Feykir


Feykir - 22.06.1983, Blaðsíða 8

Feykir - 22.06.1983, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 22. júní 1983. Feykir 13. tölublað, 3. árgangur. Draumur Sauðkrækinga um malbikaðan og upphitaðan flugvöll varð að engu ALBERT KOM í VEG FYRIR LÁNTÖKU Eins og frá var greint nýlega í Feyki voru uppi hugmyndir um að leggja hitapípur í flugvöllinn á Sauðárkróki og malbika hann. Steingrímur Hermannsson skrif- aði flugmálastjóra bréf í tíð sinni sem samgöngumálaráðherra og fól honum að sjá um fram- kvæmd verksins. Var þá hug- myndin að Sauðárkróksbær út- vegaði lánsfé til verksins, sem næmi 9 milljónum, en á fjár- lögum er veitt 1 milljón til Sauðárkróksflugvallar. Pétur Einarsson flugmála- stjóri kom ti! að ræða við bæjaryfirvöld um þessa fram- kvæmd þann 1. júní s.l. Með honum í för voru Ragnar Ragnarsson tæknifræðingur frá Fjarhitun og Rúnar Sjgmunds- son umdæmisstjóri. Á þessum fundi voru menn vissir um að af framkvæmdinni yrði og var farið yfir útreikninga sem Fjar- hitun h.f. hafði gert, varðandi upphitun vallarins. Á þessum fundi voru menn svo vissir um framgang málsins, að flugmála- stjóri fól Fjarhitun h.f. að vinna þá þegar að því að gera könnunarútboð á lögnum í flugvöllinn og var vonast til að með því mætti fá lægra verð en lagt var fyrir frá Fjarhitun hf., en það hljóðaði upp á 9 milljónir króna. Svo viss var Pétur Einarsson um að völlurinn yrði malbikaður, að hann ræddi við Árna Blöndal, umsjónarmann flugvallarins um að fá til bráða- birgða snjósópara af Keflavík- urflugvelli þar sem heita vatninu yrði tæplega hleypt á næsta vetur. Ætlunin var að Sauðárkróks- bær útvegaði fé til verksins með tvennum hætti. Annars vegar 5,5 millj. kr. með erlendu láni og hins vegar 3,5 millj. kr. með láni úr Framkvæmdasjóði. Ekki hef- ur enn komið til þess að málið færi fyrir stjórn Framkvæmda- Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra. Pétur Einarsson, flugmálastjóri kemur til fundar við bœjarráð Sauðárkróks á bæjarskrifstof- unni. Það varð fýluför. stofnunar, því á þessum tíma urðu ríkisstjórnarskipti og Al- bert Guðmundsson settist í stól fjármálaráðherra. Með fyrstu verkum hans var að taka til baka heimild til erlendrar lántöku. Og þar með var draumurinn búinn. Fyrir u.þ.b. viku síðan fór sendinefnd á vegum Sauðár- króksbæjar á fund Alberts, sem í voru Þórður Þórðarson bæjar- stjóri, Þorbjörn Árnason bæjar- ráðsmaður og Stefán Guð- mundsson formaður bæjarráðs. Eftir því sem Feykir hefur komist næst varð þessi fundur árangurslaus, Albert sat viðsinn keip, þó hann lýsti sig hlynntan framkvæmdinni sá hann sér ekki fært að leyfa erlenda lántöku vegna hennar. Það virðist ekkert hafa að segja þó nú sé sá samgönguráðherra sem fól flugmálastjóra að hefja fram- kvæmdir orðinn forsætisráð- herra í þeirri sömu ríkisstjórn sem Albert Guðmundsson situr í sem fjármálaráðherra. Feykir hefur það eftir áreið- anlegum heimildum að hefja eigi framkvæmdir við nýja flugstöð í Keflavík (þið vitið, þarna á suðvesturhorninu), í stjórnartíð ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar. Kristbjörg Magnúsdóttir. Ný Greiðasala opnuð á Hvammstanga Nú geta Hvammstangabúar leyft sér að vera latir við eldamennsk- una, það er nóg fyrir þá að rölta út í Greiðasölu og fá sér þar í svanginn. Þetta er þriðja sumar- ið sem Kristbjörg Magnúsdóttir rekur Greiðasöluna en áður var hún með veitingarekstur í fél- agsheimilinu og heima hjá sér. Greiðasalan er í vistlegum og rúmgóðum sal í nýja slátur- húsinu sem stendur nyrst í bænum. Þar er hægt að fá djúp- steiktan fisk, kjúklinga, ham- borgara, heitar samlokur og fleira. Stundum er réttur dagsins á borðum og svo er auðvitað hægt að fá kaffí og með því. Kristbjörg taldi ekki grund- völl fyrir því að hafa Greiðasöl- una opna allt árið, vegna þess að reksturinn hefði hingað til verið að mestu leyti borinn uppi af aðkomumönnum sem hér væru í vinnu. H.K. Hluti þáttakenda á skéllinöðrunámskeiðinu SkeUinöðnmámskeið Fyrir skömmu lauk skelli- nöðrunámskeiði sem lögreglan á Sauðárkróki stóð fyrir í sam- vinnu við Sauðárkróksbæ. Greiddi bærinn kostnaðinn en lögreglan sá um framkvæmdina, en þetta var krökkunum að kostnaðarlausu. Kennt var fjög- ur kvöld og fór Björn Mikaels- son yfir umferðarreglurnar með krökkunum, einnig kenndi Val- ur Ingólfsson slysahjálp og Gunnar Þórðarson fræddi um gerð og búnað ökutækja. Að sögn Björns Mikaelssonar yfirlögregluþjóns tókst þetta námskeið vel, en annað verður þó haldið í haust, þar sem þátttaka var ekki nógu almennt að þessu sinni. Alls skráðu sig til þátttöku 27, en þegar á hólminn kom mættu aðeins 13. Vandað er til verka. Verslunin blómstrar. Nýtt hverfi rís með ógnarhraða Nýtt hverfi rís nú með ógnarhraða á Sauðárkróki, rétt ofan við sjúkrahúsið. Nú þegar er komin verslun í hverfið, sjúkrahús og lögreglustöð. Þegar blaðamaður Feykis leit þar við rétt fyrir helgina var þar iðandi líf. Ekki gat blaðamaðurinn verslað í búð staðarins, því honum láðist að hafa með sér réttan gjaldmiðil, sem er tappar af ölflöskum. íbúar nýja bæjarhlutans þustu út á götu þegar Ijósmyndara bar að garði og fylltist aðalgatan af krökkum.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.