Feykir - 02.07.1982, Page 4
FeykÍR
ÚTQEFANCX: FEYKIR H.F.
RlUtjórl ofl Abyrgðarmaflur:
ÞORSTEINN BRODOASON.
Aufllýtlngar:
MARGEIR FRIÐRIKSSON,
Slml 05-5600 og 05-5752.
DrtHlng:
HILMIR JÓHANNESSON,
Siml 05-5133 og 05-5314.
Askrtft:
ÁRNI RAGNARSSON,
Slml 05-5500 og 05-5870.
RlUtK»m:
Arni ragnarsson, hilmir jóhanneson, hjAlmar jónsson,
jón Asbergsson, jón f. hjartarson.
Rltrufnd á SlgluflrOI:
BIRGIR steindórsson, sveinn björnsson, gunnar rafn
SIGURBJÖRNSSON, KRISTJAN MÖLLER, PALMI VILHjALMSSON.
RHnofnd á HvammtUnga:
hólmfrIdur bjarnadóttir, egill gunnlaugsson, helgi
ÓLAFSSON, ÞÓRVEIG HJARTARDÓTTIR, HAFSTEINN KARLSSON,
MATTHlAS HALLDÓRSSON.
Rltntfnd á Blönduósl:
MAGNÚS ÓLAFSSON, SIGMAR JÓNSSON, BJÖRN
SIGURBJÓRNSSON, ELÍN SIGURDARDÓTTIR,
SIGURÐUR EYMUNDSSON.
Rllnsfnd á Sksgaströnd:
EUN NJÁLSOÓTTin, SVEINN INQÓLFSSON, JÓN INQI
INQVABSSON, HAQNÚS B. JÓNSSON, ÓLAFUB BERNÓDUSSON.
RltiMlnd i Hotidil:
FJÓLUUNOUR KARLSSON, QUOMUNDUR INQI LEIFSSON, PALUI
RÖGNVALOSSON, BJARNI JÓHANNSSON, Sf. SIQURPALL
ÓSKARSSON. RÓSA PORSTEINSDÓTTIR, BJÖRN NlELSSON,
ÞÓRDlS FRIDBJÖnNSDÓTTIR.
Útllt: REYNIR HJARTARSON.
PRENTVERK OOOS DJÖRNSSONAR H.F.
AKUREYRI 1983
Feyklr er hálfsmánaOarblað.
Aikrttt 30 kr. i minuíl.
LsusassU 12 kr.
Jafnvægi
óttans
Blikur sundurlyndis og ófriðar eru
nú á himni nær og fjær sem svo oft
áður. Þjóðir berast á banaspjót og
stór hiuti jarðarbúa á ekki málungi
matar.
Fyrir réttum 37 árum logaði
himinninn yfir tveimur japönskum
borgum og nafnið Hírósíma vekur
æ síðan hroll með hverjum læsum
manni. Nóbelshafinn Aage Bohr
sonur eins þeirra sem lögðu til
þekkinguna og hugvitið að bomb-
unni hefur lýst fyrstu viðbrögðum
föður síns við „velheppnaðri“ til-
raunasprengingu í Los Alamos á
þá leið að hann hafi talið að nú
þyrði enginn í stríð. Nokkrum
árum síðar varð til kenningin um
„gagnvirka fælingu" en á henni
byggist hugmyndin um jafnvægi
óttans.
Níels gamli Bohr er horfinn til
feðra sinna og því skai ósagt látið
hvort hann væri sama sinnis nú og
sonur hans segir hann hafa verið
úti í eyðimörkinni á fimmta tug
þessarar aldar. Víst er að þeim fer
fækkandi sem sjá í bombunni
tryggingu eilífs friðar. Hinum fer
fjölgandi sem sjá í svepplaga eld-
skýi á himni teikn um útrýmingu
þess lífs á jörðu sem við þekkjum
nú.
Sagan kennir okkur að ekki haf
allir átt sér hið sama til erindis út í
eyðimörkina og fyrrnefndir feðgar.
Einn sneri þaðan og flutti öllum
jarðarbörnum fagnaðarerindi.
Margir þeirra sem starfa í nafni
hans á vegum íslensku þjóðkirkj-
unnar hafa að undanförnu setið á
rökstólum um það að Hólum í
Hjaltadal hvernig þeir geti best
lagt sitt af mörkum til friðar á
jörðu.
Vlð hljótum öll að taka undír þá
fyrirbæn að eindrægni megi ríkja
undir þeim himni sem lykur um
jörðina alla.
Það er auðvelt að lýsa yfir vilja til
friðar og tala í almennum orðum
um friðsamlega sambúð ríkja.
