
8lml 960133 og 960314.
Askrtft:
ÁRNI RAQNAR8SON,
8lml 960500 og 960970.
Rltsltóm:
ARNI RA0NAR880N, HILMIR JÖHANNESON, HJALMAR JÓN8SON,
JÓN A8BERQ88ON, JÓN F. HJARTARSON.
Rltnsfnd á 8lgluflr0l:
BIRQIR 8TEIN0ÓR88ON, 8VEMN BJÓRN8SON, QUNNAR RAFN
8IQUR8JÓRN8SON, KRISTjAN MÓLLER, PALMI VILHJALMSSON.
Rltnsfnd á Hvsmmstsngs:
HOLMFKiOUR BJARNADÓTTIR, EQILL QUNNLAUQSSON, HELQI
ÓLAFSSON, ÞÓRVEIQ HJARTAROÓTT1R, HAFSTEINN KARLSSON,
MATTHlAS HALLDÓRSSON.
Rhmfnd á BIAnduöál:
MAQNÍIS ÓLAFSSON, 81QMAR JÓNSSON, BJÖRN
SIQURBJÓRNSSON. ELlN SIQURÐARDÓTTIR,
SIQURÐUR EYMUNDSSON
Rltnsfnd á Sksgsströnd:
ELiN njAlsdóttir, sveinn inoólfsson, jón inqi
INQVARSSON, MAQNÚS B. JÓNSSON, ÓLAFUR BERNÓDUSSON.
Rltnafnd é Hohdál:
FJÓLMUNDUR KARLSSON, QUÐMUNDUR INQI LEIFSSON, PÁLMI
RÓQNVALDSSON, BJARNI JÓHANNSSON, Sr. SIQURPALL
ÓSKARSSON, RÓ8A PORSTEINSDÓTT1R, BJÖRN NÍELSSON,
PÓRDÍS FRIOeJÓRNSDÓTTlR
Útílt: REYNIfl HJARTARSON
PRENTVERK 0008 BJÓRNSSONAR H.F.
AKUREYRI 1M2
Feyklr er hálfsmánaðarblaS.
Aakrtít 20 kr. á mánuSJ.
Lausssala 12 kr.
Atímamótum
Nýkosnar sveitarstjórnir eru nú sem
óðast að hefja störf eftir orrahríð
kosninga og meirihlutamyndana.
Verkefnin blasa hvarvetna við,
furðanlega lík í eðli sínu hvert svo
sem sveitarfólagið er.
I þessu blaði hefur verið lögð á
það áhersla allt frá upphafi, að íbúar
Norðversturands þyrftu og ættu að
standa saman um lausn vandamáia
sinna. Því miður hefur lítið orðið úr
framkvæmdum. Þeir sem hefðu átt
að hafa frumkvæðið, sveitarstjórn-
armennirnir, hafa ekki gefið sig að
mállnu þótt þeir viðurkenni fúslega
nauðsyn og gagnsemi samvinnu
innan kjördæmisins. Þessi pistill er
því tileinkaður nýkjörnum sveitar-
stjórnarmönnum með það í huga að
orðin eru til allra hluta fyrst og minnt
á nokkur atriði:
Það er kominn tími til að við tökum
höndum saman og gerum Fjöl-
brautaskólann á Sauðárkróki að
raunverulegum kjördæmisskóla eins
og upphaflega var stefnt að. Skólinn
hefur sannað tilverurétt sinn og hasl-
að sór völl. Öflugur fjölbrautaskóli á
Sauðárkróki er forsenda þess að tak-
ast megi að halda uppi framhalds-
námi við grunnskólana í kjör-
dæminu. Þetta er staðreynd sem
skólamenn hafa þegar gert sér Ijósa,
nú er komið að sveitarstjórnarmönn-
um að tryggja framhaldið.
Það er kominn tími til að við tökum
saman höndum og tryggjum að virkj-
un Biöndu verði öllu kjördæminu til
hagsbóta. Blönduvirkjun má ekki
verða einangruð stórframkvæmd
sem e.t.v. skapar fleiri vandamál en
hún leysir. Virkjun Blöndu getur, ef
vel er á haldið, gerbreytt atvinnuhátt-
um í öllu kjördæminu, en það gerist
ekki af sjálfu sér.
Það er kominn tími til að við tökum
höndum sman og mótum okkur
stefnu í gatnagerð og eignumst mal-
bikunarstöð í sameiningu.
Það er kominn tími til að við á
Norðurlandl-vestra stofnum okkar
eigin sveitarstjórnar samtök. Samtök
sem verði tæki okkar til að leysa til-
tekin og vel skilgreind viðfangsefni.
