Feykir


Feykir - 17.06.1982, Page 8

Feykir - 17.06.1982, Page 8
 PEDERSEN LJÓSMYNDAÞJÓNUSTA Sauðárkróki Góð ráðí kaupbæti. Biskupsvígsla og prestastefna á Hólum Prestastefna íslands verður haldin á Hólum í Hjaltadal dagana 28.- 30. júní. Við upphaf hennar, verð- ur sr. Sigurður Guðmundsson á Grenjaðarstað í Þingeyjarsýslu vígður biskup en hann hefur verið kjörinn vígslubiskup hins forna Hólastiftis. Vígsluathöfnin verður í Hóladómkirkju sunnudaginn 27. júní og hefst klukkan tvö. Að henni lokinni verður boðið til kaff- iveitinga á Hólastað. Þá verður einsöngur í kirkjunni, Svava Stef- ánsdóttir syngur við undirleik Stephan Yates. Um kvöldið býður kirkjumálaráðherra prestum Hólastiftis, konum þeirra og nokkrum gestum öðrum til veislu í Bifröst á Sauðárkróki til heiðurs vígslubiskupi. Þess er að vænta, að margt manna verði á Hólum hinn 27. júní. Verður sett upp hátalarakerfi svo fólk geti fylgst með utan dyra þegar ekki komast fleiri inn í kirkjuna. Þá verður sjónvarpað frá vígslunni í íþróttasal og kennslustofur á Hólum. Síðast var biskupsvígsla á Hól- um árið 1969 en þá var hr. Pétur Sigurgeirsson, biskup vígður þar. Prestastefnan á Hólum ber yfir- skriftina: „Friður á jörðu“. Fram- sögumenn um friðarmálin verða þrír: Dr. Þórir Kr. Þórðarson pró- fessor, dr. Gunnar Kristjánsson, prestur á Reynivöllum og sr. Sváfnir Sveinbjarnarson, prestur á Breiðabólstað. Á þriðjudagskvöldið, 29. júní verður ,,skagfirskt kvöld“ í Miðgarði. Þar syngur karlakórinn Heimir og kirkjukór Sauðárkróks. Eyþór Stefánsson flytur kvæði og sr. Ágúst Sigurðsson á Mælifelli erindi. Um prestastefnu og friðarmál verður fjallað nánar í næsta tölu- blaði Feykis H.J. Frá Skólastjórum: Skorað á Svein að halda áfram í síðasta tbl. Feykis var frá því greint að Sveinn Kjartansson fræðslustjóri Norðurlandsum- dæmis vestra hafi sagt starfi sínu lausu. Sveinn á að baki glæsilegan feril í þessu starfi. Á fundi hinn 24. maí skoruðu skólastjórar í umdæminu á Svein að hætta ekki. Undir áskorunina skrifuðu skóla- stjórar á svæðinu frá Siglufirði til Stranda, allir nema tveir sem ekki náðist til. Sýnir þetta hin- ar miklu vinsældir sem Sveinn hefur notið í hinu erilsama starfi sínu. Feykir sendir Sveini góðar óskir á nýjum starfsvett- vangi. „Fararstjórinn var Jesús og konan hans María" Páll frá Höfða segir frá Fréttaritari Feykis á Hvamms- tanga leit nýlega inn hjá Páli Guðmundssyni frá Höfða í Kirkjuhvammshreppi. Hann býr nú í einni af íbúðum ald- raðra á Hvammstanga. íbúðir þessar eru byggðar af nokkrum hreppum í nágrenni Hvamms- tanga. Páll er fæddur á Reykjum í Hrútafirði árið 1901 og er því 81 árs. Mestum hluta ævinnar hefur hann varið í Vestur-Húnavatnssýslu. Nokk- ur ár var hann á vertíð í Eyjum, vann á Siglufirði og var í brú- arvinnu. í kreppunni keypti hann sér trillu en sótti ekki gull í greipar Ægis á henni, hafði naumlega í soðið. Árið 1939 keypti Páll sér landskika í Kirkjuhvammshreppi og reisti þar Höfða og græddi landið upp. í fyrravor seldi hann kotið og flutti í þá íbúð sem hann er í núna. Sambýliskona Páls, Jakobína Teitsdóttir, lést árið 1981. Hvernig