Kirkjan hefur óneitanlega oft fallið
í þessa gryfju. En fyrr eða síðar
kemur að því, að sá sem vill frið í
raun og veru verður að blanda sér
inn í hinn pólitíska veruleika. - Þar
með er ekki sagt, að afstaða hans
þurfi að mótast af viðhorfi stjórn-
málaflokka. - Þetta þekkja
evrópskar kirkjur býsna vel frá
tímum nasismans, þegar það kost-
aði eitthvað, stundum líf manna, að
boða „fagnaðarerindi friðarins“
(Ef. 6:15) í heiminum.
En um hvað snýst þá málefni
friðarins á yfirstandandi tíma?
Hvers vegna eru menn greinilega
svo uppteknir af umræðunni um
frið og hví gefa alþjóðleg kirkju-
samtök út hverja yfirlýsinguna á
fætur annarri um málefni friðar og
afvopnunar? Vmsar alþjóðlegar
ráðstefnur um frið og afvopnun
fara fram þessi misserin og ber þar
hæst afvopnunarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna, sem nú stendur
yfir, minna má á afvopnunarvið-
ræður risaveldanna í Gefn sem nú
standa yfir og fyrirhugaðan fund
æðstu manna um sama málefni.
Þannig mætti lengi telja. Sú mikla
almenna umræða um frið og af-
vopnun, sem fram hefur farið á
vesturlöndum undanfarið hefur
vart farið framhjá neinum. En um
hvað snýst málið?
I stuttu máli sagt er það vitund
manna um geigvænlegan vígbúnað
og þá fyrst og fremst kjarnorkuvíg-
búnað sem hefur knúið þá til þess
að opna umræðuna um þennan
mesta vágest mannkynsins einu
sinni enn. En það er ekki eingöngu
umræðan um kjarnorkuvígbúnað
og ýmsar hliðar hans bæði sið-
ferðislegar og herfræðilegar, sem
mönnum hefur leikið hugur á að
fjalla um heldur einnig allur sá
kostnaður, sem rennur til þess að
hlaða upp vopnum víðs vegar um
heiminn, beinn og óbeinn. Hvernig
tengist vaxandi hungur í heimin-
um, vaxandi atvinnuieysi og gífur-
leg mannréttindabrot víðs vegar
um heiminn hinni miklu aukningu
á vígbúnaði? í stuttu máli sagt snýst
málið um hina einföldu spurningu,
sem einn þekktasti stjórnmála-
maður í bandaríska þinginu orðaði
þannig: „Hvað erum við í raun og
veru að gera við líf okkar og lífs-
skilyrði?1
Hinn siðfe rðislegi kostnaður
kjarnorkuvígbúnaðar er jafnvel
enn meiri en sá kostnaður, sem
nefndur hefur verið. Kjarnorku-
vígbúnaður gerir alla, sem að hon-
um standa og að honum stuðla í
orði, verki eða með þögninni að
ábyrgðarmönnum hugsanlegrar
útþurrkunar milljóna manna.
Við, íbúar hinna kristnu vestur-
landa höfum alist upp við þá
grundvallarhugsun, að lífið sé heil-
agt, og af þeim sökum látið það
sitja í fyrirrúmi að lina þjáningar
manna, læknað sjúkdóma með
ótrúlegri hugkvæmni og oft á tíð-
um aðdáunarverðri fórnfýsi og
varið fé til þessara hluta - með
annarri hendi. En með hinni hendi
höfum við látið fé streyma til víg-
búnaðar og lýst okkur reiðubúna
að gegna hlutverki fjöldamorðingja
í kjamorkustríði. Með því van-
helgum við ekki aðeins lífið heldur
metum við það einskis þegar allt
kemur til alls. Enski biskupinn
John Robinson segir: „Á einhvern
hátt hefur sú hugsun náð að menga
andrúmsloft á vesturlöndum, að
ef svo ber undir og hemaðarleg rök
hníga í þá átt, þá megi útrýma öllu
lífi á þessari jörð“.
Spurningin er því þegar allt
kemur til alls um raunverulegar
varnir og raunverulegt öryggi. ör-
yggi er oftast gagnkvæmt: Þá að-
eins þegar Bandaríkjamaðurinn
veit, að Rússinn sefur rólega og er
ekki þrúgaður af ótta getur hann
sjálfur lagt sig til hvíldar í friði. Og
á sama hátt getur Rússinn hallað
sér til hvíldar nokkurn veginn
öruggur, þegar andstæðingar hans í
vestri og austri þurfa ekki að óttast
vígbúnað hans. Ógnarjafnvægið
byggir á rökfræði, sem gengur í
þveröfuga átt, það byggir á því, að
svo lengi sem andstæðingnum staf-
ar nógu mikil ógn og ótti af mér þá
muni það halda árásargirnd hans í
skefjum og þá mun ríkja friður á
milli okkar, en það er vissulega
kaldur friður, sem mun reynast
okkur báðum dýr, hvernig sem á
málið er litið.