Notfærum okkur reynsluna af fjórð-
ungssambandinu og dettum ekki í
sömu pappírsgryfjuna og illa skil-
greindu markmiðin. Tökum f alvöru
til höndunum í sameiginlegum mál-
um okkar og látum nú verkin tala.
GRS.
MÓAUNGSKINN
seinni hluti ferðasögu Kristjáns í Gilhaga
Nú er mál að linni hugleiðingu um
liðna tíð en áfram halda ferðinni,
og að skammri stundu liðinni er ég
kominn austur yfir Giljamýrar og
Ásana austan þeirra og Austur-
dalurinn blasir við sjónum. Jök-
ulsáin austari, alauð svo langt sem
sést, sígur hljóðlát niður hallalítinn
dalinn, fölblá og sýnist örgrunn.
Þess sjást þó merkin víða og ósmá,
að slflct sakleysi vari ekki nema
stundum. I sjónauka sést móta fyrir
tóftarbrotum alllangt utar í daln-
um, eyðibýlin Nýjibær og Tinnár-
sel vitna þar um sögu liðinna kyn-
slóða. Þá kemur fram í hugan saga
skáldsins sem hér bjó 1824-1829, en
varð að hrekjast burtu af ástæðum
sem ekki er vert að vera að rifja upp
núna, en halda áfram ferðinni fram
til öræfanna.
Út með sjó og inn til dal ,
örðug fyrr var lífsins glíma,
Gróin tóft á grónum bala,
geymir minning liðins tíma.
Það er komið hádegi, klukkan er
raunar að verða hálf eitt. Sleðafæri
er svo gott að vegalengdir sem að
sumarlagi vaxa mér í augum verða
næstum að engu núna, og klukkan
virðist ganga hægar en þá. Ég er því
að stundu liðinni aftur staddur
vestur á brún Runu fremst, nánar
tiltekið við Móalingskinn, og er
talið að Runa, sem áður er getið,
endi þar. Fellur áin þar í kletta-
gljúfri alldjúpu sem grynnist ört til
suðurs en við örlitla beygju til
vesturs er lítill og vinalegur gróinn
hvammur í skjóli fyrir norðaustan-
áttinni og heitir Mótalingskinn.
En hver var hann þessi
Móalingur sem gaf hvammin-
um nafn sitt? Bar þama einhvern
tíma beinin móálóttur hestur, eftir
að hafa háð harða baráttu við
norðlenskt skammdegisveður, eða
náði hann að þreyja hér þorrann og
góuna, og ganga til móts við kom-
andi vor, með hertan vilja og þrótt
er entist til að þjóna því hlutverki
sem honum var ætlað? Hvorugt er
vitað, en trúlegri er síðari ágiskun-
in, því alautt er að sjá héðan norður
yfir Runu og mun svo hafa verið
mörg árin liðin.
Er hún „Kinnin“ merkur minnis-
varði?
Mun það nokkur vita nú, til sanns?
Leynast kennsi í gröf hjá grónu
braði,
gulnuð bein, sem vitna um örlög
hans?
Ég fer aftur austur á belveginn
og fylgi honum fram á Reiðhól.
Hér eru metrarnir orðnir 706 yfir
sjávarmál, og niðri á sandinum
héma skammt sunnan við stendur
einmana vegprestur og bendir á
Ásbjamarvötn. Hann gegnir því
hlutverki sem og hinir prestamir að
vísa öðrum veginn, en fer hann
ekki sjálfur, þó segir hann vega-
lengdina ekki meiri en sautján kfl-
ómetra. Þó að kaldir séu þeir hér
vetrarstormamir sem mæða um
hann, og langar skammdegisnæt-
umar, finnst mér ég kenna ofurlít-
illar öfundar í hans garð.
Oft er þörf að halda á sér hita.
Nú hlýnar senn, og daginn lengja
fer,
en ef þér leiðist, láttu mig þá vita,
og leyfðu mér að taka við af þér.
Um þessa lægð, þar sem prest-
urinn stendur er afrennsli Reyðar-
vatna á vorin, meðan leysingar eru,
vestur í'Runukvísl, en er líður á
sumarið dregur svo úr því, að
sendinn jarðvegurinn gleypir það
áður en hingað er komið. Og áfram
skal haldið, því nú er bensínbrús-
inn kominn með í förina, og af
tekinn allur vafi á að upphaflega
áætlun standist ekki. Hér lækkar
landið aftur og gróður vex að nýju,
kringum Reyðarvötnin sem eru á
vinstri hönd um það bil 1 km2 að
flatarmáli, en þó einkum í Rústun-
um sem framundan eru og á vinstri
hönd sé vegurinn farinn. Þær heita
reyndar fullu nafni Orravatnsrústir
og draga nafn af stöðuvatni eða
stærstu tjöminni sem er í þeim
sumarlega. Nú kann einhver að
spyrja; hvað eru rústir? Rústir eru
stórar þúfur í flá eða mýrlendi,
flatar að ofan með tjarnir og síki
allt í kring og oft mjög mikill gróð-
ur í vatninu. Undir rústunum helst
klaki allt sumarið, sem stendur á
föstum grunni og hlýtur því árs-
meðalhitinn að vera talsvert undir
0° C, enda gróður oft mjög þyrk-
ingslegur á þeim sjálfum. Stærð
þúfna þessara, rústanna, er breyti-
leg, allt niður fyrir 1 m2, en er oftast
20-50 m2, og með óreglulega lögun.
