Feykir


Feykir - 28.08.1985, Síða 2

Feykir - 28.08.1985, Síða 2
2 FEYKIR 17/1985 Bískupsstól tíl Sú umræða, sem nú fer fram um það að biskupsembætti verði flutt til Hóla í Hjaltadal á sér langan aðdraganda. Allt frá því biskupsembætti var lagt niður árið 1802 hefur Norðlendingum sviðið það, að biskup skyldi aðeins vera einn og í Skálholts- stifti hinu forna. Hólar hafa gegnt veigamiklu hlutverki í þjóðlífi og þjóðarsögu Islend- inga. Þeir voru miðlægur staður, voru í alfaraleið og miðstöð í trúar- menningar- og söguleg- um skilningi. Þar var um aldirnar eina stórfyrirtækið í stiftinu. Sjálfstæðisbaráttu Is- lendinga voru Hólar mikil- vægari en aðrir staðir í landinu, a.m.k. til jafns við Skálholt og Þingvelli. Staðurinn rifjar upp atburði í huga þess, sem leitar þangað og þekkir til sögu lands og þjóðar. Þetta eru þó ekki gild rök fyrir endurreisn biskups- stóls á Hólum en þess misskilnings gætir hjá einstaka manni, sem lætur sig málið varða. Nútímamenn þurfa ekki að bæta um það sem liðið er. Sú saga var lifuð og er skráð. Um hana verður engu breytt enda þarf þess ekki því að hún stendur fyrir sínu. Við megum dást að því besta, sem forfeðurnir unnu, læra af þeim og njóta verka þeirra. En við megum ekki fara að herma eftir þeim. Það verður afkáralegt og ósæmilegt. Jón Sigurðsson, forseti, fjallaði eitt sinn sem oftar um þann ofuráhuga, sem sumir menn hefðu á því að ganga í sporum forfeðranna og benti á það, að enginn yrði eins og Gunnar á Hlíðarenda að atgervi þótt hann klæddist fornmannabúningi. Enginn öðlaðist dómgreind Þorgeirs Ljósvetningagoða þótt hann legðist undir feld um stundar- sakir. Þeir menn, sem taka að dýrka fortíðina og sjá hana í rósrauðum bjarma gera samtíð sinni lítinn greiða. Gælur við liðna tíð, eru ekki samboðnar upplýstum og siðuðum mönn- um. Nauðsynlegt er að þekkja bakgrunninn, söguna rétt eins og það er hverjum manni hollt að þekkja til ættar sinnar. Nútímamenn fara hins vegar ekki að lifa lífi fyrri alda manna. I prestastétt hefur áhugi verið mikill á endurheimt biskups- embættis fyrir Norðurland. Norðlendingar eru sér með- vitandi um það, að þeir eru um margt ein heild, þótt Tröllaskagi sé Þrándur í Götu í seinni tíð og hafi sem farartálmi tekið stað óbrúaðra vatna á fyrri tíð. I lok síðustu aldar, árið 189B var stofnað Prestafélag hins forna Hólastiftis en prestar á Norður- landi komu þá saman á Sauðárkróki 8. - 9. júní og stofnuðu fyrsta prestafélag á landinu. Félagið var stofnað í þeim tilgangi að efla presta í starfi fyrir kristna kirkju og leitast við í sameiningu að bæta hina ytri skipan kristnihaldsins. Fljótlega kom svo til sú grein í lögum félagsins, sem kveður á um það að félagið vinni að því að biskupsstóll verði endurreistur á Hólum í Hjaltadal. Síðan hefur Hóla umræða um biskupsembætti þar verið vakandi. Allt frá fyrstu biskupsvígslunni þar árið 1910 hefur verið áhugi fyrir því að hann sæti á Hólum. Ekki varþó í fyrstunni talin ástæða til þess þar sem hlutverk vígslubiskupa er næsta lítið miðað við núverandi lög. Þau eru frá 1909 samþykkt af Alþingi og staðfest af konungi og eru þannig: 1. gr. Auk biskups landsins skulu vera hér á landi tveir vígslubiskupar (officiales), annar í Skálholtsbiskupsdæmi hinu forna, en hinn í Hóla- biskupsdæmi hinu forna. 