Þess vegna hlýtur rökfræði ógn-
arjafnvægisins að viðhalda óvið-
unandi ástandi þar sem það festir
fjandskapinn í sessi og viðheldur
viðgangi vígbúnaðarins ískjóli þess
fjandskapar. Að hnika við fjand-
skapnum merkir þá um leið aðför
að vígbúnaðinum. Carl Friedrich
von Weizsacker velti fyrir sér, hvað
það merkti pólitískt að elska óvini
sína. Hann komst að þeirri niður-
stöðu, að það merki að minnsta
kosti viðleitni til þess að setja sig í
spor andstæðingsins og gera tilraun
til þess að sjá heiminn út frá hans
sjónarhorni og skynja hagsmuni
hans, vonir hans, ótta hans og veiku
punktana. Vissulega þarf óttinn við
hann þá ekki að hverfa en hann
virtist vafalítið í öðru Ijósi og missir
sárasta broddinn.
Hin mikla breiðfylking friðar-
hreyfinganna austanhafs og vestan
hefur vart farið framhjá neinum.
Hér er um að ræða „grasrótar-
hreyfingu“, sem nær til allra stétta,
til leikra og lærðra, ungra og gam-
alla. Grundvöllur þeirrar umræðu,
sem þessar hreyfingar hafa komið
af stað er fyrst og fremst fræðileg
umræða um leiðir í varnar- og
öryggismálum. Sú umræða er
vissulega ekki að hefjast nú á
þessum misserum; ailt frá lokum
seinni heimstyrjaldar hafa friðar-
rannsóknarstofnanir starfað með
ýmsum hætti víða á vesturlöndum
þótt þeim hafi ekki vaxið verulega
fiskur um hrygg fyrr en á seinni
árum. Umræðan um kjarnorkuvíg-
búnað komst í hámæli á megin-
landi Evrópu í lok 6. áratugarins
þegar kjarnorkuvopnum var komið
fyrir þar. Munu margir minnast
virkrar þátttöku kirkjufólks í þeirri
umræðu. En umræðan um kjarn-
orkuvígbúnað hefur ekki þagnað
þótt yfir henni hafi dofnað um
tíma. Á ótal alþjóðlegum ráðstefn-
um hefur verið fjallað um frið og
afvopnun, alþjóðleg samtök eins og
Sameinuðu þjóðirnar og önnur
samtök hafa orðið að viðurkenna
vanmátt sinn þegar vígbúnaður var
annars vegar. Alþjóðleg kirkju-
samtök hafa ítrekað fjallað um
vígbúnað og gefið út ítarlegan
fróðleik þar að lútandi. Sú friðar-
hreyfing, sem fram hefur komið á
meginlandi Evrópu og í Banda-
ríkjunum á sér rætur í kirkjulegum
jarðvegi. Má benda á bein áhrif
friðarráðs hollensku kirkjunnar á
andstöðu stjórnvalda þar í landi til
þess að samþykkja uppsetningu
hinna nýju stýriflauga og öflugrar
fræðslustarfsemi í söfnuðum
landsins um frið og afvopnun.
Hugmyndir manna um frið eru
margvíslegar, sjálft hugtakið friður
hefur býsna margvíslegt innihald
þegar vítt er litið. En það er yfirlýst
stefna þeirra kirkjusamtaka, sem
islenska kirkjan er aðili að, að ótt-
ast "ekki samstarf með hverjum
þeim aðila, sem hefur góðan vilja
til að stasrfa að sömu markmiðum í
samskiptum þjóða og hún, jafnvel
þótt þeir hafi aðra trú eða hug-
myndafræði að ýmsu leyti.
Málefni friðar á jörðu er kirkj-
unni ekki óviðkomandi., það hlýtur
að vera markmið hennar að það
„fagnaðarerindi friðarins" sem
henni er falið að boða í þessum
heimi nái að móta þá umræðu að
verulegu marki.
Undirstrika ber, að friðarhreyf-
ingamar hafa ekki barist gegn
hernaðarbandalögum. ÞetTa hafa
bæði andstæðingar þeirra gefið í
skyn en ennig ýmsir aðilar - einnig
hér á landi - sem vilja misnota það
mikla fylgi, sem friðarhreyfingarn-
ar hafa, sinni eigin pólitík til
fram dráttar.
