Vestfirska fréttablaðið - 04.05.1994, Side 1
SERVERSLUN MEÐ REIÐHJÓL
F^ylcjihilutir —\s^raha I utir
w
ÞJOTUR • Skeiði • ísafirði • Sími 5059
[FRÉTTABLAÐIÐ] |
Miðvikudagur 4. maí 1994 • 18. tbl. 20. árg.
S 94-4011 «FAX 94-4423
VERÐ KR. 170 m/vsk.
^ Körfuboltafélag ísafjarðar:
Islandsmeistarar
í annarri deild
Þeir höföu sannarlega efni á því að vera upp með sér, körfuboltakapparnir í KFÍ á sunnudaginn. Ekki er heldur að sjá á
myndinni að Magnús Gíslason sé neitt sérstaklega sorgbitinn þar sem hann hampar íslandsmeistarabikar annarrar deildar
í íþróttahúsi ísfirðinga á Torfnesi síðastliðinn sunnudag.
Körfuboltafélag Isafjarð-
ar (KFI) vann yfirburðasigur í
úrslitakeppninni Í2. deild í
körfubolta, sem fram fór í nýja
íþróttahúsinu á Isafirði um
helgina. Starf KFI í vetur
hefur verið mjög þróttmikið og
má segja að ekki hafi tekið
langan tíma fyrir ísfirska
íþróttamenn að þakka fyrir hið
nýja og glœsilega íþróttahús.
Islandsmeistaratitlinum í
annarri deild fylgir veglegur og
fallegur bikar sem nú verður
varðveittur í íþróttahúsinu.
Sú ákvórðun KKÍ að
halda úrslitakeppni 2. deildar
hér á Isafirði felur í sér viður-
kenningu fyrir vel unnið starf í
körfunni á Isafirði í vetur.
Nú tekur við erfiðari bar-
átta hjá KFI nœsta vetur, en
hugurinn vex þegar vel gengur
og víst er að gott gengi liðsins í
vetur verður gott vegarnesti á
nœsta ári.
Tveir listar í Súðavík og hvorugur fullskipaður:
Listi lagður fram tíu sekúnd-
um fyrir lok framboðsfrests
- aðeins tveir menn á öðrum listanum
Tveir Iistar verða í kjöri í sveitarstjórnarkosningunum í
Súðavík 28. maí, F-listi, listi umbótasinna, og S-listi, Súða-
víkurlistinn. S-listinn hafði einn komið fram allt þar til tíu
sekúndum fyrir tólf á mánudag, en þá rann framboðsfrestur
út. Þá var komið með F-listann.
Súðavíkurlistinn var valinn í prófkjöri í síðustu viku. Hann
skipa einungis níu manns þar sem ekki fékkst staðfesting í tíma frá
Samúel Kristjánssyni, sem var á sjó, en honum var ætlað 9. sætið.
Eftirtalið fólk skipar S-listann:
1. Sigríður Hrönn Elíasdóttir
2. Fjalar Gunnarsson
3. Garðar Sigurgeirsson
4. Friðgerður Baldursdóttir
5. Hafsteinn Númason
6. Hulda Gunnarsdóttir
7. Jónas Skúlason
8. Guðmundur Halldórsson
9. Salbjörg Þorbergsdóttir
F-Iistann skipa einungis tveir menn, þeir Heiðar Guðbrandsson
í fyrsta sæti og Helgi Bjarnason í öðru sæti.
I sveitarstjórnarkosningunum 1990 voru tveir listar í kjöri í
Súðavík, H-listi og F-Iisti. H-listinn fékk 88 atkvæði og þrjá menn
kjörna og F-listinn 47 atkvæði og tvo menn. Þá leiddi Heiðar
Guðbrandsson F-listann.
-GHj.