er svo hljóðið í Páli á ári aldraðra: - ,,Ég verð nú að segja að mér finnst vera vel hugsað um gamla fólkið. Það er nú kannski af því að maður er litlu vanur. Það þýddi ekki að gera kröfur hér áður fyrr, en þakka þér fyrir, ég er hæst ánægður, hef ekki áhyggjur af neinu. Ég er tiltölulega heilsugóður. Ég fór til Spánar í vetur og hef hug á að fara aftur. Mig grunaði nú aldrei að ég færi út fyrir poll- inn. Mér kom mest á óvart gróðurleysið á Spáni. Farar- stjórinn var Jésús og líktist mjög nafna sínum. Ég glápti og gapti þegar ég heyrði nafnið fyrst, en þetta er víst algengt nafn á Spáni. Það spillti nú ekki fyrir að konan hans heitir María, hún er íslensk.“ Páll sagðist vera afar ánægð- ur með að fá matinn sendan heim frá spítalanum og þurfa því ekki að malla ofaní sig sjálf- ur. Hann notar tímann til lestr- ar og svo fer hann líka á drátt- arvélinni sinni grænu árgerð 1955 út í sveitir að heimsækja kunningja, eða þá í kaupfé- lagið eða eitthvað annað. H.K. HaHHNMiMÍMÞtHMHÍ 1 k Iflli JÍÍfc m0 Hreppsnefnd Hvammstangahrepps ásamt sveitarstjóra: Talið frá vinstri: Kristján Bjömsson, Matthias Halldórsson, Þóróur Skúlason sveitarstjóri, Brynjóifur Svein- bergsson oddviti, Gunnar V. Sigurðsson og Karl Sigurgeirsson. Brynjólfur Sveinbergsson Oddviti Hvammstangahrepps situr fyrir svörum 1. Hver eru helstu atriði í mál- efnasamningi meirihlutans? Svar: Meirihlutasamstarf á Hvammstanga varð þannig, að B— listi og L-listi mynduðu samstarf um kjör oddvita, þannig að tíma- bilinu verður skipt á milli listanna, B-listi er með oddvita fyrstu tvö árin og L-listi varaoddvita, að tveimur árum iiðnum verður kosið aftur og verður þá kjörinn oddviti af L-lista og varaoddviti af B-lista. I nokkrum tilvikum er oddviti sjálf- kjörinn til formennsku í nefndum og til starfa fyrir sveitarfélagið út á við og mun verða skipst á um þessi störf. Við kjör nefnda að öðru leyti náðist samkomulag á milli lista þannig að í 5 manna nefndum eru 2, 2 og 1, í þriggja manna nefndum eru 1, 1 og' 1, en um aðrar nefndir varð samkomulag. Gera má ráð fyrir að sveitar- stjómin vinni saman að sem flest- um framfararmálum sveitarfélags- ins, þó að í einstökum málum kunni að verða skiptar skoðanir. 2. Hver er afstaðan til samvinnu sveitarstjórna? Um þessi mál hefur ekki verið rætt nema lítillega í nýkjörinni sveitarstjórn. En á undanförnum árum hefur verið unnið saman að brunavörnum, tónlistarskóla, að byggingu íbúða fyrir aldraða, þó hafa ekki öll sveitarfélög í V-Hún. staðið að þessu, en Bæjarhreppur í Strandasýslu er i þessu samstarfi um ibúðir fyrir aldraða. Gera má ráð fyrir að sveitarfélög komi sér saman um fleiri samstarfsverkefni á komandi árum og væri það örugglega öllum til hagsbóta ef um semdist. Börnln á þeMri mynd búa á Sauðárkróki og heita f.v.: Birgitta Sóley Birk- isdóttlr, Ómar Örn Sigmarsson og Guðrún Erla Sigmarsdóttir. Þau settu upp tombólu nú nýlega og gáfu ágóðann, kr. 750,00 f byggingarsjóð aldr- aðra. Feyki þykir ástæða til að geta um þetta merka framtak barnanna. ískalt Seven Up. Hressir betur.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.