Einnig ber að undirstrika, að
friðarhreyfingarnar hafa aldrei
haft í frammi hugmyndir um ein-
hliða afvopnun. Hins vegar hafa
þær lagt áherslu á það, jafnt vestan
hafs sem austan, að raunhæf og
ábyrg leið til þess að rjúfa vítahring
vígbúnaðarins væri sú, að einstök
ríki tækju einhliða skref til fækk-
unar kjarnorkuvopna sinna. Það er
vissulega forkastanleg baráttuað-
ferð, að gefa í skyn, að hér séu á
ferð útsendarar risaveldisins í
austri. Slíkur áróður hlýtur í flest-
um tilvikum að vera byggður á
vanþekkingu, í öðrum á misskilinni
pólitík, sem setur skammtímasjón-
armið ofar sannleikanum.
Gegn slíkum málflutningi, úr
hvaða átt, sem hann kemur, hlýtur
kirkjan, hvar sem hún er í heimin-
um, í austri eða vestri, að snúast.
Hún hlýtur að snúast gegn því
þegar þjónar hennar eru sakaðir á
óréttmætan hátt um að starfa ekki á
grundvelli sinnar kristilegu trúar og
lífsskoðunar heldur í þágu flokks-
pólitískra sjónarmiða.
Trú krossins er vissulega róttæk
trú, sem kallar á róttækan lifsstíl
sem býður hinu illa valdi haturs og
ótta byrginn með mótleik úr
óvæntri átt: með trausti, vináttu,
með kærleika. Allt í trausti til þess,
að sú slóð sem Jesús fetaði og ruddi
kirkju sinni muni liggja framhjá
hyldýpinu til lífsins.
En guðfræði krossins er einnig
guðfræði upprisunnar: o crux ave
spes unica er hin þverstæðukennda
trú kirkjunnar um allar aldir, ekki
síst nú, þegar menn leita þess
öryggis, sem ekki er til í þessum
heimi með þeim hætti að leita
skjóls í skugga vopna, sem geta
tortýmt þeim. Á þeirri leið finnur
maðurinn ekki frið þegar til Iengd-
ar lætur, hvemig sem á málið er
litið, maðurinn hefur leitt sjálfan
sig í gildru, sem hann getur ekki
leyst sjálfan sig úr, hann hefur
skapað svo „stóran stein að hann
getur ekki lyft honum sjálfur“. Það
ímyndaða öryggi er byggt á rök-
fræði, sem aldrei fyrr í sögunn
4 . Feykir
Sagtum friðarmálin
f hita leiksins fyrst á eftir framsöguerindunum:
Prófessor Björn Björnsson:
... félagsleg ábyrgð kirkjunnar felst ekki í þvf að leysa unglinga-
vandamál fyrir sveitarfélögin.
... að vera kristinn maður felur í sér að vera pólitfskt meðvitaður í
vfðustu merkingu.
Sr. Þórir Stephensen:
Samtök herstöðvaandstæðinga hafa gert málið að sinu það getur
fælt þá frá sem með Atlantshafsbandalaginu standa
... menn óttast að hér geti myndast tómarúm ....
... af hverju vitum við svo Iftið um hernaðargetu austurblokkarinn-
ar. Ég veit það ekki en hitt veit ég að kristleysi austurblokkar-
innar veldur þvf að við eigum erfitt með að tala saman. Við
vcrðum að taka á þessu vandamáli i umræðunni.
Sr. Halldór Gunnarsson:
... það er ekki hægt að gera eins og sr. Þórir sagði að ræða þetta eins
og það væri ópólitiskt.... þetta er pólitfskt og verður það þó að
við tölum um það af alvoru.
Sr. Einar Þór Þorsteinsson:
... þegar Jón biskup Arason reið að heiman frá Hólum þótti einum
sona hans hans vilja fara heldur fáliðaður. Jón svaraði þvi til að
Borgfirðingar myndu veita sér lið. Við vitum öll hvernig fór. Ég
held við ættum að hálda okkur utan við hernaðarbandalög.
Sr. Gunnar Kristjánssonasoz i
... við vitum heilmikið um hernaðargetu austurblokkarinnar.
... gallinn er sá að vinstrimenn eigna sér friðarmálin en hægri
menn hafna þeim.
hefur verið notað sem leiðarljós í
leit mannsisns að öryggi, rökfræði
óttans. Það var enginn annar en
Albert Einstein, sem sagði, að ör-
yggi byggðist eftir allt saman „á
ákveðnu gagnkvæmu trausti milli
ólíkra aðila“. Aldrei fyrr í.sögunni
hefur maðurinn fundið hversu
mikill snillingur hann er að leysa
tæknileg vandamál en á sama tíma
hugmyndalaus þegar finna skal
leiðir til friðsamlegrar sambúðar.
Leið vopnanna er leið uppgjafar.
En það er ekki stíll kirkjunnar að
boða uppgjöf og vonleysi. Okkar
timar bera vitni um mikið vonleysi.
