Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 4

Vestfirska fréttablaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 4
VESTFIRSKA 4 "N I FRETTABLAÐIÐ | Vestfirska fréttablaðiö er vikublað, óháð stjórnmálaflokkum. Blaðið kemur út síðdegis á miðvikudögum og fæst bæði í lausa- sölu og áskrift. Verð kr. 170. Ritstjórn og auglýsingar: Austurvegi 2, (safirði, sími (94)-4011, fax (94)-4423. Ef enginn er við á skrifstofunni er reynandi að hringja í síma (94)-3223 (Isprent) eða farsíma 985-39748. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hlynur Þór Magnússon, hs. 4446. Fréttastjóri: Hörður Kristjánsson, sími 3223. Blaðamaður: .Gísli Hjartarson, hs. (94)-3948, farsími 985-39748. Útgefandi: Vestfirska útgáfufélagið hf„ Austurvegi 2, (safirði. Prentvinnsla og litgreining á forsíðu: ísprent hf„ Aðalstræti 35, ísafirði, Sími (94)-3223. Máttarstólpi þjóðfélagsins æfir sig í með- ferð slökkvi- búnaðar Skemmdarverk voru unnin í Kratahöllinni (gamla Útvegsbankahús- inu) við Silfurtorg á ísafirði á föstudagskvöldið. Fulltrúi á aðalfundi Orkubús Vestfjarða, sem haldinn var þann dag, sat hefðbundna brennivínsveislu í fundarlok á Hótel ísafirði, handan Silfurtorgs. Þvæld- ist fulltrúinn yfir götuna og inn í Kratahöllina, braut rúðu í innihurð í anddyri og tæmdi duftslökkvitæki niður í kjallarann. Gaus upp mikið reykjarkóf af duftinu úr tækinu og taldi maður á efstu hæð að um elds- voða væri að ræða og var slökkvilíð ísafjarðar kallað út. Mikill viðbún- aður var hjá slökkviliðinu og var götum í miðbæ ísafjarðar lokað, því mikill eldsmatur er í húsinu sem er fjórar hæðir og kjallari. Brátt kom í Ijós hvers kyns var og þurfti slökkviliðið að reykræsta húsið, því mikið kóf af slökkvidufti var á öllum hæðum og mátti skrifa á alla veggi. Verulegar skemmdir urðu vegna duftsins sem smaug um allt hús. Þegar að var komið var fulltrúínn hangandi fastur í brotinni hurð. Hann hefur getið sér gott orð í sveitarstjórn í sínu byggðarlagi og mun einnig í eina tíð hafa gegnt starfi slökkviliðsstjóra. Kannski verið að rifja upp handtökin. Óhætt er að segja að hér hafi óbeislað náttúruafl verið á ferðinni. Þarna var ekki um skemmdarverk unglinga að ræða, heldur var um svokallaðan broddborgara að ræða, mikilsmetinn mann, sannkallaðan máttarstólpa í sínu byggðarlagi. Þó að þetta hafi komið fyrir þennan annars ágæta mann núna, þá verður að taka fram að hann er engu verri en margir aðrir vestfirskir máttarstólpar og þjóðþrifamenn. Því miður. Spyrja má, hvort nauðsynlegt sé að stefna mörgum fulltrúum úr hverju sveitarfélagi á þessa fundi. Hefur ekki reynslan sýnt, að jafnan er bráður voði á ferðum þegar vestfirskir máttarstólpar koma saman, og því meiri sem þeir eru fleiri? Að sögn fulltrúa sem sátu aðalfund OV var ennþá meira fyllirí á fuli- trúum núna en eftir fyrri aðalfundi 0 V. Skemmst er að minnast fyllirísins á Fjórðungssambandsþinginu í Flókalundi sl. haust þegar vírðulegir hreppsnefndarmenn, bæjarfulltrúar og aðrir máttarstólpar veltust dauðadrukknir hver um annan þveran í heitum pottum á staðnum. Þess má geta, að sömu mennimir eru uppistaðan á báðum samkomunum, aðalfundum Orkubúsins og Fjórðungsþingunum, þ.e. vestfirskir fyrir- menn, sveitarstjó rnarmen n og aðrir máttarstólpar vestfirskra byggða. Væri ekki nær að stofnanir vestfirskra sveitarfélaga stæðu fyrir brennivínsveitingum til fátækra og bágstaddra drykkjurúta heldur en þeirra betur stæðu, úr því að það er svona mikið brennivín á Vestfjörð- um? Væri ekki nær að fátæklingar fengju brennivín á kostnað vestfirskra útsvarsgreiðenda heldur en efnamenn? Geta máttarstólpamir ekki keypt sér brennivín sjálfir og haldið sínar veislur prívat? Af hverju er þeim alltaf gefið sem eiga? Svo má spyrja hvort ekki megi virkja allt þetta brennivínsflóð til raf- orkuframleiðslu. Samkvæmt heimildum Vestfirska fréttablaðsins mun fyrrnefndur máttarstólpi þjóðfélagsins komast hjá kæru og skaðabótamáli vegna skemmdarverkanna. Slíkt mun aðeins tíðkast þegar unglingar og aum- ingjar eiga í hlut. Málið hefur verið þaggað niður. Það þykir víst fráleitt að ætlast til þess, að bæjarfulltrúar og hreppsnefndarmenn og fram- kvæmdastjórar og fulltrúar á stórmerkilegum aðalfundum á vegum vestfirskra sveitarfélaga séu gerðir ábyrgir gerða sinna. Hvernig haldið þið að þessu máli hefði verið slegið upp í öllum helstu fjölmiðlum landsins, ef einhver krakkakvikindi úr Grunnskólanum hefðu átt í hlut? h.