Feykir


Feykir - 28.08.1985, Síða 6

Feykir - 28.08.1985, Síða 6
6 FEYKIR 17/1985 ÍÞRÓTTIR Islandsmótið 3. deild: Neskaupstaðarvöllur 14. ágúst. Þróttur - Tindastóll 0-0. Fyrir tveimur árum tryggði Tindastóll sér annarar deildar sæti í leik á Neskaupstað og voru þá í miklum baráttuham. Annað var uppi á teningnum í þessum leik, leikmenn Tindastóls voru algerlega viljalausir en Þrótt- ararnir voru gufu brjálaðir og sóttu stíft alveg fram í miðjan seinni hálfleik, án þess þó að skapa sér veruleg marktækifæri. Það var aðeins síðasta fjórðung- inn í leiknum sem eitthvert lífsmark sást með Stólnum, en það var ekki nóg til að stela öllum stigunum sem í boði voru. Sauðárkróksvöllur 17. ágúst. Tindastóll - Valur 2-0. Allt annar bragur var á Stólnum í þessum leik og var hann þeirra eign frá upphafi til enda og brá oft fyrir ágætum samleiksköflum, þó mörkin hefðu mátt vera fleiri. Snemma í leiknum skoraði Guðbrandur glæsilega með skemmtilegu skoti frá vítateigslínu efst í bláhornið. Birgir Rafnsson varafyrirliði, stangaði svo bolt- ann í markið eftir hornspyrnu rétt undir lok leiksins. En eins og áður sagði þá hefði Tindastólsliðið átt að skora miklu fleiri mörk, því færin voru mjög mörg í leiknum. Vopnafjarðarvöllur 24. ágúst. Einherji - Tindastóll 1-1. Og þar með fór síðasta von Tindastólsmanna um sigur í riðlinum, þar sem Magni vann þennan sama dag Val á Reyðarfirði 1 -0. Tindastóll spilar því í þriðju deild að ári og nú segja gárungarnir að liðið ætli sér ekki upp nema vera nokkuð visst um að vinna bróðurpartinn af leikjunum í annarri deildinni. Völlurinn á Vopnafirði var algjörlega á floti og þungur yfirferðar eftir miklar rigningar í vikunni, en veðrið á Vopnafirði þennan dag var ágætt, smá gola og úði og flest allir íbúar staðarins mættir til að hvetja sína menn. Um leikinn er það að segja að Stólarnir, sem léku án baráttujaxlsins Björns Sverris- sonar sem var í leikbanni, voru frekar daufir framan af leiknum en náðu þó að skapa sér fáein færi sem, nýttust ekki. Það verður að se^jast eins og er að það var Arna Stefánssyni markverði að þakka að Tinda- stóll varekki undirí hálfleik,því sóknir Einherja voru mjög hættulegar. Einherji skoraði svo snemma í síðari hálfleik og var þar Stefán Guðmundsson að verki með skoti af stuttu færi. Nú tóku Stólarnir heldur betur við sér og tíu mínútum síðar höfðu þeir jafnað er Eyjólfur Sverrisson skaut viðstöðulausu þrumuskoti frá vítateig neðst í bláhornið. Tindastóll sótti mun meira það sem eftir var leiksins en fleiri mörk voru ekki skoruð. Staðan fyrir síðustu umferð er þá þannig að Einherji er með 33 stig, Magni 32, Tindastóll 30 og Leiknir 28, allir eftir 15 leiki. Eftirtaldir leikmenn hafa leikið síðustu leiki fyrir Tindastól: Arni, Pétur, Birgir, Þorvarður, Þórhallur, Rúnar, Hólmar, Björn, Örn, Eiríkur, Eyjólfur, Guðbrandur, Páll, Sverrir og Stefán. h í ÞÆR SMÁU Hundur tapaöur. Tapast hefur hundurfrá Blöndu- ósi (er úr Skagafirði) helgina 17. - 18. ágúst. Hann ersvartur með hvítan háls og er af Lassy kyni. Hann gegnir nafninu Lappi. Álitið er að sést hafi til hans í Blöndudal. Þeir sem hafa séð hann og vita hvar hann er vinsamlegast hringið í síma 95-6183. Tll sölu Citroen GSA1982. Ekinn 43.000 km. Mjög góöur bíll. Útvarp, sumar og vetrardekk. Upplýsingar í síma 95-1548. Leiðrétting í síðasta tbl. sögðum við frá votheysturni þeirra feðganna Þórðar Þorsteinssonar og Þor- steins Þórðarsonar á Grund í Svínavatnshreppi. Þar var ör- lítill miskilningur á ferðinni, því sagt var að á turninum væri búnaður er gerði kleift að fylgjast með ásigkomulagi hey- sins. Þetta er ekki alveg rétt, því slíkur búnaður er ekki á turninum en hins vegar hafa þeir feðgar tæki er þeir mæla með rakastig heysins áður en það er sett í turninn. Feykir biður hlutaðeigandi velvirðingar á þessum mis- tökum. Sparifjáreigendur, athugið! Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga minnir á SAMVINNUBÓKINA sem nú ber 36,5% nafnvexti eða 39,83% ársávöxtun! SAMVINNUBÓKIN hagstæðasta innlánsformið. SAUÐÁRKRÓKI - HOFSÓSI - VARMAHLÍÐ - FLJÓTUM Rýmingarsala á búvélavarahlutum Fyrir dyrum standa lagfæringar á húsnæði Vélavals og af því tilefni bjóðast allir búvélavarahlutir með 15% afslætti í september. Þarna eru t.d. nokkrir tindar í: KUHN fjölfætlur og stjörnumúgavélar - FELLA fjölfætlur HEUMA múgavélar - KEMPER og WELGER heyvagna NEW HOLLAND bindivélar og margskonar aðrir varahlutir. Væri ekki hagstætt að athuga þetta og vera í tíma með innkaup ávarahlutum fyrir næsta sumar? Vélaval Varmahlið, sfml 6118 Fasteignir til sölu. 3 herbergja íbúð, Grænubrekku 3, efri hæð 1,2m Húsgrunnur við Fellstún,steyptir sökklar. 450 þús. Húsgrunnur við Lerkihlíð, steypt plata. Tilboð. Einbýlishús í smíðum við Dalatún 4. Tilboð. 4 herbergja íbúð í fjölbýlishúsi, Víðigr. 8. 1,8m. 5 herb. raðhús, Raftahlíð 30. Bílskúr. 2,2m. Raðhús á tveimur hæðum við Grenihlíð 3. Fullbúið utan sem innan. 3m. Einbýlishús við Hólaveg 8. Bílskúr. 2,4m. Einbýlishús við Skagfirðingabraut 7. 1,6m. Einbýlishús við Smáragrund 1. Bílskúr. 4m. Einbýlishús við Grundarstíg 10. Bílskúr. 3,5m. 3 herb. íbúð við Skagfirðingabr. 1,1 m. 5 herb. raðhús, fullbúiö m/bílskúr. 2,7m. Upplýsingar gefur Ágúst Guðmundsson í síma 95-5859. Útboð Vegagerð ríkisins óskareftirtilboðum í eftirtalin verk: Girðing um áhaldahússlóð. Vinnsla timburs og smíði 110 m. skjólgirðingar um áhaldahússlóð á Sauðárkróki. Þrifaplan við Áhaldahús. Steypa þrifaplan (320m2) og lögn snjóbræöslukerfis. Útboðsgögn veröa afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki frá og með 2. sept. 1985. Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 þann 9. september 1985. Vegamálastjóri - Af einlægni þakka ég þeim, er sendu mér heillaóskaskeyti og gjafír á afmælisdegi mínum 7. ágúst 1985. Ég hafði ekki þörf fyrir gjafir. Ég hef nóg fyrir mig að leggja og stutt eftir. Og þessar gjafir koma mér ekki að gagni síðar. Ég get búist við, að í næstu jarðvist verði mér fenginn staður í Indlandi eða Suður- Ameríku og ekki einu sinni pennahnífur úr silfri frá bróður mínum, þolir tímans tönn milli jarðvista. En gjafir þessar eru tákn um vináttu og hlýjan hug. Mér og öðrum er það mikUsvert að eiga vinarhug samtíðarfólks. Af heilum hug þakka ég vinum mínum, er sendu mér skeyti og gjafir á afmælisdaginn og óska þeim allra hcilla á komandi tímum. Bjöm Egilsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför Olafs Þorsteinssonar, Asi, Hofsósi. Pála Arnadóttir Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför sonar míns, Siguijóns Guðjónssonar, Bámstíg 15, Sauðárkróki. Guð blessi ykkur. Guðjón Einarsson OKKAR VERÐ! Strásykur 2 kg. 35.00 Kaaber kaffi 192.00 Frón matarkex 56.00 Holtabót 259.00 Cheerios 63.00 Prik þvottaduft 173.60 Góðu kjörin kynna má kaupmannsins í Ijósi. Komdu við og versla hjá Vísi á Blönduósi. Verslunin VÍSIR Blönduósi

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.