Skv. skoðanakönnun BBC nýlega
var helmingur aðspurðra sann-
færður um það að heimurinn
mundi líða undir lok vegna kjarn-
orkusprengingar fyrir árið 1990.
Kirkjan er ekki ókunnug 'nug-
myndum um, að þessi jörð ætti eftir
að líða undir lok. Frumkirkjan
vænti endurkomu Krists og jafn-
framt vænti hún þess, að heimurinn
liði undir lok og frumefnin leystust
sundur í eldi. En þeir biðu án þess
nokkuð gerðist. En jafnvel þessi
vitund um forgengileika jarðarinn-
ar dró ekki kjarkinn úr kirkjunni og
dró hana heldur ekki burt frá hinu
jarðneska lífi. Marteinn Lúther
sagði: „Jafnvel þótt ég vissi, að
heimurinn ætti að farast á morgun
og ég hefði ákveðið að gróðursetja
eplatré í dag, þá myndi ég samt
gera það“. Kirkjan lítur á þessa
jörð í víðara samhengi. Stundum
hefur þessi þáttur trúarinnar
reyndar dregið ýmsa sértrúarhópa
frá lífinu svo að þeir hafa afskrifað
jörðina og gefið hana upp á bát-
inn.
En trú Nýja testamentisins, sem
hinn kristni lífsstíll er mótaður af í
innsta eðli sínu er markaður sér-
kennilegu samblandi af skeyting-
arleysi og umhyggju. Á sama tíma
og kristinn maður lætur sér þessi
forgengilegri heimur í léttu rúmi
liggja ber hann meiri umhyggju
fyrir honum en nokkur annar
maður á þessari jörð. Hann mun
ekki týna hjarta sínu í þessum
heimi, en hann er reiðubúinn að
týna lífi sínu fyrir heiminn. Ávextir
þessa lífsstfls eru sambland af
þjáningu og gleði, úthaldi og von,
sem hefur í sjálfu sér lítið sameig-
inlegt með „venjulegri" bjartsýni.
Sú von, sem Biblían talar um er
„von gegn von“, von upprisunnar,
sem horfist í augu við veruleika
lífsins, við þjáningar og ótta, við
veruleika hatur og öngþveiti - en
heldur samt áfram.
v- -•
Sr. Gunnar og sr. Sváfnir í garðinum á Hólum.
Sr. Sváfnir Sigurjónsson Breiðabólsstað
Um friðarvegin
„Þetta er að þakka hjartagróinni
miskunn Guðs vors, fyrir hana
mun ljós af hæðum vitja vor, til að
lýsa þeim, sem sitja í myrkri og
skugga dauðans, til að beina fótum
vorum á friðarveg.“ (Lúk. 1, 78-79).
„Að þegja hefur sinn tíma og að
tala hefur sinn tíma, að elska hefur
sinn tíma og að hata hefur sinn
tíma, ófriður hefur sinn tíma og
friður hefur sinn tíma“, segir
Prédikarinn og það læðist að
manni sá grunur að í þessari upp-
talningu andstæðna flokki hann
þögnina með elskunni og friðinum
er en bendli fremur talið við hatur
ogófrið. Samt verður nú að hætta á
að tala og treysta því að friðmál
okkar hér valdi engum kala né
friðslitum, þótt skoðanir kunni að
vera eitthvað skiptar um vinnu-
brögð og leiðir að markinu. Hitt er
viðbúið að mín fátækleg orð og lítt
lærð verði heldur ódrjúgt efni í þá
vegarsmíð, sem okkur fýsir öll að
stunda í átt til friðar meðal manna
og þjóða á þessari jörð.
En svo ég haldi áfram með til-
vitnunina: „Ég virti fyrir mér þá
þraut, sem Guð hefur fengið
mönnunum að þreyta sig á. Allt
hefur hann gjört hagfellt á sínum
tíma, jafnvel erlífðina hefur hann
lagt í brjóst þeirra, - aðeins fær
maðurinn ekki skilið það verk, sem
Guð gjörir, frá upphafi til enda“.
(Préd. 3, 8-11).
Enn veitist víst mörgum mann-
inum erfitt að skilja sköpunarverk-
ið frá upphafi til enda, þrátt fyrir
allar skýringartilraunir, fallna
engla og erfðasynd. Enda upphafið
næsta fjarlægt því leiftri vitundar,
sem manninum gefst um fáa daga, -
og endirinn ókominn ennþá. Allt
um það er það verk, sem Guð gjörir
hið sama. Við skynjum að sköpun-
in er og við skynjum okkur sjálf
sem hluta af henni. Og Skaparinn,
Guð, er sá sem hann er, Alfa og
Ómega, upphafið og endirinn. Og
hann er meiri en hjarta vort og
stærri en skynsemi vor, - og friður
hans, sem er æðri öllum skilningi er
ekki ríkjandi meðal mannanna.