2. gr. Konungur skipar vígslubiskupana eftir tillögum prestastéttarinnar í hvoru biskupsdæmi, skulu þeir hafa biskupsvígslu. Til vígslukostn- aðar, er þeir vígjast, skulu hvorum þeirra greiddar 500 kr. úr landssjóði. 3. gr. Annar vígslubiskup- anna vígir biskup landsins, er svo stendur á að fráfarandi biskup getur eigi gert það. í forföllum biskups vígja þeir pg presta, hvor í sínu umdæmi. Fyrir biskupsverk, er þeir vinna í forföllum biskups, greiðist þeim úr landssjóði borgun eftir reikningi. Lengri eru' lögin ekki og fná áf þeim sjá að .verksVið vígslu- biskupa er ekki mikið. Það er nánast eingöngu fólgið í því að tryggja það að biskupsvígður maður sé í landinu en ekki þurfi að sækja vígslur utan. En enda þótt hlutverk þeirra vígslu- biskupa sé lítið samkvæmt Þrítíð GeMaugs Magnússonar Þrítíð Geirlaugs Magnússonar Þrítíð, Ijóðabók Geirlaugs Magnússonar, er gefin út á Sauðárkróki. Guðbrandur Magnússon sá um setningu og útlitshönnun en Sást sf. prent- aði. Kápumynd gerði Gyrðir skáld Elíasson. Frágangur bókarinnar er til fyrirmyndar. Undanfarin ár hefur Geir- laugur kennt við Fjölbrauta- skólann á Sauðárkróki og m.a. tekið drjúgan þátt í leiklistarlífi þar. Hann var líka einn af stofnendum jassklúbbsins á staðnum, enda er músík og hljómur í þessari bók: „norðan- garrinn blístrargræðgivalsinn.” Oft eru endurtekin stef eins og í hljómkviðum eða fornum döns- um. Geirlaugur skiptir bókinni í þrennt eftir tíðum eins og nafnið bendir til: fyrst þátíð, síðan nútíð og loks framtið. Þessi skiptingerþóekkiskörp. Fyrsti hlutinn er í endurminningastíl að er best verður séð og vitnar um ferðalög höfundar og langdvalir á erlendri grund. Astarsaga ersögð í fáum orðum. Þarna er þó ekki eingöngu persónuleg saga. Almenn málefni eru einnig til umræðu og blandast einkennilega saman við hiðeinstaklingsbundna. Það gætir ótta við fortíðina: „hún eltir þig” (bls. 13). Ástæða þessa ótta gætu verið svikin. Stefið á bls. 17, „Þú svíkur aðeins einu sinni”, finnst mér benda bæði til svika mannanna við heiminn og svika einstaklingsins við sjálfan sig og sína nánustu. I aðra röndina gætir þó eftirsjár í garð fortíðarinnar eins og fram kemur í ástarsögunni í upphafi og orðunum „girnist sífellt spor þín” (bls. 12). Þegarsvostendur á er tónninn mildari en endranær, jafnvel blandinn góðlátlegri kímni: Það var einu sinni reyndar eins gott að ekki var oftar einu sinni var og varð ekki úr neinu einu sinni hefði gælt við að yrði oftar það sem ekki einusinni var einusinni Er þetta lítil ástarsaga óreynds unglings? Miðhlutinn,agúrkuspretta nú- tíðar, er stærsti hluti bókar- innar. Þar er víða komið við,m.a. gerð grein