Oftar aflangar, kistulagaðar, og því
stundum kallaðar dysjar. Norðast í
rústunum stendur gangnamanna-
kofi, norðan við lækinn sem rennur
norðvestur úr þeim og em þar
upptök Runuhvíslar, eða Hofsár,
sem trúlegra er réttara þó alltaf sé
hún kölluð Rústakvfsl hér og
Runuhvlsl að Hraunþúfuá.
Að lokinni stuttri viðdvöl er
haldið af stað fram, í námunda við
bflveginn með viðkomu á Orra-
haugnum, stökum grashól sunnar-
lega í Rústunum. Ekki er vitað
hvernig stendur á nafngift hans,
eða hver hann hefur verið þessi
Orri sem gefið hefur vatningu og
hólnum nafn sitt. Máski hefur hann
hlotið hér hinsta legstað, og hóllinn
fengið haugsnafnið af því. Að
minnsta kosti er allstór grasþúfa
uppi á honum, lflc og þjóðsagan
lýsir slflcum leiðum eða dysjum, og
jjar hefur lágfóta grafið sér gren,
sem að hefir þó verið í eyði alllengi.
Nú er farið að styttast að Jökuls-
ánni eystri, og ég tek stefnuna á
brúna, þó að trúlega þurfi ég ekki á
henni að halda núna, og mig ber
fljótt yfir. Þægilegur ferðamáti á
þessari auðn, þar sem ekkert er að
sjá nema endalausa fannbreiðu. Þó
örlar víða á snjóstikum sem standa
meðfram bílveginum, og styrkja
mig í trúnni á að stefnan sé ekki
fjarri lagi. Og svo kemur brúin í
ljóst, eða er kannski ekki hægt að
kalla þetta brú? Ekkert sér fyrir
hliðgrindinni 'sem lokar henni að
vestan, og um það bil fet af hand-
riðunum stendur upp úr fa-
nndyngjunni og því á annan meter
niður á brúargólfið.
Fátt er nú um kennileiti, utan
stikutoppa á stöku stað, hraðinn
hefur ofturlítið truflandi áhrif á
staðsetninguna hverju sinni og áð-
ur en varir er Strangilækurinn að
baki og Hnjúkskvíslin sömuleiðis.
Það leggur gufustróka upp af
Laugunum þegar fyrirheitna land-
ið blasir við, og Laugakvíslin er al-
auð alllangt niður eftir frá þeim.
Þrátt fyrir að ekki hafi ég fundið
fyrir kvíða eða geig í ferðinni, fylgir
því afar notaleg tilfinning að sjá
sæluhúsið við Laugafell blasa við.
En vissan um ágæti þess sem gisti-
staðar og umhugsunin um það
hefur efalaust truflað eftirtektina
og athyglina, enda í huganum
kominn þangað inn og sestur að
snæðingi. Ég renndi mér austur af
melnum illu heilli í stað þess að
fara eftir hæðonum upp eftir, og
held samsíða Laugakvíslinni. Hún
er raunar undir snjó hér en sjáan-
lega aðeins þunnt skæni yfir lækn-
um sjálfum og sigið niður. I næstu
andrá ligg ég marflatur á snjónum
og sleðinn horfinn undan mér.
Hafði ég farið yfir Kaldavermsli-
læk sem rennur undan brekkunni
og í kvislina. Svo sakleysislegur að
sumarlagi og lætur lítið yfir sér, en
býr yfir þessari undraverðu náttúru
sem nú var orsök þess hvemig
komið var. Var hann búinn að þýða
snóinn neðan frá og aðeins þunnt
þak eftir yfir, sem var ofurlítið sigið
að vísu en mér hafði séðst yfir það
drag. Og stóð ég nú brátt á tveimur
jafnfljótum, ómeiddur sjálfur en
ríflega hæð mín ofan á sleðanum
og annað skíðið brotið af. Ekki veit
ég hvort hægt er að gera með orð-
um einum grein fyrir því ástandi
sem hafði skapast. Landfræðilega
séð stendur Laugafell sem næst
miðju landsins, og að vera staddur
þar, undir þessum kringum stæð-
um, á þessum árstíma var hlutskipti
sem færri mundu kjósa sér. Svo
mikið er víst að ekki bar ég kvíð-
boga fyrir framhaldinu, enda til
þessa stofnað sjálfur og af fúsum
vilja, eða öllu heldur af einhverri
dulinni æfintýraþrá, þrá eftir að sjá
gamalkunnar slóðir í búningi vetr-
arins, í nýju ljósi. Einn- og engu
háður öðru en áætlun afturkomu í
byggð að liðnum umtöluðum tíma.
