Feykir - 22.06.1983, Blaðsíða 1
Það kom mörgum af yngri kynslóðinni á óvart þegar Stefán Pedersén Ijósmyndari gekk að
hljóðfœrinu og spilaði af mikilli innlifun. Haukur Þorsteinsson situr á bakvið og blœs af fullum
krafti í saxófóninn. Hann hefur engu gleymt.
Jassbomba í Sælkerahúsinu
Stefán Pedersen og Haukur Þorsteinsson
léku af fíngrum fram á jasskvöidi Jass-
kiúbbs Skagafjarðar á loftinu í Sæikera-
húsinu 16. júní s.I.
Haukur Þorsteinsson er öllum Skagfírð-
ingum a.m.k. vel í minni sem afburða lipur
spilari, en lengra er um liðið síðan Stefán
Pedersen hefur látið til sín taka opinber-
lega, eða um þrjátíu ár, en þá léku þeir
Haukur einmitt saman í hljómsveit.
Fjölmargir gripu í hljóðfæri áður en yfir
lauk um kvöldið og varð úr þessu aflmikil
jassbomba. Er áformað að halda jass-
kvöld áfram í Sælkerahúsinu í sumar.
Einnig er fyrirhugað að jassinn skipi
veglegan sess á Sumarsæluviku Skagfirð-
inga sem hefst 16. júlí n.k.
Jassklúbburinn er nýstofnaður, og gekkst
m.a. nýlega fyrir tónleikum með hljómsveit
Arna Scheving í Bifröst sem tap varð á. En
þrátt fyrir það er engan bilbug að fínna á
félögum Jassklúbbsins, jassinn er á uppleið
þó svo ijármálin séu einhvers staðar neðan
við margfrægan núllpunkt.
Banaslys varð í
Norðurárdal
Banaslys varð í Norðurárdal í
Skagafirði á laugardaginn var
þegar tvær bifreiðir lentu þar í
árekstri. Átti slysið sér stað
skammt frá Fremri Kotum á
beinum vegarkafla þar. Sex
manns var flutt á sjúkrahúsið á
Sauðárkróki, en einn hinna
slösuðu lést á leið þangað.
Nafns hins látna er Jakobína
Pálmadóttir til heimilis í Revkja
vík.
Hinir fimm hlutu minniháttar
meiðsl og fengu fljótlega að fara
af sjúkrahúsinu.
Báðir bílarnir voru af Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Annar
þeirra er gjörónýtur og hinn
mjög mikið skemmdur.
Séð yftr slysstaðinn í Norðurárdal.
Feykir fer um allt Norðvesturland
Reykir
blaðið þar sem auglýsingamar borga sig.
Aðalfundur Feykis
Útgáfa blaðsins gengur vel, en beturmágera
Aðalfundur Feykis h.f. var
haldinn í Safnahúsinu á Sauð-
Leikmannanámskéið
Að tilhlutan Prestafélags Hóla-
stiftis verður námskeið presta og
leikmanna á Hólum dagana 1,-
3. júlí n.k. Einkum verður fjallað
um aukið samstarf lærðra og
leikra að safnaðarmálum. Að
sögn séra Sigurðar Guðmunds-
sonar vígslubiskups verða fyrir-
lesarar fjórir, tveir prestar og
tveir leikmenn. Námskeiðið er
haldið í tilefni „Lútersárs”, en
nú eru 500 ár liðin frá fæðingu
siðbótarmannsins Marteins Lút
ers, en hann lagði einmitt
áherslu á að safnaðarstarf væri
ekki einungis fyrir presta, held-
ur allan almenning.
Feykir
kemur nxst út 6. júlí
árkróki 11. júní s.l. Fram kom í
skýrslu stjórnar að reksturinn
gekk vel á síðasta ári og bjart
virðist framundan með útgáfu
blaðsins. Á árinu var m.a. flutt í
ritstjórnarskrifstofuna við Að-
algötu 2 og/áðinn nýr ritstjóri
að blaðinu. Árni Ragnarsson gaf
ekki kost á sér til endurkjörs í
stjórn Feykis og var Sigurður
Ágústsson rafveitustjóri á Sauð-
árkróki kosinn í hans stað. Aðrir
stjórnarmenn voru endurkjörn-
ir, eða þeir Hilmir Jóhannesson,
sera Hjálmar Jónsson, Jón
Ásbergsson og Jón F. Hjartar-
son.
