Feykir


Feykir - 28.08.1985, Page 7

Feykir - 28.08.1985, Page 7
17/1985 FEYKIR 7 HVAMMSTANGABÚAR NÆRSVEITAMENN Nýkomið í miklu úrvali - teppi, dúkar og dreglar í byggingavörudeild. SKÓLAVÖRURNAR ERU KOMNAR: skólatöskur - pennaveski og öll ritföng til skólans HAUSTEFNIN KOMIN - FATNAÐUR Á SKÓLABÖRNIN Erum að taka upp úlpur, peysur, buxur o.mfl. Kaupfélag Vestur- Húnvetninga Hvammstanga Sími 1370 Hefurðu komið í litlu búðina með lága verðíð? Matvörur - hreinlætisvörur - ávextir - grænmeti mjólk - ný brauð daglega - VISA þjónusta VÖRUVERÐ f LÁGMARKI Vísnaþáttur Valnastakkur, hinn dyggi og snjalli hagyrðingur Feykis, vará ferðinni í Skagafirði í sumar og fór þá m.a. framhjá æsku- stöðvum Indíönu Sigmunds- dóttur. Indíana og Valna- stakkur hafa ort hvort til annars í Feyki í gegnum tíðina og hér koma vísur Valnastakks úr Skagafjarðarferðinni í sumar. Við æskustöðvar Indíönu varð skáldinu þetta að vísu: Kom í Fljótin kvelds um stund, kyrrð tók móti halnum, dreyma tók þá djarfa í lund, dömu úr Flókasalnum. (dal- num) Og er Skagafjörðurinn birtist Valnastakki í allri sinni sumar- dýrð yngdist hann um allan helming og kvað: Fossar ennþá fjör í æðum, fegurð lífsins glöggt ég skil, lifir enn í gömlum glæðum, gaman er að vera til. Síðan dró ský fyrir sólu og Valnastakkur strauk hendi yfir gisinn kollinn... Engan þarf að undra það eða telja skrýtið, þó fjöregg mitt sé farið að fölna öfurlítið. Að Mælifelli bíll mig bar í blíðum sunnan vindi, hugðist ég þá heldur snar hitta þig í skyndi. En ekkert varð úr samfundum í það sinnið og biður Valna- stakkur því Feyki fyrir góðar kveðjur til Indíönu og þakklæti fyrir vísurnar fyrr í sumar. Valnastakkur er þó ekki allur af baki dottinn og kveður Indíönu með þessu fyrirheiti: Yrkjum við um ævistíg, yndi af ljóðum stafar, en hugsa mér að hitta þig hinu megin grafar. Kveðja tíl fyrrverandi ritstjóra Guðbrands Magnússonar Hólmfríður Jónasdóttir á Sauðárkróki sendir fyrrverandi ritstjóra Feykis, Guðbrandi Magnússyni, eftirfarandi vísur með bestu kveðjum: Njóttu þín vel í nýjum rann, nóg að tína í gogginn, úr þér geri íhaldsmann elsku hjartans Mogginn. líttu inn K-KAUP - Varmahlíð Og enn kom Valnastakki Indíana í hug er komið var í næturstað á Hótel Mælifelli á Sauðárkróki: Góðum málum ljáðu lið legg á veginn kunnan, haltu þér fast við hlutleysið hjá þeim fyrir sunnan. Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki verður settur miðvikudaginn 4. september n.k. kl. 11.00. Nemendur fá afhentar stundaskrár gegn greiðslu skólagjalda. Skólameistari Fasteign til sölu. Grundarstígur. 133,7m2 einbýlishús á einni hæð ásamt 33m2bílskúr. Verð 3,5 millj. Nánari upplýsingar í Eignamiðstöðinni, Skipagötu 14 Akureyri. Sími 96-24606. SAUÐÁRKRÓKSBÆR Auglýsing um greiðslu fasteigna- gjalda í vanskilum áríð 1985 og eldri til Sauðárkrókskaupstaðar. Með vísan til 1. gr. laga nr. 49frá 1951 um sölu lögveða án undangengins lögtaks er hér með skorað á þá gjaldendur á Sauðárkróki sem enn eiga ógreidd fasteignagjöld árið 1985og eldri að greiða gjöldin ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði nú þegar. Verði gjöldin ekki greidd án tafarog í síðasta lagi 30 dögum eftir birtingu þessarar auglýsingar verður beðið um nauðungaruppboð á við- komandi fasteignum til fullnustu á gjöldunum. Sauðárkróki 28. ágúst 1985 Innheimta Sauðárkróksbæjar ....... ................ SAMÐÝLI FYRIR FATLAÐA Á NORÐURLANDI VESTRA. Á vegum svæðisstjórnar málefna fatlaðra Norðurlandi vestra fer nú fram könnun á þörf fyrir sambýli í Skagafirði, Húnavatnssýslum og Siglufirði. Sambýli er heimili fámenns hóps fatlaðra (oftast 5-6) þar sem þeir njóta öryggis, verndar og þjónustu líkast því sem gerist á venjulegum heimilum. Á vegum svæðisstjórnar Norðurlands vestra er nú rekið sambýli á Siglufirði, og er það fullsetið. Stofnkostnaður sambýla þ.e. kaup eða nýbygging er greidd úr Framkvæmdasjóði fatlaðra, ríkissjóður greiðir starfsfólki laun, en allur venjulegur heimilisrekstur er greiddur af örorkubótum íbúanna. í þessari könnun svæðisstjórnar Norðurlands vestrasem stendurfram yfir mánaðarmót, ermjög mikilvægtaðallirfatlaðir 16áraog eldri, sem þurfa á vistun að halda, sendi inn umsókn eða bráðabirgðaumsókn þannig að svæðisstjórn fái sem gleggstar upplýsingar um þörfina á svæðinu. Þá eru forráðamenn fatlaðra sem þurfa á vistun að halda á næstu árum hvattir til að senda svæðisstjórn línu þannig að í tíma sé hægt að gera sér sem besta grein fyrirsambýlis-og þjónustuþörfinni á svæðinu. Þeir sem þess óska geta fengið sérstök umsóknareyðublöð á skrifstofu svæðisstjórnar. Umsóknir sendist til skrifstofu svæðis- stjórnar í Varmahlíð. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu svæðisstjórnar í Hótel Varmahlíð, sími 95-6232, og í þjónustumiðstöð fatlaðra á Siglufirði, sími 96-71117. Svæðisstjórn málefna fatlaðra Norðurlandi vestra, Pósthólf 32, sími 95-6232, Hótel Varmahlíð, 560 Varmahlíð.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.