Vestfirska fréttablaðið - 08.03.1995, Page 1
| FRÉTTABLAÐIÐ
PÉTUR BJARNASOM Á ÞING!
Símar á kosningaskrifstofu eru 5342 oa 5344 Vestfjarðaiistinn
Miðvikudagur 8. mars 1995 • 9. tbi. 21. árg.
ST 94-4011 • FAX 94-4423
Verð kr. 170 m/vsk.
Sól tér sortna/sígur fold í mar:
Dópí Hermanns
gengur til liðs
Halldór Hermannsson á kratafundinum á ísafirði sl.
laugardag.
Vestfjarðakratar héldu framboðsfund á ísafirði um síðustu
helgi og var þar Sighvatur sjálfur mættur og fleira stórmenni.
Það bar helst til tíðinda á fundinum, að Halldór Her-
mannsson lýsti því yfir að hann ætlaði að kjósa Sighvat og
myndi hann styðja Alþýðuflokkinn með ráðum og dáð í
kosningabaráttunni.
Einhvern tíma hefðu þessi tíðindi þótt jafngilda því, að
sólin sortnaði á himinfestingunni.
Halldór rifjaði upp gamla daga þegar þeir Sighvatur
Björgvinsson voru að vaxa upp á Isafirði. Halldór er nokkrum
árum eldri en Sighvatur, en þeir ólust uþp í miklu nábýli niðri
á Eyrinni. „Þá batt ég Sighvat niður á sleða með hans eigin
trefli og dró hann þannig um allan bæ“, sagði Halidór. „En
nú er ég sestur á sleðann með honum.“
Súgandafjörður:
Villikettir, tófur og
minkar í byggð
í öllu fannferginu í Súgandafirði hefur sést til fjölmargra
villikatta í byggð og einnig hefur sést til tófu við Orkubús-
húsið við Eyrina að undanförnu. Tófan er mórauð og spök,
að sögn sjónarvotta.
í efstu byggð við flugvöllinn varð íbúi var við mink, sem
virtist hafa dottið niður á milli húsgafls og snjóskafls sem
liggur þétt að ofanverðu húsinu. íbúar hússins töldu réttast
að hafa glugga lokaða þar sem minkurinn var að athafna sig.
Tófur og minkar eru venjulegir gestir hér í byggð þegar
hart er í ári. Súgfirðingar eiga einnig dágott villikattastóð sem
telst vel á annan tuginn. Kettirnir fara í ruslapoka hvar sem
til þeirra næst, íbúunum til mikils ama, en allar tunnur eru á
kafi undir fönn þannig að einhvers staðar verða pokarnir að
vera.
Ekkert hefur verið gert til þess að stemma stigu við villi-
köttum á Eyrinni í nokkur ár, að frátöldum þremur köttum
sem meindýraeyðir skaut sl. sumar.
Sviptingar í Bolungarvík:
Vestfjarðaaðstoðin og
kaug Bakka hf. á meirihluta
í Ósvör hf. úr sögunni
- efasemdir um að kaup Heimaafls hf. á hlut í Ósvör hafi verið lögmæt
Bolunagrvík.
Á innfelldu myndinni má sjá Dagrúnu sem nú er vélarvana við bryggju og fyrir aftan hana er togarinn Heiðrún.
Ljóst er nú að ekkert verður
úr fyrirhuguðum kaupum
Bakka hf. í Hnifsdal á hlut
Bolungarvíkurkaupstaðar í O-
svör hf. Nýstofnað fyrirtæki í
Bolungarvík, Heimaafl hf.,
sem sextán aðilar standa að,
keypti um helgina með nokkuð
sviplegum hætti nægilega stór-
an hlut í Ósvör hf. til þess að
bæjarsjóður á ekki lengur
meirihluta í fyrirtækinu.
Forsenda þess að Bakki hf.
vildi kaupa sig inn í Ósvör hf.
var sú, að þar yrði um meiri-
hluta hlutafjár að ræða. Bakki
hf. er nú hættur við og þar með
verður ekki neitt úr því að hluti
Vestfjarðaaðstoðarinnar fari til
Bolungarvíkur.
Mikil ólga er í mönnum út af
þessu máli og verður hugsan-
lega látið reyna á lögmæti söl-
unnar til Heimaafls hf. fyrir
dómstólum. Mál þetta virðist
hið einkennilegasta, ekki síst
hvernig hægt var að selja hluta
af meirihlutaeign Bolungarvík-
urkaupstaðar í trássi við vilja
hans sjálfs.
Fram hefur komið í máli
forsvarsmanna Heimaafls, að
menn hafi haft af því áhyggjur
ef einn aðili í öðru byggðarlagi
eignaðist meirihluta í fjöreggi
Bolvíkinga og hefði þar með
aflaheimildir þeirra og allt ráð
þeirra í hendi sér. Hér hafi því
verið um nauðvörn heima-
manna að ræða.
Áform Bakka hf. í Hnífsdal
voru þau, að leggja fram veru-
legt fjármagn, svo næmi hund-
ruðum milljóna króna, til þess
að efla útgerð og fiskvinnslu í
Bolungarvík. Einnig hefði með
sameiningu fyrirtækjanna ver-
ið fullnægt skilyrðum um
framlag frá Vestfjarðaaðstoð
upp á 80 milljónir króna og
vilyrði var auk þess fengið fyrir
18 milljón króna niðurfellingu
á skuldum við Byggðastofnun.
Loks hefði skuldabyrði Bol-
ungarvíkurkaupstaðar lækkað
um fjórðung eða um 75 millj-
ónir króna og bærinn jafnframt
verið kominn út úr áhættu-
rekstri. Allt er þetta nú úr sög-
unni.
Hins vegar má fullyrða, að
öldurótið út af þessu máli mun
seint lægja, ef það gerir það þá
nokkum tímann að fullu.
PÓLLINN HF. ® 3092 Sala & þjónusta 0
Rafþjónusta Raftækjasala Rafhönnun Rafeindaþjónusta Siglingatæki Kælitæki PÖLLINN HF
IMýkomið mikið úrval af tölvuleikjum fynin PC tölvun á geisladiskum
og diskettum, meðal annars:
Wing Commander III, Tlte Lion King, Magic Carpet, Peter Pan, Creature Shock,
Under a Killing Moon - Einnin Iræðsluetni. stvrininnar. mvs ofl.
FLUGFÉLAGIO
ERNIR P
ÍSAFIROI
Sími 94-4200
Daglegt áætlunarflug
um Vestfirði. Leiguflug
innanlands og utan,
fimm til nítján farþega
vélar.
Brottför frá ísafirði
kl. 11 alla virka daaa.
Sjúkra- og
neyðarflugsvakt
allan sólarhringinn