Feykir - 04.12.1985, Qupperneq 12
4. desember 1985,
Beykir
24. tbl. - 5. árg.
,^° ÍP ALDREI GLÆSILEGRA JWJ
|0\j/ ALDREISKEMMTILEGRA
HÓTEL MÆLIFELL
tý' Borðapantanir i síma 5265
Héraðsskjalasqfh A-Hún.:
Heija útgáfu á
Héraðsskjalasafn A-Húnavatns-
sýslu hefur ráðið Pétur Sigurðsson
á Skeggsstöðum til þess að ganga
frá ýmsum handritum úr dánarbúi
Bjarna Jónassonar í Blöndudals-
hólum til prentunar og er ráðgert
að safnið gefl út bók með þeim
vcrkum á næsta ári. Þá mun Pétur
einnnig skrifa í þá bók um Bjarna,
sem var mjög merkur fræðimaður.
Þessi útgáfa verður sú fyrsta, sem
Héraðsskjalasafnið stendur fyrir,
en siðar er áformað að gefa út fleiri
verk. M.a. er hugmynd uppi að
gefa út ljósprentun af bókinni
Föðurtún eftir Pál V.G. Kolka en
sú bók hefur lengi verið uppseld.
Arlega er Héraðsskjalasafninu
gefið mikið af skjölum, bókum og
myndum. T.d. afhenti Auðunn
Guðmundsson frá Austurhlíð á
síðasta ári safninu mikið af
handritum, skjölum og bókum úr
safni föður síns Guðmundar
Jósafatssonar. Þær bækur féllu vel
inn í ættfræði og heimildasafn
skjalasafnsins.
Arlega er reynt að kaupa til
safnsins öll nýútgefin ættfræðirit og
skjöl tengd ættfræði.
A síðasta ári voru um 50 aðilar,
sem gáfu til safnsins. A þessu ári er
útlit fyrir að gefendur verði fleiri.
Pétur í Miðhúsum og Konráð á
Haukagili hafa ferðast um hérað
undanfarin sumur og safnað og
einnig er mikið um það að fólk
komi með bækur, myndir og skjöl
til safnsins.
I safninu er góð aðstaða fyrir þá,
sem vilja stunda þar fríeðistörf. Sú
aðstaða er notuð í vaxandi mæli
m.a. af þeim, sem eru að grúska í
ættfræði eða ungu fólki, sem er að
Sauðárkrókur:
Ur bæjarstjóm
með meira
Tónlistarskólinn eignast húsnæði
Bæjarráð hefur samþykkt að
ganga til samninga við eiganda
Borgarmýrar la um kaup á
húsnæðinu undir starfsemi Tón-
listarskóla Sauðárkróks. Tón-
listarskólinn hefur verið í þessu
húsnæði undanfarin ár en búið
við ótrygg skilyrði og óvissu um
framhald verunnar þar og knúið
á við bæjaryfirvöld að húsnæðið
yrði keypt. Nú hefur bærinn
scmsagt fallist á þetta og ætlar
að ganga til samninga við
Astvald Guðmundsson eiganda
Borgarmýrar la. Kaupverð
hússins mun vera um 6
milljónir.
Einstæðir foreldrar fái endur-
greitt
Einstæðir foreldrar á Sauðár-
króki hafa óskað eftir því að þeir
fái endurgreidd gjöld vegna
dagvistunar barna á einka-
heimilum. Að sögn mun slíkt
tíðkast hjá öðrum sveitar-
félögum og því réttlætiskrafa að
slíkt verði tekið upp hér á
Sauðárkróki.
Kongsberg gefur jólatré
Vinabær Sauðárkróks í Noregi,
Kongsberg, hefur tilkynnt að
Sauðárkróksbæ verði geftð jóla-
tré núna fyrir jólin. Verður
jólatrénu líklega valinn staður á
Kirkjutorginu eins og venja
hefur verið undanfarin ár og
alltaf viss spenningur í bömunum
þegar stendur til að kveikja á
jólatrénu.