Fram kom á fundinum að enn
er eftir að selja talsvert af
hlutabréfum í Feyki og verður
gert átak í sölu þeirra á
næstunni. Verður þéttbýlisstöð-
unum á Norðvesturlandi m.a.
boðin þátttaka í félaginu.
Þrátt fyrir að Feykir sé
kominn vel á legg þarf stöðugt
að hugsa um að styrkja blaðið og
virkja þarf fleiri til frétta- og
greinaskrifa um allt kjördæmið.
Tveir nýjir bátar til Siglufjarðar
Það var létt yfir Ómari
Hallssyni framkvæmdastjóra frysti
hússins ísafoldar á Siglufirði
þegar Feykir hafði samband við
hann fyrir helgina. Sagði hann
að nú væri atvinnuástand gott á
Siglufirði. „Við erum tilbúnir að
taka á móti að minnsta kosti
tuttugu fjölskyldum hingað, því
nú er svo komið að það vantar
fólk í vinnu. Þetta góða ástand
lýsir sér best í því að hér fékk
skólafólk yfirleitt vinnu strax og
skólar hættu í vor.” Ómarsagði
ennfremur að Siglfirðinga myndi
sérstaklega vanta sjómenn þeg-
ar færi að líða að hausti, en tveir
nýir bátar sem nýlega hafa bæst í
flota Siglfirðinga munu þá fara
til veiða.
ísafold h.f. hefur keypt 35 m
langan bát, sem byggður var
árið 1964 í Noregi, þá fyrir
Siglfirðinga. Heitir skipið nú
Sigurpáll, en hét á sínum tíma
Siglfirðingur. Má því segja að
hann sé kominn aftur á æsku-
slóðirnar.
Nú er unnið af fullum krafti
við endurnýjun Sigurpáls, skipt
verður um brú í skipinu, byggt
yfir það og síðan allt sandblásið.
Óll viðgerðin fer fram á Siglu-
firði nema bygging brúarinnar,
sem er smíðuð inn á Akureyri,
en verður síðan flutt til Siglu-
fjarðar og sett á þar.
Sigurpáll verður búinn sem
alhliða veiðiskip, fyrir troll, línu
net og nót. Þegar viðgerð er
lokið seinnipart sumars mun
hann trúlega fara á troll, en
síðan á síld, þar sem hann hefur
leyfi til síldveiða. Taldi Ómar
alls ekki fráleitt að Siglfirðingar
gætu verið sjálfbjarga með síld
til niðurlagningar í framtíðinni,
ef síldveiðar gengju vel í haust,
Þormóður rammi hefur einnig
keypt bát sem er aðeins minni en
Sigurpáll, Þorlák Helga, og
hefur hann einnig leyfi til
síldveiða.
TónUstaskólinn á Sauðárkróki
kemst undir eitt þak fljótlega
Allar líkur eru á því að
starfsemi Tónlistaskólans á
Sauðárkróki komist undir eitt
þak næsta vetur, en nú er
kennt á nokkrum stöðum í
bænum, aðallega þó í Safna-
húsinu við Faxatorg. Þar er
þröngt um starfsemi skólans
og stangast hún oft á við aðra
starfsemi þar í húsinu.
Húsnæði það sem nú er rætt
um að Tónlistarskólinn leigi
til nokkurra ára er verslun-
arpláss Ástvaldar Guðmunds-
sonar, þar sem hann rak
Radíó- og sjónvarpsþjónust-
una. Er búið að gera tillögu að
innréttingu hússins, þannig að
fjórar til fimm kennslustofur
fengjust auk hreinlætisaðstöðu,
kaffistofu og biðstofu fyrir
nemendur.