Vestfirska fréttablaðið - 07.08.1992, Qupperneq 2
VESTFIRSKA
2
ESTI ?IRS K;
| FRÉTTABLAÐIÐ |
Vestfirska fréttablaðið er vikublað, óháð stjórnmálaflokkum,
og kemur að jafnaði út síðdegis á fimmtudögum. Blaðinu er
dreift án endurgjalds á Vestfjörðum, en fastir áskrifendur
greiða áskriftargjald, kr. 1.500 fyrir hálft ár.
Ritstjórn og auglysingar: Aðalstræti 35, ísafirði, sími (94)-
4011, fax (94)—4423.
Útgefandi, ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnús-
son.
Blaðamenn: Hlynur Þór Magnússon, Túngötu 17, ísafirði,
heimasími (94)—4446, og Gísli Hjartarson, Fjarðarstræti 2,
ísafirði, heimasími (94)- 3948.
Prentvinnsla: ísprent hf., Aðalstræti 35, ísafirði, sími (94)-
3223.
s
Islands þúsund ár
Þessi leiðari fjallar um alvarleg mál. Hann fjallar um
framtíð byggðar á Vestfjörðum, um lífsstarf og framtið
fólksins sem hér býr. Hann snýst um það, hvort Vestfirð-
ingar verða með ofbeldi ríkisvaldsins og „eignatilfærslu"
hraktir í burtu og þvingaðir til að skiljast við það sem enn
er ekki búið að rænafrá þeim: Húsin, æskuslóðirnar, fyrir-
tækin, framtíðarvonirnar, draumana. Þessi leiðari er skrif-
aður eftir samtöl við fjölda Vestfirðinga. Ekki síst við (fyrr-
verandi) stuðningsmenn stjórnarflokkanna. Þetta er það
sem fólki finnst. Að minnsta kosti ákaflega mörgum.
Ráðherrarnir Davíð Oddsson og Friðrik Sophusson,
formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, eru vænt-
anlegir til Vestfjarða á morgun, til þess að ráðgast við
flokksmenn sína í kjördæminu. Fundarstaðurinn er mið-
svæðis og vel valinn: Húsakynni Hjálms á Flateyri, í fyrir-
tækinu hans Einars Odds.
Tímasetning fundarins er einnig nokkuð góð. Svona
lagað tíðkast hjá þeim sem fara helst ekki að öðrum lögum
en eigin geðþótta: Að skjóta fyrst og spyrja svo.
Fyrir þúsund árum mælti Njáll á Bergþórshvoli hin fleygu
orð: „Með lögum skal land vort byggja, en með ólögum
eyða.“ Þessi orð hafa verið höfð í heiðri á íslandi fram
undir það síðasta. En nú hefur verið horfið frá þúsund ára
hefð: Stjórnvöld hafa á undanförnum árum unnið mark-
visst að stórfelldustu eignatilfærslu og eignaupptöku hér-
lendís frá því um siðaskipti. Eignatilfærslan í kjölfar siða-
skiptanna leiddi hins vegar ekki til landauðnar eins og nú
stendur til.
Lög um stjórn fiskveiða eru ólög. Á þeirri staðreynd hafa
Vestfirðingar klifað frá upphafi. Árangurslaust. Vestfirðing-
ar eru ekki eins fjölmennir og framlag þeirra til þjóðarbús-
ins gæti bent til. Vestfirðingar hafa ekki atkvæðisrétt i
Reykjavík eða Vestmannaeyjum.
Aðgerðir og aðgerðaleysi stjórnvalda, ásamt núgildandi
ólögum, eru í þann veginn að leggja vestfirskar byggðir í
auðn. Aflaheimildir Vestfirðinga hafa verið skertar jafnt og
þétt. Síðasta höggið er þyngst. Það mun ríða sjávarút-
vegsfyrirtækjum á Vestfjörðum að fullu, og þar með öllum
öðrum fyrirtækjum. Hins vegar munu kjósendur þeirra
Davíðs og Þorsteins muna það vel í næstu kosningum,
að fyrirtæki í þeirra kjördæmum græða á niðurskurði veið-
anna. Þau fá að veiða meira.