Slæni staða bæjarsjóðs
Staða bæjarsjóðs Sauðár-
króks hefur víst sjaldan verið
verri en á þessu hausti.
Aukafjárveitingar hafa farið
fram úr áætlun og ^reiðslu-
erfiðleikar miklir. A fundi
bæjarráðs þann 18. nóvember
lagði Hörður Ingimarsson fram
bókun þess efnis að samin verði
greiðsluáætlun til loka ársins er
sýni áætlaðar tekjur (þ.m.t. lán)
og öll gjöld, þ.m.t. fjárfestingar,
sem ógreiddar eru og hafa vcrið
samþykktar af bæjarstjórn en
voru ekki á fjárhagsáætlun
þessa árs.
Nú er að sjá hvernig brugðist
verður við en víst munu
erfiðleikarnir miklir.
Pálmi hættur við tilboðið
í síðasta blaði sögðum við frá
því að hafnarnefnd Sauðárkróks
hefði samþykkt að taka tilboði
Pálma Friðrikssonar um grjót-
flutninga í sandfangara. Pálmi
hefur nú fallið frá tilboði sínu og
hafnarnefnd samþykkti að taka
tilboði Króksverks hf. en tilboð
þess hljóðaði upp á 3.935.000
þúsund. Tilboð Pálma var
hinsvegar upp á 2.985.000 þús.
næsta árí
safna efni í ritgerðir. Safniðeropið
frá mánudegi til timmtudags frá kl.
14-19 og á öðmm tímum er unnt að
komast þar að eftir samkomulagi
við safnvörð, sem er Þórhildur
Isberg.
Héraðsskjalasafnið er til húsa í
bókhlöðunni á Blönduósi. Skjala-
safnið á 16% af þeirri húseign, en
Héraðsbókasafnið á hinn hluta
hússins. Hluti af húsinu er leigt
undir sýsluskrifstofu, skrifstofu
Blönduóshrepps og lögreglustöð.
Að sögn Jóns ísbergs sýslumanns
standa þær leigutekjurundirrekstri
húseignarinnar og vonast er til þess
að söfnin fái á næstu ámm tekjuraf
húsinu sem geti mnnið til þess að
efla þau og bæta.
Úr einu í annað
Skólabátur smíðaður á Skaga-
strönd.
Nú er að ljúka smíði á 17
tonna trefjaplastbát hjá fyrir-
tækinu Mánavör hf. á Skaga-
strönd. Fiskifélag íslands, Haf-
rannsóknarstofnun og Háskóli
Islands hafa keypt bátinn og
verður hann notaður sem
skólabátur. Fyrirtækið Mána-
vör hf. er vel í stakk búið til þess
að framleiða stóra trefjaplast-
báta. Fyrirtækið hét áður
Skipasmíðastöð Guðmundar
Lárussonar hf. en fyrir nokkru
Vilja 7 hreppsnefndarmenn
Hreppsnefnd Blönduóshrepps
hefur farið þess á leit við
Sýslunefnd A-Hún. að hrepps-
nefnd Blönduóshrepps verði
skipuð 7 hreppsnefndarmönnum
frá og með næstu sveitastjómar-
kosningum. Hreppsncfndarmenn
eru nú 5.
Golfáhugi á Blönduósi
Mikill og vaxandi áhugi er nú
fyrir golfiþróttinni á Blönduósi.
Var völlur tekinn í notkun í
Vatnahverfi í sumar og þar
útbúnar nokkrar brautir. Þessi
aðstaða var stðan mikið notuð
seinni partinn í sumar. Nú hafa
golfáhugamenn farið þess á leit
við hreppsnefnd að þeim verði
úthlutað stærra svæði undir
starfsemina samkvæmt skipu-
lagi. Hafa þeireinnigóskaðeftir
því að gömlu íbúðarhúsi á þessu
svæði verði úthlutað undir
starfsemi nýstofnaðs golfklúbbs.