fyrir vanda kennarans í tvíræðu kvæði (bls.44). Vandi og efasemdir skáldsins eru einnig til umræðu: „glöp þín gengin á þrykk”. Örstuttar en kraftmiklar athugasemdir eins og þessi finnst mér einkenna bókina. Hins vegar virðist heildarsvipur sumra kvæða ekki nógu skýr. Það má því kannski segja að Geirlaugur komi fram í Þrítíð sem meistari gullkornanna. Auðsæ eru tengsl Geirlaugs við íslensk fornkvæði og sögur. Þjóðsagan er stundum í bak- grunni ljóðanna. Er t.d. ekki djákninn á Myrká á sveimi í kvæðinu á bls. 57 sem endar á þessum hraðfleygu orðum: „sendi hraðskeyti frá svefni til vöku.” Einfarinn og bölsýnismaður- inn er áberandi á síðum þessarar bókar. Tæpast er tilviljun að martraða er getið oftar en einu sinni. Ádeila birtist á nútíðina,m.a. lygi, spillingu, þröngsýni(sbr. bls.73) og van- þekkingu. Fólk er að fást við lögunum þá væntu þeir menn, þess sem að samþykktinni stóðu, að mjór væri mikils vísir. Við vígslu séra Geirs Sæmunds- sonar hins fyrsta vígslubiskups Hólastiftis á Hólum sagði biskup íslands, Þórhallur Bjarnason svo: „Nú tel ég það langmest undir Norðlendingum sjálfum komið, hvort þessi nýgræddi vísir til viðreisnar biskupsstóli Norðurlands nær vexti og þroska.” Nú í ár eru 75 ár frá þessari fyrstu vígslu vígslubiskups á Hólum. í Hóladómkirkju hafði aðeins einu sinni áður verið biskupsvígsla. Það var árið 1797 þegar síðasti Hólabiskupinn, Sigurður Stefánsson, vígði þar Geir Vídalín, en hann varð skömmu seinna biskup alls landsins er fornu biskupsstól- amir voru lagðir niður. Eins og að framan greinir vaknaði strax áhugi fyrir því, að vígslubiskupsembættið mætti vaxa svo og þroskast að vígslubiskupinn yrði sjálfsagður forystumaður kirkjunnar í stiftinu, og enda þótt lög hafi brostið til hafa vígslubiskup- amir gegnt veigamiklu hlutverki í kirkjulífi á Norðurlandi. Frá 1910 . hefur . vígslubiskupínn verið sjálfkjörinn formaður Prestafélags hins forna Hóla- stiftis og með því skapað sér ákveðinn sess. Þegar lesin er kirkjusaga 20. aldarinnarfram á þennan dag má það vera öllum ljóst, að enginn staður á Norðurlandi er kirkjuleg mið- stöð á borð 'við Hóla. Þar eru tíðum haldnir fundir presta og leikmanna á vegum presta- félagsins. Þá hefur sú nýbreytni verið upp tekin að sumarbúðir starfa hluta úr sumri þar sem koma um 150 börn sumarhvert. Þar er um að ræða góða samvinnu Bændaskólans og kirkjunnar í prófastsdæminu. Skólahald og staðarhald á Hólum er til fyrirmyndar og kæmi biskupsembættið til með að njóta góðs af því. Hafa skólanefnd og skólastjórar lýst áhuga sínum til þess að biskupinn flytji þangað heim og boðið aðstoð sína til þess að svo megi verða. Upphaf þess að málið tók að hreyfast var það, að séra Sigurður Guðmundsson lýsti því yfir á afmælishátíð Sauðár- krókskirkju árið 1982 að hann væri tilbúinn að flytjast til Hóla yrði embættinu búin aðstaða til þess. Þegar svo prestakallið varð laust í sumar fékk umræðan byr á ný og telja margir að nú verði unnt að skapa embættinu