Ekki nema í samfélaginu við Krist
Jesúm. Hlutverk kirkjunnar er að
boða hann, útbreiða, efla og end-
umýja samfélagið við hann. Það er
hin gjörtæka og varanlega upp-
bygging á veginum til friðar.
Hverju er þá við að bæta?, — nema
því að varanleg vegargerð gengur
oft seint og á meðan við bíðum og
vonum og kannski vinnum lítilræði,
þá veltumst við aftur á bak og út á
hlið á vegleysum ranglætis og
ójafnaðar, öfundar og haturs, ótta
og andvaraleysis. Ófriðarblikur og
eyðingaröfl virðast jafnvel ógna lífi
og tilveru á jörðinni. Við erum
knúin til að leita tiltækra leiða í
bráðum vanda. Sumir virðast jafn-
vel sl flcri skelfingu slegnir, að þeim
sé laust í hendi að láta hvers konar
áunnin mannréttindi, siðferðisleg
og menningarleg verðmæti, and-
legan arf og ávinning kynslóðanna
í skiptum fyrir falskan frið. Upp-
gjöf fyrir ofbeldis- og yfirgangsöfl-
um er ekki leið til friðar. í þolin-
mæði og trausti skal styrkur yðar
vera, var eitt sinn kennt og mun
enn gilda.
Það er talað um margs konar
frið, - og misjafnt hvað við er átt, er
menn taka sér þetta orð í munn.
Fræðilega útlistun á merkingu
hugtaksins í frumtextum Bibliunn-
ar læt ég öðrum eftir, - sem þó
vissulega er nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir við lestur ritninganna.
Þar er um nokkur blæbrigði og
merkingamun að ræða eins og lflca
á okkar tungu. Sögnin að friða er á
okkar tungu bæði notuð um að
vernda líf og veita þvi ákjósanleg
vaxtarskilyrði, - og hins vegar um
að berja niður alla mótspymu,
kyrra allt sem kvikt er. Friður er
ávöxtur réttlætis og kærleika, sam-
ræmis og jafnvægis, þegar allt er í
réttri afstöðu og réttum hlutföllum.
En svo er orðið líka notað í hótun:
Ætlarðu að hafa frið, vera „til
friðs"?, eða á ég að berja þig?
En valdbeiting og kúgun eða
undirokun ber ekki frið-
sælan ávöxt, - heldur safnar
glóðum ófriðar. Jafnvægi í ríki
náttúrunnar, í lífrflci jarðarinnar,
kennum við til friðar, þótt þar
eigi sér stað ýmis konar átök og
lífsbarátta, - og einn hlekkur líf-
keðjunnar nærist á öðrum. Það er
friðsælt í Djúpafirði á kyrrum vor-
dögum og um bjartar nætur, - þar
sem fjölbreytni gróðurs og fuglalífs
og lífkeðjunnar allrar fær að njóta
sín og leita jafnvægis svo sem henni
er áskapað. Arnarhjón verpa í
Stórabergi yfir lygnum vogum, þar
sem álft og æður fleytir sér með
föllum inn og út með fjörunni.
Rjúpurnar eru spakar sem ali-
hænsn og þrastarhjón eiga sér unga
I hreiðri undir húströppunum.
Stelkur, lóa og spói, ásamt minnst
tíu öðrum tegundum fugla. taka
einnig þátt í samhljómi lífsóper-
unnar í Djúpafirði. Björkin er fag-
urlega laufguð og blómjurtir opna
krónur sínar hver í kapp við aðra.
Randaflugan suðar, köngurlóin
spinnur vef sinn og mýið lifnar í
lognkyrrum lautum. Bunulækir
niða og fjörgast í hlýindunum en
fannir klökkna. Er þetta ekki friður
og dýrð? Jafnvel maðurinn virðist
geta fallið inn í þessa mynd án þess
að raska samræmi sköpunarverks-
ins, - án þess að vera friðarspillir og
eiginn böðull - og annarra. Slflcar
stundir gefast í okkar fagra og frið-
sæla landi. Þó kannski ekki nema í
gleymsku til víðara umhverfis og
mannlífs, sem líður fyrir friðleysi,
misrétti, skort og nauðir hvers
konar, - eftir syndafallið. En lfldegt
þykir mér að mörgu stríðsþjáðu og
hungruðu jarðarbarni og jafnvel
allnokkrum þegnum hinna vold-
ugu stórþjóða, sem kynntust okkar
högum, - þætti sem við stæðum í
nokkurri þakkarskuld við Skapar-
ann, - við Guðs verk með þessari
þjóð. En það er víst ekki ætlast til
þess að umræðan snúist um frið á
einum afmörkuðum bletti þessarar
jarðar og þaðan af síður um þann
frið, sem aðeins er merki doða og
deyfðar, skynleysis og sinnuleysis
um vanda þess og vegsemd að vera
maður, - undir sama oki ábyrgðar
og í sömu von og allir aðrir menn.
