Feykir - 02.07.1982, Blaðsíða 3
Skagfirðingar
Nærsveitamenn
Við höfum allar algengar byggingavörur á
hagstæðu verði.
Leitið ekki langt yfir skammt.
Eflið norðlenska verslun, verslið í heimabyggð.
Það borgar sig.
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA
BYGGINGAVÖRUDEILD
SÍMI 95-5200
Bændaskólinn Hólum
auglýsir
Þeir nemendur sem ætla að sækja um skólavist
næsta vetur eru vinsamlegast beðnir um að
senda inn umsóknir hið allra fyrsta.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst. Umsóknar-
eyðublöð fást hjá skólanum, sími um Sauðár-
krók.
Nemendur á 1. námsönn hefja nám þann 1.
nóvember n.k.
SKÓLASTJÓRI.
Erum með til sölu nokkur einbýlishús og íbúðir af öllum
stærðum. Upplýsingar gefnar í síma 95-5931 á þriðjudags-
kvöldum kl. 8-9 og á fimmtudagskvöldum kl. 8-10.
ÁGÚST GUÐMUNDSSON, viðskiptafræðingur.
HELGI I JÓNSSON lögfræðingur.
Einbýlishús
Til sölu er nýlegt einbýlishús á Sauðárkróki.
Húsið er 150-160 m2 með tvöföldum bílskúr.
Allar upplýsingar gefur MAGNÚS ÞÓRÐAR-
SON HALL, Hamraborg 7 Kópavogi, sími
43307 og heimasími 81259.
t
MINNINGARORÐ
Freyja Ólafsdóttir
frá Tyrfingsstöðum
Fædd 4. apríl 1899 - Dáin 20. júní 1982
Þá ert þú nú lögð af stað fóstursystir
mín góð í leitina að betri heimi,
sem góðu heilli ávallt hefur verið
trúað að væri á vísum stað en í
óskilgreindri fjarlægð.
Reyndar hefur mér jafnan fund-
ist þessi heimur fagur og full góður
handa mér, og svo er enn. Að sjálf-
sögðu kemur þó að því, að ég bregð
undir mig betri fótunum sem aðrir,
og er gott til að hugsa eins og ann-
arrar jákvæðrar þróunar, sem
mannleg von stendur til.
Freyja Ólafsdóttir var fædd að
Þverá í öxnadal 4. apríl 1899. For-
eldrar hennar voru hjónin, Guðrún
Guðmundsdóttir og Ólafur
Jóhannsson albróðir föður míns.
Ólafur var orðlagt karlmenni að
burðum og almennt kallaður
Stóri-Ólafur. Alla stund voru þau
hjón fátæk, enda börnin nokkuð
mörg. Ólafur lést hjá bróður sínum
á Efri-Rauðalæk 3. júní 1902, en
var þó heimilisfstur á Syðri-
Bægisá. Banamein hans var
lungnabólga. Þetta sama ár fer
Freyja litla til foreldra minna í
fóstur þá þriggja ára að aldri. Og í
kjöltu móður minnarsat hún, þegar
þau fluttu frá Rauðalæk að Egilsá,
þá sex ára telpukorn. Þannig ur-
ðum við snemma samferða, því
móðir mín bar mig þá undir belti,
líklega nokkurskonar frosk á því
aldursskeiði. Hjá foreldrum mín-
um dvaldi Freyja síðan alla stund,
þar til á vori 1928, að hún réðst til
Jóhanns Eiríkssonar bónda að
Tyrfingsstöðum á Kjálka og tók þar
við búsforráðum. Ekki gengu þau
Jóhann þó í hjónaband fyrr en all
mörgum árum síðar. Þetta reyndist
þeim báðum hið mesta gæfuspor,
og á Tyrfingsstöðum bjuggu þau
síðan allan sinn búskap. Þar
fæddist þeirra eina barn, dóttirin
Kristín Friðfinna, sem varð að
sjálfsögðu sólargeisli heimilisins og
augasteinn foreldranna, enda efni-
leg stúlka.
Aldrei voru auðæfi á Tyrfings-
stöðum, ekki heldur fátækt. Allir
höfðu sinn „deilda verð“, sem sjálf
Ritningin telur manneskjunni ekki
einungis nóg heldur og hollast.
Búið var að heimafengnu svo sem
kostur var, og allir undu glaðir við
sitt, eftir því sem séð varð.
Bæði voru þau hjón starfsöm og
ráðdeildarsöm í alla staði, og þrifn-
aður bæði úti og inni var með þeim
ágætum, að vart varð á betra kosið.
Ekki voru þó salarkynni víð né há-
reist, því alla stund var búið í torf-
bæ, að vísu endurbyggðum að
hluta á síðari árum. Allur var þessi
bær hreinlegur, hver fjalarspækja
hvítskúruð svo sem kostur var og
gólf sópuð dag hvern, þar sem
þvotti varð ekki við komið.
