Feykir - 02.07.1982, Blaðsíða 2
Stórhátíð í Skagafirði
\vesW
jft&íitva
Safnafundur
Safnafundur á Norðurlandi var
haldinn á Blönduósi 12. júní s.l. Á
fundinn mættu fulltrúar minja-
safna á Norðurlandi.
Búist við 10-12 þúsund gestum
Til skamms tíma lék það orð á hestamannamótum að þar risi
sollur oft hærra en hollt væri mönnum og málleysingjum. Á
undanförnum árum hefur orðið gæfuleg breyting þar á og er
allur undirbúningur Landsmóts hestamannafélaga á Vind-
heimamelum góður vitnisburður þess að fjölskylduhátíð
stendur fyrir dyrum. Fjölskyldanum eru ætlaðar sérstakar
tjaldbúðir og verður höfð á þeim stöðug gæsla. Þá verða
sérstakar búðir fyrir hjólhýsi og tjaldvagna auk hinna al-
mennu tjaldbúða á bökkum Svartár. Hreinlætisaðstaða er
stórbætt frá því sem verið hefur og er rennandi vatn sótt um
tveggja km. langa vatnsleiðslu yfir í hlíðina vestan ár. Á
svæðinu er fjöldi vatnssalerna og gnótt vatns til að tryggja
mótsgestum nauðsynlegt hreinlæti. Matsala og kaffiveitingar
verða í veitingahúsi og tveimur samkomutjöldum á svæðinu
og K.S. mun starfrækja þar matvöruverslun.
Aðgangseyrir að mótinu verður: Fyrir alla daga mótsins
frá 7,-11. júlí kr. 350. Fyrir þá sem einungis eru sunnudaginn
11. júlí kr. 200. Fyrir börn 12 ára og yngri er enginn að-
gangseyrir.
1 Borgarey eru 60-70 ha. hagar fyrir hross og verða hagá-
gjöld fyrir ferðahesta og sýningarhross kr. 80fyrir hvert hross
sem kemur í haga fyrir kl. 24 fimmtudaginn 8. júlí en kr. 50
fyrir þau sem koma síðar. Móttaka hesta í girðingar hefst kl.
16.00 laugardaginn 3. júlí.
Viljaprófun gæðinga fer fram degi áður en dómar í við-
komandi flokki hefjast. Gæðingar í B fl. verða viljaprófaðir
þriðjudaginn 6. júlí en gæðingar í A fl. þann 7. júlí.
Hagar á hálendinu eru góðir miðað við árstíma og líkur á
að svo verði einnig um færð er nær dregur móti.
Dagskrá fyrir Landsmót hestamannafélaga
Miðvikudagur 7. júlf.
Kl. 9.00 Stóðhestar dæmdir.
Dómnefnd starfar allan daginn.
Kl. 9.00 Gæðingar í'B-flokki dæmdir.
Dómnefnd starfar allan daginn.
Fimmtudagur 8. júlí.
Kl. 9.00 Kynbótahryssur dæmdar.
Dómnefnd starfar allan daginn.
Kl. 9.00 Gæðingar A-flokki dæmdir.
Dómnefnd starfar allan daginn.
Kl. 21.00 Evrópumót —fyrri hluti.
Föstudagur 9. júlf.
Kl. 9.00 Unglingakeppni—12 ára og yngri.
Dómnefnd starfar.
Kl. 10.00-12.30 Stóðhestar sýndir og kynntir.
Kl. 13.30-13.45 Mótið sett af formanni L.H. Stefáni Pálssyni.
Kl. 13.45-15.45 Kynbótahryssur sýndar og kynntar.
Kl. 15.45-16.45 Evrópumót—síðari hluti.
Kl. 16.45 Undanrásir kappreiða (250, 350 og 800 m stökk
og 300 m brokk, fyrri sprettur).
Kl. 21.00 Kvöldvaka.
Laugardagur 10. júli.
Kl. 10.00-12.00 Milliriðlar kappreiða.
Kl. 10.00 Unglingakeppni 13-15ára.
Dómnefnd starfar.
Kl. 12.00-14.00 Stóðhestar sýndir—dómum lýst.
Kl. 14.00-14.45 Gæðingar A-flokki sýndir og sérstaklega kynntir lOefstu
hestar.
Kl. 14.45-16.15 Kynbótahryssur sýndar, dómum lýst.
Kl. 16.15-17.00 Gæðingar B-flokki sýndir og sérstaklega kynntir lOefstu
hestar.
Kl. 17.00-17.45 Hópsýning ræktunarbúa.
Kl. 17.45 Skeið—fyrri sprettur.
Kl. 21.00 Kvöldvaka.
Sunnudagur 11. júlf.
Kl. 10.30 Hópreið hestamanna inn á sýningarsvæðið.
Kl. 11.00 Helgistund.
Kl. 11.15 Ávörp: Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra, Ásgeir
Bjarnason. form. Búnaðarfélags Islands.
Kl. 12.00-13.00 Úrval kynbótahryssna sýnt, verðlaun afhent.
Kl. 13.00-13.30 Unglingakeppni, úrslit kynnt, verðlaun afhent.
Kl. 13.30-14.30 Úrval stóðhesta sýnt, verðlaun afhent.
Kl. 14.30-16.30 Úrval gæðinga 1 A-flokki og B-flokki sýnt. Tíu efstu hest-
um raðað og verðlaun afhent.
Kl. 16.30-17.00 Hópsýning ræktunarbúa.
Kl. 17.00 Skeiðogbrokk—seinni sprettir og úrslitasprettir í öðrum
hlaupagreinum.
Kl. 17.00 Dregið í happdrætti mótsins.
Mótinu slitið að loknum kappreiðum.
Rætt var um samstarf minja-
safna á Norðurlandi og voru fund-
armenn sammála um að samstarf
væri gagnlegt og úrsöfnun tegunda
væri nauðsynleg þannig að hvert
safn hefði sína sérstöðu. Þá var
álitið að samhæfa þyrfti önnur söfn
á sama stað.
Þjóðminjavörður Þór Magnús-
son mætti á fundi og svaraði greið-
lega spurningum fundarmanna.
Sagði hann að Þjóðminjalög væru í
endurskoðun og þar yrði væntan-
lega sérstakur lagabálkur um
minjasöfn. í fundarlok skoðaði
fundarfólk Heimilisiðnaðarsafnið
á Blönduósi og Þingeyrarkirkju.
E.S.
Oddvitinn við
hreppstjórann:
Það er auðvelt fyrir mig að greina
sundur aðalatriði og aukaatriði,
vandinn er hins vegar sá fyrir mig
að átta mig á hvort er hvað.
„Western Saloon“ á Skagaströnd
2 . Feykir