Þessir kallar kunna sannarlega að bræða saman hags-
muni sína, þrátt fyrir einhvern sýndarágreining til að halda
betur athyglinni.
Ef ríkisstjórnin ætlar að halda áfram eignatilfærslu sinni
(eignatilfærsla er fallegt orð, stofnanamál, svokölluð
skrauthvörf fyrir þjófnað og rán), þá er hætt við því að hún
sé jafnframt að taka sína eigin gröf. Þegar höfuðborgin
verður ein eftir í byggð hérlendis, er komin upp sú sér-
kennilega staða, að forsætisráðherrann á fslandi er (aftur)
orðinn að borgarstjóra. En ekki lengi. Höfuðborgin þrífst
ekki lengi án landsbyggðarinnar, ekki frekar en höfuð án
líkama.
Stjórnmálamenn láta í veðri vaka, að umhyggja þeirra
fyrir vísindalegum vinnubrögðum ráði gerðum jseirra.
Vandséð er, hverjir þeirra eru svo barnalegir að trúa hind-
urvitnum Hafrannsóknastofnunar, eða hverjir nota tillögur
stofnunarinnar sem skálkaskjól til þess að geta haldið
áfram að stunda „eignatilfærslu". Fjöldi vísindamanna
hefur bent á stórkostlegar veilur í fræðum Hafrannsókn-
astofnunar. Virtir veðurfræðingar, sem eru manna reynd-
astir í því að spá um framvinduna í náttúrunni, hafa verið
ómyrkir í máli og lýst vinnubrögð Hafrannsóknastofnunar
rugl eitt, fúsk, heimsku og hindurvitni.
Hafrannsóknastofnun byrgir sig inni í þjóðkunnum fíla-
beinsturni sínum og hlustar ekki nú frekar en áður á álit
annarra, hirðir ekki um niðurstöður erlendra alvöru vfs-
indamanna sem stangast gersamlega á við skoðanir
Hafró, hún lemur hausnum við steininn, hún hefur að engu
áratuga reynslu íslenskra fiskimanna, hefur að engu þekk-
ingu þeirra á hegðun fiskanna og breytilegum lífsskilyrð-
um í sjónum. Verkin sýna merkin: Stórkostleg afglöp t.d.
varðandi loðnuna og ýsuna, óskiljanlegur hringlandahátt-
ur, óskiljanleg sinnaskipti milli ára, þar sem eitt rekur sig
á annars horn (hvað meðt.d. Grænlandsþorskinn?), þetta
einkennir vinnubrögð Hafrannsóknastofnunar. Til þess að
setja svo einhvern frekari vísindastimpil eða gæðastimpil
á ruglið, þá er pantað álit frá útlendum jábróður stofnunar-
innar. Og á þetta segist aumingja Þorsteinn Pálsson trúa!
Þess er vissulega vert að minnast í þessu samhengi, að
Föstudagur 7. ágúst 1992
I fréttablapip1=
Hvað er um að vera
á ísafirði í ágúst 1992?
My ndlistarsýningar:
25. júlí-16. ágúst MicklosVáczi
22. ág.-13. sept. Grétar Reynisson
Ágústmánuður Guðmundur Thoroddsen
Tónlistarviðburðir:
20. ágúst Sigurður Halldórsson celló
Daníel Þorsteinsson píanó
27. ágúst Rannveig Sigurðardóttir sópran Frímúrarasalur
Hólmfríður Sigurðardóttir píanó
3.september Guðrún Jónsdóttir sópran Frímúrarasalur
Ólafur Vignir Albertsson píanó
Slunkaríki
Slunkaríki
Hótelísafjörður
Frímúrarasalur
SMÁ
MAZDA 626 LX 2000 ’83
til sölu, skoðuð '93, ekin 78
þús.
Uppl. í síma 4000 kl. 8-16
(Auöur).
KÖTTUR 1
ÓSKILUM
Lltil svört
kisa með sjálf-
lýsandi ól
fannst í Sætúni
fyrir viku.