þór Miðvikudagur 4. maí 1994 Strandir: Þrjár tófur á tveimur kvöldum í útburð hlýtur aö vera gott kjöt sem Hjalti framleiðir „Ég byrjaði seint að liggja fyrir tófu í vetur og það hefur helgast af því að ég hef ekki fengið neitt í agn. Það er svo heilbrigt og heilsuhraust sauð- féð hjá okkur á Ströndum að það drepst ekki nokkur rolla orðið“, sagði Guðmundur á Munaðarnesi í samtali við blaðið. Svo er bara ekkert hross til hérna til að slátra í útburð fyrir tófu. Loksins hringdi Hjalti vinur minn í Bæ í mig og loksins var hræ hjá honum. Ég sótti rolluna og dró hana hingað á vélsleðanum og bar hana út hérna skammt frá bænum. Tóf- umar fóru að ganga í agnið eins og skot því það hlýtur að vera alveg einstaklega gott kjöt sem Hjalti framleiðir. Ég lá svo við agnið í tvö kvöld fyrir skömmu og náði þremur tófum.“ Valgeir í Árnesi með átta tófur „Eg var svo að ganga rekann fyrir stuttu og ætlaði að fara að bjarga rafti undan sjó og var með spotta í hendinni. Þá sá ég hvar minkur kom og hann hljóp alveg að löppunum á mér. Ég hafði ekkert í höndunum nema spottann. Ég sló hann í hausinn með honum og það varð til þess að ég drap hann. Hann þurfti að minnsta kosti ekki mikið meira. Valgeir Benediktsson í Arnesi hefur fengið átta tófur í vetur og hann ber út við eyðibýlið Reykjanes", sagði Guðmundur hreppstjóri í Ameshreppi á Ströndum. -GHj. 80 ára afmæli Guðrún Hansdóttir, fyrrum húsfreyja á Garðsstöðum í Ög- ursveit, verður áttræð sunnudaginn 8. maí. Afmælisveisla verður haldin kl. 15 á afmælisdaginn í kaffisal Norðurtangans á ísafirði. --\ ttr ÉTTABLAÐIÐ |_ Þjónustumiöstöð fatlaðra á Vestfjöröum: 10 ára afmæli Bræðratungu - opiö hús á afmælisdaginn Þjónustumiðstöðin Bræðratunga á ísafirði hóf starfsemi sína 12. maí 1984. Hlutverk Bræðratungu hefurfrá upphafi verið að veita fötluðu fólki á Vestfjörðum margvíslega þjón- ustu, s.s. vistheimili, skammtímavistun, sumarvistun, dag- vistun, vinnuþjálfun o.fl. Bræðratunga verður því 10 ára á fimmtudaginn í næstu viku, uppstigningardag, og af því tilefni ætla íbúar Bræðra- tungu að bjóða Vestfirðingum upp á „Opið hús“ á afmælis- daginn. Frá kl. 17.00 til 19.00 er fólki boðið að kynna sér starfsemi Bræðratungu og skoða húsakynni. ísafjörður: Ólæti grunn- skólanema Að sögn lögreglu á ísafirði voru talsverð læti í ungmenn- um sem voru að Ijúka samræmdum prófum í Grunnskólan- um í miðbæ ísafjarðar á miðvikudagskvöldið í síðustu viku. Var mikið kvartað yfir ölvun og ólátum í krökkunum langt fram eftir nóttu. -GHj. Sumarkveðja til eldri borgara Söngtónleikar á Dvalarlielmlllnu HlíF fyrir alla eldri borgara laugardaginn 7. maí kl. 16.00 • Flytjendur: Hlíf Káradóttir, sópran Reynir Ingason, tenór Margrét Gunnarsdóttir, píanó Á efnisskrá eru íslenskar söngperlur eftir ýmsa höfunda, einsöngur og dúettar. I I Islandsbanki á Isafiröi býður viðskiptavinum sínum fríar myndatökur vegna debetkortanna Upplýsingar íafgreiðslu bankans. ÍSLANDSBANKI Hafnarstræti 1, ísafirði, sími 3744 Vísu- korn Limru þessa orti Pétur Bjarnason í tilefni frásagna í DV og víðar um hávaðasama frygðarleiki i fjölbýlishúsi í Kó- ópavogi. Ást þeirra var eins og atglíma, athöfnin tók engan smátíma. Fyrst kom óp, og hún stundi, næst kom gelt sem í hundi, og svo þindarlaust áfram í þrjá tíma. Bnangrunorgler — 5 ára ábyrgi Oryggisgier í vinnuvélar o.ll. Hamrai gler Speglagerð Innrömmun Speglar skornir eflir máli Speglari römmum Sendum útálandef áskað er GLCRSLÍPUN AKRANESS HF. Ægisbraut 30 — sími 12028

x

Vestfirska fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.