Útbúinn til aðseturs næstum hvar
sem var, ekki ferðaáætlun fast-
ákveðin, aðeins njóta líðandi
stundar og farinnar ferðar hverju
sinni, tilbúinn að taka þeim afleið-
ingum sem slflct athæfi býður upp
á.
Ég klöngrast ofan að sleðanum
og aðgæti allt nánar, hvergi neina
skemmd að sjá aðra en brotinn öx-
ulinn sem gengur niður úr stýris-
ganginum í skíðið. Vélin malaði
ánægjulega ennþá, hafði ekki svo
mikið sem svelgst á við þessa
hremmingu.
Mesta undrun mína vakti plast-
hlífin framan við stýrið, stráheil þó
að ég hafi þeyst fram yfir hana og
skil ég ekki enn hvernig það gat
gerst. Ég valdi álitlegasta staðinn til
uppáferðar aftur, losaði skóflublað
úr farangri mínum og byrjaði að
moka stall í skaflinn, í þeirri hæð
sem ég taldi mig geta lyft sleðan-
um. Þetta yrðu lflclega þrír fjórir
stallar til að ná yfirborðinu aftur.
Ég fór að hugsa um framhaldið
meðan á mokstrinum stóð, nú fengi
ég að taka til fótanna, til að komast
heim aftur, og var þegar kominn af
stað, í huganum. Mundi trúlega
þurfa að gista eins nótt á leiðinni
auk þeirrar sem í vændum var, því
dagur er senn að kvöldi kominn.
Um leið og ég leyfti sleðanum í
síðasta sinn og upp á skaflinn, datt
hún fyrirvaralaust fram í huganum
lausnin á nýorðnum vandræðum.
Skóflublaðið var auðvitað tilvalið
að nota í skíðisstað.
Það var af malarskóflu u.þ.b.
ferfet að stærð og skálarlaga með
ofurlítinn skaftstubb sem hægt var
að binda fastan þannig að það yrði
kyrrt á sínum stað. Endinn á brotna
öxlinum stóð í skálinni á blaðinu og
ferðin gekk greiðlega síðasta spöl-
inn heim að skálanum. Aðkoman
þar var mjög góð svo sem við mátti
búast, frostið var 8 stig á mæli
utan dyra en hiti 11 ° inni, þar sem
laugavatnið hitaði upp með sí-
rennsli gegnum pípur við gólfið
meðfram útveggjum. Tæki til hit-
unar voru ekki hér til staðar né
heldur með í förinni svo að ég varð
að setja upp hlóðir utan dyra og
hita mér þar tevatn og sjóða súpu.
Á meðan vatnið hitnaði, gafst
góður tími til að ganga betur frá
4 . Feykir
skóflublaðinu svo að endast mætti
ófama leið til byggða, og að því
loknu að fara í stuttan reynsluakst-
ur um næsta nágrenni sem gaf fyr-
irheit um góða ferð að morgni.
Við sæluhúsið og niður með
Laugakvíslinni eru hagasnapir all-
miklar og finnst þar alloft fé á
haustin og í vetrarbyrjun, enda
gera volgrumar sitt til að auka þar á
gróðurinn og því lífvænlegra er
Hður að vetri. Engar sagnir eru um
að útilegumenn hafi hafst hér við
enda vatnið hvergi heitara en rúm-
lega 40° C, og því ónothæft til að
sjóða í því kjöt, sem að trúlega hefir
verið aðallifsbjörg þeirra. Þó er það
einmitt þessi jarðhiti og uppsprett-
ur frá honum, sem viðhalda þeim
munnmælasögum em á reiki plág-
ur herjuðu á byggðirnar.
Einna trúlegust finnst mér sú
saga er viðhelst ennþá í Eyjafirði,
að tóftarbrotin niður við Lauga-
hvíslina hafi verið heitin eftir hús-
freyjunni á Möðruvöllum í Eyja-
firði og alltaf kölluð Þórutóftar-
brot. Átti hún að hafa flutt hingað
með allt sitt, og dvalist hér meðan
svarti dauði geysaði um byggðimar
og bjargaði þannig sér og sínum frá
dauða. Eftir að plágunni létti flutti
Þóra til byggða á ný, en svo vel
hafði hún unað hér að mörg sumrin
næstu á eftir hélt hún hér til og
hafði 1 seli. öllu ósennilegri er sú
saga er fylgir hinni, að á meðan
Þóra dvaldist hér hafi hún af og til
sent menn til að grennslast um
ástandið í byggð og hafi þeir sem til
baka komu aftur, sagt að pestin
lægi yfir byggðinni eins og móða og
næði upp í miðjar hlíðar, þar til
einn sagði að nú væri aflétt plág-
unni. Svo mikið er víst að við tóft-
arbrotin hefur fundist aska og
kindarbein sem ótvírætt bendir á
búsetu, þó ekki sé vitað hvenær eða
af hvaða ástæðum hún hefir verið.