þær aðstæður er munu verða kirkju- lífi stiftisins til eflingar. Samkvæmt lögum þarf að auglýsa prestakall laust til umsóknar þegar það losnar. Sóknarnefndir og prófastur Skagafjarðarprófastsdæmis héldu fund til þess að ræða það mál 11. júlí í sumar. Sóknar- nefndir gerðu meira en að fallast á heldur óskuðu þær eftir að kallinu yrði ekki slegið upp meðan reynt yrði á það hvort embættið fengist flutt þangað heim. Prestar Skagafjarðar- prófastsdæmis gerðu áþekka samþykkt 12. júlí. Á báðum fundunum var óskað eftir flutningi embættisins heim til Hóla um leið og starf og hlutverk biskupsins yrði aukið. Það yrði að haldast í hendur. Á Hóladegi 18. ágúst gerði Hólafélagið svipaða samþykkt og fleiri samþykkta er vissulega að vænta. Starfsmannafrumvarp þjóð- kirkjunnar verður lagt fyrir Alþingi í haust. Þar er gert ráð fyrir þremur fullgildum biskupsembættum jDÓtt áfram verði einn biskup Islands. Án þess að lögunum frá 1909 verði breytt og hlutverk vígslubiskups aukið hefur flutningur embætt- isins heim að Hólum ekki mikið Séra Hjálmar Jónsson prófastur. Geirlaugur Magnússon, kennari og ljóðskáld. hluti sem það hefur ekki vit á: „blindir lýsa sólsetrum” (bls.24). „í garðinum vaxa steypublóm,” segir á öðrum stað og gefur slíkt til kynna fjarlægð nútímamannsins við lífið. I einu kvæði í miðhlutanum (bls.41) er orðið síðasti ríkjandi. Það er eins og allt sé á síðasta snúningi. Og ekki batnar ástandið í síðasta hlutanum.framtíðarspám sam- hljóðanna. Sérstaklega virðist lokakvæði bókarinnar hlaðið vantrú á framtíðina. Það eru hinar „innkeyptu andvökur”(bls.74), hinn horfni vilji (bls.75), sem loka okkur inni, og Geirlaugur bendir ekki á neina útgönguleið. Þess vegna veit ég að margir munu vilja kalla Geirlaug neikvæðan. En neikvæður maður getur haft jákvæðari áhrifen sájákvæði því hann lætur síður blekkjast og getur því betur bent á aðsteðjandi ógnir. Eg óska Geirlaugi til hamingju með þessa bók. Hún er óvenjuleg og skáldleg. Sum kvæði hennar yrkir einungis sá sem valdið hefur. P.S. í umsögn um bók Gyrðis Elíassonar sem birtist í Feyki í maímánuði slæddust prentvillur eins og stundum vill verða: Kvæði geta verið torræð en varla torræðin, og höfundur bikarsins er að sjálfsögðu Jóhann Sigurjónsson. Baldur Hafstað. Óháð fréttablað ^ fyrir Norðurland vestra rEYKIR ■ RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Hávar Sigurjónsson ■ ÚTGEFANDI: Feykir hf. ■ SKRIFSTOFA: Aðalgötu 2, Sauðárkróki ■ PÖSTFANG:Pósthólf4,550Sauðárkrókur ■ SÍMI: 95:5757 ■ STJÓRN FEYKIS HF.: Hilmir Jóhannesson, Sr. Hjálmar Jónsson, Jón F. Hjartarson, Sigurður Ágústsson, Sæmundur Hermannsson ■ BLAÐAMENN: Magnús Ólafsson, Hjálmar Jónsson ■ ÁSKRIFTARVERÐ: 28 krónur hvert tölublað; í lausasölu 30 kr. ■ GRUNNVERÐ AUGLÝSINGA: 120 krónur hver dálksentimetri ■ ÚTGÁFUTÍÐNI: Annan hvern miðvikudag ■ PRENTUN: Dagsprent hf., Akureyri ■ SETNING OG UM- BROT: SÁST sf., Sauðárkróki.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.