Feykir


Feykir - 28.08.1985, Page 4

Feykir - 28.08.1985, Page 4
4 FEYKIR 17/1985 Dagvistm í heimahúsum: Setning reglugerðarinnar veldur ugg Þann 1. febrúar tók gildi reglugerð um dagvistun barna í heimahúsum á Sauðárkróki. Samkvæmt reglugerðinni þurfa nú allir þeir er vilja stunda gæslu barna í heimahúsum að sækja um leyfi til félagsmálaráðs bæjarins er veitir leyfin að uppfyiltum ákveðnum skilyrðum. Það hefur vakið nokkurn ugg meðal fólks að svo virðist sem í kjölfar þessarar reglugerðar hafi þær dagmæður er lengst og best hafa starfað undanfarin ár, hætt þessari starfsemi og snúið sér að öðrum störfum. Margir hafa því lent í vandræðum með gæslu fyrir yngstu börnin, eða sjá fram á vandræði þegar liður á haustið og skólarfara að byrja. Feykir snéri sér til Mattíasar Viktorssonar félagsmálastjóra Sauðárkróksbæjar og bað hann að skýra ákvæði reglugerðarinnar og hvers vegan talin hefði verið þörf á henni á Sauðárkróki. Þá snérum við okkur til nokkurra þeirra dagmæðra sem starfað hafa á Sauðárkróki undanfarin ár með góðum árangri en hafa nú snúið sér að öðru. Einnig höfðum við tal af Herdísi Klausen hjúkrunarforstjóra Sjúkrahúss Sauðárkróks og spurðum hvort vart hefði orðið við að starfsfólk væri í vandræðum með yngstu börnin. Skyldi þennan snáða vanta dagmömmu í haust? Hvað segja dagmömmur Mattías Viktorsson félags- málastjóri sagði að með útgáfu þessarar reglugerðar vildi Félags- málaráð Sauðárkróks stuðla að góðri líðan barnanna á heimil- unum og jákvæðum sam- skiptum forráðamanna þeirra og dagmæðra. „Reglugerð sem þessi, er í gildi í flestum stærri bæjar- félögum landsins og er í samræmi við 35. grein reglu- gerðar um vernd barna og unglinga, cn þar er kveðið á um að óheimilt sé að taka börn í dagvistun gegn gjaldi, nema viðkomandi hafi verið veitt leyfi til þess frá barnaverndarnefnd (lelagsmálaráði). Þessari reglugerð er fyrst og fremst ætlað að tryggja, að nægilegt eftirlit sé með þessari starfsemi og tryggt sé að annast sé um börnin á viðunandi hátt. Með þessu höfum við yfirlit um það hversu mörg börn eru í dagvistun í heimahúsum á hverjum tíma og getum veitt bæði foreldrum og dagmæðrum aðstoð og verið þeim til leiðbeiningar um vmis atriði. Það má t.d. nefna að í flestum bæjarlélögum þar sem svipuð reglugerð er í gildi ereinstæðum foreldrum endurgreiddur sá kostnaður sem slík dagvistun leiðir af sér. Ég á von á að hið sama verði tekið upp hér, þó það sé endanlega í úrskurðarvaldi bæjarstjórnar. F.g get ekki svarað til um hvort þessi reglugerð verður til þess að dagvistarplássum fækkarfrá því sem verið hefur, því við vitum ekki hversu mörg börn voru í slíkri gæslu. Það kæmi mérhins Herdís Klausen hjúkrunar- forstjóri á Sjúkrahúsi Skagfirð- inga sagði í samtali við Fcyki að þar væri þegar farið að bera á vandræðum hjá starfsfólkinu vegna skorts á dagvistun fyrir börn þeirra. „Það eru tvær búnar að segja upp nú þegar, en að auki eru 16 konur sem vinna hér á spítalanum með börn á þessum aldri. Margar hafa sagst verða að segja upp ef ekki rætist úr þessu. Sam- tals eiga þessar konur 22 börn. Stjórn Sjúkrahússins hefur fjall- að um þetta mál og fyrir liggur bréf frá deildarstjórum á Sjúkrahúsinu þar sem þess er krafist að fundnar verði leiðir til úrbóta. vegar á óvart ef þetta yrði til þess. Ég hef hérna fyrir framan mig 5 umsóknirfrá dagmæðrum sem