Eigandi er beð-
inn að vitja
hennar sem
allra fyrst.
Upplýsingar i
síma 3922.
Föndurloftið auglýsir:
Nýkomid mikið úrval
af íslensku lopa- og bómullarpeysunum,
bæði fyrir börn og fullorðna
Mikið urval afnyjum minjagripum
ísafjarðarbolir, ísafjarðarkönnur
og aðrir hlutir með ísafjarðarmerkinu
íslandsbolirnir vinsælu og ódýru
komnir aftur, nýjar myndir
Munið ódýra og góða gistingu
á besta stað í bænum
Föndurloftið
- verslun og gisting -
Mjallargötu 5
símar 3659 og 3539
fyrir skömmu veitti íhaldsmeirihlutinn í hinni fornu borg
Davíðs fjárstyrk til stjörnuspekiiðkana. Það er vissulega í
fullu samræmi við trúna á Hafrannsóknastofnun - nema
hvað Hafró fær öllu meiri peninga til að spila með! Og nú
á hún að fá allan Hagræðingarsjóð til viðbótar! Og hún
fær ekki bara peninga, heldur einnig fjöregg íslensku þjóð-
arinnar. Nú á að leggja Vestfirði í eyði en „byggja upp“
þorskstofninn í staðinn. Væntanlega á að byggja hann
upp á sama hátt og ýsustofninn á undanförnum árum!
Hafa einhverjir aðilar mútað Hafrannsóknastofnun og
starfsmönnum hennar?
Enginn kann tveimur herrum að þjóna. Þingmenn Vest-
firðinga og aðrir verða að gera það upp við sig, hvort þeir
hyggjast þjóna kjördæmi sínu og kjósendum ellegar ríkis-
stjórninni. Það fer nefnilega ekki saman fremur en eldur
og vatn, ekki fremur en Guð og Mammon.
Alþingi Islendinga tekur vonandi fram fyrir hendurnar á
þeirri ógæfustjórn sem nú tröllríður íslandi. Við viljum lög,
en ekki ólög. Við viljum vísindi, en ekki reiknikúnstir eins
og hjá Sölva Helgasyni og kollegum hans á Hafrann-
sóknastofnun. Við viljum ríkísstjórn, en ekki þjófa og ræn-
ingja.
Vestfirska fréttablaðið fyrir sitt leyti býður Davíð Odds-
son og Friðrik Sophusson velkomna til Vestfjarða. Það er
ekki víst að þeir eigi kost á því síðar að fá viðeigandi
móttökur hjá Vestfirðingum. Kannski koma þeir næst sem
túristar í eyðibyggðum Skutulsfjarðar, skoða minjar um
sildarbræðslu í Djúpuvík og fiskvinnslu á Flateyri og
spássera um draugabyggðina í Bolungarvík. Þeir gætu
líka skroppið á sjóstöng og dregið fáeina þorska.
Orð Njáls á Bergþórshvoli eru ekki lengur í gildi hjá
íslenskum stjórnvöldum. íslands þúsund ár virðast vera
liðin.
Hlynur Þór Magnússon.
Bíldudalur:
Nýtt gistiheimili
Nýtt gistiheimili hefur verið
tekið í notkun á Bíldudal. Það
eru hjónin Þórunn Hetga
Sveinbjörnsdóttir og Hannes
Friðriksson sem reka gisti-
heimilið, en þau eiga og reka
einnig veitingahúsið Vegamót
á Bfldudal.
Gistiheimilið er með fjórum
stórum herbergjum, sturtu og
baði og setustofu með sjón-
varpi. Rúm eru fyrir átta
manns en hægt að bæta við
dýnum í svefnpokapláss ef
óskað er. Stórar svalir fylgja
íbúðinni með útsýni yfir höfn-
ina. í tengslum við gistinguna
er boðið upp á morgunmat,
heimilismat, kaffi og grillmat
á veitingahúsinu Vegamótum
sem erfyrir ofan gistiheimilið.
Róbert Schmidt.
Hjónin Hannes Fríðriksson og Þórunn Helga Sveinbjörnsdóttir,
veitingamenn á Bfldudal.