Sögn um flótta fólksins lifir
frelsi og þróttar naut í senn.
Síðan hljótt þess sögu yfir
sefur tóftarbrotið enn.
Ennþá er veðrið jafn stillt og
gott, hæg norðaustlæg átt eilítill
skafrenningur á stundum,
einkennileg hula í lofti byrgir að
mestu sýn. Þó glyttir í fölgræna
slikju norðurljósa á vesturloftinu,
tvær stjömur á himni ekkert tungl.
Eftir að hafa litast nokkuð um
innan dyra og lesið í gestabókinni
það sem skrifað hafði verið síðan
ég kom hér síðast, var ég þess full-
viss að þar hafði ekki skrifað sá eða
sú er hér hafði síðast gist. Undir.
bekk í forstofunni og í kokkhúsinu
mátti greinilega sjá ummerki mús-
ar þó ótrúlega sé, á þessum stað.
Það verður ekki skýrt á annan veg
en að einhver gestanna hér hafi
flutt hana í farangri sínum og mat-
arleysið síðan orðið henni að ald-
urtitla.
Svo er ekki annað eftir en að
skríða ofan í svefnpokann og
hverfa burt frá stund og stað, til
draumalandsins eða algleymis.
Meðan ræður milt og rótt
myrkur auðnar stóru
einn ég kýs að eiga nótt
inni i rflci Þóra.
Sífellt gjálfur vatnsins i píponum
við veggina heldur athyglinni stutta
stund, virðist hljóðna hægt og hægt,
hverfur loks alveg.
Það er að byrja að lýsa af nýjum
degi þegar ég vakna af draumlaus-
um svefni, sem varað hefur í al-
gleymi frá þvl er gjálfur vatnsins
hvarf í gærkveldi, sem hefur nú að
nýju sama seiðmjúka sífellda klið-
inn. Þá er að tendra eld í hlóðonum
að nýju, hita morgundrykkinn og á
brúsa í nesti. Hæg norðaustan átt
ofurlítill skafrenningur og frost
-5- 9° C. Ég bjó mig til ferðar á
meðan vatnið hitnaði, skrifaði í
gestabókina, og lét þar fljóta með
stöku, sem reyndar varð til a allt
öðrum stað en ekki við ósvipaðar
aðstæður og á ekki síður við hér.
Þó að frysti, fölni blað
finnst hér lyst, að una.
Þeir sem gista þennan stað
þakka vist og muna.
Þegar ég hef gengið frá öllu með
sömu ummerkjum og að var kom-
ið, loka ég hurðum útidyra og renni
af stað úr hlaði, án orða, hún vitnar
um þakklæti mitt stakan. Sleðafæri
er sem fyrr mjög gott og skóflu-
blaðið skilar með prýði nýju hlut-
verki. Ég fer vestur yfir Lauga-
kvislina svo fljótt sem fært er, og
upp á melhrygginn vestan við en
stansaði aðeins þar, til að líta
snöggvast yfir svefnstað minn áður
en lengra yrði haldið og þá kemur
hún í huganum, stakan sem ég átti
að skrifa í gestabókina áðan.
Þreyttur hvfld hér þráða hlaut
þakka ber með orðum,
þar sem einnig ylsins naut
einhver Þóra forðum.
Fyrr en varir er Jökulsáin að baki
og við Pollakvíslina bíður mín
eldsneyti frá í gær, og næsta áfanga
lýkur við skála F.f.S. í Lamba-
hrauni. Ég stansa um stund og litast
um en fljótlega fer kuldinn að
sækja á. Þó frostið sé ekki mikið,
hæg norðaustan gola og nú ekki til
setunnar boðið lengur. Þar sem
tími virðist rúmur og veður gott
ákveð ég að taka smá útúrkrók og
stefni á Svörturústir. Allsstaðar
hefur kaldavermslið í lækjonum
etið undan snjónum og víða uppúr,
svo þeir voru alauðir enda snjór
ekki djúpur hér á þessu flatlendi og
sést víða til jarðar í rústonum.
Rjúpnaspor á einni, fyrstu merki
um líf, síðan norður á Þorljóts-
staðabrúnum, en nú fór að rætast
úr því. Ofarlega við norðasta læk-
inn sem opinn er, sé ég minnkaslóð.