óska eftir leyfi og þar yrði um að ræða 15-20 pláss. Varðandi þær dagmæður sem hafa hætt, þá skilst mér að þær hafi hætt af öðrum ástæðum en ekki vegna reglugerðarinnar. Eftirað þessar umsóknirsem nú liggja fyrir hafa verið af- greiddar, þá reikna ég með að ástandið komist í gott horf á nýjan leik og foreldrar þurfi ekki að óttast að fá ekki vistun fyrir börnin sín. Varðandi ákvæði reglugerðar- innar urn fjölda barna hjá hverri dagmömmu þá eru þau skýr. Hver þeirra má hafa 4 börn í gæslu á hverjum tíma og eru þá meðtalin eigin börn undir 6ára aldri. Þá verður veitt undanþága um eitt barn til viðbótar fyrir þær dagmæður sem starfað hafa lengi og hafa mjög góða aðstöðu. Varðandi gjaldskrá um dagvistun í heimahúsum þá vil ég taka fram að félagsmálaráð skiptir sér ekki af því. Flestar dagmæður hafa farið eftir gildandi gjaldskrám frá öðrum stöðum i.d. Akureyri og Reykjavík, en að öðru leyti er það samkomulagsatriði milli forráðamanna barnsins og dag- mæðranna. Ég vil einnig taka það skýrt fram að þessari reglugerð er ekki síður ætlað að tryggja stöðu dagmæðranna en foreldranna og barnsins, og ef hún reynist hér sem annars staðar, þá verður hún einungis til þess að tryggja aukið öryggi fyrir alla aðila”, sagði Mattías Viktorsson félagsmálastjóri. Hér vinna nær allir á vöktum, ýntist hálft eða heilt starf, og það skiptist þannig að í hálfu vakiavinnustarfi cru unnar færri vaktir i mánuði en ekki eins og tíðkast á öðrum vinnustöðum fyrir eða eftir hádegi. Það getur farið svo að núna upp úr mánaðamótum skapist vand- ræðaástand vegna þessa. Það er engin lausn að ráða aðra í staðinn fyrir þá sem yrðu að segja upp, því bæði er um mjög gott starfsfólk að ræða sem hefur sumt unnið hér lengi og einnig er fráleitt að mismuna fólki þannig að þeir með börniri verði að fórna atvinnunni,” sagði Herdís Klausen hjúkr- unarforstjóri. Guðmunda Krístjánsdóttir hefur starfað sem dagmamma á Sauðárkróki undanfarin 5 - 6 ár. Nú er hún hætt ogfarinað vinna við annað. Feykir spurði Guðmundu hvort hún hefði hætt vegna þess að sér fyndist reglugerðin þrengja um of að sér. „Nei, ekki vil ég segja það. Ég hef hins vegar beðið allar götur frá því í vor eftir afgreiðslu Félagsmálaráðs um undan- þágur til þeirra dagmæðra er tekið geta fleiri en4börn. Éghef komið mér upp það góðri aðstöðu að ég tel mig geta tekið fleiri. Félagsmálaráð hefur ekki afgreitt þetta ennþá og allur þessi seinagangur varð til þess að ég ákvað að snúa mér að öðru. Ég er fyllilega meðmælt því að eftirlit sé haft með þessu, en hins vegar finnst mér að í ekki stærra bæjarfélagi séu for- eldrarnir besta eftirlitið. Það er ólíklegt að foreldrar myndu biðja sömu konurnar fyrir böm sín ár eftir ár, ef einhverju væri ábótavant,” sagði Guð- munda Kristjánsdóttir. Sólveig Júlíusdóttir kvaðst einnig hætt störfum sem dagmamma en sagði ástæðurnar aðrar en reglugerðina. „Það var ýmislegt sem hjálpaðist að. Heimilisástæður hafa breyst og mér bauðst starf allan daginn. Það gefur öruggari tekjur og einnig vissi ég ekki hvernig þessi reglugerð kæmi til með að virka,” sagði Sólveig. Ingibjörg Axelsdóttir kvaðst hætt sem dagmamma. „Ég hef engin skýr svör fengið í allt sumar um þessa reglugerð. Þó sýnist mér sem ákvæði um hámark 4 börn, að meðtöldum eigin börnum, myndi gera þetta ómögulegt fyrir mig. Ég er sjálf með börn undir 6 ára