PÓLLINN
HF. S 3092
Sa/a & þjónusta
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki
0
PÓLLINN HF
ÞU ÞARFT EKKI AÐ LEITA SUÐUR
- það fæst hjá okkur á sama verði
M.a. SIEMENS • PHILIPS • SANYO • PANASONIC • SONY • TECHNICS • BLAUPUNKT • CASIO • PHILCO
• GRAM • EMIDE • HUSQUARNA • NILFISK • KOMDU OG KYNNTU ÞÉR MALIÐ!
Tvö framboð í
Reykhólahreppi
Tveirframboðslistar komu fram í Reykhólahreppi. Þeir eru
þannig skipaðir:
L-listi:
1. Stefán Magnússon, oddviti Reykhólahrepps, Reykhólum
2. Sveinn Berg Hallgrímsson, bóndi, Skálanesi
3. Guðmundur Ólafsson, verkstjóri, Grund
4. Bergljót Bjarnadóttir, gjaldkeri, Reykhólum
5. Daníel Heiðar Jónsson, bóndi, Ingunnarstöðum
6. Indíana Ólafsdóttir, skólaráðskona, Reykhólum
7. Jóna Hildur Bjarnadóttir, kennari, Reykhólum
8. Benedikt Elvar Jónsson, bóndi, Bakka
9. Hafsteinn Guðmundsson, bóndi, Flatey
10. Jóhanna Fríða Dalkvist, verslunarmaður, Reykhólum
11. Halldór Gunnarsson, bóndi, Múla
12. Ragnar Kristinn Jóhannsson, veghefilsstjóri, Reykhólum
13. Bragi Benediktsson, prófastur, Reykhólum
14. Vilhjálmur Sigurðsson, fyrn/. oddviti, Miðjanesi
N-listi:
1. Ólafur Ellertsson, húsasmíðameistari, Reykhólum
2. Steinunn Þorsteinsdóttir, póstafgreiðslumaður, Reykhólum
3. Þórður Jónsson, bóndi, Árbæ
4. Hafliði V. Ólafsson, vörubílstjóri, Garpsdal
5. Jóhannes S. Haraldsson, sjómaður, Reykhólum
6. Jóhannes Geir Gíslason, bóndi, Skáleyjum
7. Egill Sigurgeirsson, pípulagningamaður, Reykhólum
8. HörðurGrímsson, bóndi, Tindum
9. Sigfríður Magnúsdóttir, bóndi, Stað
10. Bergsveinn G. Reynisson, þangskurðarmaður, Gróustöðum
11. Guðrún S. Samúelsdóttir, bóndi, Neðri-Gufudal
12. Olga Sigvaldadóttir, bóndi, Hamarlandi
13. Tómas Sigurgeirsson, bóndi, Mávatúni
14. Einar Hafliðason, bóndi, Fremri-Gufudal
A-listinn í
Bolungarvík
A-listinn í Bolungarvík, listi jafnaðarmanna og óháðra,
er þannig skipaður:
1. Rúnar Vífilsson, skólastjóri.
2. Hafliði Elíasson, tannlæknir.
3. Kristín Sæmundsdóttir, húsmóðir.
4. Sverrir Sigurðsson, bifreiðarstjóri.
5. Svavar Geir Ævarsson, sjómaður.
6. Þorgerður J. Einarsdóttir, fiskverkakona.
7. Ólafur Benediktsson, bæjarfulltrúi.
8. Hlíðar Kjartansson, matsveinn.
9. Helga Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur.
10. Gestur Pálmason, byggingameistari.
11. Sigurður Þorleifsson, verkamaður.
12. Valdimar L. Gíslason, sérleyfishafi.
13. Jón Valgeir Guðmundsson, fyrrv. gjaldkeri.
14. Lína Dalrós Gísladóttir, verkakona.
FLUGFÉLAG/Ð
ERNIR P
ÍSAFIROI
Sími 94-4200
Daglegt áætlunar-
flug um Vestfirði.
Leiguflug innan-
lands og utan,
fimm til nítján far-
þega vélar.
Sjúkra- og
neyðarflugsvakt
allan sólarhringinn