Hann hefur komið upp i gegnum
skaflinn við lækjarbotninn, og
hleypur niður með að sunnan. Ég
fylgi slóðinni. Stansar hvergi, takt-
viss og ákveðin stökk, nær alltaf
jafn löng, þrjú sporin næstum alveg
saman hægri framfótur örlítið
framar. Svona geta þeir hlaupið
kílómetrum saman, ótrúlegar
vegalengdir. Þvflflc taktfesta. Af
henni mætti öfunda hann hver sé
sem glímir við flókið nótnaregístur
og síbreytilegan takt tóna. Hvergi
fer hann að læknum, beygir allt í
einu þvert úr leið, stefnir suður á
melölduna, trúlega ekki ókunnug-
ur hér.
Nú veit ég hvert hann ætlar,
austur á Bug. Slóðin stefnir nú á
auðan læk, einn af mörgum hér í
Vestur-Bugnum, viðstöðulaust of-
an í hann og innundir snjóinn en
vegalengdin er lfldega hátt í þrjá
kilómetra, sem ég hef fylgt slóð-
inni. Hér er sannkallað kjörlendi
fyrir minnkinn, smásilungur eða
Lækjalonta í nær öllum lækjum þó
kaldir séu, stærri silungur í stöðu-
vötnum nægur til lífsviðurværis um
vetrartímann þar til fuglinn kemur
með vorinu. Þó telur veiðistjóri að
minnkurinn haldi sig í byggð eða
nær henni yfir veturinn og fari svo
til fjalla aftur að vorinu. Allavega
era hér viða mjög góður uppeldis-
staðir sem aldrei hefir verið komið
á, í leit að mink til eyðingar. I
bústað lágfótu við Svörturústadrag
vorið 1980, var bæði silungar og
gæs á borðinu, vafalaust daglega.
Slflcra kræsinga er nú ekki neytt
kvundags hjá mennskum, teljast
raunar til hátíðamatar, en svona
eru misjafnar siðvenjur, og að-
stæður til öfiunar lífsviðurværis.
í vestri ris Rauðhóllinn yfir
sandöldumar austan Ásbjamar-
vatna, 915 metra hr og glöggt
kennileiti enda stefnan þangað. í
leiðinni er Grænatjöm, og þeim
sem vildu kynnast henni, skal vísa á
fjórða bindi. „Hrakningar og
heiðavegir" bls. 74. Gott dæmi þar
um óvænt atvik er verða á vegi
þeirra sem eru á ferð fjarri byggð-
um án samferðamanna. Hér er
snjórinn orðinn mýkri og verulega
meiri en austar, og Ásbjamarvötn-
in undir þykkri fanndyngju, en
auður lækurinn sem til þeirra
rennur að sunnan, mikil ummerki
þar af völdum minkar, og ekki mun
matarskortur þjá hér.
Stefnan er yfir Ásbjamarfellið
norðan, en skyggni ekki gott vegna
skafrennings og drungalegs lofts,
útsýni er þó stórfenglegt þaðan ef
bjart er enda þúsund og tuttugu
metrar niður af sjávarmáli.
Þá er komið í Lambahraun, sem
áður er getið og nú er það allmiklu
greiðfærara en að sumarlagi, nán-
ast hvergi misfella og sýnist, stutt
yfir að skálanum þó að séu um þrír
kílómetrar. Það má ekki vera
ströng áætlun framundan þegar
farið er að skoða hraunið, en þeim
tíma sem til þess fer tel ég vel varið.
Það er æskilegast að rigningar-
demba sé nýafstaðin þegar farið er
að skoða hraunið. Þá er grámosinn
brúsandi og líflegur, og þá sjást
mun betur fjölmargar tegundir
jurta sem þar lifa og blómstra.
Grámosinn er að sjálfsögðu mest
áberandi því að hann undirbýr
jarðveginn með takmarkalausri
þolinmæði og nægjusemi, fyrir
annan gróður stórvaxnari og þurft-
arfrekari. Lætur sér nægja
langtímum saman til vökvunar
náttdöggina, sem svitar hraunurð-
imar og skjólsælir hraunbollamir
sannkallað kjörlendi mosans, sem
og annarra jurta, því að þar kemst
ekki foksandurinn að með sitt eyð-
ingarafl. Fjallagrösin og hrein-
dýramosinn blása út í kóralþyrp-
ingu eftir dembuna.
Tófugrasið velur sér skuggsælai.
stað undir hraunhellu og naut ekki
dembunnar áðan. Þar hef ég fundið
þúsundblaðarós þó ólfldegt sé, en
skollafingur og litunarjafni algeng-
ir jafnvel tungljurt.