aldri. Einnig skilst mér að þar sem ég er með ógirta lóð sé alls óvíst hvort mér yrði veitt leyfi. Hingað til hef ég staðið yfir börnunum í garðinum en þaðer víst ekki nóg. Ég skal ekkert um það segja hvort þörf var fyrir þessa reglugerð en mín reynsla er sú að ef eitthvað væri athugavert hjá manni þá dytti maður sjálfkrafa út,” sagði Ingibjörg. Hulda Jónsdóttir er sú dagmamma sem einna lengst hefur starfað á þessum vett- vangi. Hún sagðist ekki hætt og myndi halda sínu striki. Hún tók í sama streng og hinar varðandi eftirlitið, það væri sjálfvirkt, því enginn léti börnin sín til þeirra er slæmt orð hefðu. „Þau börn er ég passa eru mikið þessi svokölluðu vakta- vinnubörn og því skiptist fjöldinn nokkuð eftir dögum. Fyrir hádegi erum við bæði hjónin við þetta og þá eru börnin fleiri. Ég er hins vegar enn að bíða eftir niðurstöðu félagsmálaráðs bæjarins og reikna fastlega með að mér verði veitt undanþága frá fjögurra barna reglunni. Ég er orðin svo gömul í þessu,” sagði Hulda. Einar Jónsson byggingameistarí. sagði Einar. 1 lok samtalsins gat Einar þess að þarna væri að rísa fyrsta blokkin á Hvammstanga. „Það er gaman að geta boðið fólki að eignast íbúð í blokk. Fjölbýlis- hús eru á flestum þéttbýlis- stöðum og við hér á Hvamms- tanga viljum ekki vera eftirbátar annarra í þeim efnum frekaren öðrum,” sagði Einar Jónsson að lokum. Uppsagnir á Sjúkrahúsimi Hvammstangi: Fyrsta íjölbýlishúsið í smíðum „Við sáum fram á það að lítið yrði fyrir iðnaðarmenn að gera hér á staðnum í sumar. Því ákváðum við að stofna hluta- félag sem byggði íbúðir til að selja. Með þessu sköpum við okkur vinnu og með því að byggja átta íbúðir í blokk náum við byggingarkostnaði hverrar íbúðar niður og getum því boðið þær væntanlegum kaupendum á hagstæðu verði.” Þetta sagði Einar Jónsson byggingameistari á Hvammstanga þegar blm hitti hann að máli á dögunum. Þeir félagar eru að byggja átta íbúða blokk. Þarna verða fjórar 73m2 íbúðir, tvær 57m2 íbúðir og tvær 53m2 íbúðir. Auk þess fylgir öllum íbúðunum sameign og geymsla. íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar næsta vor og er þá í boði fyrir væntanlega kaupendur að fá þær afhentar annað hvort tilbúnar undir tréverk eða fullfrá- gengnar. „Við rennum alveg blint í sjóinn með þetta hvað varðar sölu,” sagði Einar. „Þó hafa ýmsar þreifingar verið í gangi og við trúum ekki öðru en við getum selt þessar íbúðir. Hér vantar íbúðir af þessari stærð og ef fólk á þess kost að fá þær á hagstæðu verði hljóta að finnast kaupendur.” „Það getur ekki gengið til lengdar að fólk byggi bara íbúðarhús á einum stað á landinu, þ.e. Suðvesturhominu, eins og nú hefur verið um skeið,” sagði Einar. „Þjóðfélagið þolir ekki til lengdar þá miklu jjenslu sem þar hefur verið. Þessu verður að snúa við og gera fólki kleift að byggja yfirsig og búa út um landsbyggðina: þar verða verðmætin til og þau verða ekki til nema fólkið sé þar áfram.” Einar sagði að þeir félagar hjá hlutafélaginu Starra hf væru búnir að tryggja sér fjármagn til þess að gera þessar íbúðir fokheldar. Stefnt væri að því að húsið yrði fokhelt í september. Þeir hafa þann hátt á við bygginguna að bjóða sem flesta verkþætti út í smærri einingum. „A þennan hátt geta mennirnir fengið betra kaup fyrir sína vinnu og verkið gengur betur,”

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.