Nærstæðara mun að huga að frið-
arhetjum heimsins í dag og þeirra
rökum og ráðum, eldflaugum og
atómsprengjum, friðargöngum og
fjöldafundum. Ósk þeirra allra er
um frið á jörð. En hvers konar frið
og hvernig skal til hans stofna? Þar
greinir stórlega á. Sameiningaraflið
eða hvatinn er óttinn við gereyð-
ingarmátt vopnanna. í stórum
hlutum heimsbyggðarinnar leyfist
fólki ekki að tjá sig né sínar óskir í
eina átt eða aðra. Fjöregg friðarins
eru þar í tröllahöndum. Það er
brothættur báturinn okkar allra.
En friðarþráin hefur lengi búið
með manninum. Hann er skapaður
til þess að lifa í friði, - og til sam-
starfs við Skaparann. Friður er hið
eðlilega og heilbrigða ástand.
Styrjaldir og mannvíg eru mein-
semd og vansköpun í þeim heimi,
sem er Guðs. Þetta er hörgulsjúk-
dómur, sem stafar af skorti á rétt-
læti. kærleika og miskunnsemi.
Stjórnmálamönnum, sem hafa haft
og hafa þessi mein til meðferðar,
hættir til að beita við þau annað
hvort verkjatöflum eða þá helzt til
grófum lækningaaðferðum, - blóð-
tökum og brennijárnum, - án þess
að reyna að komast fyrir orsakir
sjúkdómsins og uppræta þær.
Stundum hafa þeir sem þjáðust og
engdust vegna þessarar meinsemd-
ar séð draumsýnir í óráði eins og
Jesaja spámaður þegar hann talar
um að úlfurinn muni búa hjá
lambinu og pardusdýrið liggja hjá
kiðlingnum, - og að ljónið muni
hey éta sem naut. Og síðan eru allir
friðarboðendur einatt sagðir
óraunsæir skýjaglópar. Það er þá
altént munur að vera „raunsær" og
ráða yfir svo kröftugum meðulum,
að lækni þau ekki sjúkdóminn, þá
eyða þau honum og sjúklingnum
með, - og raunar öllum heilbrigð-
um lflca, - öllu lífi á þessari jörð.
Það er mikið talað um frið, - en
}x> að orðið sé margra merkinga þá
fer ekki á milli mála við hvað er átt,
fyrst og fremst, í þeirri miklu frið-
arumræðu og friðarhreyfingu, sem
nú lætur til sín taka beggja vegna
Atlantshafsins, - og er einnig hvati
þeirrar umræðu, sem hér er til
stofnað. Þar er fyrst og fremst átt
við varðveizlu friðar, eflingu friðar
og endurskipulag friðarmála í
samskiptum þjóða og þjóða-
bandalaga en þó einkum á milli
risaveldanna tveggja, sem svo eru
nefnd, og staðið hafa og standa
hvort andspænis öðru búin sífellt
ógnvænlegri eyðingarvopnum, sem
nú gætu að talið er, eytt öllu kviku á
jörðinni, - ef beitt væri. Heimsfrið-
urinn er í veði og raunar líf allrar
skepnu á þessari jörð. Sífellt fleiri
sjá í hvert óefni stefnir og vilja leita
nýrra ráða, - vilja snúa við á þeim
helvegi, sem troðinn er til þessa
dags og þreifa fyrir sér um nýjar
leiðir til þess að varðveita, efla og
endurnýja þann ótrygga frið sem
milli þessara andstæðu afla ríkir
eða kannski fremur blaktir á blá-
þræði marga stund. Jafnframt er þá
stefnt að því að efla frið og samstarf
meðal manna og þjóða um allan
heim. Þetta er aðvörun og krafa til
rflcjandi valdhafa og áhrifaaðila og
stofnana í heimsbyggð allri um að
taka höndum saman í viðleitni til
þess að draga úr þeirri spennu og
tortýmingarógn, sem yfir vofir. Og
að reynt sé að finna og koma á fót
með samræðum og samningum
skynsamlegra skipulagi til verndar
og viðhalds lífi og friði, - og væn-
legra til árangurs en það ógnar-
jafnvægi, sem ýmsir virðast nú
helzt treysta á. Eðlilegt er og sjálf-
sagt að kristin kirkja leggi til leið-
sögn og stuðning í þessari viðleitni
og reyni að sameina hin sundur-
leitu öfl undir merki nýrrar vonar
og lífstrúar í stað ótta. Kirkjunni
ber alltaf og alls staðar að flytja
erindi sátta og friðar. Boðskapur-
inn, sem henni er fenginn til að
flytja um jafnrétti og bræðralag
allra manna, um virðingu fyrir líf-
inu og friðhelgi þess, býr hana bet-
ur í stakk en nokkra aðra stofnun á
jörðu til þess að gegna þessu hlut-
verki. Einnig það að hún verður
ekki með réttu tortryggð vegna
veraldlegra hagsmuna eða annar-
legs tilgangs af neinu tagi, - eins og
ýmsir þeir aðilar, sem hæst tala um
frið með byssuna fyrir aftan bak.