Golfklúbburinn heitir Ós og var
stofnaður í september sl.
Formaður golfklúbbsins er
Stefán Þ Berndsen.
Leynd yfir vatnsmálum
Bæjarstjórnarmenn á Sauðár-
króki hafa innsiglað varir sínar
útaf samningaviðræðum þeim
sem nú fara fram fyrir luktum
dyrum um hugsanlega vatnssölu
frá Sauðárkróki og lleira þar að
lútandi. Hafa ýrnsir fjölmiðlar
keyptu nýir aðilar hlut í því
fyrirtæki.
Loðdýrabændur kynna fram-
leiðslu sína.
Loðdýrabændur í A-Hún.
verða með kynningu á fram-
leiðslu sinni á Hótel Blönduósi á
föstudaginn og laugardaginn.
Sýnd verða skinn af öllum þeim
afbrigðum refa, sem ræktuð eru
hér á landi, auk einhverra
minkaafbrigða. Þá verða einnig
sýndar myndir af fullunninni
grávöru og loðfeldum.
verið duglegir við að spá t
þögnina og jafnvel slegið fram
fullyrðingum út í loftið í þeirri
von að bæjarstjórnarmenn rjúfi
þögnina og leiðrétti vitleysuna.
Feykir vill ekki brcnna sig á
slíku en fagnar því að þetta
sannar að bæjarfulltrúar gcta
ekki síður þagað cn talað.
Húnvetnsk kveðja?
Sá fáheyrði atburður varð á
leiðinni milli Sauðárkróks og
Varmahlíðar á dögunum að
farþegar í bíl er ók fram úr rútu
Rúnars Gíslasonar, tóku niður
um sig buxur og nærhöld og
snéru þannig sínum óæðri enda
framan í bílstjóra rútunnar og
farþegana, þeim til lítillar
skemmtunar. Farþegarnir í
rútunni voru skólakrakkar af
Sauðárkróki á leið í Varmahlíð
til íþróttakeppni og áttu ekki
orð yfir þennan furðulega
fávitahátt. Til þess að ekki fari
milli mála hverjir þarna voru á
ferðinni og að saklausir menn
verði ekki værtdir um svo
áberandi skort á óbrenglaðri
hugsun, þá upplýsum við hér
með að númer bílsins var H-
3035. Ekki trúum við að þessi
hegðun sé dæmigerð fyrir
Húnvetninga, enda hverri sveit
skylt að kannast við vesalinga
sína ekki síður en aðra.
FEYKIR spyr á
fundi á
Hvammstanga
Telur þú að Samtökin um
jafnrétti milli landshluta nái þeim
árangri, sem þau stefna að?
Sigurður Bjömsson bóndi Kolugili:
Eg hef ekki nokkra trú á að
þau nái öllum sínum baráttu-
málum fram, þó margt sé gott
sem þau boða. T.d. hef ég litla
trú á að stjórnlagaþing verði
samþykkt því þingmenn eru
hræddir um að missa spón úr
aski sínum.
Örn Guðjónsson málarameistari
Hvammstanga:
Eg vona það svo sannarlega
og það gera þau ef fólk fylkir sér
saman og verður virkara og
meðvitaðra um hagsmuni lands-
byggðarinnar.
Birna Lárusdóttir Efribrunni
Dalasýslu:
Þegar búandi fólk í öðrum
kjördæmum finnur hjá sér þörf
að fara langar leiðir til þess að
ræða þessi mál, sýnir það best
hve þörfin er mikil. Við verðum
að taka höndum saman og
spyrna gegn því peningafiæði,
sem streymir til höfuðborgarinnar.
Sr. Ámi Sigurðsson sóknarprestur
Blönduósi:
Það er erfitt að segja um það á
þessu stigi, en við vonum að
samtökunum vaxi svo fiskur um
hrygg að verulegur árangur
náist í því að rétta hlut
byggðanna.