í dálítinni lægð raklendri, hefur
gróðurinn að mestu þakið hraunið,
og allmargar mýrajurtir bætast þar
í flóru þess. Hálfgrös eins og
hrafnastór fjallhæra og ljósastór,
þursaskegg er fjær dregur rakan-
um.
Skáli F.f.S. stendur í hrauninu
við austustu kvísl Jökulsár vestari
og reistur árið 1979, rúmgóður með
svefnlofti og forskála, vistlegasta
hús en ekki full frágenginn innan
veggja. Mismunur á frosti ekki
mikill innan dyra og utan.
Klukkan er tólf á hádegi og
tímabært að taka til matar. Hlóða-
stæði fannst ágætt undir hraunbrflc
skammt frá og vatnið sauð bráð-
lega. Það er ekki sama ró yfir veru
þess sem hér dvelur og við Laugar-
fell. Ásýnd alls miklu harðari,
kynjamyndir nakins hraunsins með
einbeittan svip. Jökullinn í návígi,
ábúðarmikill og sýnist til alls vis,
jökulsáin við næstu fótmál hógvær
að vísu alloft, en ber með sér svip
þess ógnarvalds og óstöðvandi, sem
hún býr yfir.
Það er allt annar andi í húsinu
hér en þar, ekki þessi friðsæla kyrrð
og hugarhægð sem fylgir verunni
þar, mikið frekar spenningur og
eftirvænting, hér er svo margt að
sjá, margt að skoða.
Gestabók er ekki ennþá til á
þessum bæ, svo að ferðalangar hafa
fundið sér hina ólflcustu hluti til
áritunar. Ég gat stuttlega ferðasög-
unnar á blaði úr bók minni og
áætlunar um framhaldið.
Þar skrifaði ég lflca visu sem
fæddist áðan meðan ég sat yfir
pottinum á hlóðonum.
Heim er áttin, brátt mig ber
burt, en þrátt í leynum
vakir máttur, samt hver sér
segir fátt af einum.
Það er ekki gott að staðsetja þær
nákvæmlega kvíslar Jökulsár undir
fannbreiðunni sem myndar hér
eina samfellu, svo greiðfæra að
nánast steinsnar virðist vestur að
Eyfirðingahólum. Þeir draga nafn
sitt trúlega af veginum sem um þá
liggur, frá Hveravöllum til
Eyjafjarðar, fjölfömum á hestum
fyrr, en fyrst á bflum 8. september
1949 að Laugarfelli. Norður Jökul-
tunguna, milli jökulkvíslanna er
greiðfært, en snjór þó harðari hér,
og niður við sporð hennar, vestan
vestustu kvislar er Skiftabakki. Þar
steindur nýlega reistur skáli
gangnamanna úr Lýtingsstaða-
hreppi, tveggja flokka sem þar eiga
saman eina nótt, en skilja að
morgni og skiptanafnið gefa bakk-
anum.
Það er austan strekkingur og
kuldinn sækir ákaft að mér meðan
á stuttri viðdvöl stóð, nægjanlegt
gas á kút þar, til hitunar tevatns. Ég
skrifaði í gestabókina skjálfandi
höndum, meðan vatnið hitnaði og
hvataði för sem mest, þvi kyrrseta
hér var ekki fýsileg.
Leið á drift í leik um stund
láni og giftu þakka.
Kvíða svift kætist lund
kveð ég Skiftabakka.
Ég er ekki sá eini sem skolfið
hefur hér á Skiftabakka, því stað-
urinn er kuldalegur og næðings-
samt mjög þó á öðrum tíma sé, en á
meðan vetur og fannfergi rflcir.
Trúlega hefur hann skolfið meira
gangnamaðurinn sem ekki var
sáttur við skilnaðinn forðum
hleypti á eftir þeim hópnum sem
ekki átti að fylgja. En þar var
kvíslin í milli og stefnan ekki
ígrunduð náið, enda mun áhrifa
gærdagsins og nýliðinnar nætur
enn hafa gætt og hvarf hestur og
maður fram af bakkanum. Skaut
þó fljótt úr kafinn aftur stefnu og
ferðinni haldið, utan húfan sem
flaut niður strauminn, og málgleð-
in enn við líði þegar mönnunum
náði og mælti „þetta var ljóta
demban“
Það er skammt niður að Þrönga-
gili frá Skiítabakka, þar sem svo
þrengt er að ánni að sakamaður á að
hafa hlaupið þar yfir á flótta og
borgið þannig lífi sínu eins og
þjóðsagan segir. Þó er nú meira að
henni þrengt nágranna þessarar í
vestri Ströngukvísl, þeirri sem hug-
djörfum er fært að láta renna milli
fóta sér á einum stað.
