Vestfirska fréttablaðið - 04.05.1994, Blaðsíða 12
ÖRKIN 5007-359-21
mm
FRÉTTABLAÐIÐ |
RITSTJÓRN OGAUGLÝSINGAR:
SÍMI94-4011 • FAX 94-4423
Eins og í prestskosningum
Að sögn Óla Kitt í Víkinni hafa átökin í atvinnumálum
Bolvíkinga á síðustu misserum leitt af sér margvíslegan
klofning í bænum. „Þetta er eins og í prestskosningum",
segir bæjarstjórinn, „sundraðar fjölskyldur, sundruð fyr-
irtæki, sundraðir flokkar. En ég sjálfur er bjartsýnn, bæði
á komandi kosningar og framtíð Bolungarvíkur."
Badminton!
- frá Tennis- og badmintonfélagi ísafjarðar
Vegna misskilnings var ekki badmíntonæfing þann 30. apríi si., sem átti að
vera síðasti tími vetrarins.
Badmintonfélagið vill því þakka öllum þeím krökkum og unglingum, sem
sáu sér fært að vera með okkur í vetur, fyrir ánægjulegt samstarf.
Með badmintonkveðju og von um áframhaldandi samstarf næste haust.
Virðingariyllst, stjórn T.B.I.
ÞAÐ verður ekki auðvelt að sleppa
á hlaupum frá lögreglumönnum á
Isafirði um helgina. Hér verður þá
haldið Landsmót lögreglumanna í
innanhússknattspymu og koma á
svæðið margir af bestu íþróttamönn-
um í lögregluliðum landsins. í liði ís-
firðinga verða m.a. Hlynur Snorrason
og Guðmundur Fylkisson, en meðal
gestanna má nefna Jóhannes Krist-
bjömsson, nýbakaðan íslandsmeist-
ara í körfubolta með Njarðvíkurlið-
inu...
5KORTÍ 1
ÁBYRGÐARKORT
í tékkaviðskiptum
# HRAÐBANKAKORT
heima og erlendis
► BANKAKORT
í bankaviðskiptum
^ STAÐGREIÐSLUKORT
í rafrænum búðarviðskiptum
innanlands og utan
^ PERSÓNUKORT
traust persónuskilríki
meðmynd
Vestfirska
hefur heyrt...
...að Sighvatur Björgvinsson
iðnaðar- og orkuráðherra hafi sl.
föstudagsmorgun stokkið í fall-
hlíf út úr ísafjarðarfokkernum á
leið vestur og lent á Patreksfirði.
Hann átti að flytja erindi um
orkubúskap og orkunýtingu á
aðalfundi Orkubús Vestfjarða í
Hnífsdal kl. 13.40 á föstudaginn,
og var búið að undirbúa komu
hans með ýmsum hætti. Ráð-
herrann hringdi hins vegar laust
fyrir hádegi og kvaðst ekki
komast á fundinn. Starf ráð-
herrans meðal flokkssystkin-
anna á Patreksfirði á föstudag-
inn virðist hafa borið þann
árangur, að kratar bjóða upp á
miklu fleiri frambjóðendur í hinu
nýja sveitarfélagi á sunnan-
verðum Vestfjörðum en aðrir
flokkar. Spurningín er aftur á
móti hvort kjósendafjöldinn
verði í réttu hlutfalli við fram-
bjóðendafjöldann, hvort eftir-
spurnin verði eins mikil og
framboðið...
...að á mánudaginn hafi
nokkrir vélsleðamenn að sunn-
an komið norðan af Ströndum
yfir Drangajökul og niður á
Snæfjallaströnd. Þar hittu þeir
fyrir ísfirðinga, því Snæfjalla-
hreppur hefur verið lagður undir
ísafjarðarkaupstað. Síðan óku
ferðalangarnir fyrir Kaldalón og
inn á Langadalsströnd. Þar hittu
þeir fyrir Hólmvíkinga, því Naut-
eyrarhreppur hefur sameinast
Hólmavíkurhreppi. Að sama
skapi er orðið víðsýnt hjá pró-
fastinum í Vatnsfirði, séra Baldri
Vilhelmssyni, því að nú horfir
hann út um stofugluggann á
Vatnsfjarðarstað á úthverfi
Hólmavíkurbæjar á Langadals-
strönd og úthverfi ísafjarðar-
kaupstaðar á Snæfjallaströnd.
Með sama áframhaldi kemur að
því að hann sér „of heima alla“
eins og Óðinnforðum...
...að óvenju fjörugar ná-
grannaerjur og sérdeilis lífleg
málaferli í Nauteyrarhreppi valdi
því, að eftir sameininguna við
Hólmavíkurhrepp þurfi að bæta
við a.m.k. tveimur löglærðum
fulltrúum við sýslumannsemb-
ættið á Hólmavík og a.m.k.
þremur lögreglumönnum.
Fækka mun að sama skapi um
tvo löglærða fulltrúa og þrjá
lögreglumenn hjá sýslumanns-
embættinu á (safirði og héraðs-
dómarinn á ísafirði getur farið
að anda léttar...
...að íbúar Ögurhrepps í
Djúpi vilji ekki sameinast neinu
öðru sveitarfélagi og ætli sér að
standa einir sem sveitarfélag.
Hins vegar vilja íbúar Reykjar-
fjarðarhrepps ólmir sameinast
Ogurhreppi eða jafnvel yfir í
Barðastrandarsýslu til þess að
til verði löglegt sveitarfélag með
yfir 50 íbúa...
...að menn furði sig á því
hvers vegna Nauteyrarhreppur
innan Langadalsár sameinaðist
ekki Reykhólahreppi í Barða-
strandarsýslu og Nauteyrar-
hreppur utan Langadalsár, út að
Selá í Skjaldfannardal, samein-
aðist ekki Hólmavíkurhreppi.
Eru menn þá minnugir deilna
hreppsnefndar um afléttingu
lausagöngubanns hrossa í
hreppnum sl. vetur. Spildan milli
Selár og Mórillu í Kaldalóni hefði
svo getað orðið sérstakt sveit-
arfélag og sérstakt lögsagnar-
umdæmi með einum íbúa, eða
jafnvel dvergríki vegna sérstöðu
landareignanna...