Bæði voru þau hjón gestrisin og
þótti jafnvel miður, ef farið var hjá
garði, enda ákaflega vinsæl af
nágrönnum og öllum sem til
þekktu.
Frá Heilbrigðis
nefnd Sauðárkróks
Vekur athygli Sauðárkróksbúa á
eftirfarandi:
Sterkur grunur hefur komið upp
um það að rokgjörn leysiefni og
sum hættuleg hafi verið sett í
niðurföll bæjarins.
Það er ekki leyfilegt að setja olíur
eða leysiefni eða hættuleg efni í
skolpleiðslukerfi bæjarins. Þessum
efnum á að eyða í samráði við og
eftir fyrirmælum heilbrigðisfull-
trúa.
fyrir tónlist, félagslynd að eðlisfari.
Ung að árum eignaðist hún litla,
einfalda harmoniku. Annað hljóð-
færi átti hún aldrei, því miður. Hún
var mikill dýravinur, og allar
skepnur hændust að henni og áttu
við gott að búa frá hennar hendi,
enda rækti hún húsmóðurskyldur
sínar á breiðu sviði sem sveitakona.
Hún var gædd nokkurri ófreski-
gáfu, sem hún fór þó fremur dult
með. Ekki verður því neitað að
Freyja var skapkona svo sem hún
átti kyn til en ákaflega sáttfús.
Ekki verður hér frekar rakinn
æviferill þessarar konu, enda aldrei
ætlunin. Minningarnar eru sá
sjóður, sem aldrei brennur í verð-
bólgu né gengisfelling nær til.
Þakklætið er mér efst í huga.
Þakklætið fyrir systurlegt þel, sem
þú ávallt sýndir mér óverðugum og
mínu fólki, fóstursystir mín góð.
Að lokum sendi ég og fjölskylda
mín öllum ástvinum hinnar látnu
innilegar samúðarkveðjur með
blessunarósku.
Á yfirstandandi vordögum,
nokkuð góðum að ýmsu leyti,
laumast vísuorð þjóðskáldsins
stundum í hugann: „Margt er það,
og margt er það, sem minningarnar
vekur. Þær eru það eina, sem eng-
inn frá mér tekur.“
Guðmundur L. Friðfinnsson.
Aldrei bar Freyja tilfinningar
sínar á torg, og þegar fjölskyldan
fluttist til Sauðárkróks árið 1969 og
jörðin fór í eyði, sjálfsagt aðeins um
stundarsakir, ræddi hún lítið um
söknuð sinn eftir góða bújörð
heldur hitt, að nú gæti enginn veg-
fari hvílst og notið hressingar á
Tyrfingsstöðum. f þá átt féll ræða
hennar, og þetta þótti henni sárast.
Þarna var löca jafnan gott að koma,
glaðværð í heimili, hlýtt viðmót og
veitingar svo sem best varð á kosið.
Faðir bónda, Eiríkur Gíslason, tal-
aði um sterka menn og sagði
kímnisögur, enda nokkuð greindur
karl, fullur af „húmor“ og hafði
frásagnarhæfileika. Á þessum bæ
áttu utangarðsmenn og vesalingar
ævinlega öruggt hæli og urðu
heimilisvinir. Enda dvaldi þar
jafnan eitthvað af þesskonar fólki
og undi hag sínum vel.
Freyja Ólafsdóttir var fremur
fríð stúlka með hreint svipmót.
Hún var söngelsk og hafði eyra
Til sölu
MAZDA Sedan 818, ár-
gerð 1977 brúnsans-
eraður. Ekinn 60 þús.
km. Útvarp, segulband
og góð vetrardekk
fylgja. Verð kr. 55 þús.
Upplýsingar í síma
5748 á kvöldin.
A MORGNANA:
Nýlagað kaffi og rúmstykki með skinku og osti.
HÁDEGI T.D.:
Réttur dagsins, steikur eða af smáréttaseðli, hamborgarar,
samlokurog pizzur.
KVÖLD:
Safaríkar stórsteikur af sérréttaseðli, t.d. nautasteik,
lambasteik, grisasteik, kjúklingar ásamt smáréttum.
Heitt kaffi á könnunni allan daginn.
Smurt brauð og kökur.
Foreldrarathugið:
Við gerum ráð fyrir þeim yngstu í fjölskyldunni. Okkar vin-
sæla barnaleikhorn stendur alltaf fyrir sínu og einnig bjóð-
um við upp á sérstakan barnamatseðil.
Verið velkomin.
Opið frá 9,00-23,00 alla daga.
Hjá okkur sér fagmaður
um matargerðina
Sælkerahúsið Aðalgötu15 - Sími5900.
Feykir . 3