Snjór fer nú minnkandi er norð-
ar kemur og við aflagðan gististað
gangnamanna hjá Hraunlæk,
fremst á Goðdaladal er allmikið
autt, einkum við gilið beggja megin
árinnar. Hann er í vel nothæfu
standi enn kofinn þó ekki fylgi
kröfum nútímans, hvorki staðsetn-
ing né rými. Þær standa efalaust
skýrar fyrir hugarsjónum minning-
ar frá liðnum gangnasunnudags-
kvöldum hér, en atburðir næst lið-
inna daga.
Það var ekki svo litlum áfanga náð
á þeirri leið að verða maður þegar
komið var hingað í fyrsta sinni það
kvöld.
Það eru ekki hvað síst spaugileg
atvik mörg og óhöpp óvænt, sem
menn gerðu góðlátlegt grín að, er
geymast skír í huga margra og
vekja kátinu hvenær sem vitnað er
til.
Magnús Sigurjónsson
Framhald af forsíðu.
Skólamálin eru stór póstur í þessum bæ og við ætlum að halda áfram
uppbyggingu fjölbrautaskólans og hyggjumst fá eins mikið fjármagn frá
Rflci og við mögulega getum og verðum náttílrulega að leggja á móti eins
og lög gera ráð fyrir.
Bygging íþróttahússins er nú að hefjast og við munum leggja allt kapp á
að koma því húsi í not hið fyrsta.
Nauðsynlegt er að bæta námsaðstöðu á grunnskólastigi. Þar þarf að
auka húsrými, því hefur ekki verið sinnt undanfarin ár. Barnaskólinn býr
við allt of þröng húsakynni og viðhald hússins hefur verið vanrækt. Létta
verður þrengslin í húsnæði Bamaskólans með því að flytja meira af starf-
semi hans inn í hús Gagnfræðaskólans. Mér sýnist að hepplegasta leiðin til
að leysa margan vanda sé að færa allt grunnskólastigið undir eina stjórn.
En með tilkomu eigin húsnæðis Fjölbrautaskólans bæði verknáms- og
bóknámshúss mun grunnskólastigið fá aukið svigrúm einnig.
Víðvflcjandi málefnum bama er það að segja að í málefnasamningi
okkar er tekið fram: Ljúka skal við dagheimili f Hlíðahverfi á næsta ári.
Kannaður möguleiki á rekstri gæsluvalla í tengslum við dagheimili og
leikvellir endurbættir.
Áframhaldandi uppbygging heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss er brýn.
Enda þótt við fögnum þvi að heilsugæsla og læknisþjónusta sé með mikl-
um ágætum hjá okkur þá má lengi um bæta. Hraða þarf byggingu hjúkr-
unar og dvalarheimilis aldraðra. Þörf fyrir þessa byggingu er mikil þar sem
fjöldl fólks bíður á heimilum sínum eftir plássi. Eins þarf að gera fólki
kleift að dvelja eins lengi og mögulegt er á heimilum sínum og það vill
sjálft.
Hraða þarf endurskipulagningu gamla bæjarins og gera útivistarsvæði í
Sauðárgili og Skógarhlíð aðgengilegri fyrir almenning. Um samgöngur er
það að segja að áfram þarf að vinna að framkvæmdum við höfnina með
hliðsjón af auknum umsvifum þar.
Næst á dagskrá er gerð nýrrar smábátahafnar og framtíðarverkefni er
Suðurgarður og væntaleg þurrkví fyrir skipaviðgerðir.
Sífellt þarf að fylgjast með dýpi hafnarinnar og moka sandi eftir þörf-
um. Flugvöllurinn okkar er annar besti flugvöllur landsins. Við vonumst
til þess að rflcissjóður leggi á næstunni fram fé til malbikunar flugvallarins
og til byggingar flugstöðvar svo hann geti þjónað sem varavöllur fyrir
millilandaflug. Það mundi létta beinar samgöngur við útlönd t.d. með
ferska matvöru á markaði erlendis!
— Hver er afstaöa þín til aukins samstarfs sveitarfélaga á
Norðvesturlandi?
Núverandi skipan sveitarfélaga er löngu úrelt enda miðuö við allt aðrar
aðstœður hvað varðar samgöngur og atvinnuhœtti er nú ríkja, þess vegna má
breyta mörgum núverandi hreppamörkum i landinu og vinna að samstarfi í
stœrri einingum.
Það œtti að fœra meira af verkefnum og tekjustofnum frá Riki til sveitar-
félaga en til þess að það sé mögulegt þurfa sveitarfélögin að stœkka og
samvinna milli þeirra að aukast.
Mig og ýmsa fleiri dreymir um að stofna sérstakt samband sveitarfélaga á
Norðvesturlandi, þetta hefur lengi verið til umrœðu í kjördæminu en af
framkvœmd hefur ekki orðið ennþá.
Feykir . 5