Feykir - 16.11.1983, Síða 2
2 FEYKIR
Feykir
RITSTJÓRI OG ABYRGÐARMAÐUR:
GUÐBRANDUR MAGNÚSSON
Stundum er um það rætt, að
fjárveitingar til uppbyggingar skóla-
mannvirkja og annarra mannvirkja
á vegum ríkisins stjórnist um of af
pólitískum þrýstingi og hagsmun-
um, sem ekki séu heildinni og
þjóðarhagsmunum fyrirbestu. Ekki
sical undir það tekið hér, en auðvelt
er að minnka hættuna á sérhags-
munapoti. Fræðsluráð Norðurlands-
kjördæmis vestra hefur unnið að
heildarúttekt skólamála á svæðinu,
stöðu og ástandi hvers skóla_ fyrir
sig og byggingaráformum. Úttekt
sína og tillögur lagði fræðsluráðið
fyrir þingmenn kjördæmisins nú í
haust. Er það meginstefna ráðsins
að byggingartíma hvers skólamann-
virkis styttist þannig að „tóftum”
fækki og fé verði ekki til lengdar
bundið í framkvæmdum sem ekki
komi að notum. Ekki verði ráðist í
of margar byggingar í einu, heldur
sett upp ákveðin röðun á fram-
kvæmdum og myndarlega veitt til
þeirra bygginga sem á dagskrá eru
hverju sinni.
Þingmenn lýstu ánægju með störf
ráðsins, sem myndu auka hag-
kvæmni og auðvelda þeim skyn-
samlega ákvarðanatöku. í sama
streng tók haustþing kennara á
Norðvesturlandi nú í haust.
Samkvæmt þessu telur ráðið
eðlilegt að Ijúka sem fyrst þeim
byggingum sem nú eru í smíðum.en
huga jafnframt að næstu verkefnum
og ljúka þeim á sem skemmstum
tíma. Víða er brýn þörf á auknu og
bættu skólahúsnæði á Norðvestur-
landi, en Ijóst er að ein heildar-
upphæð er veitt til skólabygginga í
hverju kjördæmi. Okkar er að spila
úr henni þannig að féð komi að
sem bestum notum. Því er eðlilegast
að heimamenn geri nokkura ára
áætlun um byggingar og fylgi henni
fram. - Hjálmar Jónsson.
VIÐBÓTARLÁN FRÁ
HÚSNÆÐISSTOFNUN
Reglur um úthlutun viðbótarlána
skv. ákvöröun ríkisstjómarinnar
1.
(Jmsækjendur, sem fengu eða fá frumlán (1. hluta) til
nýbygglnga og lán til kaupa á eldra húsnæði á árunum 1982
og 1983 úr Byggingarsjóði ríkisins, er gefínn kostur á
viðbótarláni allt að 50% af upphaflegu láni þeirra.
2.
Viðbótarlánin koma til greiðslu á árinu 1983 og nema allt að
50% af þeim lánshlutum, sem veittir voru á árunum 1982 og
1983. Lánshlutar, sem koma til greiðslu á árinu 1984 verða
með 50% hækkun, skv. ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
3.
Ef framkvæmdaaðili (t.d. byggingarsamvinnufélag) hefur
fengið framkvæmdalán til byggingar íbúða, þá eiga kaupendur
þeirra rétt á viðbótarláni, að því tilskildu að íbúðirnar hafi
verið gerðar fokheldar frá og með 1. október 1981. Ef uppgjör
við framkvæmdaaðila fer fram frá og með 1. janúar 1984
þarf ekki að sækja um viðbótarlán, sbr. 2. tölulið.
4.
Ef um eigendaskipti er að ræða á núverandi eigandi
rétt á viðbótarláni, leggi hann fram þinglýstan kaupsamning
eða veðbókarvottorð.
5.
Viðbótarlán verða afgreidd frá veðdeild Landsbanka íslands
með kjörum, sem gilda um nýbyggingarlán (F-Ián) og lán
til kaupa á eldra húsnæði (G-lán). Varðandi veð skal þó
heimilt að taka síðari veðrétti en 1. og 2. veðrétt, að því tilskildu,
að áhvílandi uppfærð lán, að viðbættu viðbótarláni
húsnæðismálastjórnar, nemi ekki hærri fjárhæð en 65% af
brunabótamati íbúðarinnar.
6.
Sækja verður um viðbótarlán á eyðublaði, sem Húsnæðis-
stofnun ríkisins leggur til.
7.
Clmsóknir um viðbótarlán skulu berast Húsnæðisstofnun
ríkisins fýrir 1. desember 1983.
8.
Afgreiðsla lánanna hefst svo fljótt sem unnt er, þótt frestur
til að skila umsóknum standi til 1. desember nk.
DaO Húsnæðisstofnun
nkisins
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
Tónlistarfélag Skagafjarðarsýslu
heldur kynningar- og útbreiðslufund að Löngu-
mýri laugardaginn 19. nóvember kl. 13. Nýir
félagar sérstaklega velkomnir.
Stjórnin.
ATVINNA
Kaupfélag Skagfirðinga óskar eftir að ráða
starfsmann á skrifstofu félagsins.
Um er að ræða heils dags starf sem felst í
almennri skrifstofuvinnu.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal komið til Ágústs Guðmunds-
sonar á skrifstofu KS, sem jafnframt veitir allar
nánari upplýsingar.
HOTEL MÆLIFELL
cu
KÓTEKn
DlS
Mom
rfVfM^kótek
Kaupfélag Skagfirðinga
auglýsir:
í desember verða verslanir félagsins opnar sem
hér segir, auk hins venjulega afgreiðslutíma:
Skagfirðingabúð og Kjörbúð víð Skagf.braut:
Laugardaginn 3.12. frá kl. 10.00 til 17.45
Laugardaginn 10.12. frá kl. 10.00 til 17.45
Laugardaginn 17.12. frá kl. 10.00 til 21.45
Föstudaginn 23.12 frá kl. 9.00 til 22.45
Laugardaginn 24.12 frá kl. 9.00 til 11.45
Útibúið á Hofsósi:
Laugardaginn 10.12 frá kl. 13.00 til 17.45
Laugardaginn 17.12. frá kl. 10.00 til 21.45
Föstudaginn 23.12 frá kl. 9.00 til 22.45
Laugardaginn 24.12 frá kl. 9.00 til 11.45