Einnig íslenzka kirkjan, íslenzka
I
I
þjóðin er í aðstöðu til þess að leggja
lóð á vogarskálina. Tímar eru
breyttir. Við erum ekki lengur
neydd til að bardúsa hvert og eitt
aðeins í sinni litlu garðholu, - þó
því beri líka að halda áfram, -
heldur er kirkjan, einnig að þessu
leyti, orðin einn akur um alla jörð.
Og á þessum vettvangi er enginn
stór eða smár, - framlagið reiknast
ekki samkvæmt höfðatölu eða
fjármunum, - heldur eftir þeim
anda og krafti sem þeginn er til
þessa starfs frá Honum, sem
ávöxtinn gefur. „Keppum þess
vegna eftir því sem til friðarins
heyrir og til hinnar sameiginlegu
uppbyggingar", segir post. Páll og
mættu það vera einkunnarorð al-
þjóðlegs friðarstarfs, - og eftir þeim
vinna. Og þó að við skiljum ekki
verk Guðs frá upphafi til enda og
getum ekki útreiknað áform hans, -
né þekkt fyrirboða hins siðasta
dóms, - þá hljótum við að treysta
fyrirheitinu um að „ávexti rétt-
lætisins verði sáð i friði þeim til
handa sem frið semja“, og reyna
eftir megni að starfa samkvæmt
því bæði heima og heiman, bæði í
eigin reit og á alþjóðavettvangi.
Ólflcir hagsmunir, skoðanir, tung-
ur, þjóðerni, siðvenjur og trúar-
brögð eiga ekki lengur að geta
hamlað því að skilningur vakni á
mögulegu samstarfi, fyrir sameig-
inlegri friðarþrá og friðarþörf.
Kristur hafði, samkvæmt guð-
spjöllunum, ekki svo mjög friðartal
á vörunum. Fremur voru honum
tamar á tungu þær forsendur, sem
til friðar leiða. Sælu boðar hann
fyrr hógværum og þeim sem
hungrar og þyrstir eftir réttlætinu,
svo og miskunnsömum og hjarta-
hreinum, áður en hann segir frið-
flytjendur sæla og muni Guðs syni
kallaða verða. Boðskapur hans var
um gjörtæk sinnaskipti, þar sem
hatur, ranglæti, grimmd og eigin-
girni skyldu vflcja fyrir kærleika,
réttlæti, miskunnsemi og fórnfýsi.
Það er ekki fyrr en í skilnaðarræð-
unni, þegar hann uppfræðir læri-
sveinana um eðli og ávöxt starfs
síns og yfirvofandi fórnardauða, að
hann talar um frið, - frið í þeim
skilningi, sem síðan er kristinn:
„Frið læt ég eftir hjá yður“. „Minn
frið gef ég yður“. Og síðan einnig
eftir upprisuna, er hann birtist
þeim: „Friður sé með yður“. Og
þennan frið hafa lærisveinar hans
fundið með sér síðan, og er, sam-
kvæmt vitnisburði bréfanna í N.T.
ogsamkvæmt kristinni kenningu til
dagsins í dag, verk Guðs, friður
Guðs, - ávöxtur endursköpunar
hans og sáttargjörðar, - vegarsmíð
til varanlegs friðar fyrir samfélagið
við Krist Jesúm. Friðarsókn kirkj-
unnar hlýtur fyrst og síðast að felast
í því að boða Jesúm Krist og frið-
arverk hans í nálægð og fjarlægð, -
en jafnframt ber henni að styðja og
efla hverja þá viðleitni, sem miðar
að því að draga úr spennu, ótta og
ófriðarhættu. Hún á í öllum hlutum
að keppa eftir því sem til friðarins
heyrir. Ég gef að lokum Páli post-
ula síðasta orðið í þessu máli mínu:
„Að öðru leyti, bræður, verið glað-
ir. Verið fullkomnir, áminnið hver
annan, verið samhuga, verið frið-
samir. Þá mun Guð kærleikans og
friðarins vera með yður“.
Feyklr . 5